Morgunblaðið - 05.10.1989, Side 21
.MUKGLVXBIADIP FIMM.TyDAfiUR 5., OKTQBJER j9§9
Rekstrarvandi fískvinnslunnar:
Þarf fleira en gengis-
sig til að bæta stöðuna
- segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
Háskóli Islands:
Fjölgun nemenda
hamlar niðurskurði
„GENGIÐ hefur sigið um hátt í
30% í tíð þessarar ríkisstjórnar
og ég held að fleira en gengissig
þurfi að koma til svo bæta megi
stöðu fiskvinnslunnar,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, er hann var innt-
ur álits á ummælum formanns
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Islensku tónverkamiðstöðinni:
Fjögur íslensk hljómsveitarverk
er heiti á nýjum hljómdiski sem
Islensk tónverkamiðstöð gefur út.
Flytjendur eru Sinfóníuhljómsveit
Islands undir stjórn Petri Sakari
og einleikarar eru þau Sigrún Eð-
valdsdóttir og. Erling Blöndal
Bengtsson.
Islensk hljómsveitartónlist á sér
skamma sögu og er það ekki undr-
unarefni þegar litið er til þess hve
skammt er síðan viðleitni til list-
rænnar tónsköpunar hófst hér á
landi. Stöðug þróun hefur einkennt
Stórtónleikar í
Danshöllinni
STÓRTÓNLEIKAR verða haldnir
í Danshöllinni á morgun, fimmtu-
daginn 5. október. Fjöldi hljóm-
sveita og einstaklinga munu koma
fram og verður leikið á öllum fjór-
um hæðum Danshallarinnar; jass,
blús, framsækið rokk, popp, vísna-
og þjóðlagatónlist.
Til tónleikanna er efnt í framhaldi
af tónlistarþingi tónlistarmanna sem
Félag tónskálda og textahöfunda
stóð fyrir sl. laugardag á Hótel Loft-
leiðum. Tónleikarnir hefjast kl. 21
og standa til 1. Aldurstakmark er
18 ára og aðgangseyrir kr. 800.
Þær hljómsveitir og einstaklingar
sem koma fram eru: Valgeir Guð-
jónsson, Tregasveitin, Rokkabilly-
band Reykjavíkur, Gildran, Dýrið
gengur laust, Sjálfsfróun, Bootlegs,
Tómas R. Einarsson og félagar,
Björn Thoroddsen gítarleikari, þjóð-
laga- og vísnahljómsveitin Islandica,
sem er nýlega komin heim úr vel-
heppnuðu tónleikaferðalagi um
Norðurlöndin, hljómsveitin Rósin,
Bergur Þórðarson trúbador, ásamt
fjölda tónlistarmanna sem von er á
að taki þátt í spuna á blús- og jass-
hæðinni. Á staðnum verða jafnframt
til sölu miðar í happdrætti Félags-
heimilis tónlistarmanna.
(Préttatilkynning)
stjórnar Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, um að stjórnvöld hlytu
að beita sér fyrir frekara gengis-
sigi á haustmánuðum, svo ekki
yrði um taprekstur fiskvinnsl-
unnar að ræða.
í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Arnari Sigurmundssyni,
tónlistarlíf Islendinga frá seinni
hluta 19. aldar og er tónlistin á
þessum hljómdiski gott dæmi um
þá grósku sem ríkir í gerð hljóm-
sveitarverka og flutningi þeirra nú
á tímum.
Fyrsta verkið á diskinum er
Konsert fyrir selló og hljómsveit
eftir Jón Nordal. Konsertinn er til-
einkaður Ragnari Jónssyni í Smára,
en saminn að ósk Erlings Blöndal,
sem frumflutti hann ásamt Sin-
fóníuhljómsveit íslands haustið
1983. Haustspil Leifs Þórarinsson-
ar er annað verkið sem þarna hljóm-
ar — líflegt verk og síbreytilegt.
