Morgunblaðið - 05.10.1989, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
Greinargerð fjármálaráðherra til BSRB:
Þorsteinn Pálsson:
Landsfiindur flokks-
ins kýs sér forystu
- tek ekki afstöðu hvað varðar
Kaupmáttaraukning
hjá liinuin tekjulægstu
Allir aðrir en viðmiðunarhópur flár-
málaráðherra hafa orðið fyrir kjara-
skerðingu, segir formaður BSRB
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjármálaráðherra afhenti í gær forsvars-
mönnum BSRB greinargerð um verðlags- og launaþróun frá gerð
kjarasamninga síðastliðið vor. Þar segir m.a. að tekjulægstu hóparn-
ir innan BSRB hafí notið kaupmáttaraukningar á samningstímanum.
Ólafur Ragnar sagði að tilefni þessarar greinargerðar væru við-
bárur forsvarsmanna verkalýðssamtaka um að ekki hafi verið staðið
við þau fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að verðlag á matvörum hækki
ekki umfram laun lágtekjufólks á samningst ímanum. Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, sagði við Morgunblaðið að allir launþegar
í BSRB, aðrir en viðmiðunarhópur fjármálaráðherrans, hefðu orðið
fyrir kjaraskerðingu á samningstímanum.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði á
blaðamannafundi sem haldinn var
í versluninni Miklagarði í gær að
lægstu laun starfsfólks í BSRB
hefðu hækkað um 18-19% á meðan
hækkun á almennri matvöru hefði
numið 10% en hækkun á land-
búnaðarvörum á bilinu 11-14%.
Sagði ráðherra að greinargerðin
sýndi ótvírætt að staðið hafi verið
við fyrirheit ríkisstjórnarinnar. Við-
miðunarhópur fjármálaráðherra var
sá fjórðungur félagsmanna í BSRB
sem tekjulægstir eru.
Þá segir í greinargerðinni að
ríkisstjómin hefði í tengslum við
kjarasamninga ASÍ og vinnuveit-
enda ákveðið að auka niðurgreiðslur
á búvörum um 500-600 miljónir kr.
umfram heimildir fjárlaga. í júní
og júlí voru síðan ákveðnar sérstak-
ar niðurgreiðslur á nýmjólk og
kindakjöti og að öllu samanlögðu
stefni í það að niðurgreijðslur nemi
700-750 miljónum kr.
Ólafur Ragnar sagði að fyrirheit
ríkisstjórnarinnar um að verðlagn-
ing á opinberri þjónustu fari ekki
fram úr forsendum fjárlaga hefði
gengið eftir, að minnsta kosti hvað
ríkisfyrirtæki snerti. Verðlagning á
þeirri þjónustu sem heyrir beint
undir ríkið hefði hækkað um 6'//%
frá apríl og fram í september. Aftur
á móti hefðu verðákvarðanir fyrir-
tækja í eigu sveitarfélaga falið í sér
meiri hækkanir á tímabilinu og þar
vægi þyngst hækkun á töxtum
ýmissa hitaveitna.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að greinargerð fjármálaráð-
herra hefði verið kynnt forsvars-
mönnum BSRB í gær. Hann sagð-
ist vera sammála útreikningum
Ijármálaráðuneytisins um að kaup-
máttur lægstu launa starfsfólks í
BSRB hefði haldist en hins vegar
hefði Verið um kaupmáttarrýrnun
að ræða varðandi almenn laun
BSRB-manna. Formannafundur
BSRB verður haldinn kl. 10 í dag
og þar munu forystumenn samtak-
anna leggja fram greinargerð um
málið.
Morgunblaðið/Þorkell
í sljórn Kvikmyndahátíðar eru Friðrik Þór Friðriksson, Hilmar Oddsson, Guðbrandur Gíslason,
Arni Þórarinsson og Inga Björk Sólnes framkvæmdasljóri Listahátiðar.
Listahátíð í Reykjavík:
Bruno Ganz og István Szabó
meðal gesta á Kvikmyndahátíð
Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 7. október með
sýningu myndarinnar Himinn yfir Berlín (Himmel iiber Berlin) eftih
leikstjórann Wim Wenders, í Regnboganum. Bruno Ganz, aðalleik-
ari myndarinnar, er gestur kvikmyndahátiðar og verður hann við-
staddur sýninguna.
