Morgunblaðið - 13.10.1989, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 13.10.1989, Qupperneq 40
SJQVAaríALMENNAR iniim FÉLAG FÖLKSINS e EINKAREIKNINGUfí ÞINN í LANDSBANKANUM FOSTUDAGUR 13. OKTOBER 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Sovéskar horflugvélar: Ferðum í námunda við Island fækkar MIKIL fækkun hefur orðið á ferðum sovéskra herflugvéla í nágrenni Islands það sem af er þessu ári. Um miðjan september höfðu orrustuþot- ur frá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli flogið í veg fyrir 50 sovéskar herílugvélar við Island á þessu ári. Árið 1988 var flogið í veg fyrir 120 sovéskar vélar. Á þessum áratug hafa sovésku vélarnar við ísland orðið flestar árið 1985 eða alls 170. Fram til þessa urðu þær fæstar árið 1984 eða 70. Þessar tölur eru birtar í upplýs- ingabréfi Öryggismálanefndar, sem kom út í gær. Þar er m.a. leitt get- um að því, að fækkunin frá því í fyrra eigi að hluta rætur að rekja til þess að NÁTO hélt enga stóra flotaa;fingu í norðurhöfum á þessu ári. Árið 1985 fór fram mesta flota- Farsíma- kerfíð úr sambandi? SEGULBANDSSPÓLUR þær, sem notaðar eru til að skrá farsímasímtöl hafa fyllst, að sögn Magnúsar Geirssonar og ýmissa annarra formælenda Rafíðnaðarsambandsíns. Segja þeir, að því sé nú hægt að hringja úr farsíma án end- urgjalds bæði innanlands og til útlanda. Ólafur Tomasson póst- og símamálastjóri vildi hvorki játa þessu né neita en sagði koma til álita að loka farsímakerfinu meðan á verkfallinu stendur, fengist ekki ieyfi til að skipta um_ spólih- Á skrifstofu Rafiðnaðarsam- bandsins fengust þær uppiýs- ingar að að degi til væri staðin vakt til að tryggja að starfsmað- ur sem ekki er í verkfalli skipti ekki um spólu. æfing Sovétmanna til þessa á Norð- ur-Atlantshafi. Það ár efndi NATO einnig til mikillar æfingar á svipuð- um slóðum. Fjöldi sövéskra herflugvéla við landið hefur minnkað stöðugt und- anfarin þijú ár. Segir í upplýsinga- bréfinu að vafalítið megi rekja þá þróun til almennt minnkandi hern- aðarumsvifa Sovétmanna á sama tíma utan sovéskra heimahafa, þótt mikil skyndileg fækkun á þessu ári kunni að hluta að eiga sér aðrar og tilviljanakenndari skýringar. Sjá í miðopnu:Réttur Varsjár- bandalagsins til eftirlits á Is- landi og á bls. 18 frétt um vax- andi styrk kafbátaflota Sovét- Morgunblaðið/Júlíus Dyraverðir Þjóðleikhússins bera einn verkfallsvarða Rafiðnaðarsambandsins út úr Þjóðleikhúsinu gærkvöldi. Verkfall rafiðnaðarmanna: Verkfallsverðii’ bornir með valdi út úr Þjóðleikhúsinu Ekki gerst í verkfalli hér síðan 1955, segir formaður Rafiðnaðarsambandsins DYRAVERÐIR Þjóðleikhússins báru fimm verkfallsverði Rafiðn- aðarsambandsins með valdi út úr Þjóðleikhúsinu klukkan 19.50 í gærkvöldi, tíu mínútum áður en sýning á söngleiknuin Oliver átti að hefjast. Verkfallsverðirnir höfðu aftrað Gísla Alfreðssyni þjóðleikhússtjóra frá að kveikja á spennistöð fyrir ljósabúnað leikhússins. „Þetta er fáheyrt. Svona atvik hljóta að hafa ein- hveijar afleiðingar, það er alveg ljóst. Eg kannast ekki við aö svona atvik hafi gerst í verkfalli hér síðan 1955,“ sagði Magnús Geirsson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins, þegar hann var Drög að frumvarpi til laga um fískveiðistjórnun: Sóknarmarkið leggist niður og aflakvóti bundinn skipum Smábátar falli undir sömu reglur og önnur fiskiskip Veiðileyfagjaldi ætlað að standa undir veiðieftirliti Sjávarútvegsráðuneytið kynnir í ráðgjafanefnd um stjórnun fiskveiða í dag drög að nýju frumvarpi til laga um stjórnun fískveiða. Nokkrar meginbreytingar eru á því frá gildandi lögum. Mesta breytingin felst í afnámi sóknarmarks. Smábátar verði felldir undir sömu reglur og önnur fiskiskip, þeim verði úthlutað ákveðnum kvóta á hvern bát, fjölg- un smábáta í atvinnuskyni verði bönnuð, og gerður skýr greinarmunur á veiðum smábáta í atvinnuskyni og tómstundaveiðum. Veiðileyfísgjöld verði miðuð við aflakvóta og stærð skipa og þeim ætlað að standa undir kostnaði við veiðieftirlit. Framsalsheimildir á kvóta verði mjög rúmar og fleiri atriði stjórnunarinnar verði bundin í lögutn en áður. Gildistími laganna er ekki ákveðinn og þvi munu þau gilda þar til önnur lög feysa þau. af hólmi. Kvótinn verði áfram bundinn skipunum sjálfúm. " Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti byggð á tillögum fjögurra nefnda til undirbúnings