Haustspii samdi Leifur árið 1983,
en verkið var frumflutt af Sinfóníu-
hljómsveit Islands það sama ár
undir stjórn Páls P. Pálssonar.
Þriðja verkið er eftir Magnús Bl.
Jóhannsson og heitir Adagio. Verk-
ið samdi Magnús árið 1980 og er
það skrifað fyrir strengjasveit, cel-
estu, cymbal, páku og bassa-
trommu. Síðasta verkið á diskinum
er Poemi eftir Hafliða Hallgríms-
son. Hafliði fékk tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1986 fyrir
verkið og hefur það síðan verið flutt
víða um heim. Poemi er skrifað
fyrir einleiksfiðlu' og strengjasveit
og er í þremur köflum. Yrkisefnið
sækir Hafliði til 1. Mósebókar
Gamla-testamentisins, nánar tiltek-
ið í sögurnar um drauma Jakobs,
fórn Isaks og giímu Jakobs við eng-
il. Sigrún Eðvaldsdóttir leikur ein-
leik á fiðlu í verkinu. Sigrún hefur
oft komið fram á tónleikum hér
heima og erlendis og unnið til verð-
launa fyrir leik sinn.
Eins og áður segir er diskur þessi
gefinn út af íslenskri tónverkamið-
stöð í samvinnu við Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, Ríkisútvarpið og
Landsbanka íslands. Samvinnan við
Landsbanka íslands gerði Islenskri
tónverkamiðstöð kleift að gefa disk-
inn út nú, en upptökur á verkunum
fóru fram árið 1987.
Classical Music, Inc. hefur tekið
að sér dreifingu á þessum og öðrum
diskum tónverkamiðstöðvarinnar
og mun dreifing í Bandaríkjunum
hefjast nú í október.
stjórnarformanni Samtaka fisk-
vinnslustöðva, að ríkisstjómin hefði
lofað því við gerð kjarasamninga
síðasta vetur, að ekki yrði um tap-
rekstur fiskvinnslunnar að ræða
miðað við útreikninga Þjóðhags-
stofnunar. Því hlytu stjórnvöld nú
að beita sér fyrir frekara gengissigi.
„Mér finnst nú sem ég hafi heyrt
þetta áður,“ sagði forsætisráðherra.
„Ég tel það hafa sýnt sig að gengis-
sig eitt dugir ekki til. Það þarf til
dæmis að leggja meiri áherslu á
mikla hagræðingu innan fiskvinnsl-
unnar, minni siglingar og meiri
vinnslu afla heima. Ég hef óskað
eftir að sjá tillögur fiskvinnslunnar
sjálfrar um þetta. Seðlabankinn
hefur nú heimild til gengissigs og
hefur notað lítið af henni, svo bank-
inn hefur .töluvert svigrúm. Ég
reikna með að þessi heimild sé ná-
lægt l'k til 2%. En eins og ég hef
alltaf sagt þá mun ríkisstjronin
standa við það sem hún lofaði í
þessum efnum,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði ljóst að
3,8% hækkun fiskverðs um síðustu
helgi leiddi til þess að staða fisk-
vinnslunnar rýrnaði um tæplega
2%. „Þjóðhagsstofnun taldi stöðuna
jákvæða í ágúst og september, fyr-
ir fiskverðsbreytinguna, þó erfitt
sé að nefna ákveðnar tölur í því
sambandi," sagði hann. „Miðað við
skráð gengi í dag bendir hins vegar
allt til þess að staðan sé neikvæð
að nýju. Þjóðhagsstofnun er að
kanna stöðu vinnslunnar nú og
áætlun liggur væntanlega fyrir í
byijun næstu viku.“
Á FUNDI háskólaráðs í síðustu
viku kom fram að ekki verður
hægt að ná fram nema hluta af
þeim 50 milljóna króna niður-
skurði sem áætlað var að þyrfti
að verða í rekstri Háskóla Islands
á þessu ári. Að sögn Sigmundar
Guðbjarnasonar rektors liáskól-
ans kemur allur niðurskurður
fram á haustmisseri vegna þess
að fyrirmæli um hann bárust ekki
fyrr en komið var fram á vormiss-
eri og starfsemin fullmótuð. Til
að auka vandann hefur nemendum
Ijölgað mun meira en gert hafði
verið ráð fyrir og er búist við að
þeir verði tæplega 300 fleiri en í
fyrra.
