Morgunblaðið - 20.10.1989, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
29
Minning:
Óli P. Krisijánsson
fyrrv. póstmeistari
Fæddur 28. september 1895
Dáinn 11. október 1989
í dag er kvaddur hinstu kveðju
frá Akureyrarkirkju Óli P. Krist-
jánsson fyrrv. póstmeistari en hann
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu
11. október sl. Óli fæddist á Blöndu-
ósi 28. september árið 1895. For-
eldrar hans voru hjónin Sigríður
Sigurðardóttir og Kristján Halldórs-
son smiður. Gagnfræðingur verður
hann hér á Akureyri árið 1914,
byijar þá að vinna hjá mági sínum,
Þorsteini Bjarnasyni á Blönduósi.
En síðar vinnur hann við vegavinnu
víða í Húnavatnssýslum. Síðla árs
1918 hóf Óli störf á pósthúsinu á
Akureyri sem þá var í húsi Esphól-
insbræðra, við Hafnarstræti 66.
Það hús brann. Árið 1920 var Sam-
komuhúskjallarinn innréttaður fyrir
póstafgreiðslu, þar sem síðar voru
skrifstofur bæjarins. Árið 1922 var
svo Hafnarstræti 84 keypt fyrir
starfsemi Pósts og síma og var flutt
þangað sama ár. Árið 1944 er svo
flutt í núverandi húsnæði í Hafnar-
stræti 102.
Árið 1919 er Óli skipaður póstaf-
greiðslumaður, en þá er Friðrik
Möller póstmeistari, en árið 1920
tekur við póstmeistaraembættinu
Guðmundur Bergsson, en hann
hættir árið 1923, og 1. ágúst sama
ár er Óli settur póstmeistari, og
skipaður er hann 1. október árið
1924. Því starfi gegndi hann til
ársloka 1965, er hann lét af störfum
fyrir aldurssakir. Óli vann mikið að
félagsmálum t.d. innan Oddfellow-
reglunnar og Rótarýklúbbs Akur-
eyrar. Auk þess var hann einn af
stofnendum Golfklúbbs Akureyrar.
Honum var veitt fálkaorðan árið
1970.
23. júní árið 1918 gekk hann að
eiga Jósefínu Pálsdóttur, ættaða
úr Vatnsleysudalnum, foreldrar
hennar voru Hólmfríður Hannes-
dóttir og Páll Halldórsson. Jósefínu
og Óla varð þriggja barna auðið.
Elstur er Sigurður læknir við Fjórð-
ungssjúkrahúsið, kvæntur Herdísi
Steingrímsdóttur, Hjördís, varð-
stjóri hjá Pósti og síma á Akur-
eyri, maður hennar er Jóhann G.
Guðmundsson, en hann tók við póst-
meistaraembættinu af Óla. Jóhann
andaðist árið 1980. Yngst var Edda
en hún lést aðeins eins árs gömul.
Jósefína andaðist árið 1975. Öli var
einn af þeim prúðu mönnum, sem
var embætti sínu til sóma, hann var
í senn árvakur og samviskusamur
embættismaður og ekki síst góður
húsbóndi, og ljúfmannleg fram-
koma hans var á orði höfð. Ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna
undir stjórn Óla í rúm 24 ár. Nú
að leiðarlokum kveð ég góðan hús-
bónda og þakka honum af alhug
föðurlega handleiðslu í gegnum árin
bæði í leik og starfi. Við hjónin
sendum Hjördísi, Sigurði og öllum
ættingjum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Gísli J. Eyland
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURÐUR PÉTUR EIRÍKSSON,
Dvalarheimilinu Hlíð,
sem andaðist 13. október 1989 verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 23. október kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Klara Nielsen,
Magnúsfna Sigurðardóttir, Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Siguróli M. Sigurðsson,
Valgarður J. Sigurðsson,
Inga S. Sigurðardóttir,
Klara Sveinbjörnsdóttir,
Sólveig Bjartmars,
Sigurlaug Jónsdóttir,
Alda Aradóttir,
Finnur Óskarsson,
Helgi Valgeirsson,
Gunnar Bjartmars,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns,
GUÐMUNDAR ÓLAFSSONAR,
Ferjubakka 4.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sæunn Pétursdóttir.
t
Þökkum innilega öllum sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
STEFANÍU GISSURARDÓTTUR
frá Hraungerði.
Páll Sigurðarson,
Ólafur Sigurðsson,
Ingibjörg S. Cordes,
Ingveldur Sigurðardóttir,
Sigurður Sigurðarson,
Gissur Sigurðsson,
Agatha S. Sigurðardóttir,
Lára H. Jóhannesdóttir,
Albína Thordarson,
Richard Cordes,
Halldór Helgason,
Arndi's Jónsdóttir,
Auður Aðalsteinsdóttir,
Baldur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ammmm
mmm
APAKA
GOODfÝEAR
NOKKRIR
LJÓSIR PUNKTAR
UM NÝJAN
VEITINGASTAÐ
Hljómsveit Andra Bachman spilar áföstudags- og laugardags-
kvöldum.
Léttur snúningur á dansgólfinu.
Gómsætir kjöt-, fisk- ogpastaréttirfrá Pizzaofninum.
Samlokurog ísréttirfrá Ishöllinni.
Setustofaáþriðjuhæð.
Myndlistarsýning (Brynja Ámadóttir).
Opið öll kvöld frá kl. 18:00 til 1:00 og í hádeginu um helgar.
BJOR m HOLUN
Gerðubergi 1. Sími 74420