Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 31
•swei iáa«cso & ín.a<».«rjnFfHMi M&3®i«raa< r 0£ MÓRGtJNBLÁÐIÐ 'fÖSTUDAGUR 20, OKTOBÉR 1089 ‘ 31 fclk í fréttum ÁST Tina faldi ástmanninn í þrjú ár! Rokkdrottningin Tina Turner er - nú farin að hægja ferðina þrátt fyrir nýútkomna breiðskífu sem hefur selst eins og heitar lummur eins og vænta mátti. Hún er orðin fimmtug og tekin að lýjast á öllu saman að eigin sögn. En síðan hún varð eiginkona Ike nokkurs Turner á árum áður, hefur lítið farið fyrir karlamálum Tinu. Var almennt álitið að hún væri ekki upp á karl- höndina eftir samvistirnar með Ike sem barði hana eins og harðfisk og lítilsvirti hana á ýmsan hátt annan. Nú hefur komið upp úr dúrnum að Tina er búin að lofa sig karlmanni. Sveinninn heitir Erwin og er Vestur-Þjóðveiji. Landar hans eru yfir sig ánægðir og segja nú mikið frá þessum Erwin í blöðum. Frem- ur lítið er þó vitað um kappann annað en að hann er á fertugs- aldri og því mun yngri heldur en Erwin og Tina eiga stund saman. Tina. Þau hafa að eigin sögn verið saman í þijú ár og þrátt fyrir að fréttamenn hafa fylgst vel með Tinu Turner, hefur þeim turtildúf- unum tekist að halda sambandi sínu leyndu. En upp komst um síðir og ekki dugar lengur að láta sem ekkert sé. GEIMÁLFAR Kattavinurinn Alf hlýddi á “Cats“ Geimálfurinn Alf sem er ættaður frá plánetunni Melmac, en inn- lyksa á jörðinni af tæknilegum ástæðum, er ákveðinn í því að sjá og upplifa sem mest áður en hann kemst á heimaslóðir sínar, ef hann þá kærir sig um að fara héðan. Kunn- ugir segja, að hann kunni afar vel við sig á Jörðu, sérstaklega eftir að hann varð frægur af sjónvarpsþátt- um. Eitt af því sem Alf hefur miklar mætur á eru söngleikir. Og þar sem hann er yfirlýstur kattavinur, þá mætti hann á uppfærslu á söngleikn- um „Cats“ er hann var á ferð í Ham- borg fyrir skömmu. Vildu allir láta mynda sig með öllum að sýningu lokinni og malaði Alf eins og köttur í góðum félagsskap sem á myndinni sést. WINNDU ORKUNA ! Áhrifin eru kraftaverki líkust: „EXTRA CELL POWER“ frá LANCASTí er sannkallaður lifgjafi fyrir þreytta húð. ZANCASTER Fulltrúar Flnnlands á ræðismannafúndinum. Á myndinni eru frá vinstri Haraldur Björnsson aðalræðis- maður og kona hans Þóra Stefánsdóttir, Sigurður Einarsson í Vestmannaeyjum, Hákan Branders sendi- herra, Björg S. Blöndal og Theodór Blöndal á Seyðisfirði, Margrét Kristjánsdóttir og Jón Friðgeir Ein- arsson í Bolungarv ík, Helena Lappalainen sendiráðunautur. RÆÐISMENN Fulltrúar Norðurlandanna fimda Sendiherrar Norðurlandanna á íslandi, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar efndu 11. og 12. október til fyrsta landsfundar íslenskra ræðismanna þessara landa. Eins og vera ber hittust ræðismennirnir í Norræna húsinu í Reykjavík Fyrri daginn ræddu sendiherr- arnir hver í sínu lagi við ræðismenn sína. Seinni daginn var síðan sam- eiginlegur fundur og skiptust menn á skoðunum um hlutverk ræðis- manna og samskipti landanna. Jú- líus Sólnes hagstofuráðherra sem fer með málefni Norðurlanda í ríkis- stjórninni bauð þátttakendum til samkvæmis. Ræðismenn og sendiherrar Norðurlandanna á tröppum Norræna hússins. Vorum aö taka upp mikið af vörum. Opið laugardaginn kl. 10—16. Tískusýning allan daginn. Veriö velkomin. Louís Féraud mansfield ESCADA frúhk Uski* -fftHl^j 1 TIZKAN Laugavegi71 II hæð Sími 10770 -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.