Morgunblaðið - 22.09.1989, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
27
atiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Veikleikar Fisksins
í dag lýkur umfjöllun um
veikleika merkjanna á Fiska-
merkinu (20. feb. - 19. mars).
Eins og áður er hér fyrst og
femst verið að fjalla úm
mögulega veikleika hins
dæmigerða merkis. I fyrsta
lagi þurfum við að hafa í
huga að hver maður á sér
nokkur stjörnumerki og í
öðru lagi að við getum unnið
með veikleika okkar og því
er ekki víst að eftirfarandi
eigi við um alla Fiska.
Fer krókaleiðir
Eitt af því sem stundum háir
Fiskum er að þeim er illa við
deilur eða það að særa annað
fólk. Þeir eiga því stundum
erfitt með að ganga hreint
til verks þegar um óþægileg
mál er að ræða og eiga til
að fara krókaleiðir sem síðar
leiða til enn meiri erfiðleika.
Utan við sig
Þar sem Fiskurinn hefur
sterkt ímyndunarafl á hann
til að gleyma sér í eigin heimi
og er því oft utan við sig.
Hann gleymir því til dæmis
hvar hann lagði bílnum eða
á erfitt með að muna hvort
fundurinn hafi verið klukkan
hálf átta eða hálf níu. Það
að taka ekki alltof vel eftir
er því meðal veikleika Fisk-
anna.
Flókið val
Fiskar eru oft hæfileikaríkir
og hafa áhuga á mörgu. Það
getur leitt' til þess að þeir
eiga erfitt með að finna sig
eða vita hvað þá langar til
að gera. Það getur leitt til
rótleysis.
Órói
Nátengt framangreindu er
þörf fyrir Ijölbreytni og litríkt
líf. Fiskinum leiðist grár og
venjulegur veruleiki og fyllist
leiða og óróa, ef líf hans er
ekki spennandi. Fyrir vikið á
hann tii að vera órólegur og
oft óútreiknanlegur.
Draumlyndi
Fiskurinn liefur sterkt
ímyndunarafl. í einstaka til-
vikum leiðir það til draum-
lyndis og þess að margt er
hugsað en minna fram-
kvæmt. Þá er lifað í eigin
draumaheimi, horft út um
gluggann og gerðar áætlanir
sem síðan gufa upp.
ímyndun
Þessu sama ímyndunarafli
getur fylgt önnur hætta, eða
sú að hugsað er fram í
tímann og atburðir sviðsettir
og oft á þann veg að það
dregur úr framkvæmdasem-
inni. Sterkt ímyndunarafl
getur því leitt til kvíðatilfinn-
inga ef ekki er að gáð.
Ólgandi tiljinning-
ar
Þar sem Fiskurinn er mikið
tilfinningamerki á hann í ein-
staka tilvikum erfitt með að
ráða við tilfinningar sínar.
Hann á til að taka of mikið
inn á sig og missa stjórn á
sér, eða láta tilfinningar lita
viðhorf sín og skoðanir um of.
Óljóst sjálf
Að lokum má geta þess að
umburðarlyndi og skilningur
á högum annarra getur leitt
til þess að Fiskurinn gleymir
stundum sjálfum sél’. Ég
hans er því stundum óijóst.
Það má einnig segja að þó
Fiskurinn sé endanlega sjálf-
stæður þá á hann til að láta
aðra ráðskast of mikið með
sig á thnabilum eða fórnar
sér um of fyrir þá sem eiga
bágt. Skilningur hans og að-
lögunarhæfni hans getur
gengið út í öfgar og orðið
að áhrifagirni og þess að
aðrir misnota góðmennsku
hans.
GARPUR
GRETTIR
j?n\ m fe
10-11
ERO/Vt VIÐ DALITIE? VIÐ-
kVÆ/Mie Fveil? VIGTIMNI?
*
AIÍN VI&V
/mitt a<Ai_ ,
T-n. _
BRENDA STARR
FERDINAND
SMÁFÓLK
Ég hefi pakkað saman niatnum og
öllu herra. En þú?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur spilar út laufáttu gegn
sex tíglum suðurs. Suður hafði
opnað á sterku grandi og norðut'
yfirfæit í tígul.
Norður
♦ Á7
¥ 10432
♦ Á108754
♦ 2
Austur
♦ KG842
¥ KG8
♦ D
♦ G1096
Suður
♦ 10965
¥ Á97
♦ KG3
^ÁKD
Slemman er auðvitað fyrir
neðan allar hellur. Jafnvel þótt
trompdrottningin skili sér fyrir-
hafnarlaust, eru 11 slagir há-
markið með bestu vörn.
En reyndur sagnhafi reiknar
ekki alltaf með bestu vörn. Hann
sér vissa möguleika á kastþröng
í hálitunum takist honum að ein-
angra hjartavaldið með spaða-
lengdinni. Hann tekur tígulkóng
og fer inn á borð á tromp. Spil-
ar svo hjarta á níuna heima.
Vestur drepur á drottninguna,
og er svo „heppinn" að eiga
tromp til að spila.
Og nú er allt klárt. Laufslag-
irnir eru teknir og spaði tromp-
aður. Síðan er trompi spilað í
botn og austur þvingast í spaða
og hjarta. .
Kannski er ekki hægt að ætl-
ast til að vestur brjóti upp sam-
ganginn fyrir þvingunina með
því að spila hjarta til baka. Vill-
an liggur frekar hjá austri. Út-
spilið segir honum að sagnhafi
eigi ÁKD í laufi. Hann horfir á
6 tígulslagi í borðinu og spaðaás-
inn. Sagnhafi á örugglega
hjaitaásinn, og ef hann er líka
með drottninguna fær hann 12
slagi með svíningu. Því getur
aldrei kostað neitt að stinga upp
kóng eða gosa og taka völdin
af makker.
Vestur
♦ D3
¥ D65
♦ 962
+ 87543
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu alþjóðlegu móti í Varsjá
í Póllandi í vot- kom þessi staða
upp í skák alþjóðlega meistarans
Hans Ulrich Grunberg, 2.475),
A-Þýzkalandi, sem hafði hvítt og
átti leik, og Pólvetjans Bozek
(2.375). Svartur lék síðast 25. -
Hc8-d8.
26. Bxg7! - Hxd2, 27. Be5+ -
KU, 28. Dh5+ - Kg8 (Eða 28.
- Ke7, 29. Dxh7+ - Kd8, 30.
Dc7 mát) 29. Dg5+ og svartur
gafst upp, því eftir 29. - Kf7, 30.
Df6+ - Kg8, 31. Dh8+ - Kf7,
32. Dxh7+ er hann mát í næsta
leik. Grúnberg sigraði á mótinu.
Á meðal þátttakenda á því voru
þeir Karl Þorsteins og Hannes
Hlífar Stefánsson.