Morgunblaðið - 20.10.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 19S9
23
Nýtt þjónustuíbúðahús fyrir
aldraða var nýlega tekið í notk-
un á Aflagranda 40.
Þjónustuhús
fyrir aldraða
tekið í notkun
NÝTT þjónustuíbúðahús fyrir
aldraða á Aflagranda 40 var tek-
ið í notkun í haust. Þetta er stórt
og mikið hús með 60 íbúðum,
tveggja og þriggja herbergja
auk húsvarðaribúðar. Samtök
aldraðra hafa staðið fyrir bygg-
ingunni og Armannsfell hf. hefúr
byggt húsið frá grunni og afhent
það samtökunum, fúllfrágengið
að innan og utan ásamt frágeng-
inni lóð.
í húsinu eru tvær íbúðir 93 fm,
tuttugu íbúðir eru 80 fm þriggja
herbergja og 38 íbúðir 69 fm
tveggja herbergja. Þetta er nettó-
mál íbúðanna, utan sameignar.
Endanlegt uppgjör hefur ekki
farið fram ennþá, en tveggja her-
bergja íbúðirnar munu kosta rétt
yfir 5 milljónir og þriggja her-
bergja íbúðimar tæpar 6 milljónir
og eru þá meðtaldir í verði íbúð-
anna vextir af framkvæmdaláninu.
Formaður Samtaka aldraðra er
Hans Jörgensson.
(Úr fréttatilkynninjju.)
Leiðrétting
Mishermt var í blaðinu í gær að
Will H. Perry hefði unnið um
tveggja ára skeið sem yfirmaður
Almannavarna á San Francisco-
svæðinu. Þar átti að standa „um
tveggja áratuga skeið“. Einnig
gætti ónákvæmni þegar sagði að
lög væru í gildi um að í öllum nýj-
um húsum í Kaliforníu væri komið
fyrir jarðskjálftamælitækjum. Lög-
in eiga einungis við um stærri ný-
byggingar. í þriðja lagi sagði að
Perry hefði komið hingað í boði
íslenskra stjórnvalda 1971 en rétt
mun vera að hann hafi komið í
boði Sameinuðu þjóðanna. Morgun-
blaðið biðst afsökunar á þessum
mistökum.
Vetrarfagnað-
ur Snæfellinga-
félagsins
Vetrarfagnaður Félags Snæ-
fellinga og Hnappdæla í Reykja-
vík verður fyrsta vetrardag,
þann 21. október, að Hótel Lind,
Rauðarárstíg. Félagsvist hefst
stundvíslega kl. 20.30. Tríó 88
leikur fyrir dansi.
Félagið hefur fest kaup á hús-
næði í Dugguvogi 15 og er ætlunin
að félagsmenn geti átt þar sama-
stað fyrir starfsemi sína í eigin
húsnæði.
Árshátíð félagsins verður 10.
febrúar 1990 í Goðheimum, Sigtúni
3.
Stjórn félagsins skipa: Bogi Jóh.
Bjarnason, formaður, Kristján Jó-
hannsson, varaformaður, - Karl
Torfason, gjaldkeri, Hjördís Þor-
steinsdóttir, ritari og Ottó Ragn-
arsson, meðstjórnandi.
Sýnir í
Gallery 15
BJÖRN Geir Ingvarsson opnar
sýningu á collace-myndverkum
laugardaginn 21. október kl. 14
í Gallery 15, Skólavörðustíg 15.
Myndverkin sem eru 35, eru öll
unnin á síðustu þremur ámm. Sýn-
ingin er opin um helgar frá kl.
14-20 og virka daga frá kl. 16-20.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 29.
október kl. 20.
