Morgunblaðið - 05.10.1989, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989
v ■------------í----—---r
Dalvík:
x__________
Þrjú innbrot
eru upplýst
TVEIR aðilar hafa viðurkennt
að hafa brotist inn í billjardstof-
una Arwill á Dalvík fyrir
skömmu og að hafa farið sömu
nótt inn í íþróttahúsið og sund-
laugina.
Auk þessa viðurkenndu þessir
aðilar að hafa falsað tékka, sex að
tölu og var heildarupphæð þeirra
41 þúsund krónur. Heftið sem um
ræðir var gamalt og var því stolið
á sínum tíma.
Ekkert hafðist upp úr krafsinu í
innbrotunum í sundlaugina og í
íþróttahúsið, en á milli 11 og 12
þúsund krónur á billjardstofunni.
Okkar verð:
Egg 356 kr. kg.
Sykur 138 kr. kg.
Vínarpylsur 520 kr. kg.
Nýjar kartöflur 158 kr. 2 kg.
Coca Cola 99 kr. 2 lítrar
Coca Cola 91 kr. Vh líter
Opið alla daga vikunnar
frá kl. 8.00-23.30.
Verslunin
Þorpið
Móasíðu 1.
ístess hf.
Sjö starfsmenn
af 27 hætta
STARFSMENN ístess hf. á Akur-
eyri sem sagt var upp störfúm í
lok ágústmánaðar verða endur-
ráðnir formlega nú á næstunni.
Starfsmönnum verður fækkað
um sjö og verða því tuttugu
starfsmenn við fyrirtækið í vetur
í stað tuttugu og sjö áður.
Guðmundur Stefánsson fram-
! kvæmdastjóri ístess hf. sagði að
unnið væri að því að aðlaga rekstur-
inn breyttum aðstæðum í þjóðfélag-
inu. „Það eru allir að hagræða í
rekstri, reyna að bæta hlutina og
gera betur en gert hefur verið; auka
tekjur og minnka kostnað," sagði
Guðmundur. Hann sagði að ljóst
væri að nokkrir starfsmenn myndu
hætta störfum þar sem þeir væru
að fara í önnur störf og ekki yrði
unnt að endurráða alla, þannig að
allt í allt myndu sjö starfsmenn
hætta hjá fyrirtækinu.
Glaðbeittir minkabanar á Dalvík með heimasmiðuð vopn. Frá vinstri eru Erlendur, Freyr, Steingrímur, Jón Ingi og
félagar voru búnir að skila inn tveimur minkaskottum á bæjarskrifstofúrnar og vinna sér þannig inn 1.400 krónur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jón Björn, en þeir
Fjöldi minka á ferli á Dalvík:
Hurðir að Böggvisstöðum fuku
upp í hvassviðrinu á laugardag
Við athugun lögreglu á loðdýrabúinu kom í ljós að dýr eru þar alltof mörg miðað við íjölda búra
ÓVENJU mikið hefúr verið um minka á ferli á Dalvík síðustu daga
og hafa dalvísk ungmenni verið á ferð með lurka á lofti á eftir skepn-
unum. A bæjarskrifstofunum á Dalvík var búið að greiða fyrir tíu
minkaskott í fyrradag, en greiddar eru 750 krónur fyrir skottið.
Nokkrir strákar sem tíðindamenn Morgunblaðsins hittu á Dalvík í
gær fullyrtu að búið væri að ná 27 dýrum. Lögreglumenn könnuðu
aðstæður að Böggvisstöðum, loðdýrabúi rétt við Dalvík, og kom þá
í ljós að talsvert fleiri minkar eru í búinu miðað við búraíjöldann
sem þar er.
I gær bauðst minkabani til að
fara til Dalvíkur með þjálfaða
minkahunda, en að sögn Páls var
ekki búið að taka ákvörðun um
skipulega leit að minkum á svæð-
inu. Hann sagði forgangsverkefni
að athuga hvort búið að Böggvis-
stöðum.væri dýrhelt, komast þyrfti
að því hvort dýrin væru þaðan og
hvort þau hefðu öll sloppið í einu
eða hvort þau væru jafnvel enn að
sleppa.
Skarðshlíð:
Páll Hersteinsson veiðistjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að skipulögð leit að dýrunum' hefði
ekki verið ákveðin. Fyrst væri að
leita orsaka þess að svo mikið
reyndist af lausum minkum í bæn-
um og hvort hugsanlegt væri að
þaú hefðu sioppið út frá loðdýrabú-
inu að Böggvisstöðum sem er
skammt frá Dalvík.
Lögregla fór og kannaði aðstæð-
ur að Böggvisstöðum í gærdag og
sagði Björn Víkingsson varðstjóri
að við þá athugun hefði komið í
ljós að alltof mörg dýr eru í húsinu
miðað við fjölda búra sem þar er.
