Morgunblaðið - 22.09.1989, Page 36
36
MORGUNSLAÐIÐ iPÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
Ást er. . .
liTmnnrn
"“Ttlf
. . . að koma fram við
hana eins og forsetafrú.
TM Reg. U.S. Pat Off — all rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Ég heimta að fá félags-
fræðing, til að tala við ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Meira popp
á lang-
bylgjuna
Til Velvakanda.
Laugardaginn 9. september birt-
ist bréf frá Oddi, sem óskaði eftir
minna poppi á Rás 1. Þessu vil ég
fyrir hönd sjómanna mótmæla alveg
harðlega. Við þurfum meira og
minna að reiða okkur á langbylgju-
sendingar Rásar 1 og heyrum varla
FM, hvorki Rás 1 né Rás 2, nema
helst á grunnslóð. Þegar komið er
lengra út heyrum við ekkert nema
Rás 1 og við þurfum okkar popp
eins og annað ungt fólk.
Væri ekki hreinlega hægt að
færa meira efni af Rás 2 yfír á
langbylgju. Rásin er með bestu
þættina. Ég ætla ekki að nöldra en
vil biðja ráðamenn hjá RÚV að at-
huga þetta. Svo ætla ég að þakka
þeim fyrir næturútvarpið á lang-
bylgjunni og mjög fjölbreytt efni
sem þar er flutt nú orðið. Við sjó-
menn kunnum vel að meta þessa
góðu þjónustu. Sjómaður
Skelfíleg áform um skattahækkanir
Til Velvakanda.
Kæri vinur minn, Ólafur Ragnar.
Mikið varð ég undrandi og sár
þegar þau tíðindi spurðust út að
enn ætti að hækka skatta, en að-
eins á þeim hópi einum sem ætti
börn og hefði ráðstöfunartekjur 200
þús á mánuði. Þannig væri tryggt
með niðurfellingu barnabóta hjá
þessum hópi að byrðum þjóðfélags-
ins væri enn óréttlátar dreift en
áður hefur verið.
Þú hefur bersýnilega ekki gert
þér grein fyrir því að þetta myndi
koma langhai’ðast niður á þeim
hópi fólks sem er á aldrinum 20-40
ára. Einmitt sama hópi og stendur
oftast í því að koma yfir sig hús-
næði, og sætir verulegri skerðingu
á vaxtafrádrætti með upptöku
vaxtabóta.
Barnabætur eru hluti af skatt-
kerfinu, eins og sjómannaafsláttur,
húsnæðisbætur og vaxtafrádráttur.
Með því að skerða barnabætur til
þessa hóps eins er hreinlega verið
að hækka skattprósentu þessa
hóps.
Undrandi hef ég áður verið, en
aldrei eins og nú. Gerir fólk sér
grein fyrir að hjá foreldrum þriggja
barna er þetta skattahækkun upp
í 150 þús. á ári, e.t.v. hjá ungum
hjónum, þar sem annað hjóna er
með 140 þús. á mánuði og hitt með
70 þús. á mánuði. Laun að frá-
dregnum sköttum og lífeyrissjóðs-
og stéttarfélagsgjöldum eru 160
þús. á mánuði, bamagæsla er 42
þús. húsnæðiskostn. er 40 þús. Þá
standa eftir 78 þús. á mánuði í all-
an mat, rekstur bifreiðar, trygging-
ar, fatnað og annað. Barnabæturn-
ar hafa í reynd verið geysilegur
styrkur, en t.d. fjarri því að greiða
dagmömmum og leikskólapláss. Nú
eru hins vegar áform uppi um að
taka barnabæturnar af þessum
hópi.
Grein þesi er ákall til forsætis-
og ijármálaráðherra um að hætta
við þau skelfilegu áform að fella
niður barnabætur. Væri ekki nær
að snúa sér að skattsvikurunum í
stað þess að elta uppi barnafólk.
Er þess óskað að forráðamenn þjóð-
arinnar hverfi frá þessum áformum,
séu raunverulega uppi áform um
þetta.
Einn undrandi
Víkverji skrifar
Islandsmót það í knattspymu, sem
lauk síðastliðinn sunnudag, var
sérstaklega spennandi og úrslit réð-
ust ekki fym en í síðustu umferð.
Þau voru í takt við annað í þessu
móti; óvænt og jafnvel ótrúleg. Menn
hafa leikið sér að því í allt sumar
að spá um úrslit leikja og lokastöðu
í deildinni, en vægast sagt með mis-
jöfnum árangri. Marga spádóma
hafði Víkveiji heyrt áður en loka-
staðan lá fyrir, í rauninni svo marga
að einhveijir hljóta að hafa rætzt.
