Morgunblaðið - 20.10.1989, Qupperneq 40
FÍIAG FÓIKSINS
Vægurjarð-
skjálfti á
Suðurlandi
VÆGUR jarðskjálftakippur,
uin 3,9 stig á Richters-kvarða,
fannst á Suðurlandi um átta-
leytið í gærkvöldi. Ekki var
vitað til þess að neitt tjón hefði
orðið af völdum skjálftans.
Skjálftans varð einkum vart á
Hvolsvelli, þar sem hlutir hristust
í hillum og rúður glömruðu, en
einnig fannst hann á_ Rangái'völl-
um og í Landssveit. Á Veðurstofu
Islands í Reykjavík fann starfs-
maður, sem hafði hallað sér á
legubekk, einnig fyrir kippnum.
Hjá Veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að upptök skjálftans
væru við Vatnafjöll sunnan
Heklu. Þar varð jarðskjálftahrina
í maí 1987, og gæti verið um
eftirhreytur af henni að ræða, að
sögn Barða Þorkelssonar hjá Veð-
urstofunni.
Byggingarvísitalan:
1,2% hækkun
VISITALA byggingarkostnaðar
reyndist vera 155,5 stig í október
eða 1,2% hærri en hún var í sept-
ember.
Síðustu tólf mánuði hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um 24,6%,
en síðustu þijá mánuði um 7%, sem
samsvarar 31,2% árshækkun.
Þá'hefur Hagstofan reiknað út
launavísitölu fyrir október miðað
við meðallaun í september. Er hún
110,1 stig eða 2,9% hærri en hún
var í fyrra mánuði.
Námsmönn-
um synjað
um skólavist
í Svíþjóð
UM ÞAÐ bil 15 íslenskum náms-
mönnum var synjað um skólavist
í Svíþjóð í haust. Að sögn Hólm-
fríðar Garðarsdóttur fram-
kvæmdastjóra Sambands
íslenskra námsmanna erlendis,
fengu umsækjendur meðal ann-
ars þau svör að Island tilheyrði
ekki Norðurlöndum eða að nem-
endur þyrlitu að Ijúka prófí í
ensku til að fá skólavist.
„Það eru ekki til neinar ákveðnar
regiur um skólavist nemenda frá
íslandi," sagði Hólmfríður. „Og nú
er allt í einu farið að túlka ýmis
atriði og ákvæði í samningum milli
landanna á nýjan hátt. Þetta er
mjög erfitt að rekja því fyrsti samn-
ingurinn er frá árinu 1976 en síðan
hefur hann verið endurskoðaður á
ótal fundum og nú veit enginn
hvernig ber að túlka.hann. Mönnum
ber ekki saman. Ég held að þessi
nýja staða sem upp er komin sé
vegna aukinnar ásóknar í alla skóla
og að Svíar hugsi sem svo að þeir
séu ekki að taka inn Islendinga sem
geti ekki í staðinn tekið við náms-
mönnum frá Svíþjóð."
Hólmfríður sagði, að Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
hefði rætt málefni námsmannanna
við menntamálaráðherra Svía og til
stæði að taka það upp í Norður-
landaráði. „Við þurfum að beijast
fyrir okkar stöðu annars gleym-
umst við,“ sagði Hólmfríður.
EINKARE/KN/NGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM m
_________________Mk
FOSTUDAGUR 20. OKTOBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Morgunblaðið/RAX
Vinafundur
Tveggja ára heimasæta á höfuðbólinu Skarði í Landssveit, Laufey Kristinsdóttir, er þarna í góðra vina
hópi með tíkinni Tinnu og hvolpum hennar. í dag er síðasti dagur sumars og á morgun heldur veturinn
innreið sína.
Steftiir í
metfram-
leiðslu í
*
Alverinu
NÚ STEFNIR í að framleiðsla
Alversins í Straumsvík verði um
88.000 tonn á þessu ári og hefur
hún aldrei áður orðið svo mikil.
Það mark næst komi ekkert fyrir,
sem áhrif geti liaft á framleiðsluna
svo sém breytingar á markaði.
Þessi framleiðsla svarar f il upp-
gefínna afkasta Alversins.
