Morgunblaðið - 13.10.1989, Page 1
52 SIÐUR B/C
233. tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Rax.
SILDARSKIP SEKKUR
SÍLDARSKIPIÐ Arnþór EA frá Árskógssandi í Eyjafirði sökk rétt eftir
hádegið í gær út af Hvalsnesi. Áhöfnin hafði þá yflrgefið skipið nokkrum
klukkustundum áður, en mikil slagsíða kom á Arnþór um klukkan eitt í
fyrrinótt. Skipið var þá með síldarnótina á síðunni op: var verið að dæla
síldinni um borð. Þegar reynt var að keyra skipið lenti nótin í skrúfunni
og eftir það voru því allar bjargir bannaðar. Sigurfari ÓF kom með skip-
veijana af Arnþóri til Reyðarfjarðar um hálfáttaieytið í gærkvöldi og
héldu skinveijar ferðinni áfram heim landleiðina. Sjá frétt á miðopnu.
Líbanon:
Aoun hafnar
friðaráætlun
Beinít. Reuter.
MICHEL Aoun, yfirmaður sveita
ki'istinna manna í Libanon, sagði
í gær að friðarviðræður líbanskra
þingmanna hefðu stofnað sjálf-
stæði lands síns í hættu. Hann sór
þess dýran eið að hrekja sýrlenska
herinn úr landinu.
Nefnd líbanskra þingmanna hafði
samþykkt áætlun, þar sem gert vai'
ráð fyrir að múslimar hefðu jafn
mikil völd og kristnir á þinginu.
Ennfremur yrði framkvæmdavaldið
í höndum ríkisstjórnar er forsætis-
ráðherra úr röðum múslima veitti
forystu. Einnig var ráðgert að sýr-
lenskir hermenn yrðu fluttir í áföng-
unt til Austur-Líbanons.
„Þingmennirnir og þeir sem
standa fyrir viðræðunum ættu að
skilja það að sjálfstæði landsins er
ekki til kaups. Þeir ættu að muna
að stríð hefui- brotist út og það held-
ur áfram þar til markiriið okkar
hafa náðst,“ sagði Aoun.
Tyrkland:
Seðlabanka
landsins steftit
Ankara. Reuter.
IBRAHIM Ergudin, lögfræðingur
í Istanbul, ætlar að draga forsvars-
menn seðlabanka Tyrklands fyrir
rétt. Hann hefur sakað þá um að
kynda undir óðaverðbólgu með
taumlausri peningaútgáíu.
Verð á neysluvai-ningi hækkaði
um 73% frá ársbyrjun til september
og 76% meira peningamagn er nú
þar í umferð en var í ársbyijun.
„Seðlabankinn hefur prentað
milljarði líra og rýrt þannig verðgildi
gjaldmiðils okkar,“ sagði Ergudin.
Pettersson látinn laus
vegna ónógra sannana
Paime-málið:
Talinn eiga rétt á háum skaðabótum
Stokkhólmi. Reuter. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
IIOFRÉTTUR í Svíþjóð fyrirskipaði í gær að Christer Petterssou, sem
var dæmdur í undirrétti fyrir að hafa myrt Olof Palme, íyrrum forsæt-
isráðherra Svíþjóðar, skyldi leystur úr haldi tafarlaust. Opinber úr-
skurður hofréttarins verður ekki birtur fyrr en 2. nóvember en fast-
lega er búist við því, að hann verði á annan veg en dómur undirréttar
frá því 27. júlí síðastiiðinn. Pettersson var dæmdur í undirrétti til
ævilangrar fangelsisvistar fyrir morðið á Palme 28. febrúar 1986.
Hofrétturinn sem er miðdómsstig-
ið í Svíþjóð var skipaður fjórum lög-
lærðum dómendum og þremur með-
dómendum og voru þeir sammála
um, að ekki lægju fyrir nægar sann-
anir til að saka hann um morðið. í
undirréttinum vildu tveir löglæi'ðir
dómarar sýkna Pettersson en sex
meðdómarar töldu hann sekan. Var
þá strax talið ólíklegt, að sannanir
yrðu taldar nægar, þegar málið
kæmi fyrir æðri dómsstig.
Dómur undirréttai' byggðist eink-
um á vitnisburði Lisbeth Palme,
ekkju Olofs Palme, sem kvaðst hafa
séð Pettersson flýja af morðstað
skömmu eftir atburðinn. Pettersson
hefur neitað öllum sakargiftum bæði
fyrir undirrétti og hofrétti, en mál-
flutningi fyrir honum lauk á mánu-
daginn.
Saksóknari ríkisins tekui' afstöðu
til þess eftir 2. nóvember, hvort
hann áfrýjar málinu til liæstaréttar.
Hitt á einnig eftir að koma í ljós,
hvort hann fær áfrýjunarleyfi.
Sænsk lögregluyfirvöld hafa með
ýmsum hætti búið sig undir það, að
Pettersson kynni að verða sleppt.
Þau hafa látið útbúa ný persónu-
skilríki handa honum og er ráðgert
að hann dveljist á leynilegum stað
í Svíþjóð eða erlendis eftir að hann
hefur verið leystur úr haldi.
Lagakanslarinn, sem er eftirlits-
maður stjórnvalda með starfi emb-
ættismanna, taldi í gær, að Petters-
son ætti rétt á háum bótum fyrir
að hafa setið í fangelsi, en hann var
handtekinn 14. desember 1988.
Taldi lagakanslarinn, að bæturgætu
oltið á milljónum sænskra króna, en
til svo hárra bótagreiðslna hefur
aldrei fyrr komið í sænskri réttar-
sögu.
RéútcT
Christer Pettersson á leið til heimilis vinar síns þar sem hann ætl-
aði að fagna nýfengnu frelsi.
Yottar fyrir „g“lasnost“ í
austur-þýskum dagblöðum
Vpstui-Hei'líii, Aiistiii'-Berlin. Reuter.
I austur-þýskum dagblöðum,
sem margir segja að bjóði upp á
leiðinlegustu lesningu sem völ er
á, hefúr mátt greina vott af
„glasnost" í anda sovéskra fjöl-
miðla — opinskáa umræðu um
þjóðfélagsleg vandamál.
Lesendur dagblaða eru dolfallnir
yfir þeim breytingum sem hafa orð-
ið á austur-þýskum dagblöðum t
þéssari viku. Dagblöðin hafa jafnan
verið undirlögð af sjálfshóli stjórn-
valda en að undanförnu hefur liins
vegar borið nokkuð á gagnrýninni
umræðu. Þannig sagði í grein í dag-
blaði Kristilega demókrataflokksins,
Die Union: „Upplýsingar um atburði
liðinna daga og nátta í Dresden
liafa verið hlutdrægar og villandi,"
sagði blaðið og vísaði til alvarlegra
mótmæla undanfarna fimm daga.
Kristilegir demókratar hafa starf-
að að nafninu til í Austur-Þýska-
landi en ætíð undir, handaijaðri
kommúnistaflokksins.' Þeir hafa að
undanförnu vakið máls á því með
varfærnum hætti að kominn væri
tími stjórnmálaumbóta i landlnu.