Spjall á miðju sumri við séra Pálma
Matthíasson, fyrrum sóknarprest á
Akureyri, nú í Bústaðasókn, er sér-
staklega eftirminnilegt þegar hugsað
er til liðins íslandsmóts. Séra Pálmi
sagði þá við skrifaraj að KA-menn
ynnu deildina og yrðu Islandsmeistar-
ar í fyrsta skipti. Hann hafði dreymt
fyrir úrslitum mótsins á táknrænan
hátt og hvernig sem allt veltist í
baráttunni inni á vellinum var draum-
urinn ávallt í huga þessa fyrrum blak-
og handboltaleikmanns með KA.
Fáum sagði Pálmi frá draumnum,
en lét þó Guðjón Þórðarson vita af
honum og það þegar um síðustu ára-
mót.
xxx
Knattspyrnumenn halda sína
uppskeruhátíð í kvöld og án efa
verður mikið um dýrðir. Leikmenn-
imir velja þá beztu úr sínum hópi
og margvíslegar viðurkenningar
verða veittar. Af þjálfurum 1. deildar-
liðanna í sumat' vekur það athygli
að tveir yngstu þjálfaramir tróna
með lið sín á toppi deildarinnar, Guð-
jón Þórðarson þjálfari KA og Olafur
Jóhannesson þjálfari FH. Frammi-
staða þessara ungu manna er sér-
staklega athyglisverð, Guðjón tryggði
Akureyringum íslandsbikarinn í
knattspyrnu í fyrsta skipti og Olafur
kom liði FH í Evrópukeppni, en
slíkum árangri hefur Hafnarfjarðar-
liðið ekki náð áður.
xxx
Ríkissjónvarpið sýnir um helgina
frá Ryder-keppninni í golfi og
mun þetta vera í fyrsta skipti, sem
sýnt er beint frá golfkeppni í sjón-
varpi hérlendis. Á þriðjudag sýndi
sjónvarpið þátt þar sem keppnin var
kynnt og greint frá helstu úrslitum
í keppninni þá áratugi, sem hún hef-
ur farið fram. Hroðvirkni við þýðingu
eða textun myndarinnar vakti sér-
staka athygli og óánægju Víkvetja.
Svo dæmi séu nefnd þá var Faldo
bæði kallaður Feldo og Fowlder og
Stadler vat'ð Stagler. Er enski þulur-
inn sagði frá því að allt væri jafnt
kom íslenzki textinn og greindi frá
því að brautin væri þráðbein! Sem
betur fer verða áhugamenn um golf
í sjónvatpssal á morgun og sunnudag
og fylgjast með framvindunni í Ryd-
er-keppninni.
xxx
Vakthafandi Víkverja hefurborizt
bréf frá einum af skipuleggjend-
um styrktamannaketfis Sjálfstæðis-
flokksins vegna skrifa um það síðast-
liðinn laugardag. í bréfinu segit'
meðal annars:
„Víkvetji sagði að það væri ljóður
á viðhorfskönnuninni að hún byðist
aðeins styrktarmönnum. Þetta er
ekki alveg rétt. Viðhorfskönnunin
stendur styrktarmönnunum til boða,
en aðrir sjálfstæðismenn geta einnig
gerst áskrifendur að henni. Þetta
hefur komið fram í Flokksfréttum
miðstjórnar .Sjálfstæðisflokksins, en
kemur ekki fram í kynningarbækl-
ingi um styrktarmannakerfið, og
kann misskilningur Víkvetja að stafa
af því.
Styrktarmenn þurfa ekki að greiða
sérstaklega fyrir að taka þátt í við-
horfskönnuninni, en aðrir sjálfstæðis-
menn sem óska eftir áskrift greiða
500 krónur á ári fyrir beinan kostnað
við 2 til 3 viðhorfskannanir. Þar er
um að ræða vinnu við að sernja kann-
anirnar, ijölrita og senda út, og vinna
úr þeim.
Þátttakendur greiða fyrir áskrift
af þeirri einföldu ástæðu að ekki
þykir rétt að láta aðra greiða kostn-
aðinn. Viðhorfskönnunin stendur öll-
um áhugasömum sjálfstæðismönnum
til boða, og er ný og athyglisverð
leið fyrir flokksmenn til að láta heyra
í sér, og gagnleg forystu flokksins
til að hlusta á sjónarmið. Þessi könn-
un er á engan hátt bindandi fyrir
forystu Sjálfstæðisflokksins. Hægt |
er að gerast styrktarmaður og/eða
áskt'ifandi að viðhorfskönnun á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins."
Víkvetji, sem ekki er reglulegur
lesandi Flokksfrétta miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins, þakkar upplýs-
ingamar.