Morgunblaðið - 13.10.1989, Side 18

Morgunblaðið - 13.10.1989, Side 18
18 MORGUNBLADIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1989 Nóbelsverðlaunin í eðlis- og efiiafræði: Veitt fyrir uppgötv- anir í atómvísind- um og erfðafræði New York, Stokkhólmi. Reuter. ÞRIR fræðimenn deila Nóbelsverðlaunum í eðlisfræði í ár og tveir efnafræðiverðlaununum, að því er sænska vísindaakademían til- kynnti í gær. Eðlisfræðiverðlaunin voru veitt fyrir uppgötvanir í atómvísindum og þróun nákvæmra aðferða til að mæla tíma. Verðlaunahafarnir em Hans Dehmelt, 67 ára prófessor. við Washington-háskólann í Se- attle í Bandaríkjunum, Wolfgan Paul, 76 ára prófessor í Bonn í Vestur-Þýskalandi og Norman Ramsey, 74 ára prófessor við Har- vard-háskólann í Boston, Banda- ríkjunum. Ramsey hlýtur helming verðlaunaupphæðinnar, eða 227.500 dollara, en Dehmelt og Paul skipta hinum helmingnum á milli sín. Ramsey er faðir svonefndrar sesíum-atómklukku en hún er und- irstaða allra tímamælinga í dag. Dehmelt og Paul urðu fyrstir til að sjá atóm, en það tókst þeim í tilraunum í Heidelberg 1979. Efnafræðiverðlaunin voru veitt bandarísku prófessorunum Sidney Altman og Thomas Cech. Altman er fimmtugur og hefur kennt við Yale-háskólann í 17 ár. Cech er 41 árs og gegnir stöðu við háskól- ann í Colorado. Rannsóknir þeirra í erfðafræði hafa stóraukið þekk- ingu manna á starfsemi ríbósa- kjarnsýra og þar með möguleikum á auknum sjúkdómavörnum, að því er sagði í tilkynningu sænsku aka- demíunnar. Gro Harlem Brundtland, fráfarandi forsætisráðherra Noregs, ræðir við Jan P. Syse, sem tekur við for- sætisráðherraembættinu á mánudag. Fjárlagafrumvarp fráfarandi ríkisstjórnar Noregs: Skattar lækkaðir og fram- lög til umhverfismála aukin oiib-irí nm Vwail 97 nrÁcont onLr hoi Ríkisstjórn borgaraflokkanna tekur við á mánudag Ósló. Frá Rune Tinibeiiid, fréttaritara Morgiinbladsins. GRO Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, lagði í gær fram fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar sinnar fyrir árið 1990. í því er gert ráð fyrir að útgjöld til umhverfismála verði aukin stórlega en skatt- ar lækkaðir. Þetta var jafnframt síðasta embættisverk Gro Harlem Brundtland því í ræðu sinni kunngerði hún að ríkisstjórn hennar hygðist víkja fyrir minnihlutastjórn borgaraflokkanna þriggja. Niðurstöðutölur fjárlagafrum- milljarða norskra króna (um 85 millj. ísl. kr.) vanti til að ná endum varpsins eru 333,8 milljarðar norskra króna (um 2.940 milljarðar ísl. kr). Gert er ráð fyrir að hallinn á rekstri ríkissjóðs nemi 38,4 mill- jörðum norskra króna (um 337 millj. ísl. kr.) en þegar tekið hefur verið tillit til tekna af olíu- og gas- vinnslu er geit ráð fyrir að 9,7 saman. í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að tekjur ríkisins í formi beinna skatta á einstaklinga minnki um röska tvo milljarða norskra króna en skattálögur á fyrirtæki munu dragast saman um 1,5 mílljarða króna. Þæ- með verða skattaálögur aftur orðnar jafnmiklar og árið 1986 er efnahagsörðugleikarnir hófust. Ríkissjóði verður hins vegar bætt upp tekjutapið og svo virðist sem Norðmenn standi frammi fyrir um: talsverðum vöruverðshækkunum. í frumvarpinu er lagt til að tóbak hækki um tíu prósent, bensín um átta en öl og áfengi um níu til tólf prósent. Aðrir skattar sem