Afinælisráð-
stefiia Barna-
máls
í TILEFNI af 5 ára afmæli
Barnamáls um brjóstagjöf, vöxt
og þroska barna verður haldin
ráðstefha laugardaginn 28. októ-
ber nk. í aðalsal Félagsheimilis
Kópavogs við Fannborg. Ráð-
stefiian hefst kl. 10.00 og stendur
til 16.00
Til umfjöllunar verður: Tengsl
heilsugæslustöðva og áhugafélaga
um bijóstagjöf, Rannveig Sigur-
björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Saga, markmið og starfsemi fé-
lagsins Barnamál, unnið af Guð-
laugu M. Jónsdóttur, meinatækni,
og Guðrúnu Jónasdóttur, húsmóð-
ur, og Sesselju Árnadóttur, kenn-
ara. Brjóstagjöf í Reykjavík, Marga
Thome, hjúkrunarfræðingur M.Sc.,
dósent við HÍ. Brjóstagjöf í
Reykjavík, Jóna Fjalldal, hjúkrun-
arfræðingur. Bijóstagjöfin sem
vörn gegn ofnæmi, Helgi Valdi-
marsson, læknir. Sjálfsstyrking
kvenna, Anna Valdimarsdóttir, sál-
fræðingur. Þunglyndi eftir fæð-
ingu, Valgerður Baldursdóttir,
læknir. Bijóstagjöf unglings-
stúlkna, Sóley Bender, hjúkrunar-
fræðingur M.Sc., lektor við HÍ.
Utivinna og bijóstagjöf. Að venja
barn af bijósti, Kristjana Kjartans-
dóttir, heimilislæknir. Gildi áhuga-
félaga fyrir bijóstagjöf, Sólveig
Þórðardóttir, ljósmóðir. „Börnin og
við“, Áhugafélag um bijóstagjöf á
Suðurnesjum. Fræðslumyndin „Á
bijósti, ekkert jafnast á við það.“
Kynnir: Ingibjörg Baldursdóttir,
bankastarfsmaður og formaður fé-
lagsins „Börnin og við“.
Ráðstefnugjald er 900 kr. og er
kaffi innifalið. Barnagæsla á staðn-
um. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
(F rcttatilky nning)
Jukka Linkola
stjórnar jazz-
sveit FIH
JAZZSVEIT Félags íslenskra
hljómlistarmanna heldur tón-
leika næstkomandi laugardag
kl. 16 í nýjum sal FÍH að Rauða-
gerði 27. Stjómandi verður
finnski hljómsveitarstjórinn,
tónskáldið og píanóleikarinn
Jukka Linkola, sem staddur er
hér á Iandi á vegum Nord-Jazz.
Jukka Linkola er aðalstjómandi
við borgarleikhúsið í Helsinki. Jazz-
sveitin mun Ieika ný verk eftir
hann á tónleikunum, en hann hefur
samið fjölda tónverka, jafnt jazz
sem klassíska tónlist.
(Fréttatilkynning)
Myndlistarsýn-
ing á Lands-
pítalanum
HELGI Jónsson sýnir vatnslita-
myndir á göngum Landspítalans
frá 14. október til 11. nóveniber
1989.
Helgi er fæddur 1923 og byijaði
snemma að fást við myndlist. Naut
um skeið tilsagnar Kristins Péturs-
sonar, var í Myndlistaskóla Félags
íslenskra frístundamálara (síðar
Myndlistaskóla Reykjavíkur) á
fyrstu árum skólans og hefir á
síðari árum verið þar nemandi í
ýmsum greinum.
Morgunverðar-
fundur um virð-
isaukaskatt
VERZLUNARRÁÐ íslands
gengst fyrir morgunverðar-
fundi um þær breytingar sem
verða við upptöku virðisauka-
skatts og álagningu hans á
vöruinnflutning um áramótin.
Fundurinn verður haldinn í
Átthagasal hótel Sögu miðviku-
daginn 25. október og hefst
klukkan 8.
Á fundinn mætir Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra, og
gerir grein fyrir opinberri stefnu
og stjórnsýsiuákvörðunum í mál-
inu. Jón Guðmundsson, forstöðu-
maður gjaldadeildar hjá ríkis-
skattstjóra, fjallar um virðisauka-
skattinn í innflutningsverslun og
Símon Á. Gunnarsson, löggiltur
endurskoðandi mun skýra áhrif
skattsins á verslunarkostnað og
uppgjör fyrirtaekjanna.
I fréttatilkynningu frá Verzlun-
arráðinu segir að mikið velti á þvi
hvernig greiðslu skattsins og toll-
afgreiðslu verður háttað eftir ára-
mótin. Breytingarnar gætu þýtt
umtalsverða hækkun á innfluttum
vörum en þyiftu ekki að gera
það.
Hallbjörn í
Glæsibæ
HALLBJÖRN Iljartarson verður
dastasöngvari Danshússins í
Glæsibæ um hclgina.