iagagerðar þessarar. I áliti allra hópanna kom fram sú skoðun að nauðsynlegt væri að stjórnunin væri ákveðin tii langs tíma til að auðvelda mönnum áætla- nagerð og að auka hagkvæmni. Vegna þessa er ekkert kveðið á um gildistíma laganna og þarf því ný lög til að breyta þeim eða koma í stað þeirra. Samkvæmt drögurfum yrði sókn- armarkið lagt niður og öllum skipum úthlutað aflamarki. Vegna þess mun þurfa að koma tii nokkuð flókinn útreikningur á afiamarki þeirra skipa, sem nú eru á sóknarmarki. Reiknað yrði meðalaflamark í þorsk- ígildum fyrir hvem flokk sóknar- marksskipa. Þá yrðu reiknaðar bæt- ur í þorskígildum til þeirra skipa, sem hafa meðalaflamark lægra en meðal- talið í flokknum verður. Loks er áætiað að reikna bætur sem hlutfall á milli meðalaflamarks og aflamarks viðkomandi fiskiskipa. Bætur þessar yrði óheimilt að færa á milii skipa. Stjórn á veiðum smábáta verður nú sú sama og á öðrum skipum, ef samþykkt verður. Hveijum bát á að úthluta aflamarki og nýja báta má ekki taka í gagnið nema aðrir hverfi úr rekstri á móti. Þar fyrir utan verð- ur greint milli tómstundaveiða og veiða í atvinnuskyni. Sérstakur flokkur báta á tómstundaveiðum verður háður öðrum skilyrðum. Þeim verður aðeins heimilt að stUnda handfæraveiðar án sjálfvirkni, þeim verður óheimiit að selja afla sinn og verður gert að greiða veiðileyfisgjaid, sem rennur til hafrannsókna. Áætluð er ný reglugerð um vigtun afla, en samkvæmt henni yrði skylda að vigta allan afla, sem á land kem- ur. Eiga löggiltir vigtarmenn á hveij- um stað að annast það verk og skila inn daglegum vigtarskýrslum til hafnaryfirvalda á hverjum stað. Þá færi skipstjórar nákvæma dagbók um afla og ráðstöfun hans. Nú standa veiðileyfagjöld aðeins undir tæplega fimmtungi kostnaðar við veiðieftirlit. I frumvarpsdrögun- um er gert ráð fyrir því að gjöldum þessum verði breytt, þau hækkuð og miðuð við aflaheimildir og stærð skipa, þannig að þau standi undir eftirlitinu. Drögin gera ráð fyrir, að framsals- heimildir á afla verði rýmkaðar tölu- vert. Ekki verðj lengur þörf á því að leita samþykkis sveitarstjórna eða verkalýðsfélaga við framsal á kvóta. Ekki er gert ráð fyrir því að aflaheim- ildir yrðu bundnar við byggðarlög eða landshluta, heldur við það miðað að Byggðastofnun eða aðrir opin- berir aðilar geti gripið til þeirra fjár- hagsráðstafana, sem þurfa þykir til að hafa áhrif á byggðaþróun. Stefnt er að því að lagt verði fram sérstakt frumvarp til laga um úreld- ingasjóð fiskiskipa til að stuðla að fækkun fiskiskipa. I frumvarpsdrögunum er stefnt að því að festa sem flestar megin- reglur veiðistjórnunarinnar í lög til frambúðar og því verði mun færri atriði en áður ætluð ráðherra til ákvörðunar. spurður álits á atburðunum í Þjóðleikhúsinu. Magnús vildi ekki að svo stöddu segja hvernig Rafiðnaðarsamband- ið mundi bregðast við þessu atviki. „Það er öruggt mál að þetta flýtir ekki fyrir lausn deilunnar," sagði hann. Samninganefnd Rafiðnaðar- sambandsins og ríkisins sátu enn á fundi klukkan eitt í nótt og sagðist Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta- semjari reikna með fundi til morg- uns.. Hann sagði að nokkuð hefði miðað en enn bæri mikið á milli. Verkfallsverðirnir komust óáreittir inn í Þjóðleikhúsið um klukkan 15 í gær. Verkfallsverðirn- ir höfnuðu kröfum þjóðleikhússtjóra um að þeir yfirgæfu húsið. Dyraverðir hússins voru kallaðir til og þegar þeir komu á staðinn höfðu verkfallsverðirnir fimm allir tekið sér stöðu við spennistöðina. Þeir streittust á móti þegar dyra- verðirnir tóku á þeim og fór svo að þeir voru bornir út með valdi hver á eftir öðrum. Meðan síðasti verkfallsvörðurinn var borinn út úr húsinu ræsti Gísli Aifreðsson spennistöðina og settist að því loknu við stjórnborð ijósabúnaðarins. Sýn- ingin hófst á auglýstum tíma að viðstöddum fjölda áhorfenda en að sögn Signýjar Pálsdóttur þjóðleik- húsritara hafði 80 manna hópur á vegum grunnskóla Borgarness hætt við leikhúsför vegna aðgerðanna. I gær afturkölluðu rafiðnaðar- menn heimild ríkisspítalanna til að fá þjónustu eins og ekki væri um verkfal! að ræða. Þess í. stað er nú aðeins gert við nauðsynlegan búnað á hjúkrunardeildum en önnur til- felli eru metin sérstaklega með hlið- sjón af öryggi sjúklinga, að sögn skrifstofu Rafiðnaðarsambandsins. Sjá bls.2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.