Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989 17 TOLVU- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þar er tölvupappírinn vel geymdur. Múlalundur > 5 z> Q I £ Þriðja Bókaþingið haldið í dag1 BÓKASAMBAND íslands gengst fyrir Bókaþingi 1989 á Hótel Loftleiðum á fimmtudaginn, 5. október, um stöðu bóka í íslensku þjóðlífi á líðandi stund. Á þessu bókaþingi verður fjallað um stöðu bókasafna í landinu, starfsgi-undvöll þeirra og þjónustu, þá verða flutt erindi undir yfirskrift- inni „bókmenning og bókakaup“ en þriðji þáttur þingsins snýst um skatta á bóklestur með hliðsjón af upptöku virðisaukaskatts um ára- mót. Flutt verða fjölmörg stutt erindi en einnig verða tvívegis pallborðs- umræður á þinginu sem stendur frá kl. 9 að morgni til kl. 16 síðdegis. Titlar allra erinda sem flutt verða á þinginu eru í formi spurninga svo sem: Skipta bækur máli? Eiga höf- undar að græða á bókasöfnum eða öfugt? Eru bókasþfn sveitarfélög- unum of dýr? Eru íslendingar bóka- þjóð eða bókagjafaþjóð? Á að skatt- leggja íslenskar bækur? Meðal ræðumanna á þinginu verður Svavar Gestsson, mennta- málaráðherra, en hann svarar spurningunni: Hvernig eflum við bókmenningu þjóðarinnar? Bókaþing 1989 er opið öllum áhugamönnum um bækur og menn- ingarmál og er aðgangur ókeypis. Þetta er í þriðja sinn sem Bóka- samband íslands heldur slíka ráð- stefnu undir nafninu Bókaþing, en sambandið var stofnað 1986. Bóka- sambandið hefur það markmið að auka veg bóka á íslandi og beita sér fyrir aðgerðum og umræðu sem örvað geti bókmenntasköpun, út- gáfu, framleiðslu, dreifingu og lest- ur bóka. Einnig er sambandinu ætlað að vera vettvangur skoðana- skipta fyrir þá er tengjast bókum. Áð Bókasambandi íslands standa: Bókavarðafélag ísiands, Félag bókagerðarmanna, Félag íslenskra bókaútgefenda, Félag íslenskra bókaverslana, Félag íslenska prentiðnaðarins. Hagþenk- ir, Rithöfundasamband íslands og Samtök gagnrýnenda. Formaður Bókasambands ís- lands er Ólafur Ragnarsson, útgef- andi. (Fréttatilkynning) ÞJÓÐA R NÝ HÁRNÁKVÆM SÖGUSKÝRING ÓMARS. HEFST 7 OKIÖBER Æringinn ÓMAR RAGNARSSQN tekur bakföll inn á sögusviöiö og þeysir meö okkur 30 ár aftur í tímann. Ekkert er heilagt og engum hlíft - höfðingjar reynast hrekkjalómar og kennimenn kroppar. - Þetta er Ömar eins og hann reynist óútreiknanlegastur. Til fulltingis Ómari eru: Arftaki hláturvélarinnar HEMMI fíUNN.; Næturgalinn Ijúfi HELGA M0LLER; Læknir- inn tónelski rlAUKUR HEIÐAR; LEYNIGESTUR og hljómsveitin EINSDÆMI sem heldur uppi dúndrandi stemmningu langt fram á nótt. LISTAGÓÐUR MATSEÐILL (Val á réttum.) MIÐAVERÐ (m. mat) 3600 kr. Húsiö opnar kl. 19 KOSTABOÐ: Aðgöngumiði með mat og gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi með morgunmat 5150 á mann. ( Gildir jafnt fyrir borgarbúa sem aöra landsmenn ) Stjórnandi: BJÖRN BJÖRNSSON. Útsetningar: ÁRNI SCHEVING. ( Ljós: KONRÁÐ SIGURÐSSON. Tæknimaður: JÓN STEINÞÓRSSON Pöntunarsími: Virka daga frá kl. 9-17, s. 29900. Föstud. og laugard. eftirkl. 17, s. 20221. Aðalfimdur Okkar manna í kvöld: Rætt um fr étt- ir af lands- byggðinni AÐALFUNDUR félagsins Okkar menn, sem er félag fréttaritara Morgunblaðsins, verður haldinn í Hótel Holiday Inn í kvöld og hefst klukkan 19.30. Auk venju- legra aðalfiindarstarfa verð- ur sérstakt umræðuefni, Fréttir af landsbyggðinni. Á fundinum verða afhentar viðurkenningar fyrir fréttir mánaðarins frá síðasta aðal- fundi. Félagið Okkar menn hef- ur starfað í fjögur og hálft ár. í því eru rúmlega hundrað inn- lendir fréttaritarar Morgun- blaðsins sem búsettir eru um allt land. Stjórn félagsins hvetur fé- lagsmenn til að fjölmenna. (Fréttatilkynning) ITOLSK V I K A í KRINGLUNNI 28. sept. - 7. okt. ítalskar vörurÆZTTískusýningar Tónlist ffll Kaffihús ZZZ7 ítalskur ' matur ŒB Ferbakynningar HB /©Getraun, vinningur: ferö fyrir tvo til Ítalíu IM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.