Morgunblaðið - 06.10.1989, Síða 4
4
• *----------
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989
Stöð 2:
Myndbirtmgar frétta-
stofunnar út í hött
- segir Jón Öttar Ragnarsson
„ÉG bókaði á þessum fundi framkvæmdastjóra Stöðvar 2 að mér
fyndust myndbirtingar í tengslum við fréttir af áfengiskaupum ut-
anríkisráðherra út í hött og ég held að margir geti tekið undir það,“
sagði Jón Ottar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Páll Magnús-
son fréttastjóri segir myndbirtinguna hafa verið réttlætanlega, en
strangt til tekið óþarfa.
Á fundi framkvæmdastjóra
Stöðvar 2 síðastliðinn þriðjudag sló
í brýnu milli Jóns Óttars og Páls.
Deilur þeirra snerust fyrst og
fremst um myndbirtingar úr af-
mæli eiginkonu utanríkisráðherra,
í tengslum við fréttir af kaupum
ráðherra á áfengi á kostnaðarverði,
sem veitt var í veislu á afmæli rit-
stjóra Alþýðublaðsins. Þá gagn-
rýndi stjónvarpsstjórinn fréttir af
skoðanakönnun Stöðvar 2, þar sem
meðal annars var fjallað um sið-
ferði stjórnmálamanna, og sagði
þær hlutlægar.
„Ágreiningur hér innanhúss er
bara hluti af okkar lýðræði," sagði
Jón Óttar. „Öll mál sem snérta Stöð
2 eru rædd á þessum fundum og
ég lét bóka að mér fyndust þessar
myndbirtingar út í hött. Það var
ekki gert neitt samkomulag á fund-
inum um myndbirtingar í framtíð-
inni, annað en það að ég held að
það sé ljóst að myndbirtingar af
þessu tagi verði ekki ástundaðar
hér. Páll Magnússon var sjálfur
sammála um að þær væru óþarfar.
Fréttastofan lýtur hins vegar stjórn
Páls og yfirstjórn Stöðvar 2 ber
eftir sem áður fyllsta traust til hans
og fréttastofunnar. Ég lít svo á að
þetta mál sé úr sögunni.“
Páll Magnússon sagði, að hann
hafi taíið þessa umdeildu mynd-
birtingu réttlætanlega, .en strangt
til tekið óþarfa. Hann tók fram, að
framkvæmdastjórafundir Stöðvar 2
væru ekki ritstjórnarfundir og ekki
hægt að bera fréttastjórann at-
kvæðum í málum sem snerti hans
svið. „Fréttastofan lýtur stjórn
fréttastjóra og yfirstjórn Stöðvar 2
hefur ekkert með fréttastefnuna að
gera,“ sagði hann. „Hvað varðar
ásökun Jóns Óttars um að við höf-
um verið hlutlægir í umfjöllun um
niðurstöður skoðanakönnunarinnar
er það eitt að segja, að það er hans
skoðun og ég er henni gjörsamlega
ósammála. Þetta mál er hins vegar
leyst og engar deilur okkar á milli
nú.“
VEÐURHORFUR í DAG, 6. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Austan- og suðaustan gola eða kaldi með lítils-
háttar rigningu suðvestan- og vestanlands, en breytileg átt — 5-6
vindstig með rigningu austanlands en að mestu þurrt, í öðrum
landshlutum. Hiti 2-7 stig.
SPÁ: Vestan og norðvestan-átt, stinningskaldi eða allhvasst um
austanvert landið, en gola eða kaldi vestanlands. Víða léttskýjað
á Suður- og Suðausturlandi, en skýjað að mestu í öðrum lands-
hlutum. Slydduél norðanlands, en smáskúrir á annesjum vestan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanátt og hlýtt í veðri. Súld eða
rigning vestanlands og austur með suðurströndinni, en annars
úrkomulítið.
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan og norðvestanátt og kólnandi.
Skúrir á Suðvestur- og Vesturlandi, en líklega slydduél norðan-
lands. Þurrt og bjart veður á Austfjörðum og á Suðausturlandi.