Yfir þrjátíu kvikmyndir, frá
Evrópu, Ameríku og Asíu, verða
sýndar á hátíðinni, sem stendur
yfir í þrjár vikur.
A fyrsta degi hátíðarinnar verða
sýndar myndimar Lestin ieyndar-
dómsfulla eftir Jim Jarmusch, Stutt
mynd um dráp eftir pólska leikstjó-
rann Kryzystof Kieslowski, Salaam
Bombay frá Indlandi eftir Mira
Nair, Geggjuð ást eftir Belgann
Dominique Derruder og síðasta
mynd Wim Wenders Himinn yfir
Berlín.
Gestir Kvikmyndahátíðar að
þessu sinni eru þýski leikarinn
Bruno Ganz, ungverski leikstjórinn
István Szabó, framleiðandinn Jim
Stark, Katrín Ottarsdóttir leikstjóri
frá Færeyjum og franski leikarinn
Jean Reno.
Sýndar verða fjórar kvikmyndir
eftír Szabó. Mefistó, Redl ofursti,
Hanussen og Trúnaðartraust auk
nokkurra smámynda.
Jim Stark er framleiðandi mynd-
arinnar Lestin leyndardómsfulla
(Mystery Train) eftir Jim Jar-
musch. Dawn by law, sem sýnd
var á síðustu Kvikmyndahátíð, er
einnig eftir Jarmusch. Katrín Ott-
arsdóttir er leikstjóri myndarinnar
Atlandshafs rapsódían (Atlantic
Rhapsody), fyrstu kvikmyndarinn-
ar sem gerð hefur verið í Færeyj-
um. Jean Reno er aðalleikari mynd-
arinnar Úrslitaorustan (Le Dernier
Combat) eftir franska leikstjórann
Luc Besson. Besson gerði myndirn-
ar Subway og The Big Bleu, en
Úrslitaorsutan er fyrsta myndin
hans.
Allar myndir hátíðarinnar verða
sýndar í sölum Regnbogans. Verð
aðgöngumiða er 250 krónur á sjö
sýningar og 350 krónur á myndir
sýndar á öðrum tímum.
I stjórn Kvikmyndahátíðar eru
Friðrik Þór Friðriksson Guðbrand-
ur Gíslason, Árni Þórarinsson, Inga
Björk Sólnes og Hilmar Oddson.
Nánar verður fjallað um myndir
Kvikmyndahátíðar í Menningar-
blaði Morgunblaðsins á laugardag-
inn.
stuðning í varaformannskjöri
Morgunblaðið/Sverrir.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson kynnir bók sína um Sjálfstæðisflokkinn. Við borðið sitja Ingibjörg
Magnúsdóttir, Marta Thors, Rut Ingólfsdóttir, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Ásgeir Pétursson, Frið-
rik Sophusson, Ragnheiður Hafstein og Vala Thoroddsen.
Saga Sjálfstæðisflokksins í 60 ár:
ÞORSTEINN Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins sagðist í gær
enga afstöðu taka til þess hvern
hann styddi í forrnannskjöri á
landsfúndi flokksins. Það væri
landsfúndurinn sem kysi sér for-
ystu. Þorsteinn sat fyrir svörum
hjá fréttamönnum, vegna þess að
i dag hefst landsfundur flokksins.
Þorsteinn var spurður hvort hann
hefði ekki lýst því yfir að hann myndi
styðja Friðrik Sophusson, varaform-
ann flokksins við varaformannskjör:
„Ég tek enga afstöðu í þeim efnúm,
hvorki til sjálfs mín né annarra. Þetta
er ákvörðunarefni landsfundarins,
hveijir eru þar kjömir í trúnaðar-
störf, hvort sem það er formennska,
varaformennska eða miðstjórn og að.
því er varðar kjör formanns og vara-
formanns, þá er þetta óbundin kosn-
ing, sem ekki er bundin við tiltekna
frambjóðendur," sagði Þorsteinn.
Formaðurinn kvaðst hafa lýst því
yfir að hann væri reiðubúinn til þess
að gegna formennsku áfram og eng-
in breyting hefði orðið þar á.