Einar Guðmundsson, tæknilegur
framkvæmdastjóri Álversins, sagði í
samtali við Morgunbtaðið, að mark-
aðsaðstæður væru góðar nú. Að vísu
hefði allra síðustu daga orðið varí
Samdráttar og afpantana og talið
væri það mætti rekja til óhapps við
verksmiðju í Bandaríkjunum er felli-
bylurinn Hugo gekk þar yfir. Mark-
aðsverð fór í fyrra yfir 2.000 doll-
ara, en féll síðan niður í 1.700. Það
er nú um 1.800 dollarar á tonnið.
Framkvæmdir við stækkun á
steypuskála Álversins ganga sam-
kvæmt áætlun og lokið er fyrsta
áfanga í vélknúinni lokun 'kera.
Slíkur búnaður hefur nú verið settur
á 40 ker, en aætlað er að á næsta
ári verði 120 ker til viðbótar búin
vélknúnum fokunarbúnaði.
Bláijöll eitt
skíðasvæði
I SUMAR hafa verið gerðar veru-
legar breytingar á skíðasvæðinu
í Bláfjöllum og svæðin þrjú öll
tengd saman nieð lyftuin. Breyt-
ingar á svæðum Breiðabliks og
Fram felast í því að Eldborgar-
gil er tengt Drottningargili sem
gerir það að verkum að hægt er
að skíða um allt svæðið.
Reykjavíkurborg keypti svæði
Breiðabliks, lyftu og skála. Blá-
fjallanefnd lét færa lyftuna og
lengja hana úr 400 metrum í 700
metra. Hún liggur frá svæði Fram
í Eldborgargili upp að Drottning-
argili og í fyrsta sinn eru öll svæð-
in tengd.
Nú eru um tíu lyftur í Bláfjöllum,
samtals um 5 km á lengd.
Húsnæðisstoftiun:
Tæpir ^órir milljarðar
greiddir út til áramóta
ÚTGREIÐSLUR úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verka-
manna til hinna ýmsu lánaftokka sjóðanna verða í heild tæpir fjórir
milljarðar króna síðustu þrjá mánuði þessa árs, að sögn Ililmars Þóris-
sonar aðstoðárframkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar. í lieild er áætlað
að rúmir átta milljarðar króna verði greiddir út í húsnæðislán á þessu
ári, og er þá gert ráð fyrir að vera innan áætlunar og hafa afgang til
að sinna ófyrirséðum þörfum. Þessar tölur innihalda þá viðbót sem
verður vegna ákvörðunar lnisnæðismálastjórnar um að flýta greiðslum
til þeirra sem áttu að fá fyrri greiðslu í júní til ágúst á næsta ári.
Fjárstreymi úr byggingarsjóðun-
um dreifist ekki jafnt á mánuði árs-
ins. Um miðjan september, en þá
voru liðin 71% af árinu, var búið að
greiða út 53% af áætluðum heildar-
greiðslum ársins', sem þýðir að á
þeim liálfum þriðja mánuði sem þá
voru til áramóta, 29% ársins, átti að
greiða út 47% lána. Hilmar áætlar
að heildarupphæð þeirra greiðslna,
sem gefinn er kostur á að flytja fram
um sex til átta mánuði, nemi um 800
milljónum króna.
Hinar fyrstu þessara greiðslna
verður hægt að fá um miðjan nóvem-
ber, en nú er unnið að þvf að senda
rétthöfum bréf um þær. Um sama
leyti og þessar greiðslur verða fáan-
legar, taka gildi lög um húsbréfa-
kerfi, en nú er. unnið að samningu
reglugerðar um útfærsiu þess.
Meginhluti þess fjár, sem greitt
verður út úr Ilúsnæðisstofnun til
áramóta, er vegna þegar gerðra
samninga' um íbúðakaup. Viðbótin,
greiðslurnar sem flýtt verður, eru
þó hrein viðbót á húsnæðismarkaðn-
um. Þórólfur Halldórsson, formaður
Félags fasteignasala; sagðist ekki
telja að þetta hefði áhrif til verð-
hækkunar, þar sem lægð he.fði verið
á markaðnum undanfarið. Hann
kvað hins vegar óvíst hvort öll kurl
væru til grafar komin. „Það er spurn-
ing hvort á eftir að koma önnur
ákvörðun í kjölfar þessarar, til dæm-
is um að hækka vexti af þessum
lánum,“ sagði hann