Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
15
TT
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jónas Ingimundarson pianoleikari.
Lj óðatónleikar
_________Tónlist____________
RagnarBjörnsson
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Jónas Ingimundarson píanóleikari
komu fram á ljóðatónleikum í
Gerðubergi sl. mánudagskvöld.
Mjög áhugaverða og vel upp-
byggða efnisskrá fengu áheyrend-
ur í hendurnar er þeir gengu inn
í tónleikasal Gerðubergs. Fyrri
hlutinn íslensk, norsk og dönsk
ljóð, og ekki úr þeim hlutanum
sem íslenskir söngvarar virðast
aðallega halla sér að. Hér voru
flest verkefnin lítt þekkt og að
því leyti a.m.k. áhugaverð, en
höfundar þeirra voru Jórunn Við-
a*r, E. Grieg og P. Heise. Af þess-
um verkefnum kom lagaflokkur-
inn „Dyvekes Sange“ eftir Heise
mest á óvart og efins er ég að
hann hafi áður verið fluttur á tón-
leikum hérlendis. Auk þess að
vera tónskáld var Heise söng-
kennari og vissi því hvað mátti
bjóða söngröddinni enda eru þessi
lög úr „Dyvekes Sange“ perlur
sem Ólöf kunni að notfæra sér,
slíkur listamaður sem hún er. En
ljóðasöngur er líklega kröfuharð-
asta form tónlistarflutnings sem
söngvari fær í hendumar. Þar
má ekkert út af bregða, hvorki
raddlega, í textaframburði, sviðs-
hreyfingum og fleira ef draumur-
inn um að nálgast toppinn á að
vera einhvers staðar nálægur.
Ólöf er löngu búin að ávinna sér
sess sem óperusöngkona en að
þessu sinni kom hún undirrituðum
á óvart sem ljóðasöngkona. Lengi
má leita uppi einhveijar veilur hjá
hvaða listamanni sem er, en hæst
náði Ólöf e.t.v. að þessu sinni þar
sem hún söng veikt og tókst að
halda hreyfingum og tilfinningum
I listrænum böndum. Hins vegar
skil ég aldrei þann ávana hjá
íslenskum söngvurum að benda á
píanóleikarann þegar undirtektir
áheyrenda eiga að beinast að hon-
um. Önnur leið er til. Jónas Ingi-
mundarson er orðinn mjög rútin-
eraður píanóleikari með söngvur-
um, skilaði sínu hlutverki enda
vel með mjúkum áslætti og fallega
mótuðum hendingum sem undir-
rituðum fannst á stundum um of
rómantíseraðar, en það er e.t.v.
smekksatriði. Smekksatriði er
ekki að píanóhluturinn í Stándc-
hen (Strauss) er tæknilega einn
sá erfiðasti sem hægt er að lenda
í og hann verður að þrælæfa, að
öðrum kosti að sleppa honum.
Framtak Gerðubergs í sam-
bandi við ljóðatónleikahald vetrar-
ins er skemmtilegt og virðingar-
vert, en um leið og fróðlegt verð-
ur að kynnast öllum þessum
söngvurum, væri einnig fróðlegt
að kynnast fleiri píanóleikurum
en Jónasi, þrátt fyrir hans ágæti.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar og VMSI:
Krafa um verðtrygg-
íngu launa ósköp eðlileg
„Þessi krafa er ósköp eðlileg, vegna þess að lán eru verðtryggð,
landbúnaðarvörur eru verðtryggðar og það er flest verðtryggt í
þessu þjóðfélagi nema vinnulaun," sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamanna-
sambands íslands, aðspurður um þá skoðun Ásmundar Stefánssonar,
forseta Alþýðusambands íslands að krafan í næstu kjarasamningum
hljóti að vera um verðtryggingu launa.
Guðmundur sagði að á hinn bóg-
inn gæti vísitala valdið keðjuverkun
og hún hefði oft gefið ákaflega
hæpna raun, en meðan verðbólga
ríkti og allt annað verðtryggt í
kringum fólk eins og nýleg hækkun
á vöxtum til að mynda væri dæmi
um og fólk sæi allt á hreyfingu í
kringum sig þá væri ekki nema
vonlegt að það ókyrrðist.
„Þetta á sér sterkan hljómgrunn.
Meðan verðbólgan er svona og
stjórnvöld hafa ekki náð verðbólgu
niður meira heldur en verið hefur,
er þetta auðvitað ákaflega rökrétt
afleiðing. Fólk er þreytt á að allir
hlutir hækki, annað hvort eftir verð-
tryggingum eins og landbúnaðar-
vörur eða með beinni tengingu eins
og lán. Er hægt að hafa þetta þjóð-
félag þannig að bara launin ein séu
óverðtryggð?" sagði Guðmundur.
Hann sagðist hins vegar sann-
færður um að yfirgnæfandi ijöldi
fólks myndi frekar vilja að verðlag
lækkaði, en að lauh og vörur hækk-
uðu. „En meðan einhliða hækkanir
eru á vöruverði og lánum og bank-
ar standa gikkfastir á því að vextir
verði að vera í samræmi við verð-
bólguna, þá spyr hinn almenni
maður: Nú má ég þá ekki fá verð-
tryggingu líka? Og ég er ekki hissa
á því.“
Brotist inn
í Borgar-
bókasafiiið
DRUKKINN maður braut þrjár
rúður í Borgarbókasafninu við
Þingholtsstræti um klukkan 23
í fyrrakvöld. Oryggiskerfi Vara
fór í gang við innbrotið.
Maðurinn var kominn inn í
Borgarbókasafnið þegar lögreglan
kom á staðinn en virtist þó ekki
hafa skemmt neitt innanhúss. Lög-
reglan taldi ólíklegt að maðurinn
hefði brotist inn í safnið vegna
lestrarfýsnar.
nn(u
Nýjar þýskar
og danskar
haustsendingar
co
CI
<
m
co
Q
0
Vandaöur og glæsilegur fatnaöur
cz
z
VERSLUNARHÚSINU MIÐBÆR
HÁALEITISBRAUT 58-60 S: 38050 105 RVK.
'a kynnir:
SYKURMOLARNIR
„HERE TODAY TOMORROW NEXT WEEK“
Önnur breiðskífan sannar svo ekki verður um villst
að Sykurmolarnir eru komnir til að vera...
Hér er á ferðinni frumlegt, en umfram allt
skemmtilegt popp með algera sérstöðu.
Eftirvæntingarfull bið er á enda. Fæst í öllum betri
hljómplötuverslunum á LP, CD, kass. og á
silfurvinyl (takmarkað upplag!)
Nýjar íslenskar útgáfur í næstu viku:
HAM - Buffalo Virgin (LP,CD)
Bootlegs - Klósettskrímslið (LP)