Morgunblaðið - 22.09.1989, Side 40
\ea\
EINKAREIKNINGUR ÞINN
í LANDSBANKANUM m
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Bylgjan kaup-
ir þrotabú
Stjörnunnar
BÚSTJÓRI þrolabús Hljóðvarps
h/f, sem rak útvarpsstöðina
Stjörnuna, undirritaði í gær-
kvöldi kaupsamning við Islenska
útvarpsfélagið, sem rekur Bylgj-
una, um kaup á eignum þrotabús-
ins.
Brynjólfur Kjartansson bústjóri
staðfesti þetta í gærkvöldi og sagði
samninginn undirritaðan með fyrir-
vara um samþykki skiptaráðanda.
Hann vildi ekki gefa upp kaupverð
að svo stöddu. Að sögn Brynjólfs
Kjartanssonar mun Islenska út-
varpsfélagið taka við rekstrinum
klukkan 15 í dag.
Vatni hleypt
á Nesjavalla-
æðina í
fyrsta skipti
VATNI var hleypt á Nesjavalla-
æð í gær í fyrsta skipti. Var það
gert til þess að þrýstiprófa
leiðsluna. Stefht er að því að
Nesjavallavirkjun verði tilbúin
til tilraunareksturs í júní á
næsta ári og veturinn 1990-
1991 verði vatn frá Nesjavöllum
byrjað að hita upp hús Reyk-
víkinga.
Nesjavallaæð er 27 kílómetra
leiðsla sem liggur frá Nesjavalla-
virkjun í Grafningi að hitaveitu-
geymunum í Grafarholti fyrir ofan
Reykjavík. Köldu vatni úr Bullaug-
um var dælt inn á leiðsluna í gær
til þrýstiprófunar. Leiðslan var
þrýstiprófuð frá Grafarholti upp
undir Hengisfjöll, eða um 23-24
km af leiðslunni. Mikill þrýstingur
var settur á leiðsluna til að kanna
hvort suðusamskeyti haldi. Ef allt
reynist í lagi verður byijað að ein-
angra leiðsluna.
Að sögn Árna Gunnarssonar
yfirverkfræðings Hitaveitu
Reykjavíkur er Nesjavallaveitan á
áætlun. Tilraunarekstur hefst í
júní á næsta ári og ef áætlanir
standast verður 100 megavatta
virkjun tilbúin fyrir veturinn
1990-1991. Þá mun heitt vatn,
sem runnið hefur í 27 km leiðslu
frá Þingvöllum, byija að hita upp
hús á höfuðborgarsvæðinu.
Seðlabankaaðstoð vegna kaupa
Landsbanka á Samvinnubanka:
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Eftir velheppnaða æfíngu
SLOKKVILIÐ Grindavíkur stendur atvinnuliðum síst að baki að mati
starfsmanna Brunamálastofnunar íslands. Þetta kom í ljós þegar
starfsmenn Brunamálastofnunar voru á ferð í Grindavík nýlega og
fylgdust með æfingu hjá slökkviliðinu. Þorkell Guðmundsson slökkvi-
liðsstjóri var mjög ánægður með sína menn að lokinni æfingu og á
myndinni er hann ásamt Guðmundi Haraldssyni og'Guðmundi Bergs-
syni. Þorkell sagði að 24 fastamenn og 3 varamenn væru í slökkvilið-
inu sem æfði reglulega einu sinni í mánuði. Hann gat þess að lokum
að ný 450 fermetra slökkvistöð yrði vígð í haust sem breyta muni
aðstöðu slökkviliðsins að miklum mun.
Losað um reglur
um lausafjárstöðu
og bindiskyldu?
LANDSBANKI íslands mun væntanlega fara þess á leit við Seðla-
bankann, að hann aðstoði Landsbankann við kaup bankans á Sam-
vinnubankanum, með því að hliðra til með „þær skyldur sem eru
á viðskiptabönkunum, varðandi lausafjárstöðu, bindiskyldu og
fleira,“ eins og Valur Arnþórsson, Landsbankasljóri og fyrrver-
andi stjórnarformaður Sambands íslenskra samvinnufélaga kemst
að orði í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Hann segir að ekki sé verið að
ræða um að „parkera" 1,6 millj-
arða skuld Sambandsins í Sam-
vinnubankanum í Seðlabankanum
til 15 ára, eins og forsætisráð-
herra hefur komist að orði. Valur
Arnþórsson segir, að til greina
geti komið, að aðrir viðskiptabank-
ar komi inn í kaupin á Samvinnu-
bankanum, þar sem það félli vel
að útibúakerfi þeirra, og taki þá
Sambandið að einhveiju leyti í við-
skipti. Þannig mætti dreifa skuld-
um Sambandsins.