„Einhver niðurskurður er raun-
hæfur, en það á eftir að sýna sig
þegar líða tekur á mánuðinn hver
hann getur orðið í raun,“ sagði Sig-
mundur Guðbjarnason. „Nemendum
hefur fjölgað verulega í haust og
verða þeir samtals um 1.900 í vetur.“
Sigmundur sagði að vegna þessa
yrði mun erfiðara að skera niður
vegna þess að kostnaður eykst í
mörgum tilfellum í hlutfalli við íjölda
nemenda. Hinar ýmsu deildir Háskól-
ans hafa þegar fellt niður ýmis nám-
skeið, en ijölgun nemenda veldur því
að ekki mun takast að fækka tímum
eins og ráðgert var.
„Stöðugt bætist við nemendahóp-
inn því margir hafa tekið stúdents-
próf nú í haust vegna sérstakra að-
stæðna í vor. í sumum greinum hef-
ur nemendum fjölgað mun meira en
ráð var fyrir gert og verða þrengsli
því víða mikil. Lögum samkvæmt
þurfum við að taká við öllum þessum
nemendum og það skapar verulegan
vanda að þurfa jafnframt að skera
niður fjármagn með þeim hætti sem
krafist er. Hér er vandi á höndum
sem ekki er auðleystur."
ttýr solw
ASBYRGI
• •
„KVOLDIÐ ER FAGURT“
Frumsýning laugardaginn 7. október
Skemmtunin „ Kvöldið er fagurt" er skrifað
af Þorsteini Eggertssyni.
Auk Hauks og Erlu koma fram söngkonurn-
ar Jóhanna Linnet og Ingveldur Ólafsdóttir.
Stórhljómsveit Hauks
Morthensleikurundir.
Komið á glæsilegan nýjan skemmtistað (sem tekur u.þ.b. 200 manns í sæti)
og sjáið þessa einstöku sýningu sem hundruðir manna hafa beðið eftir í 30 ár.
Sýnishorn af lagavali:
Ó borg mín borg
Simbi sjómaður
StínaóStína
Sjómaður dáðadrengur
Litla stúlkan viö hliöið
Er ástin andartaks draumur?
Draumurfangans
Ég erkominn heim
(í heiöardalinn)
Lóa iitla á Brú
París
Vaggog velta
Þrek og tár
og fjöldi annarra laga sem allir þekkja
ASBYRGI
rm
mi
Útsetningarog hljómsveitarstjórn:
ReynirSigurðsson.
Hljómsveitina skipa: ReynirSigurðsson,
Árni Elvar, GuðmundurSteingrímsson,
Gunnar Hrafnsson, Rúnar Georgsson og
Edwin Kaaber.
Matseðill:
Forrcttir ad eigin vali:
Kryddjurtasoóin laxarós
Hcimsins besta fískisúpa
Kóngasveppasúpa
Rækjur á austurlandavísu
Aðalréttur:
a) I.ambahnetusteik
b) Grísabarbecuesteik
c) Grillaður lax í sólskinssósu
EJtirrcttir:
Konfekttrifne
Sælkeraís
eða kaffí og koníak
HOTEL IjJAND
4 salir - eitthvað fyrir alla.
Bergljót Jónsdóttir, framkvæmdastjóri íslenskrar tónverkamiðstöðv-
ar, afhendir Vali Arnþórssyni, bankastjóra, Fjögur íslensk hljómsveit-
arverk, en Landsbankinn er einn af þeim fjórum aðilum sem gerðu
útgáfiina mögulega.
Islenzka tónverkamiðstöðin:
Fjögnr íslenzk verk
á nýjum hljómdiski