ríkið leggur á hinar ýmsu vörur munu hækka um fjögur prósent. Útgjöld til umhverfismála verða Sovétmenn treysta kafbátaflotann: Fleiri bátar hafa aldrei ver- ið afhentir á þessum áratug Hljóðlátir árásarkafbátar valda varnarliðsmönnum í Keflavík áhyggjum FLOTI Sovétmanna mun fá fleiri kafbáta afhenta á þessu ári en nokkru sinni fyrr á öllum þessum áratug. Upplýsingar þessar koma fram í viðtali herfræðitímaritsins Jane’s Defence Weekly við banda- rískan flotaforingja Carlisle Trost, yfirmann aðalstjórnstöðvar Bandaríkjaflota. Flotaforinginn segir vígvæðingu Sovétmanna sýna ljóslega að Bandaríkjamenn verði áfram að leggja ríka áherslu á að efla styrk sinn á sviði gagnkafbátahernaðar. I öðru hefti tímarits- ins er einnig að finna grein um mjög fúllkomna árásarkafbáta Sovét- manna sem m.a. kunna að vera á ferð í nágrenni íslands og kemur þar fram að varnarliðsmenn í Keflavík standa frammi fyrir erfiðu verkefni því sovéskir kafbátar verða sífellt hljóðlátari. Ekki er ljóst hvernig skýra ber aukinn styrk kafbátaflota Sovét- manna. Heldur hefur dregið úr flotaumsvifum Sovétmanna á síðustu árum að sögn vestrænna sérfræðinga og hefur þeirrar þró- unar einnig orðið vart í nágrenni íslands. Ein skýringin er sú að óvenjumargar eldri „pantanir" hafi fengist afhentar í ár en síðan er vitaskuld hugsanlegt að núver- andi ráðamenn hafi einfaldlega ákveðið að efla flotann verulega, þvert á fyrri yfirlýsingar. 13 herskip í smíðum í gögnum sem höfundur grein- arinnar fékk á skrifstofu flotafor- ingjans kemur fram að nú þegar hafa Sovétmenn tekið fleiri kjarn- orkuknúna kafbáta í þjónustu sína á þessu ári en því síðasta,er flot- inn fékk fjóra báta afhenta. Segir þar einnig að 13 herskip séu nú í smíðum í Sovétríkjunum; þrjú flugmóðurskip, beitiskip af gerð- inni „Kírov“, tvö beitiskip af „Slava“-gerð, tveir tundurspillar af gerðinni „Údaloj" og átta „Sovremenníj“-tundurspiilar auk freigátu af „Krívak“-gerð. Trost flotaforingi segir að ráða- mönnum beri að leggja ríka áherslu á að efla viðbúnað Banda- ríkjaflota því þrátt fyrir þá þíðu sem ríkir í samskiptum risaveld- anna ógni kafbátafloti Sovét- manna öryggi Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu. Ógnun þessi hafi vaxið frá því á síðasta ári og því sé fráleitt að skera niður fjárfram- Iög til gagnkafbátahernaðar en þær raddir hafa heyrst að spara megi miklar fjárhæðir á þessu sviði auk þess sem fullyrt hefur verið að miða beri viðbúnað Bandaríkjaflota í vaxandi mæli við átök í þriðja heiminum. Fullkomnari árásarkafbátar Trost flotaforingi segir örar framfarir hafa átt sér stað á sviði kafbátasmíða. Sovétmenn ráði nú yfir mun hljóðlátari kafbátum en Sovéskur árásarkafbátur af gerðinni „Akúla“. Bátar sem þessi ná 42 hnúta hraða og eru hljóðlátir mjög. Vestrænir sérfræðing- ar hafa talið þá öflugustu árásarkafbáta Sovétmanna en nýjar upplýsingar benda til þess að vélarhljóðið aukist eftir tveggja til þriggja ára notkun sökum slits. áður en eftirlits- og leitarbúnaður Bandaríkjamanna hafi ekki verið þróaður að því skapi. Vikið er að þessum vanda í grein í Jane’s Defence Weekly eftir Joris Janss- en Lok. Greinina ritar hann eftir að hafa sótt heim varnarstöðina í Keflavík. Fram kemur að kaf- bátaeftirlitssveitir telji almennt mesta ógn stafa af sovéskum kjarnorkuknúnum