Sjá viðtal við Val: Vinn ekki
að björgun Sambandsins, held-
Sala á þurrkuðum þorskhausum:
Ekkert hefiir verið selt
af framleiðslu Herðis hf.
ur hagsmunamálum
bankans, bls. 16.
Lands-
Blönduós:
Hlutafélag stofio-
að um kaup á bát
FJÖLMENNUR undirbúnings-
fundur var haldinn á Blönduósí í
gærkvöldi um stofnun almenn-
ingshlutafélags um kaup á 103
tonna bát, Ófeigi VE 324 til
Blönduóss.
Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á
Blönduósi upplýsti að hlutafé þyrfti
að vera 20 milljónir og lægju nú
fyrir loforð upp á um 14 milljónir.
Ofeigur VE 324 kostar 70 milljónir
með 469 t. kvóta. Góð samstaða er
á Blönduósi og í nágrannasveitarfé-
lögum um kaupin. Blönduósbær
verður stærstur hluthafa í hinu nýja
útgerðarfyrirtæki en ekki er ljóst
hvert framlag Svínavatns- og Torfa-
lækjarhreppa verður. j(-)n gj^
EKKERT hefur enn verið selt af þeim 120 tonnum af þorskhausum
sem Herðir hf. í Fellahreppi á Héraði hefur þurrkað frá því í apríl
síðastliðnum þegar fyrirtækið tók til starfa. Asiaco hf. hefúr verið
að reyna að selja framleiðsluna til Nígeríu en erfiðlega hefur geng-
ið að fá bankaábyrgðir vegna sölunnar þar sem Nígeríumenn skort-
ir gjaldeyri, að sögn Magnúsar Ó. Schram, aðstoðarframkvæmda-
stjóra Asiaco. Fyrirtækið býst þó við að bankaábyrgðir vegna sölunn-
ar fáist bæði í Kanada og Bretlandi.
„Þorskhausanir verða ekki fluttir
út án bankaábyrgðar. Mjög sterkar
líkur eru hins vegar til þess að þetta
sé að smella í liðinn og þessir hlut-
ir ættu að skýrast innan fárra
daga,“ sagði Magnús Ó. Schram.
Pálmi Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri Herðis hf., sagði að
enginn hefði átt von á að sala á
þurrkuðum þorskhausum brygðist,
því alít árið 1988 og fram á þetta
ár hefði verið jöfn og góð afskipun
á þorskhausum. „Við höfum fengið
þorskhausa allt frá Djúpavogi til
Borgarfjarðar eystri og reiknum
með að geta unnið 300 tonn af
þorskhausum á ári,“ sagði Pálmi.
Hann sagði að 9 manns hefðu unn-
ið hjá fyrirtækinu í sumar. „Við
þurrkum einnig saltaðan bútung
sem Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda selur fyrir okkur til
franskrar eyju í Indlandshafi."
Nígeríumenn greiða nú 70
Bandaríkjadali fyrir kílóið af haus-
um með klumbu og 60 dali fyrir
hausa án klumbu, sem er 10% lægra
verð en í fyrra, að sögn Sigurðar
Njálssonar hjá Sambandinú.
„Nígeríumenn greiða svipað verð
fyrir skreið og í fyrra. Hins vegar
fæst 5-11% lægra verð í Banda-
ríkjadölum fyrir skreið sem seld er
til Ítalíu,“ sagði Sigurður.
Hannes Hall, framkvæmdastjóri
Samlags skreiðarframleiðenda,
sagði að í Nígeríu væri 10% tollur
á þorskhausum en 50% á skreið.
Hannes sagði að nú væri erfiðara
en í fyrra að fá bankaábyrgðir fyr-
ir þorskhausum og skreið til Nígeríu
vegna skorts á gjaldeyri þar.
Morgunblaðid/Einar Falur
Mustava Coka.
Vill hæli sem
Belgískt fyrirtæki vill kaupa
bílabirgðir af umboðimum hér
TVEIR fulltrúar belgísks fyrirtækis voru á ferð hér á landi fyrr í vik-
unni og Ieituðu eftir því að kaupa bíla, sem islensku bílaumboðin áttu
óselda af eldri árgerðum. Eftir þvi sem næst verður komist buðu þeir
staðgreiðslu, en mjög lágt. verð. Óljóst er hvort þeir ætluðu að selja
bílana og ekki hefur frést af neinu umboði sem hefur selt þeim. Morgun-
blaðið hefur þó frétt, að eitt umboð heldur þeim möguleika opnum.
