Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
Sovétríkin:
57 menn farasl í flug-
slysi í Azerbajdzhan
Moskvu. Reuter.
57 MENN fórust þegar sovésk herflutningaflugvél af gerðinni Iljúshín-
76 fórst í Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan síðastliðið miðvikudagskvöld.
Um borð í vélinni voru 50 fallhlifarhermenn sem voru á leið frá Az-
erbajdzhan og sjö menn úr áhöfn vélarinnar. Tass-fréttastofan greindi
frá þessu í gær.
„Um borð í vélinni voru fallhlífar-
hermenn sem höfðu verið í
Azerbajdzhan til að koma þar á lög-
um og reglu," sagði í frétt Tass.
Fréttastofan greindi ekki nánar frá
Kaupmannahöfii:
Varnir gegn
sjávarmengnn
Kaupmannaliöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FULLTRÚAR 17 þjóða á ráð-
stefnu um mengun í hafi sem hald-
in var í Kaupmannahöfn hafa sam-
þykkt víðtæka áætlun um varnir
gegn sjávarmengun. Fulltrúar
Austur-Evrópuþjóða samþykktu
einnig áætlunina.
í lokaskjali ráðstefnunnar er með-
al annars kveðið á um að þjóðirnar
17 semji hver fyrir sig áætlun um
að draga úr sjávarmengun og til-
greini nákvæmíega markmið sín og
dagsetningar þeim tengdar. Auk
þess er kveðið á um að beitt verði
fullkomnustu tækjum í baráttunni
gegn sjávarmengun og stofnaður
verði sjóður sem styrki fátækar þjóð-
ir sem aðild eiga að lokaskjalinir tii
að bæta umhverfi sitt.
slysstaðnum, orsökum slyssins né því
hvort mannfall hefði orðið á jörðu
niðri.
Þetta er í annað sinn á einum
mánuði sem T’ass-fréttastofan skýrir
frá því að herflugvél hafi farist í
Azerbajdzhan. Alls fórust sjö menn
þegar orrustuvél hrapaði og lenti á
strætisvagni og þegar önnur flugvél
fórst í flugtaki í borginni Kirovabad
í síðustu viku. í desember á síðasta
ári létust 78 manns, flestir þeirra
azerskir hermenn, þegar herflutn-
ingavél á leið til jarðskjálftasvæð-
anna í Armeníu fórst í Lenínakan.
Fallhlífarhermennirnir sem létust
höfðu bækistöðvar í Tblisi í Georgíu.
Þeir voru á meðal mörg þúsund her-
manna sem sendir hafa verið til að
stöðva blóðug átök Azera og Armena
um héraðið Nagorno-Karabak. Hér-
aðið er hluti Azerbajdzhans, lýtur
stjórninni í Kreml en er að meiri-
hluta byggt Armenum. Armenar
krefjast þess að héraðið verði sam-
einað Armeníu.
Sovéskir embættismenn segja að
stríðsástand ríki nánast í héraðinu.
11.000 hermenn úr her sovéska inn-
anríkisráðuneytisins eru nú í Az-
erbajdzhan. Tölur um fjölda her-
manna úr fastaher Sovétríkjanna
hafa ekki verið gefnar upp.
Birnir í ísknattleik
Reuter
Moskvu-fjölleikahúsið er nú í sinni fyrstu sýningarferð í Vestur-
Þýskíilandi og sl. miðvikudag var sýning í Hamborg. Þar mátti meðal
annars sjá rússneska skógarbirni í ísknattleik.
Alþjóðasamtök geðlækna:
Innffönefu Sovétmanna mótmælt
Ahpnu. Rputpr. ^ ^ ^ *
Aþenu. Reuter.
SOVÉSKIR andófsmenn mótmæltu í gær inngöngu Sovétríkjanna
Alþjóðasamtök geðlækna, WPA. Þeir bera því við að geðlækningum
sé enn misbeitt gegn andófsmönnum í landinu.
Mikill meirihluti fulltrúa á þingi
samtakanna, sem 50 ríki eiga aðild
að, var því fylgjandi að sovéskum
geðlæknum yrði á ný veitt innganga
í samtökin. Var þetta ákveðið á
ársþingi geðlæknasamtakanna í
Aþenu fyrr í vikunni. Sovéskum
geðlæknum var vísað úr samtökun-
um 1983 í kjölfar ásakana um að
þeir hefðu lokað andófsmenn inni á
geðsjúkrahúsum.
Skömmu áður en gengið var til
atkvæðagreiðslu í Aþenu lásu sov-
éskir fulltrúar á þinginu bréf þar
sem í fyrsta sinn var viðurkennt
að geðlæknisfræðinni hefði verið
misbeitt í pólitísku skyni í Sovétríkj-
unum.
„Þetta eru alvarleg mistök sem
bijóta niður siðferðileg gildi al-
þjóðasamtakanna," sagði sovéski
geðlæknirinn og andófsmaðurinn
Anatólíj Ivanovítsj Koijagin um inn-
göngu Sovétmanna á blaðamanna-
fundi sem Alþjóðasamtök gegn mis-
beitingu geðlæknisfræðinnar í
pólitískum tilgangi skipulögðu.
Koijagin var varpað í fangelsi fyrir
að mótmæla misbeitingu geðlækn-
isfræðinnar í Sovétríkjunum en
fluttist síðar úr landi til Vestur-
landa. Hann sagðist hafa sagt sig
úr Alþjóðasamtökum geðlækna, þar
sem hann hefur verið heiðursfélagi,
til að árétta mótmæli sín.
Nefnd á vegum samtakanna mun
fara til Sovétríkjanna og kanna
hvort geðlæknisfræðinni sé misbeitt
í pólitískum tilgangi í landinu.
Reuter
Óttinn við stóra skjálftann
í meira en 80 ár hafa íbúar San Fransisco lifað í ótta við stóran skjálfta
á borð við þann, sem jafnaði borgina við jörðu árið 1906. Myndin er
tekin það ár af rústum Kínahverfisins.
Vetrarfagnaður
— sviðoveisla
verður haldinn í félagsheimilinu
laugardaginn 21. október.
Húsið opnað kl. 19.
Jón Stefánsson stjórnar söng.
Hljómsveitin Ásarnir leikur fyrir dansi tll kl. 03.
Miðar verða seldir á skrifstofunni eða við
innganginn. Félagar, mætum allir og tökum
með okkur gesti.
Skemmtinefndin.
Tjón af völdum landskjálftans
Landskjálftinn í noröurhluta Kaliforníu olli gífurlegu tjóni
og á kortinu sést hvar þaö var mest.
KRTN