Morgunblaðið - 06.10.1989, Side 19
MQRGljNHtiAÐlÐ FQi>TL!l>AÍ,UK 6; QKTpjjgR )jj39
KFR:
Sparnaði í skóla-
starfímótmælt
TRÚNAÐARRÁÐ Kennarafélags
Reykjavíkur hefur mótmælt
harðlega hækkunum sem orðið
hafa á nauðsynjavörum og þeirri
kjaraskerðingu sem það hefur
haft í for með sér fyrir launafólk.
Bent er á að sfjórnvöld hafí ekki
staðið við fyrirheit sem gefín
voru í tengslum við síðustu kjara-
samninga og skorað á þau að
beita sér fyrir aðgerðum sem
rétti hag launafólks hið bráðasta.
Þá fordæmir fundurinn ennfrem-
ur þæt' sparnaðaraðgerðir í skóla-
starfi sem tóku gildi í upphafi þessa
skólaárs, sem bitna fyrst og fremst
á nemendum. Skorað er á ríkis-
stjórnina að sjá til þess að skóla-
starf í landinu fái það fjármagn sem
þarf til þess að grunnskólaiögum
verði framfylgt.
Þá var á fundi stjórnar Kennara-
sambands íslands kynnt skýrsla
nefndar um Námsgagnastofnun. í
ályktun sjórnarinnar er lýst yfir
ánægju með skýrsluna og sagt að
KÍ hafi alla tíð litið á Námsgagna-
stofnun sem eina mikilvægustu
þjónustustofnun grunnskóla lands-
ins og ítrekað bent á að henni verði
gert kleift fjárhagslega að gegna
lögboðnu hlutverki sínu. Skorað er
á yfirvöld menntamála að hrinda
tillögum nefndarinnar í fram-
kvæmd.
trr^4
Tölvuborð
Prentaraborð
Reiknivélar
Ritvélar
Hugbúnaður
o.fl.
VDRUR
TÖLVUVORUR - SOLUAÐILI
SKEIFUNNI 17 - 108 REYKJAVIK
SIMI 91-687175
HUGBUNADUR
SKRlFS7 OF UTÆa /
ALVORU FJALLAHJOL
ENGIN VENJULEG HJ
Geró af bandarísku hugviti
og japanskri tæknisnilld = Muddy Fox
Alvöru fjallahjól!
- 20 ára ábyrgó -
Einkaumboó á íslandi
Sérverslun í
meira en 60 ár
Stofnsett 1925
Reióhjólaverslunin
ORNINN
Spítalastíg 8 við Oðinstorg símar 14661 268881
Afínæli:
Finnbogi G.
Lárusson á
Laugarbrekku
Finnbogi G. Lárusson, Laugar-
brekku, Breiðuvíkurhreppi, Snæ-
fellsnesi, verður 80 ára sunnudag-
inn 8. október nk.
Hann á nú einnig 50 ára starfsaf-
mæli sem formaður sóknarnefndar
Hellnasóknar. Þá hefur hann verið
í sóknarnefnd í 55 ár, umsjónar-
maður kirkju og kirkjugarða í 51
ár og organisti í 47 ár.
Auk þess hefur hann verið safn-
aðarfulltrúi í 28 ár og meðhjálpari
í 12 ár. Fréttaritari Morgunblaðsins
hefur Finnbogi verið um árabil.
Söfnuður Hellnasóknar ætlar að
minnast hans rniklu eg margþættu
starfa fyrir kirkju og söfnuð með
því að halda upp á afmæli hans
sunnudaginn 8. október í Arnarbæ,
Arnarstapa.
Þar tekur Finnbogi og safnaðar-
fólk á móti gestum kl. 20.
NÝ
ELDHÚSLÍNA
T FRÁ
ÁRMANNSFELLI