Morgunblaðið - 06.10.1989, Page 18
MORGUNBLÁDIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989
'Í8
Pólland:
Lech Walesa varar
við borgarastyrj öld
- segi ríkisstjórnin ekki sannleikann um ástandið í efhahagsmálum
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa,
leiðtogi Sam-
stöðu, sagði í
gær, að hætta
væri á borgara-
styrjöld í Póll-
andi ef ríkis-
stjórninni tækist
ekki að skýra út
íyrir almenningi og afla sér
stuðning hans við róttækar eina-
hagsumbætur. Er þetta í annað
sinn, sem Walesa lætur þessi
varnaðarorð falla.
Walesa sagði á blaðamanna-
fundi, að landið væri eins og púður-
tunna, sem gæti sprungið fyrirvara-
laust. „Almenningur er að gefast
upp og ég endurtek, að hér getur
komið til borgarastyijaldar eins og
raunar alls staðar í Austur-Evr-
ópu.“
Pólska stjómin hefur kynnt efna-
hagsáætlanir sínar fyrir ríkisstjórn-
um á Vesturlöndum og forsvars-
mönnum ýmissa lánastofnana en
þær hafa hins vegar ekki verið birt-
ar Pólveijum sjálfum. Walesa sagði,
að fólk yrði að fá að vita sannleik-
ann, hve ill sem tíðindin væru, því
að hann einn gæti sætt það við að
axla byrðamar.
Embættismenn á Vesturlöndum
segja, að efnahagsáætlanir pólsku
stjórnarinnar hafi vakið með þeim
í senn hrifningu og ótta við, að þær
yrðu allt of þungbærar pólsku þjóð-
inni. Pólskir embættismenn segja
til dæmis við kollega sína á Vestur-
löndum, að þeir búist við allt að
1.000% verðbólgu um áramótin
samfara því, að stórlega verði dreg-
ið úr niðurgreiðslum, og stjómin
hefur einnig á pijónunum að af-
nema vísitölubindingu launa um
næstu áramót. Vísitölubindingin
var raunar tekin upp á þessu ári
að kröfu Samstöðu en Marek
Dabrowski, aðstoðarfjármálaráð-
herra, kveðst munu segja af sér
verði hún ekki afnumin.
Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíbeta. Reuter
Reuter
Mótmæli gegn Disney í Frakklandi
Um 100 franskir kommúnistar efndu til mótmæla er hlutabréf í
Disneylandi í Evrópu, sem stendur til að hleypa af stokkunum í
Frakklandi, voru boðin til kaups í kauphöllinni í París. Mótmælend-
urnir köstuðu eggjum og tómatsósu á mann í gerfi Mikka mús
er hann birtist á þrepum kauphallarinnar og hrópuðu: „Mikki
farðu heim“. Michael Eisner, stjórnarformaður Walt Disney-félags-
ins, sem var í París til að kynna hlutabréfasöluna, sagði að mótmæl-
in væru í engum tengslum við Disneyland. „Hver gæti haft illan
bifur á Öskubusku og Mjallhvíti," sagði Frank Fitzpatrick, yfirmað-
ur Disney í Evrópu. Hann sagði að Evró-Disneyland myndi skapa
12.000 ný störf í Frakklandi. Á myndinni er kommúnisti í þann
mund að fleygja eggi að yfirmönnum Walt Disney-fyrirtækisins.
N0TAÐAR VÉLAR
Á SÖLUSKRÁ
Beltagröfur
225B LC ’88
OK-RH-12 ’77
IH Yumbo ’84
T raktorsgröf ur:
CAT428 ’88
CAT428 ’87
MF-50b ’82
Case 580F ’82
Jarðýtur:
D7Q ’81
D7E ’68
D7E '64
D8H ’69
D4H ’88
i ÍLLJR UPPLÍSIH9JR HJÁ SitLUMINNI
Dalai Lama hlýtur friðarverðlaun Nóbels:
Hafiiar ofbeldí í barátt-
unni fyrir frelsi Tíbets
Dharmsala í Indlandi. Reuter.
DALAI Lama, trúar- og veraldlegur leiðtogi búddatrúarmanna í
Tíbet, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels i ár, hefúr verið í útlegð í
Indlandi í þijá áratugi. Þar hefur hann barist fyrir ft-elsi Tíbets og
hefur barátta hans notið vaxandi samúðar víða um heim. Egil Aar-
vik, formaður nefhdarinnar sem valdi friðarverlaunahafann, sagði
að nefhdin legði áherslu á að Dalai Lama hefði staðfastlega hafhað
því að beitt yrði ofbeldi í baráttunni fyrir frelsi Tíbets. ’Hann berst
fyrir friðsamlegum lausnum sem byggjast á umburðarlyndi og gagn-
kvæmri virðingu til að viðhalda sögu- og menningarlegri arfleifð
þjóðar sinnar," sagði Aarvik.
Tenzin Gyatso, hinn fjórtándi
Dalai Lama búddatrúarmanna í
Tíbet, fæddist 6. júlí 1935. Búdda-
múnkar báru kennsl á hann sem
hinn ijórtánda „persónugerving
samúðar Búdda" er þeir áttu leið
um fæðingarbæ hans, Lhamo
Dhondrub, þegar hann var tveggja
og hálfs árs. Hann var vígður Dalai
Lama í Lhasa 22. febrúar árið 1940.
