Morgunblaðið - 05.10.1989, Page 41

Morgunblaðið - 05.10.1989, Page 41
MORGUNBLAÐíÐ FIMMTUDAGUR -5. OKTÓBER F.989 4h íSLAND 3Öoo• ISLANÐ 30 oo ÍSLAN D 3000 Dagur Mmerkisins 1989 og ný Mmerki ________Frímerki_____________ Jón Aðalsteinn Jónsson Dagur frímerkisins verður hald- inn hátíðlegur hér á landi næsta mánudag, 9. okt. Svo oft hefur verið sagt frá því, að þessi dagur er til að minna á frímerkin og þá einkum gildi þess fyrir menn og ekki sízt unglinga að safna þeim í tómstundum, að þess gerist tæp- lega þörf að rifja það upp enn einu sinni. í mörgum löndum nota póst- stjórnir og frímerkjasafnarar þenn- an dag dyggilega til þess að örva sem mest frímerkjasöfnun og sam- tök safnara. Eru þá bæði haldnar smærri sýningar og eins flutt er- indi um frímerki og söfnun þeirra. Um skeið voru nokkrir tilburðir í þessa átt hér á landi, en því miður hefur það nær alveg koðnað niður á síðustu árum. Hygg ég það stafi mest af mannfæð innan samtaka safnara, en af því leiðir svo aftur, að allt starf í kringum þennan dag og raunar svo sem í kringum fé- lagssamtökin sjálf lendir á sömu mönnum ár eftir ár. Félagar í Fé- lagi frímerkjasafnara munu verða með sýningarramma með ýmsu frí- merkjaefni í Kringlunni á mánu- daginn og svo sjálfir útskýra efni rammanna síðdegis þennan dag. Eins munu þeir kynna um leið frímerkjasöfnun almennt. Um nokkur ár hefur Póst- og símamálastjórnin gefið út svo- nefndar smáarkir á Degi frímerkis- ins með nokkrum frímerkjum í, sem nota má'til burðargjalds. Jafnframt eru arkir þessar með yfirverði, sem runnið hefur hin síðustu ár í sér- stakan Frímerkja- og póstsögusjóð. Tilkynning um örk þá, sem nú verð- ur sett á markað 9. þ.m., barst mér í hendur fyrir alllöngu. Segir þar, að þann dag verði gefin út smáörk eða „blokk“ með þremur frímerkj- um í tilefni frímerkjasýningarinnar „NORDIA 91, en hún verður hald- in í júnimánuði árið 1991. Enn fremur segir, að ákveðin sé útgáfa annarrar smáarkar af þessu tilefni næsta ár og svo loks sérstakrar sýningararkar við opnun sýningar- innar 1991. Myndefni smáarkar- innar að þessu sinni er landabréf af Norðurlöndum eftir Olaus Magn- us, en það kom út í Feneyjum árið 1539. í tilkynningu póststjórnarinnar er nákvæm lýsing kortsins, en jafn- framt langur útdráttur úr bók þéirri miklu, sem Olaús samdi og út kom 1555. Vissulega er hann ,góðra gjalda verður, en mér finnst hann samt óþarflega langur. Ég hefði satt bezt að segja fremur kosið, að póststjórnin notaði hér tækifæ- rið til að segja nánar frá Degi frímerkisins og þá um leið benda lesendum tilkynningarinnar á, hversu mikils virði það sé að kaupa smáörkina og jafnframt nota frímerki hennar til burðargjalds. Nú þarf að hefja stórátak til auk- innar sölu, enda mun yfirverð ark- arinnar, 40 kr., eiga að fara til undirbúnings undir NORDIU 91. Að minum dómi hefur söfnurum og öðrum þeim, sem einhvern áhuga hafa á frímerkjum, aldrei verið nógsamlega á það bent, að nota megi frímerki arkanna ein sér til burðargjalds. Hefur því oftast farið svo, að menn hafa látið stimpla arkirnar á útgáfudegi og svo eitthvað þar fyrir utan, en tæp- lega notað frímerkin eða arkirnar til burðargjalds undir sendingar. Þannig hefur orðið í reynd, að þeir, sem kaupa arkirnar, eru annars vegar íslenzkir safnarar og svo hins vegar