Hallbjörn hefur gefið út nokkrar
hljómplötur sem allar hafafengið
góðar viðtökur. Mun hann syngja
nokkur lög af hljómplötum sínum
á þessum kvöldum í Danshúsinu,
m.a. lög af nýju plötunni sinni.
Dregið í happ-
drætti Hjarta-
verndar
DREGIÐ var í happdrætti
Hjartaverndar 1989, þann 13.
október sl. Vinningar féllu
þannig:
Til íbúðarkaupa kr. 1,5 millj.,
82178. Bifreið Audi 80 árgerð
1990 kr. 1,5 millj., 96124. Til
íbúðarkaupa kr. 1 millj., 17334.
Til íbúðarkaupa 500 þúsund,
11226, 61952. Til bifreiðarkaupa
kr. 350 þúsund, 41869, 59134,
82072, 98078, 105322. Ferð með
Samvinnuferðum/Útsýn á kr. 200
þúsund, 26072, 32041, 35685,
41269, 90655. Ferð með Sam-
vinnuferðum/Útsýn á kr. 116
þúsund, 17167, 60311, 72200,
85162, 107487.
Vinninga má vitja á skrifstofu
Hjartaverndar, Lágmúla 9,
Reykjavík. Hjartavernd þakkar
landsmönnum veittan stuðning.
(Birt án ábyrgðar.)
(Frcttatilk vnning)
Hljómsveitin Strax spilar í Firð-
inum um helgina.
Strax spilar í
Firðinum
HLJÓMSVEITIN Strax spilai- í
veitingahúsinu Firðinum í Hafn-
arfirði um helgina, bæði fostu-
dags- og laugardagskvöld. Tólf
ný lög og 36 eldri lög eru á dag-
skrá hljómsveitarinnar.
I hljómsveitinni Strax eru Ragn-
hildur Gísladóttir, Kristján Edel-
stein, Sigfús Óttarsson, Baldvin
Sigurðsson og Jakob Frimann
Magnússon.
„Bíóhöllin sýnir
Leikfangið“
UM ÞESSAR mundir sýnir Bíó-
höllin myndina „Leikfangið"
með Catherine Hicks og Chris
Sarandon I aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Tom IloIIand.
Illræmdur morðingi hefur í hót-
unum að koma fram hefndum
þótt dauður verði. Hann segist
m.a. ætla að drepa lögreglumann
og fyrrum glæpafélaga sinn. Lítill
drengur eignast „Valmenni“ sem
er talandi, vélræn brúða. „Val-
mennið“ reynist ræðnara en al-
mennt gerist og hefur einkenni-
legan áhuga á fréttum t.d. um
lögregluna. En ýmsir dularfullir
atburðir eiga eftir að gerast.
Úr myndinni „Leikfangið" sem
sýnd er i Bíóhöllinni.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 19. október.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 79,00 60,00 70,29 6,280 441.432
Ýsa 120,00 25,00 96,14 8,323 800.168
Karfi 41,00 36,00 36,80 69,080 2.542.397
Ufsi 41,00 15,00 39,34 69,885 2.749.042
Hlýri+steinb. 55,00 20,00 20,666 0,403 20.666
Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,239 4.780
Lúóa 245,00 220,00 230,71 0,238 54.910
Langa 39,00 39,00 39,00 3,290 128.310
Keila 12,00 12,00 12,00 0,060 720
Skötuselur 180,00 170,00 173,02 0,106 18.340
Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,140 2.800
Samtals ‘ 42,67 158,871 6.779.771
í dag verða meðal annars seld 35 tonn af karfa, 80 tonn af
ufsa og óákveðið magn af öðrum tegundum úr Ottó N. Þorláks-
syni RE, Andvara VE, Krossnesi SH og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(ósL) 83,00 40,00 67,36 11,687 787.275
Ýsa(ósL) 128,00 42,00 99,99 4,586 458.561
Ýsa(næturs.) 150,00 150,00 150,00 0,055 8.250
Karfi 41,00 36,00 38,06 14,052 534.876
Ufsi 37,00 17,00 29,29 0,140 4.100
Steinbítur 71,00 47,00 53,61 0,356 19.084
Langa(ósL) 46,50 27,00 39,71 0,827 32.839
Blálanga(ósL) 47,50 42,00 43,49 0,494 21.405
Lúða(ósL) 395,00 245,00 324,93 0,236 76.520
Keila(ósL) 14,00 13,00 13,93 0,920 12.820
Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,035 1.400
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,005 175
Skötuselur 385,00 140,00 204,47 0,019 3.885
Síld 10,31 10,26 10,27 126,770 1.301.297
Saltfiskur 170,00 170,00 170,00 0,090 15.300
Samtals 20,45 160,395 3.279.997
Selt var úr Þresti KE, Oddgeiri ÞH og Ágústi Guömundssyni GK.
