Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
39
KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
URSLIT
Haukar-Reynir 113 : 75
íþróttahúsið í Hafnarfírði. Urvalsdeildin i
körfuknattieik, fimmtudagur 19. október 1989.
Gangur leiksins: 8:0,10:2,20:2,20:11,38:13,
47:17, 49:31. 53:35, 58:43, 79:53, 89:59,
94:71, 100:73, 113:75.
Stig Hauka: Jonathan Bow 28, Jón Amar
Ingvarsson 24, ívar Ásgrimsson 23, Henning
Henningsson 16, Reynir Kristjánsson 10, ívar
Webster 6, Pálmar Sigurðsson 2, Eyjólfur
Ámason 2, Hörður Pétursson 2.
Stig Reynis: David Grisson 28, Eliert Magnús-
son 16, Einar Skarphéðinsson 10, Sveinn H.
Gíslason 10, Jón B. Einarsson 4, Sigurður Þ.
Þórarinsson 4, Jón Guðbrandsson 3.
Áliorfendur: 59.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Jón Guð-
mundsson, sem sluppu þokkalega frá sínu.
ÍBK-Þór 103 : 87
íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í körfú-
knattleik, fimmtudaginn 19. október 1989.
Gangur leiksins: 0:2, 4:9, 10:9, 25:19, 31:29,
33:35, 38:44, 46:48. 46:54, 57:60, 63:60,
70:72,. 85:72, 91:80, 97:86, 103:87.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 33, Nökkvi M.
Jónsson 31, Kristinn Fiiðriksson 9, Einar Ein-
arsson 8, Ingólfur Haraldsson 8, Albert
Óskarsson 5, Sigurður Ingimundarson 5,
Magnús Guðfinnsson 4.
Stig Þórs: Jón Öm Guðmundsson 23, Dan
Kennard 17, Guðmundur Bjömsson 15, Kon-
ráð Óskarsson 12, Eiríkur Siguiðsson 10, Bjöm
Sveinsson 6, Davíð Hreiðarsson 2, Ágúst Guð-
mundsson 2.
Áhorfendun Um 150.
Dómarar: Kristján Möller og Leifur S. Sig-
urðsson.
KR-ÍR 72:62
íþróttahús Seltjamamess, úrvalsdeildin i körfu,
fimmtudaginn 19. október 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 10:2, 20:13, 22:22,
23:24, 27:30, 35:33, 43:39, 49:46, 52:52,
56:56, 63:59, 67:62, 72:62.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 20, Anatóíj Kovto-
ún 18, Gauti Gunnarsson 10, Páll Kolbeinsson
9, Matthias Einarsson 9, Láms Ámason 4,
Böðvy Guðjónsson 2.
Stig ÍR: Jóhannes Sveinsson 16, Thomas Lee
14, Karl Guðiaugsson 13, Bjöm Bollason 12,
Bjöm Steffensen 4, Gunnar Öm Þorsteinsson
2, Bragi Reynisson 1.
Áhorfendur: Um 80.
Dómarar: Bergur Steingrimsson og Jón Bend-
er og náðu þeir aldrei tökum §. leiknum frekar
en leikmenn.
Nökkvi M. Jónsson, ÍBK
Guðjón Skúlason og Einar Einarsson, ÍBK,
Jón Öm Guðmundsson, Þór.
Jonathan Bow, ívar Ásgrimsson, Henning
Henningsson og Jón Amar Ingvarsson, Hauk-
um. David Grisson, Reyni. Biigir Mikaelsson
og Páll Kolbeinsson, KR. Bjöm Bollason og
Jóhannes Sveinsson, ÍR.
1. dcild karla:
ÍS - ÍA........................90:88
1. deild kvenna:
Haukar- ÍR....................48:44
KR-UMFG........................46:47
Knattspyma
UEFA-keppnin
Sion (Sviss) - K.-Marx-Stadt (A-Þýskal.).2:l
HM-keppnin:
Úrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar f
knattspyrnu í Asíu stendur nú yfir í Singa-
púr. Sex þjóðir taka þátt í keppninni og
tvær efstu fá sæti á HM á Ítalíu 1990.