TÁKN: a Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hftastig: 10 gráður á Celsíus
Heiðskírt y stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. V Skúrir V éi
Léttskýjað / / / / / / / Rigning V = Þoka
Hálfskýjaö / / / * / * = Þokumóða ’, ’ Súld
^^Skýjað / * / * Slydda / * / OO Mistur
—Skafrenningur
! Alskýjað * * * * Snjókoma # # # Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 8 léttskýjað
Reykjavík 6 skýjað
Bergen 12 skýjað
Helsinkl 8 léttskýjað
Kaupmannah. 13 léttskýjað
Narssarssuaq 0 skýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Osló 12 skýjað
Stokkhólmur 13 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 26 léttskýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Barcelona 23 skýjað
Berlin 16 léttskýjað
Chicago 10 léttskýjað
Feneyjar 16 heiðsklrt
Frankfurt léttskýjað
Qlasgow vantar
Hamborg vantar
Las Palmas alskýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 16 heiðsklrt
Lúxemborg vantar
Madríd 24 mistur
Malaga 24 skýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 3 léttskýjað
New York 10 heiðsklrt
Orlando 22 þokumóða
Parls 20 heiðskírt
Róm 20 léttskýjað
Vln 13 léttskýjáð
Washington 9 léttskýjað
Winnipeg 6 alskýjað
Brottf luttir af landinu 1986-89 Tímabmð juií tnsept
íslenskir ríkisborgarar sem fluttu 1.132 utan,
lögheimili sitt til útlanda. Þar a*:
Jan.-sept.
312 til
Danmerkur
118 til
Noregs
112 til annarra
Evrópulanda
1986
1987
1988
1989
72 tilBandaríkjanna
Yfír 2.000 flylja af
landi brott á árinu
YFIR tvö þúsund íslendingar hafa flutt af landi brott það sem af er
árinu. Þar af hafa 1.132 íslendingar yfirgefið landið síðustu þijá mánuð-
ina, í júlí, ágúst og september. Á sama tíma hafa aðeins 715 Islending-
ar flutt til landsins það sem af er árinu, samkvæmt skráningu Hag-
stofu íslands.
Á síðustu þremur mánuðum hafa
flestir leitað til Svíþjóðar, eða 498
manns. Til Danmerkur fóru 312 ís-
lendingar. Til Noregs fóru 118 ís-
lendingar og til annarra Evrópulanda
fóru 112 manns. Til Bandaríkjanna
fóru 72 og til annarra landa fóru 20
Islendingar.
Það sem af er árinu hafa 1.407
íslenskir ríkisborgarar flutt til lands-
ins. íslendingamir, sem flutt hafa
úr landi á fyrstu níu mánuðum árs-
ins, eru því 680 fleiri, en þeir sem
komu heim.
Bæði árin 1988 og 1987 fluttu
fleiri íslendingar heim en til útlanda.
Árið 1988 fluttu út 1.898, en heim
komu 3.846 íslendingar. Árið 1987
er það sama upp á tengingnum. Út
fluttu 1.953 og heim komu 3.306
íslenskir ríkisborgarar. Árið 1986
komu aftur á móti 1.996 íslendingar
heim á ný, en 2.515 fluttu af landi
brott.
Vífílfell kærir Sanitas
til Verðlagsstofíiunar
VERKSMIÐ.JAN Vífilfell hf. hefur svarað bréfi Verðlagsstofpunar þar
sem greint var frá kæru Sanitas hf. á hendur Vífilfelli hf. vegna afslatt-
artilboða til kaupmanna. Vífilfell vísar í svari sínu til Verðlagsstofnun-
ar algjörlega á bug ásökunum Sanitas hf. um ólögmæta viðskipta-
hætti. Jafnframt lagði Vífilfell hf. í gær fram kæru á hendur Sanitas
fyrir margvísleg brot á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og órétt-
mæta viðskiptahætti.