Belgarnir virðast hafa komið að
máli við talsmenn flestra eða ailra
umboðanna. Af samtölum við nokkra
forsvarsmenn umboðanna má ráða,
að Belgarnir segðu ekki alls staðar
sömu söguna um hvað yrði um bílana
að viðskiptum loknum, ýmist að selja
ætti þá í Belgíu, suður til Italíu eða
til Afríku.
Eyjólfur Brynjólfsson fram-
kvæmdastjóri Jöfurs segir að þeir
hafi helst viljað Cherokee-jeppa og
sagst ætla að selja þá til Ítalíu. Ey-
jólfur segist hafa tjáð þeim að slíkt
bryti í bága við samninga framleið-
anda og umboðsfyrirtækis á því sölu-
svæði, en þeir sagt að fyrir því væri
séð. „Mér fannst það á lyktinni að
það ætti að selja bílana til Afríku,
eða annarra landa sem eru á bann-
lista,“ sagði Eyjólfur. Belgarnir
gengu bónleiðir til búðar frá Jöfri,
þar sem engan bíl var að fá.
Þeir heimsóttu einnig Svein Egils-
son hf. og segir Þórir Jónsson for-
stjóri að þeir hafi helst viljað Fiat
og enga fengið. Hann kveðst ekkert
hafa haft til að selja þeim.
Bjarni Ólafsson hjá Bílvangi segir
að ekki hafi verið lokað á að selja
þeim, en hins vegar hafi ekki verið
gengið frá neinu slíku. „Enda eru
þetta ekki viðskipti sem maður stekk-
ur á,“ sagði Bjarni. Hann sagði þá
hafa boðið mjög lágt verð. Við-
mælendur Morgunblaðsins voru allir
undrandi á að Belgarnir gerðu sér
ferð hingað til lands að leita eftir
þessum viðskiptum, sérstaklega í
ljósi þess, að í Belgíu og einkum í
nágrannalandinu Lúxemborg, eru
bílar mun ódýrari en hér á landi. Ein
skýring gæti verið að þeir leituðu
eftir bílum sem takmarkað framboð
er af í Evrópu, eins og Fiat og
Cherokee, önnui' að þeir séu að út-
vega bíla á einhvern „gráan" mark-
að, að mati viðmælenda blaðsins.
Árni Bjarnason hjá íslensku
umboðssölunni sagði að mun meira
hefði verið framleitt af þorsk'naus-
um fyrir Nígeríumarkað í ár en í
fyrra, svo og skreið fyrir Ítalíu-
markað. Hins vegar hefði lítið verið
framleitt af skreið fyrir Nígeríu-
markað, bæði í ár og í fyrra. Árni
sagði að verðbólga í Nígeríu væri
mjög mikil og meðallaun þar væru
einungis 30-40 Bandaríkjadalir á
mánuði, eða 1.800 til 2.400 krónur.
Til Nígeríu voru seld samtals
2.040 tonn af þorskhausum fyrir
140 milljónir króna í fyrra. Haus-
arnir hafa nær eingöngu verið seld-
ir til Nígeríu og undanfarin ár hafa
stærstu útflytjendurnir verið ís-
lenska umboðssalan, Sambandið og
Samlag skreiðarframleiðenda.
í fyrra voru seld samtals 1.485
tonn af skreið fyrir 589 milþ'ónir
króna-, þar af 954 tonn til Italíu
fyrir 489 milljónir kt'óna og 402
tonn til Nígeríu fyrir 50 milljónir kr.
pólitískur
flóttamaður
TYRKNESKUR Kúrdi æskti
hér hælis sem pólitískur
llóttamaður undir lok júlí.
Útlendingaeftirlitið yfirheyrði
manninn í sumar og mál hans
er nú til umfjöllunar í dóms-
málaráðuneytinu.
Kúrdinn Mustava Coka segist
hafa flúið frá Tyrklandi 1986
og hefur síðan verið í Danmörku
og Noregi. Hann dvelst nú á
sveitabæ í Austur-Húnavatns-
sýslu.
Að sögn Karls Jóhannssonar
hjá útlendingaeftirlitinu höfðu
norsk yfirvöld ákveðið að synja
Coka um landvistarleyfi en úr-
skurðurinn ekki verið birtur hon-
um með formlegum hætti þegar
hann fór til íslands.
Sjá bls. 23.