Morgunblaðið - 22.09.1989, Síða 30
3ft
M,QRPljNPI/LÐJÐ1 FQgTUDAGIyR,. 22, gEPTEMBER 1989
ffclK í
fréttum
Bókasýning var í innri sal Nýhafn-
ar. A myndinni eru frá vinstri Val-
gerður Kristjónsdóttir, Bjarnfríður
Guðmundsdóttir og Arnfríður Jón-
asdóttir.
MENNING
BÓKRÚN
5ÁRA
M
Utgáfufélagið Bókrún stóð fyrir 3
daga bókakynningu í listasalnum
Nýhöfn fyrir skömmu í tilefni af fimm
ára afmæli félagsins sem var í sumar.
Þijár Ijóðabækur voru gefnar út í til-
efni hátíðarinnar og voru þær kynntar
við þetta tækifæri og flutt tónlist.
Tónlist var flutt á afmæli Bókrúnar. Hér sjást þær Bryndís
Halla Gylfadóttir leika á selló og Hlíf Sigurjónsdóttir á fiðlu.
SKAPOFSI
Höfðu gleraugun brotið af sér?
Mikið var rætt um hjónaband
þeirra Madonnu og Seans
Penns á sínum tíma en það leið und-
ir lok og var skapstirðleika leikarans
Penns kennt um að mestu. Haft er
fyrir satt að þótt margir mánuðir séu
liðnir síðan að þau Madonna gengu
frá hjúskaparmálum sínum sé Penn
enn langt frá því að vera sáttur við
orðinn hlut og hefur hann til þessa
þurft minna tilefni til þess að skeyta
skapi sínu á nærstöddu(m).
Fyrir nokkru var til dæmis haldið
uppboð vestur í Hollywood og átti
allur ágóði af því að renna til líknar-
mála. Gripirnir á uppboðinu voru
hitt og þetta glingur úr fórum frægs
fólks. Sean Penn mætti manna fyrst-
ur og bauð stíft í sólgleraugu sem
fyrrum kona hans Madonna hafði
borið er hún lék annað aðalhlutverk-
ið í kvikmyndinni Desperatly Seeking
Susan. Töldu nærstaddir að Penn
vildi eignast eitthvað úr eigu Ma-
donnu sökum viðkvæmni. Það var
nú eitthvað annað. Eftir að gleraug-
Madonna með gleraugun sem
Penn braut.
un voru slegin Penn fyrir 500 doll-
ara, stormaði hann fram á næsta
baðherbergi, fleygði þeim í gólfið og
hoppaði ofan á þeim. Linnti hann
ekki látum fyrr en gleraugun voru
mölbrotin.
Agatlia
Christie
TIMAMOT
Haldið upp á aldar-
aftnæli Agöthu Christie
St Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
Anæsta ári eru liðin 100 ár
frá því leynilögreglusagna-
höfundurinn Agatha Christie
fæddist. Af því tilefni verður efnt
til veglegra hátíðarhalda.
í síðustu viku voru 99 ár liðin
frá því að Christie fæddist. Þá
efndi barnabarn hennar, Mathew
Pritchard sem er stjómarformað-
ur fyrirtækisins Agatha Christie
hf. ti! blaðamannafundar og
kynnti áætlanir um að efna til
viðamikilla hátíðarhalda á næsta
ári í tiiefni aldarafmælisins.
Agatha Christie varð fyrst
þekkt þegar skáldsaga eftir hana
kom út árið 1926. Þekktasta per-
sóna hennar er belgíski leynilög-
reglumaðurinn Hercule Poirot.
Aðeins Biblían og verk Shakespe-
are hafa selst í fleiri eintökum en
verk AgöthuChristie. Bækur
hennar hafa selst í tveimur mill-
jörðum eintaka á 45 tungumálum.
Leikrit hennar Músagildran er enn
leikið fyrir fullu húsi í Lundúnum
37 ámm eftir að það var sýnt
fyrst.
í sjónvarpi verða sýndir þættir
og myndir gerðar eftir sögum
hennar á komandi vetri. Ymis
verk hennar verða á fjölunum víða
um iand. Á næsta ári ber rós
nafn hennar á árlegri blómasýn-
ingu í Chelsea í Lundúnum.
í fæðingarstað Christie, Tor-
quay, verður mikið um dýrðir.
Sett verða á svið 3 leikrit og sýnd-
ar fjórtán myndir eftir verkum
hennar og ársfundur glæpasagna-
höfunda verður haldinn í bænum.
ÚTLITSBREYTING
Brooke Shields
breytir til
Það er ótrúlegt hvað ný hárgreiðsla og öðruvísi andlitsmálning getur
breytt konum mikið. Þær sem vilja breyta til ættu bara að líta á
leikkonuna Brooke Shields. Bandarískt kvennablað fékk hana til liðs við
sig til að sýna lesendum fram á að þeir gætu gjörbreytt útliti sínu með því
að leita til hárgreiðslu- og förðunarmeistara. Breytingin á Brooke er vissu-
lega athyglisverð, hún er eins og ný kona.
COSPEK
SUMARFRÍ
KÓNGAFÓLK
í SIGLINGU
Breska konungsfjölskyldan fór saman í
sumarleyfí í ágúst. Elísabet Bretadrottn-
ing og eiginmaður hennar Filip prins fóru í
siglingu með skipinu Britannia og í för með
þeim voru Karl Bretaprins og Díana og Andr-
és hertogi af Jórvík með eiginkonu sinni og
dóttur. Litla Beatrice prinsessa er ekki nema
eins árs gömul en hún er þegar farin að
fylgja foreldrum sínum í alls konar ævintýra-
ferðum. Nú hefur verið tilkynnt að hún eigi
von á litlu systkini í mars nk. Andrés er í
breska flotanum og svo virtist sem dóttir
hans kynni jafn vel við sig á sjónum og hann.
Sara, hertogaynja af Jórvík, stígur með litlu dóttur
sína uin borð í skipið Brítanniu. Skðmmu eflir að
myndiu var tckin var skýrt formlega frá því, að Sara
gengi með annað barn undir belti.