í bréfi Vífilfells til Verðlagsstofn-
unar kemur m.a. fram að í tilboði
fyrirtækisins til kaupmanna hafi fa-
list verulegur afsláttur af heildsölu-
verði til þeirra jafnframt því sem til
þess hafi verið mælst að afslátturinn
skilaði sér í vöruverði til neytenda
og að vörunni yrði stillt upp í hlut-
falli við sölu. Þá segir ennfremur að
Vífilfell hafi ekki beitt neinum þving-
unum gagnvart kaupmönnum. Fyrir-
tækið hafi heldur ekki skipt sér af
öðrum gosdrykkjum í verslunum,
umfram það sem felist í framan-
greindu og kaupmönnum hafi verið
í sjálfsvald sett hvort þeir gengju að
tilboðinu.
í öðru bréfi Vífilfells til Verðlags-
stofnunar er lögð fram formleg kæra
á hendur Sanitas fyrir að hafa brot-
ið gróflega gegn tilteknum ákvæðum
laga um verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti. Þar
segir m.a. að sölumenn Vífilfells
hafi orðið varir við að Sanitas bjóði
kaupmönnum aukinn afslátt gegn
því að Pepsi-Cola sé stillt upp í hillur
og kæliskápa sem séu í eigu Vífil-
fells hf. Þá er frá því greint að undan-
farið hafi birst í fjölmiðlum að und-
anförnu auglýsingar sem feli í sér
ósanngjaman samanburð og einnig
hæsta stigs auglýsingar. Forsvars-
menn Sanitas hafi ennfremur boðið
kaupmönnum í laxveiði gegn því að
fá aukið hillupláss undir framleiðslu-
vörur fyrirtækisins í verslunum á
kostnað keppinauta þess. Loks er á
það bent að Sanitas bjóði veitinga-
mönnum á bjórkrám verulega af-
slætti og ókeypis gosdrykki gegn því
að þeir selji aðeins framleiðsluvörur
Sanitas á viðkomandi stöðum. Með
því séu vemdartollar sem fyrirtækið
njóti við framleiðslu á bjór misnotað-
ir gegn öðrum innlendum gosdrykkj-
arframleiðendum. Þess er krafist að
viðskiptahættir þessi verði rannsak-
aðir og stöðvaðir þegar í stað.
Arnarflug vill fá fleiri
áætlunarstaði innanlands
ARNARFLUG hefur sótt um að fá
að hefja áætlunarflug til a.m.k.
fjögurra staða innanlands, sem
Flugleiðir fljúga nú til. Þessir
staðir eru Húsavík, Höfn, Patreks-
Qörður og Vestmannaeyjar.
Frestur flugfélaga til að leggja inn
umsóknir um sérleyfi rann út um
síðustu mánaðamót. Arnarflug flýg-
ur nú til átta staða innanlands, sem
eru Rif, Stykkishólmur, Bíldudalur,
Flateyri, Hólmavík, Gjögur, Blöndu-
ós og Siglufjörður. Kristinn Sig-
tryggsson, framkvæmdastjóri Arnar-
flugs, segir að þessir átta staðir hafi
gefið félaginu um 20 þúsund farþega
á ári, en til samanburðar mætti
nefna, að Flugleiðir flyttu um 100
þúsund farþega til og frá Akureyri
árlega. „Það er í raun með ólíkindum
að Amarflugi hafi tekist að þjóna
þessum litlu stöðum í öll þessi ár án
nokkurra styrkja," sagði hann. „Við
höfum borgað tugi milljóna með
þessu flugi og á síðasta ári versnaði
ástandið enn, þegar lögð voru á lend-
ingargjöld, sem setti innanlands-
flugið í bullandi tap.“
Kristinn sagði að Amarflug hefði
ekki sótt um að fljúga á stærstu stað-
ina, svo sem Akureyri, Egilsstaði og
ísafjörð. „Við erum raunsæir í um-
sókn okkar og þessir staðir henta
betur stærri vélum eins og Fokker-
vélum Flugleiða. Minni staðir eru
hins vegar óhentugir fyrir þær vélar,
eins og forráðamenn Flugleiða hafa
sjálfir talað um. Ég á von á að sam-
gönguráðherra skipti stöðum nú rétt-
látlega milli flugfélaganna."