I dag verður m.a. selt óákveðið magn af þorski og ýsu úr Víkingi
III. IS og óákveðið magn af bl. afla úr línu- og netabátum.
Lyöaeftirlit ríkisins bannar Heilsu-
húsinu sölu á rauðu ginsengi
Engin athugasemd gerð við rautt ginseng hjá Eðalvörum
Lyfjaeftirlit ríkisins hefúr farið
þess á leit við Heilsuhúsið að það
taki af markaði rautt ginseng, sem
verslunin hefúr nýlega liafið sölu
á. í mælingum Hollustuverndar
ríkisins kom fram að rautt ginseng
frá Heifsuhúsinu innihefdur ekki
það magn, sem tiltekið er á um-
búðum auk þcss sem leyfi fyrir
sölu þess hér á landi hafði ekki
verið veitt af Lyfjaeftirlitinu.
„Heilsuhúsið hafði selt þessa vöru
í um vikutíma þegar Lyfjaeftirliti
ríkisins fékk þef að því að varan
væri sennilega ekki það sem hún er
sögð vera. Hollustuvernd ríkisins tók
að sér að vigta þessi hylki og í Ijós
kom að hvert hylki innihélt 186
milligrömm, en á að innihelda 330
milligrömm, samkvæmt merkingum
vörunnar," sagði Guðrún Eyjólfs-
dóttir, lyfjafræðingur hjá Lyfjaeftir-
liti ríkisins.
Fyrirtæki að nafni Eðalvörur hefur
um tíma haft einkaumboð á íslandi
fyrir vörutegundina Rautt Ginseng,
sem er eina ginsengið sem ríkisvald-
ið í lýðveldinu Kóreu tekur fulla
* áVyfgcTX *Þáð“ skáflekfcf TráTfF'að*
rauða ginsengið frá Eðalvörum hefur
ekki verið bannað og heldur áfram
að vera á markaði hétiendis. Hið
rauða ginseng Heilsuhússins er Eðal-
vörum algjörlega óviðkomandi.
Guðrún sagði að nokkuð hefði
verið um það að fólk hefði ieitað til
Lyfjaeftirlitsins varðandi þetta mál.
Því fólki, sem keypt hefði hina svi-
knu vöru, hefði vissulega verið bent
á að leita til Heilsuhússins og krefj-
ast endurgreiðslu. „Ef maður kaupir
eitt kíló af sykri, þá vill maður fá
eitt kíló af sykri - ekki hálft kíló.
Tónleikar haldnir í
Olafs ví kurkirkj u
TÓNLEIKAR verða haldnir í Ólafsvíkurkirkju sunnudaginn 22. októ-
ber. Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju undirbýr tónleikana.
Efnisskráin er þríþætt: I fyrsta
hlutanum verða stutt kórverk eftir
William Byrd, Schiitz, Elgar, Fauré,
Þorkel Sigurbjörnsson og Pitoni.
Síðan verður hljóðfæraleikur á
flautu, klarinett, básúnu og píanó,
m.a. þættir úr verkum eftir Tele-
mann, Brahms og Rakhmanínov.
Að lokum verða sungin íslensk kór-
’ *Iög“m .áT'éfni“l{oTfélágli?- ””
Stjórnandi kórsins og jafnframt
organisti er Elías Davíðsson. Undir-
leik annast Guðmundur Norðdahl,
Valva Gísladóttir, Michael Jacques
og stjórnandinn. Þau munu einnig
flytja einleiksverk.
Tónleikarnir hefjast klukkan 5
síðdegis. Aðgangur er ókeypis en
tekið verður við fijálsum framlög-
’um Táök'TóiTeTlíánná.*'*4