Slaðan er þessi eftir tvær umferðir:
S-Kórea................2 1 1 0 1:0 3
Samein. arab. furstad.2 1 1 0 2:1 3
Qatar.................2 0 2 0 1:1 2
Kína..................2 1 0 1 3:3 2
Saudi Arabía..........2 0 1 1 2:3 1
N-Kórea...............2 0 1 1 0:1 1
Njarðvíkingar fá 310 þús.
kr. kröfu frá Argentínu
Njarðvíkingar hafa fengið 310
þús. kr. kröfu frá argentín-
ska félaginu Vivadia Mendosa, en
með því félagið lék Bandaríkja-
maðurinn Patrick Releford, sem
nú leikur með Njarðvíkurliðinu.
Félagið hefur neitað að skrifa
undir félagaskipti fyrir Releford
nema að Njarðvíkingar borga
5000 bandaríkjadali fyrir hann.
„Ég á ekki von á að félagið
standi á þessari kröfu. Við feng-
um þessa kröfu þegar við óskuð-
um eftir pappírum sem gæfi Rele-
ford lausan allra mála hjá félag-
inu. Þegar við sögðum honum frá
þessari kröfu hló hann. Það er
greinilegt að Argentínumenn eru
að reyna að krafsa peninga út úr
félagaskiptunum," sagði Gunnar
Guðmundsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Njarðvíkur, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
„Við erum búnir að hafa sam-
band við umboðsskrifstofu þá í
Bandaríkjunum, sem sá um að
Releford kom til okkar. Umboðs-
skrifstofan er með lögfræðing í
Argentínu, sem mun taka á þessu
máli. Ég vona að þetta mál verði
úr sögunni um helgina,“ sagði
Gunnar.
Releford mun því ekki leika
með Njarðvíkurliðinu fyrr en þetta
mál er komið á hreint. Njarðvík-
ingar leika gegn Reyni á sunnu-
daginn. Releford mun ekki leika
þann leik með Njarðvíkurliðinu.
Morgunblaöið/Sverrir
Páll Kolbeinsson smeygir sér hér framhjá þeim Jóhannesi Sveinssyni og
Bimi Bollasyni og gefur glæsilega á samheija sinn.
MIÐVIKUDAGSLIÐIÐ
Guðmundur
Hrafiikelsson,
FH
Bryrgar
Harðarson,
Val (2)
Bjarkí
Sigurðsson,
Víkingi
Matthías
Matthíasson,
ÍR(2)
Halldór
Ingólfsson,
Gróttu
Gylfi
Birgisson,
Stjörnunni (2)
Þar sem röskun var á 1. umferð 1. deildarkeppninnar í handknattleik
vegna Evrópuleikja - láðist að tilkynna lið 1. umferðar, en það var
þannig: Gísii Felix Bjarnason, KR, Konráð Olavson, KR, Sigurður
Bjarnason, Stjörnunni, Óskar Ármannsson, FH, Stefán Árnarsson,
Gróttu, Brynjar Harðarson, Val og Gunnar Beinteinsson, FH.
ípRÓmR
FOLX
■ GEORGE Kirby hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs IA í
stað Sigurðar Lárussonar. Kirby
mun heQa störf 1. mars 1990, en
hann hefur verið þjálfari í Saudi-
Arabíu síðustu þijú árin. Þetta
verður sjötta keppnistíambilið sem
hann þjálfar Skagaliðið. Hann
gerði IA að íslandsmeisturum
1974 og 1975.
M RAGNA Lóa Síefánsdóítir
hefur verið ráðin þjálfari 1. deildar-
liðs ÍA í kvennaknattspyrnu næsta
keppnistímabil. Hún hefur mikla
reynslu sem leikmaður, en hefur
ekki fengist við þjálfun áður.
Dapurt á
IMesinu
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
KR-INGAR unnu ÍR-inga með
tíu stiga mun í úrvalsdeildinni
í körf uknattleik á Seltjarnar-
nesinu í gærkvöldi í leik sem
allir vilja eflaust gleyma sem
fyrst.
Leikurinn var óhemju dapur
strax frá fyrstu mínútu. Leik-
menn hittu hræðilega illa og allir
gerðu sig seka um mikið af mistök-
um, svo mikið að
þeir ættu að vera
búnir með „kvó-
tann“ á þessu
keppnistímabili.