Hernám Kínverja
Kommúnistar komust til valda í
Kína árið 1949 og í október 1950
sendu þeir hersveitir yfir landamær-
in til Tíbets, sem þeir sögðu
kínverskt landsvæði. Tíbetar vísuðu
því á bug að Kínveijar ættu tilkall
til Tíbets og bentu á að Dalai Lama,
sá þrettándi í röðinni, hefði slitið
öll tengsl við Kína árið 1912. Þegar
Kínveijar hemámu Tíbet flúði Dalai
Lama til Himalaja-fjalla en sneri
aftur til Lhasa samkvæmt sáttmála
sem Tíbetar gerðu við Kínveija árið
1951. Hann reyndi eftir mætti að
vernda trú og menningu*Tíbetatfyr-
ir sívaxandi yfirgangi Kínveija.
Hann fór til að mynda til Peking
árið 1954 til að tala um fyrir Maó
formanni og var þar í heilt ár. Þeg-
ar hann kom aftur til Tíbets var
ástandið orðið enn verra og sættu
búddamunkar æ meiri ofsóknum.
Dalai Lama og fylgismenn hans
riftu sáttmálanum við Kínveija árið
1959 og lýstu yfir sjálfstæði Tíbets.
Uppreisnin mistókst og hann flúði
ásamt 80 fylgismönnum til Ind-
lapds. Þar hefur hann lengst af
verið í útlegð í smábænum Dharm-
sala og barist fyrir frelsi Tíbets.
Ekki vongóður um lausn
deilunnar
Svo virtist sem lausn á deilu
Kínveija og Dalai Lama væri í sjón-
máli í fyrra er hann féll frá kröfum
um algjört sjálfstæði Tíbets í ræðu
sem hann hélt í Strassborg. Hann
lagði til að Tíbet fengi takmarkað
sjálfræði og Kínveijar færu áfram
með varnar- og utanríkismál lands-
ins. Sáttaumleitanir báru þó ekki
árangur og þeim var hætt þegar
kínverski herinn kvað niður mót-
mæli Tíbeta með mikilli hörku á
þessu ári.
Tíbetar efndu til fjölmargra mót-
mælagangna í Lhasa frá september
1987 til að krefjast sjálfstæðis
Tíbets. Kínverski herinn brást við
þeim af mikilli hörku og talið er að
600 Tíbetar hafi beðið bana í átök-
um við herinn á tveimur árum.
Mótmælin náðu hámarki í mars
síðastliðnum og settu kínversk
stjórnvöld herlög í Lhasa og vísuðu
öllum útlendingum úr landi.
Dalai Lama segist ekki vongóður
um að hægt verði að semja við
harðlínumennina, sem eru við völd
í Kína. Ungir og róttækir Tíbetar
hafa krafist þess að hann falli frá
friðsamlegum baráttuaðferðum
sínum og hvatt til þess að gripið
verði til vopna gegn Kínveijum. „Ég
er fylgjandi baráttu án ofbeldis,"
segir Dalai Lama. „Ekki aðeins
vegna trúarskoðana minna, heldur
einnig vegna þess að líkja má því
að beita ofbeldi við sjálfsmorð.“
Seðlabankar
lækka vexti
Frankfurt. Reuter.
SEÐLABANKI Vestur-Þýska-
lands hækkaði vexti í gær og
hafði sú ákvörðun vart verið tekin
er seðlabankar Frakklands, Bret-
lands og Sviss gripu til sömu ráð-
stöfunar. í öllum tilvikum voru
forvextir hækkaðir um 1%. Ákvað
þýski bankinn vextina til þess að
koma í veg fyrir verðbólgu og
treysta stöðu þýska marksins.
Verðbólga er 3% í Vestur-Þýska-
landi en aukinn hagvöxtur og
vöxtur í iðnaði hafa aukið hættu
á þenslu.
Óvæntbanka-
sameining
í Noregi
Osló. Reuter.
NORSKU bankamir Bergen Bank
og Den norske Creditbank (DnC)
tilkynntu óvænt í gær að þeir
myndu sameinast 1. janúar næst-
komandi. Ákveðið hefur verið að
hinn nýi banki eigi að heita Den
Norske Bank og verður hann
stærsta ijármálastofnun landsins.
Bankamir tveir hafa átt við mik-
inn taprekstur að stríða síðustu
árin.
Sjóliði dæmdur
fyrir njósnir
Washington. Reuter.
HERDÓMSTÓLL hefur dæmt 21
árs sjóliða af bandaríska flugmóð-
urskipinu Midway í 35 ára fang-
elsi fyrir tilraunir til njósna í þágu
Sovétríkjanna. Reyndi hann að
selja sovéskum leyniþjónustu-
mönnum með aðsetur í Japan
hemaðarleyndarmál. Að sögn
talsmanns bandaríska sjóhersins
átti sjóliðinn samverkamenn og
bíða þeir úrskurðar herdómstóls.
Páfi vill lögleiða
kirkjuna
Vatikaninu. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi annar
krafðist þess í gær að starfsemi
kaþólsku kirkjunnar í Úkraínu
yrði leyfð með lögum. Ef ekki
yrði fallist á það væri umbóta-
stefna Moskvustjómarinnar inn-
antóm orð. Páfi mun taka málefni
kaþólsku kirkjunnar í Sovétlýð-
veldinu Úkrafnu upp á fyrirhuguð-
um fundi þeirra Míkhaíls Gor-
batsjovs, Sovétleiðtoga, í nóvem-
ber. Jósef Stalín, fyrrum einræðis-
herra, sameinaði kirkjuna rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjunni 1945
með valdboði. Talið er að fjórar
milljónir kaþólikka iðki trú sína á
laun í Úkraínu.