Þorsteinn greindi frá undirbúningi
landsfundarins, sem hefst í Laugar-
dalshöll í dag. Hann sagði að mikið
hefði verið unnið í málefnanefndum
og undirbúningur hefði staðið um
langa hrið. Hann kvaðst ekki eiga
von á því að lokaniðurstaða næðist
á landsfundinum í því mikla starfi
sem unnið hefði verið að undanfömu
undir stjórn Davíðs Oddssonar, borg-
arstjóra um stefnumörkun til framt-
íðar. Það nýmæli yrði tekið upp á
þessum landsfundi að í kvöld myndu
stórar nefndir funda sérstaklega um
málefni sem vörðuðu hag allra lands-
„Sjálfstæðisflokkurinn á ís-
landi alveg einstakt fyrirbæri“
segir höfundurinn, dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Á FUNDI sem forysta Sjálfstæðisflokksins boðaði til með fréttamönnum
í gær var kynnt nýútkomin bók, Saga Sjálfstæðisflokksins í 60 ár, sem
dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor í stjórnmálafræði er höfund-
ur að. Fyrsta eintakið var afhent Má Jóhannssyni, starfsmanni Sjálfstæð-
isflokksins sem starfað hefur með öllum formönnum og varaformönnum
Sjálfstæðisflokksins nema Jóni Þorlákssyni. Næstu cintök voru afhent
eftirlifandi mökum og afkomendum fyrrum formanna og varaformanna
flokksins og afkomendum. Geir Hallgrímsson, seðalbankastjóri og fyrr-
verandi formaður Sjálfstæðisflokksins er staddur erlendis og gat því
ekki verið viðstaddur þessa athöfn.
Hannes Hólmsteinn, höfundur
bókarinnar sagði við þetta tækifæri
að ákveðið hefði verið að gefa út
eins konar innanflokks annál þessara
sextíu ára. Þetta væri því ekki stjórn-
málasaga í þeim skilningi.
„Við töldum að það væri mun fróð-
lega og forvitnilegra að gefa mönn-
um innsýn í það sem hefur verið að
gerast á vettvangi Sjálfstæðisflokks-
ins undanfarin 60 ár,“ sagði Hannes
Hólmsteinn, „Því vitaskuld ’er það
svo að Sjálfstæðisflokkurinn er á
Islandi alveg einstakt fyrirbæri.
Hann hefur frá stofnun verið lang-
stærsti stjómmálaflokkurinn og allir
sem setið hafa landsfundi hans hafa
tekið eftir hversu víðfeðmur flokkur-
inn er, enda segir í stofnyfirlýsing-
unni að hann sé flokkur allra stétta.“
Auk þess að vera flokksannáll, þar
sem hvert ár er tekið fyrir, þá eru í
bókinni stuttar svipmyndir af fyrr-
verandi formönnum flokksins, þeim
Jóni Þorlákssyni, Ólafi Thors, dr.
Bjarna Benediktssyni, Jóhanni Haf-
stein og Geir Hallgrímssyni.
Fjallað er um aðdragandann að
stofnun flokksins og um hina tvo
forvera hans, íhaldsflokkinn og
Fijálslynda flokkinn. Fjallað er um
myndun þjóðstjórnarinnar 1939, um
aðdragandann að forsetakjöri 1952,
um forsetakjörið 1968, kjör form-
anns og varaformanns 1969. Auk
þess eru aftast í bókinni viðaukar
um íslensk stjómmál og Sjálfstæðis-
flokkinn.
í ritnefnd voru þau Björg Einars-
dóttir, rithöfundur, fyrrverandi for-
maður Hvatar, Davíð Ólafsson, fyrr-
verandi alþingismaður og Seðla-
bankastjóri og Óskar Magnússon
lögmaður.
Þorsteinn Pálsson.
manna og væru í fyrsta lagi byggða-
mál, í öðm lagi kjördæmamál og í
þriðja lagi tengsl íslands og Evrópu-
bandalagsins.
Þorsteinn var spurður hvort hann
hygðist reyna að breyta ímynd
flokksins þannig út á við, að hann
yrði fremur skilgreindur sem stjóm-
málaafl hægri aflanna, fremur en
það sem fréttamaðurinn nefndi
„framsóknarmennsku Sjálfstæðis-
flokksins": „Formaðurinn kvaðst
ekki átta sig fyllilega á spuming-
unni, en sagði jafnframt: „Ég hef
tekið mitt hlutverk sem formaður
Sjálfstæðisflokksins frá öndverðu, og
mun gera það áfram, fái ég til þess
traust, þannig að það sé skylda form-
annsins fyrst og fremst að vera trúr
þeim gmndvallarhugmyndum sem
flokkurinn var stofnaður til þess að
vera í sókn og vöm fyrir".