Um 25 þúsund dýr eru í húsinu,
en lögreglumenn áætluðu að þar
væru einungis búr fyrir 15 þúsund
dýr, eða um 10 þúsund færri en
þar eru. Sagði Björn að samkvæmt
þeim upplýsingum sem lögreglan
jiefði aflað sér, þá væri venjan sú
að hafa tvö dýr í hverju búri, en
nú væru dýrin allt upp í fjögur í
búri. Þá kom einnig fram við athug-
un lögreglunnar að iðulega kæmi
fyrir að á milli 20 og 30 dýr slyppu
úr búrum sínum yfir nótt og væri
það fyrsta verk starfsmanna að
morgni elta þá uppi. Einnig sagði
Björn að í ljós hefði komið að í
rokinu á laugardaginn hefðu hurðir
á loðdýrabúinu fokið upp.
„Við getum ekki fullyrt að þeir
minkar sem hér eru á ferli séu frá
búinu komnir, en það verður að
teljast líklegt," sagði Björn Víkings-
son.
Að Böggvisstöðum er nú rekið
þrotabú og er markmiðið að halda
lífi í dýrunum þar til unnt verður
að selja af þeim skinnin í desember
og er reynt að halda tilkostnaði við
reksturinn í lámarki. Páll Hersteins-
son sagði að reglulegt viðhald væri
nauðsynlegt því mikið væri um að
dýrin nöguðu sig út úr búrunum.
Tíu ára drengnr hlaut
höfiiðáverka í bílslysi
Áverkarnir ekki taldir lífshættulegir
EKIÐ var á tíu ára gamlan
dreng við Skarðshlíð um átta-
leytið í gærkvöldi. Drengurinn
hlaut höfúðáverka og var flutt-
ur á sjúkrahús. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins voru
áverkar drengsins ekki taldir
lífshættulegir.
Tildrög slyssins í gærkvöldi
voru á þá leið að faðir drengsins
hafði stöðvað gámaflutningabíl,
sem hann ók, vestan Skarðshlíðar
og hleypt syni sínum þar út úr
bílnum. Drengurinn fór aftur fyrir
bílinn og út á götuna og lenti þar
fyrir bíl, sem var ekið norður eftir
Skarðshlíðinni.
Við Skarðshlíð hafa orðið mörg
umferðaróhöpp og umferðarslys
og hafa íbúar þar haft af því mikl-
ar áhyggjur. Einkum kvarta þeir
undan mikilli umferð og tíðum
stöðum stórra bíla. Þessir bílar
toi-veldi vegfarendum yfirsýn yfir
götuna og valdi þannig mikilli
hættu.
Fyrirlestur
Dr. Jónas Kristjánsson, prófessor og for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar,
flytur fyrirlestur á vegum Háskólans á Akur-
eyri nk. laugardag, þann 7. okt.
Efni: Forn handrit og bókmenntir.
Tími: Laugardagur 7. okt. kl. 17.00.
Staður: Möðruvellir, hús Mennta-
skólans á Akureyri, stofa 2 (M.2).
Allir velkomnir
Myndhópurínn í Safiiahósinu
SJÖ félagar úr Myndhópnum frá Akureyri efha til samsýningar í
Safhahúsinu á Sauðárkróki um helgina. Sýningin verður opnuð
annað kvöld, fostudagskvöld, 6. október kl. 20.
Sýningin verður aðeins opin í
þrjá daga, föstudag frá 20-22,
Íaugardag frá kl. 14-22 ogásunnu-
dag frá kl. 14-19.
A sýningunni verða um 60
myndverk unnin í vatnsliti, pastel,
olíu, rauðkrít, túss og keramik svo
eitthvað sé nefnt. Þeir sem þátt
taka í sýningunni, sem er söiusýn-
ing, eru; Aðalsteinn Vestmann,
Alice Sigurðsson, Bernharð
Steingrímsson, Gréta Berg, Hörður
Jörundsson, Iðunn Ágústsdóttir og
Ruth Hansen.
Myndhópurinn var stofnaður
fyrir um tíu árum og hefur hann
staðið fyrir allmörgum sýningum
bæði á Akureyri og í nágranna-
byggðunum.
Píanótónleikar
Elfrun Gabriel
ELFRUN Gabriel píanóleikari frá
Þýskalandi kemur fram á
tónleikum Tónlistarfélags
Akureyrar á föstudagskvöld kl.
20.30 og verða þeir haldnir á sal
Tónlistarskólans.
Elfrun Gabriel kom fyrst fram á
tónleikum íjórtán ára gömul. Hún
stundaði nám við
Tónlistarháskólann í Leipzig, en
að því loknu hóf hún framhaldsnám
í Leningrad og í Kraká. Hún hefur
komið fram sem einleikari um
gervalla Evrópu bæði austan tjalds
og vestan. Þetta er í annað sinn
sem Elfi-un Gabriel heimsækir
ísland.