Morgunblaðið - 13.10.1989, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 13.10.1989, Qupperneq 7
7 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1989 Þing Verkamannasambands íslands sett í gær: V erkalýðshreyfing- in of skorðuð í göml- um vinnubrögðum - sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins í setningarræðu Morgunblaðið/Þorkell Frá setningu 15. þings Verkamannasambands íslands í gær. FIMMTÁNDA þing Verkamanna- sambands Islands var sett í gær, en Verkamannasambandið á 25 ára afmæli um þessar mundir. Guðmundur J. Guðmundsson for- maður Verkamannasambandsins sagði í setningarræðu sinni að íslensk verkalýðshreyfing væri of skorðuð í gömluin vinnubrögðum og stirðum starfsháttum. Ef ekki tækist að láta vinda nýrra hug- mynda og breyttra vinnubragða leika um verkalýðshreyfinguna, þá gæti það leitt til þess að hreyf- ingin yrði ekki lengur það afl sem verkafólk treysti og vildi fylkja sér um. Guðmundui-J. Guðmundsson sagði í ræðu sinni að það vekti furðu að á sama tíma og öflug fyrirtæki í fram- leiðslugreinunum ramba á barmi gjaldþrots eða séu gjaldþrota, þá skuli Ijármagnskostnaður vera hærri en vinnulaun í ótrúlega mörgum til- fellum. Vaxtakostnaðurinn væri ekki einungis að drepa atvinnufyrirtækin, heidur væri hluti launþega einnig að sligast undan vaxtakostnaði. I ræðu sinni vék Guðmundur að fyrirsjáanlegum samdrætti í sjávar- afla, og sagði að ekki dygðu neinar mótmælasamþykktir í þeim efnum, heldur yrði verkafólk sjálft að koma með tillögur til lausnar. Minnkandi heildarafla um þúsundir tonna yrði að svara með auknu verðmæti þess hráefnis sem fengist, en íslendingar hefðu ekki efni á að vinna fiskinn nema í dýrustu pakkningar, og frem- ur yi'ði 'að huga að gæðum en magni. Hann sagði að vinnsla og verslun á íslensku sjávarfangi skapaði þúsund- um tnanna atvinnu í Bretlandi og Þýskalandi, og svo langt gengi þetta að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefði fengið sérstaka heiðursviður- kenningu frá borgarstjórninni í Grimsby fyrir framsækni og dugnað við að útrýma atvinnuleysi þar í borg, en á meðan væri því spáð að þúsund- ir íslendinga muni gangá atvinnu- lausir. Hann sagði að bylting hefði orðið í atvinnuháttum í íslenskum sjávai'útvegi, ekki síst varðandi markaði, en töluvert hefði skoit á að íslensku sölusamtökin hefðu fylgt þessm'i þróun nægilega eftir. „Ég held að við þurfum að vera óhrædd að stíga skref í tírna fijáls- ari viðskiptahátta, aukinnar full- vinnslu og sölu á dýrari markaði. íslensk fiskimið eru það verðmæt að þau eiga' að getað skapað blóm- strandi atvinnulíf í þessu landi. Til að efla íslenskan fiskiðnað þurfum við að vera óhrædd við samstarf við samtök atvinnurekenda á því sviði, samstarf við ríkisstjórn og stjórn- málaflokka. Það er allt í húfi að þetta takist," sagði Guðmundur J. Guðmundsson. Lagabreytingar samþykktar Á þinginu í gær voru samþykktar breytingar á lögum Verkamanna- sambandsins sem fela í sér að innan sambandsins skuli starfa þijár deild- ir atvinnugreina, en á aukaþingi sambandsins á síðasta ári voru stofn- fundir deildanna haldnir. Um er að ræða deildir starfsfólks í fiskvinnslu, byggingariðnaði og mannvirkjagerð og deild starfsmanna ríkis og sveitar- félaga. Verkefni deildanna skulu vera að annast undirbúning og gerð kjarasamninga í umboði verkalýðs- félaga, fylgjast með aðbúnaði og vinnuumhverfi í greininni, efla menntun og starfsþjálfun, og annast önnur þau mál sem snerta viðkom- andi atvinnugrein sérstaklega. Umsköpun sjávarútvegs Jóhann Antonsson, viðskiptafræð- ingur og starfsmaður Atvinnutrygg- ingasjóðs, flutti erindi á þingi Verka- mannasambandsins í gær um hug- myndir sínar varðandi umsköpun sjávarútvegsins, en Verkamanna- sambandið réð hann til að vinna að tillögum í sjávarútvegsmálum. Jó- hann gerði grein fyrir hugmyndum sínum á fundi sem haldinn var í tengslum við fjórðungsþing Fjórð- ungssambands Norðlendinga í síðasta mánuði, og var þá greint frá þeim í Morgunblaðinu. Hann telur að skylda eigi öll fiskiskip sem veiða í íslenskri landhelgi til að landa afla sínum á íslenska fiskmarkaði, en útlendingar geti komið hingað til lands og boðið í fiskinn unninn eða óunninn. Þá telur hann að auka megi verðmæti sjávarafla um 40% að meðaltali með því að selja íslensk- an fisk í smápakkningum á neyt- endamarkaði erlendis. Þing Verkamannsambands. ís- lands stendur fram á laugardag, en því lýkui' með stjórnarkosningum. Á þinginu sitja 149 fulltrúar, en-54 verkalýðsfélög eiga aðild að Verka- mannsambandi íslands. AEG AFKOST ENDING GÆÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.