KR hafði frumkvæðið framan af
leik en um miðjan hálfleikinn náðu
Breiðhyltingar að komast yfir. Eftir
það var jafnræði með liðunum allt
fram undir lok leiksins, en þá náðu
KR-ingar að breikka bilið.
Það voru ekki margir leikmenn
sem léku af eðlilegri getu í gær.
Hjá KR var það helst Birgir sem
náði sér á strik í síðari hálfleik.
Páll lék einnig þokkalega en hefur
þó oft leikið betur.
I IR liðinu var enginn sem skar
sig úr hvað gæði varðar. Jóhannes
skoraði þó dijúgt en lenti í villu-
vandræðum og Lee sömuleiðis.
Bjöm Bollason lék vel en var furðu-
lega lítið inná.
Þórsarar í villuvandrædum
Keflvíkingar unnu öruggan sig-
ur, 103:87 á Þórsurum frá
Akureyri í Keflavík í gærkvöldi -
eftir jafnan leik framan af. I hálf-
leik var staðan
Bjöm 48:46 fyrir Akur-
Blöndal eyrarliðið sem lenti
skrífar síðan í miklum villu-
vandræðum og áður
en yfir lauk voru þrír leikmenn
komnir útaf með 5 villur og tveir
voru með 4 villur.
Fyrri hálfleikur var lengstum
jafn, liðin skiptust á að hafa foryst-
una þar til undir lokin að Þórsarar
náðu 8 stiga forskoti, 46:38 sem
þeir svo misstu niður aftur. í síðari
hálfleik byijuðu Þórsarar betur og
leiddu leikinn lengi vel, en lentu þá
í villuvandræðum og urðu að taka
lykilmenn sína útaf. Við það fatað-
ist þeim flugið og Keflvíkingum
tókst að breyta stöðinni úr 70:72 í
85:72 á fimm mínútna kafla og
gera þar með út um leikinn.
Sigur Keflvíkinga var sanngjarn,
þeir höfðu meiri breidd og léku allt-
af eins og sá er valdið hefur. Nökkvi
M. Jónsson átti enn einn stórleikinn
og réðu Þórsarar ekkert við hann.
Guðjón Skúlason var einig góður
ásamt Einari Einarssyni sem lék í
stöðu leikstjórnanda í stað Fals
Harðarsonar sem var meiddur, en
í heild náði liðið oft ágætlega sam-
an. Hjá Þórsurum bar mest á Jóni
Nökkvi M. Jónsson lék mjög vel
með Keflavíkurliðinu.
Erni Guðmundssyni sem skoraði 18
stig í fyrri hálfleik, en hann fékk
fljótlega 4 villur og sat á bekknum
lengstum í þeim síðari. Bandaríkja-
maðurinn Dan Kennard olli von-1*
brigðum og sýndi ekki mikið. Þórs-
ar mættu aðeins með 9 menn til
Keflavíkur og þar af léku 6 mest
allan leikinn.
Rólegt Haukakvöld
Haukar áttu heldur betur rólegt
kvöld þegar þeir unnu stórsig-
ur, 113:75, á Reyni. Tölurnar segja
allt sem þarf að segja um leikinn.
Haukar komust yfir,
20:2, eftir sjö mín.
og þá skiptu þeir
öllu byijunarliði sínu
útaf — slíkir voni
yfirburðirnir. Þeir juku forskot sitt'
jafnt og þétt og náðu 30 stiga for-
skoti. Reynismenn náðu að klóra í
bakkann fyrir leikshlé og minnka
muninn í, 49:31. Einstefnan hélt
síðan áfram í seinni hálfleik og
þegar upp var staðið var munurinn
38 stig.
Það sem mesta athygli vakti í
leiknum var framganga Pálmare
Sigurðssonar, sem skoraði aðeins
tvö stig - bæði úr vítaköstum.
Hörður
Magnússon
skrífar
Ikvöld
■ÞRIÐJA og síðasta Grand Prix mó-
tið í sundi hefst í Sundhöll Reykjavíkur
í kvöld kl. 19.00.
■Víkingur og Grótta leika i 1. deild
kvenna í handknattleik í Laugardals-
höll í kvöld kl. 20.15. Fram og ÍBK
leika í 2. deild á sama stað kl. 19.00.
■UBK og HR leika í 1. deild kvenna
í blaki í Digranesi kl. 20.00.