árásarkafbát- um af gerðinni „Oscar“. Viðmæ- lendur höfundar í Keflavík segja að ekki liggi fyrir nægilega full- komnar upptökur af vélarhljóði bátsins og því sé mjög erfitt að fylgjast með ferðum kafbáta af þessari gerð. Byrðingur bátanna er tvöfaidur og er holrúmið fyllt af sjó sem veitir góða einangrun. Sökum byggingarlagsins þyrfti að líkindum þijú tundurskeyti af gerðinni MK 46 til að granda ein- um slíkum. „Oscar“-bátarnir halda sig yfirleitt í Barentshafinu, norður og austur af Knöskanesi en þeim er ætlað að vetja eld- flaugakafbáta Sovétmanna. Á átakatímum myndu sovéskir árásarkafbátar halda til suðurs og freista þess að hirða birgða- flutninga Atlantshafsbandalags- ins frá Bandaríkjunum til Evrópu. Það er af þessum sökum sem eft- irlitssveitirnar í Keflavík hafa áhyggjur af „Oscar“-bátunum. Bátarnir eru búnir 24 SS-N-19 stýriflaugum sem ætlaðar eru til árása á skip og draga um 550 kílómetra. Sovétmenn ráða nú yfir fimm slíkum og fleiri bátar eru í smíðum. aukin um heil 27 prósent auk þess sem áætlað er að auka framlög til rannsókna og menntunar á þessu sviði um 19 prósent. Gunnar Berge fjármálaráðherra segir að einkaneysla muni að líkind- um aukast um tvö prósent á næsta ári nái frumvarpið fram að ganga. Eftirspurn innanlands muni því aukast sem aftur komi til með að draga úr atvinnuleysi. Jan P. Syse, verðandi forsætisráðherra Noregs kveðst fullur efasemda um ágæti fjárlagafrumvarpsins og flest bend- ir til þess að minnihlutastjórn borg- araflokkanna geri á því miklar breytingar. Gro Harlem Brundtland leggur fi-am lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt í dag, föstudag. Enn hafa stjórnarflokkarnir þrír, Hægri- flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristilegi þjóðai-flokkurinn, ekki gengið frá skiptingu ráðherraemb- ætta í ríkisstjórninni nýju. Heimild- ir herma að tekist sé á um hver hreppi embætti fjármálaráðherra. Jan Syse fullvissaði menn í gær um að mál þetta yrði til lykta leitt um helgina en á mánudag tekur Syse við stjórnartaumunum eftir að hafa gengið á fund Ólafs konungs. Nigel Lawson; Vextir verða ekki lækkaðir Blackpool. Reuter. NIGEL Lawson, Qármálaráðherra Bretlands, vísaði því á bug i gær að samdráttur vofði yfir bresku efnahagslífi og neitaði að falla frá umdeildri hávaxtastefnu sinni. Lawson sagði á landsfundi breska íhaldsflokksins í Blackpool að ekki yrði slegið slöku við í baráttunni gegn verðbólgu. Þær raddir hafa gerst æ háværari innan flokksins að Lawson segi af sér eftir að hann hækkaði vexti um eitt prósentustig í 15% fyrir viku. „Menn spyija hvort hægt sé að fara aðra leið en að halda vöxtunum háum. Og hvort tryggt sé að sú stefna hafi tilætluð-áhrif. Svarið er að það er engin önnui' leið og vaxta- stefnan mun bera árangur," sagði Lawson, „Ég held áfram að grípa til nauðsynlegra aðgerða, livei'su óvin- sælar sem þær eru, til að treysta efnahaginn,“ bætti hann við. Ýmsir óttast að efnahagssam- dráttur blasi nú við Bretum þar sem viðskiptahalli þeirra hefur aldrei ver- ið meiri en nú og staða pundsins verið veik. Þessu vísaði Lawson á bug. „Þetta þarf alls ekki að boða samdrátt, svo framarlega sem fyrir- tækin halda kostnaðinum niðri, þar á meðal launakostnaðinum," sagði fjármálaráðherrann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.