frímerkjakaupmenn, sem selja þær erlendum söfnurum. Enda þótt umslög með annaðhvort heilli örk á eða frímerki úr örk- inni, séu vissulega „fílatelísk“, þ. e. hugsuð handa frímerkjasöfnur- um, verða þau áreiðanlega góðir safngripir, ef þess er gætt, að burð- argjald br'efsins sé samkv. töxtum póststjórnarinnar. Nauðsynlegt er því, að frímerki blokkanna séu ein sér nothæf undir eitthvert ákveðið burðargjald. Því má nú spyija. Undir hvað hentar 30 kr. frímerki þessa stundina, eða hvar má nota 60 eða 90 kr.? Þessi smáörk er teiknuð eða hönnuð af Þresti Magnússyni, en sjálfur Slania hefur grafið hana í stálstungu. Örkin er svo bæði'off- setprentuð og með stálstunguað- ferð í Hollandi sem flestar fyrri arkirnar. í henni eru þijú 30 kr. frírrierki, en söluverðið er 130 krón- ur. Til greinahöfunda Aldrei heftir meira aðsent eftii borizt Morgunblaðinu en nú og því eru það eindregin tilmæli ritstjóra blaðsins til þeirra, sem óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æski- legt er, að greinar verði að jafri- aði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4 í aðra hverja línu. Þeir, sem óska birtingar á lengri greinum, verða beðnir um að stytta þær. Ef greinahöfúndar telja það ekki hægt, geta þeir búizt við verulegum töfúm á birt- ingu. Minningar- og afimælisgreinar Af sömu ástæðum eru það ein- dregin tilmæli ritstjóra Morgun- blaðsins til þeirra, sem rita minn- ingar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifað- ar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. Ræður Töluvert er um það, að Morgun- blaðið sé beðið um að birta ræð- ur, sem haldnar eru á fundum, ráðstefnum eða öðrum manna- mótum. Morgunblaðið mun ekki geta orðið við slíkum óskum nema í undantekningartilvikum. Ritstj. gardeur dömufatnaður HAIIST VÖRUR Gceöavara Tískuvara Pils Buxnapils Jakkar Síðbuxur Uáunnj VERSLUNv/NESVBG. SELTJARNARNESI Opió daglega frá kl. 9— 1 8 - laugardaga frá kl. 10-1 4 Kraftmiklar Fyrirtækjatölvur ...á hagstæðu verði.l Fountain 386 Fountain 286 svart/hvítur 14" Fountain skjár svart/hvítur 14" Fountain skjár Seagate 40 Mbyte 28 msec diskur Seagate 40 Mbyte 28 msec diskur 1.0 Mb 32 bita minni stækkanlegt í 16 Mb 20 MHz Intel 80386. Zero wait state 101 Lykla borð Keyrir DOS OS/2 UNIX Framleidd í USA Ein 32 bita tengirauf Fjórar 16 bita tengiraufar Þrjár 8 bita tengiraufar Kr. 237.800 Kr. 154.900 eða kr. 8.228 á mánuði. eða kr. 5.359 á mánuði. 640K 16 bita minni stækkanlegt í 16 Mb 12 MHZ 80286 Intel 101 Lykla borð Keyrir DOS OS/2 UNIX Framleidd í USA Scx 16 bita tengiraufar Tvær 8 bita tengiraufar Aukaverð fyrir Tatung 14" VGA litaskjár kr. 47.900 Einnig eigum við diska frá Seagate og CDC sem eru 80 Mbyte til 1.2 Gbyte.j magnus hefur kraftmiklar lausnir magnus einbeitir sér að tölyuvæðingu fyrirtækja, við bjóðum ráögjöf varðandi tölvuvæðingu og hjálpum þér að velja rétta tölvukerfiö. Við bjóöum netkerfi, uppsetningu búnaðar, hugbúnað, þjálfun starfsmanna, og fullkomna viðgerðaþjónustu. Við sendum fúslega sérfræöing til þín til að ræða þarfir fyrirtækis þíns, Hvort sem þú þarft eina tölvu eöa heilt tölvukerfi þá er magnus fyrirtækið sem hefur bestu og hagkvæmustu lausnina fyrir þig. mognusj Bolholti 6 105 Reykjavík s. 91-689420 91-689454

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.