Morgunblaðið - 27.10.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 27. OKTOBER 1989
27
Minning:
Jón H. Sveinsson
fyrrv. bryggjuvörður
Fæddur 27. október 1891
Dáinn 18. október 1989
Mig langar hér með örfáum fá-
tæklegum orðum að kveðja hann
afa minn, sem lést þann 18. þessa
mánaðar á Sólvangi í Hafnarfirði.
Hann afí var alltaf í mínum huga
svo stór og sterkur, hann var hár
og þrekinn vexti og mér fannst
hann fallegur maður. Ég man hvað
það var alltaf hlýtt að halda í hönd-
ina á honum þegar maður var að
koma til hans á Hverfisgötuna, ég
sat stundum og hélt í hana og tal-
aði við hann um daginn og veginn
og það hvað ég væri að aðhafast
þá stundina. Mér fannst erfitt að
sjá hversu gamall og lúinn hann
var orðinn nú síðustu árin, eflaust
var bara erfitt að viðurkenna það
vegna þeirrar myndar sem ég
geymdi í huga mínum af honum.
En ég er viss um að hanníer feginn
hvíldinni sem nú er fengin.Vvo lengi
hafði hann beðið þessa. Hann er til
moldar borinn í dag, 27. október, á
98. afmælisdegi sínum og ég er
viss um að þetta er sú besta af-
mælisgjöf sem hann hefði getað
fengið.
Það er svolítið skrýtið að vita
ekki lengur af honum afa meðal
okkar. Þó ég hafi lítið séð hann
síðan hann fór úr húsinu á Hverfis-
götunni, þá hugsaði ég oft til hans
og þegar ég sá hann síðast sat
hann bara og sagði ekki orð. Samt
fannst mér gott að heimsækja hann,
bara það að sjá hann yljaði mér.
Minninguna um stóra myndar-
lega manninn mun ég alltaf eiga
og varðveita, hún lifir áfram þó
hann sé horfinn. Mig langar að ljúka
þessum skrifum með kvæði sem ég
rakst á þegar ég var að fletta gam-
alli afmælisdagabók. Þegar ég kom
að afmælisdeginum hans, 27. októ-
ber, þá var þetta skráð þar:
En ástin er björt sem barnsins trú,
hún blikar í ljóssins geimi;
og fjarlægð og nálægð fyrr og nú,
oss finnst þar í eining streymi
Frá heli til lífs hún byggir brú
og bindur oss öðrum heimi.
(Einar Benediktsson)
Eg, pabbi, mamma, Vilborg syst-
ir og aðrir í minni fjölskyldu kveðj-
um afa og vonum að honum líði vel
í þeim heimi, sem nú hefur tekið
við honum.
Guðrún Elva Sverrisdóttir
ougiysmgor
Wélagsúf
I.O.O.F. 1 = 17110278'/2 = 9.l."
I.O.O.F. 12 =. 17110278V2 =
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Bænavika
Bænasamkoma (kvöld kl. 20.30.
Laugameskirkja
Almennt safnaðarkvöld verður í
Safnaðarheimili Laugarneskirkju
föstudaginn 27. október kl.
20.30. Grétar Sigurbergsson,
geðlæknir, ræðir um efnið: Af-
brýöisemi. Dúfa Einarsdóttir
syngur einsöng við undirleik Ann
Toril Lindstad. Kaffiveitingar.
Helgistund í kirkjunni.
Sóknarprestur.
Fræðslustund í Grensáskirkju á
morgun, laugardag kl. 10.00.
Ásthildur Snorradóttir, kennari
stýrir umræðuhópum um efnið:
Líf í holdi - líf í Kristi.
Kaffi og síðan bænastund kl.
11.15. Allir velkomnir.
ikSt Útivist
Haustblót á Snæf ellsnesi
27.-29. okt.
Ferð sem kemur á óvárt. Ný
gönguleið í óviðjafnanlegu um-
hverfi. Sameiginleg máltíð á
laugardagskvóld. Kvöldvaka.
Sundlaug á staðnum. Heiðurs-
gestur Kristján M. Baldursson.
Fararstjóri Sigurður Sigurðar-
son. Farmiðar og upplýsingar á
skrifstofu, Grófinni 1.
Munið: GóSa gönguskó.
Sjáumst!
Útivist.
Fjarlagafrumvarpið 1990
séö frð mismunandi sjónarhornum
Ráðstenfa Félags viðskipta- og hagfræðinga um frumvarp
til fjárlaga 1990 verður haldin í Holiday Inn mánudaginn 30.
október nk. kl. 15-18.
Dagskrá:
1. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli stjómmálanna:
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra,
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
2. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli hagfræði- og
efnahagsstjórnar:
Már Guðmundsson, efnahagsráðunautur -
fjármálaráðuneytisins,
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur
Vinnuveitendasambands íslands.
3. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli vinnumarkaðarins
og atvinnufyrirtækja.
Karl Steinar Guðnason, varaformaður
Verkamannasambands íslands,
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri
Verslunarráðs Islands.
Ráðstefnustjóri er Lára Margrét Ragnarsdóttir.
Ráðstefnan er öllum opin. Þátttökugjald er kr. 1.000,-.
Stjómendur fyrirtækja - viðskipta- og hagfræðingar:
Þetta er ráðstefna sem þið megið ekki missa af.
FÉLAG VÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
HAEÞAUGL YSINGAR
SJALFSTIEDISPLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Ungir sjáífstæðísmenn á
Vesturlandi
Stofnfundur kjördæmissamtaka
Stofnfundur kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna á Vestur-
landi verður haldinn laugardaginn 28. október nk. kl. 20.00 f Sjálf-
stæðishúsinu á Akranesi.
Gestir fundarins verða Friðjón Þórðarson, alþingismaður og Davið
Stefánsson, formaður SUS. Fundarstjóri verður Guðlaugur Þór Þórð-
arson, fyrsti varaformaður SUS.
Undirbúningsnefndin.
Norðurlandskjördæmi
eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn á Dalvík laugardaginn 28.
október í Víkurröst og hefst kl. 9.30 f.h.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og gjaldkera.
2. Stjórnmálaályktun, umræður og afgreiðsla.
3. Við upphaf þings: Halldór Blöndal, alþingismaður.
4. Kl. 12.00 sameiginlegur hádegisverður.
5. Sveitastjórnarmál - sveitastjórnarkosningar. Fjögur erindi.
Umræður.
6. Kosningar, ákvörðun árgjalds.
7. Önnur mál.
Stjórn kjördæmisráðs.
Félag sjálfstæðismanna í
Vestur- og miðbæjarhverf i
Aðalfundur félags 'sjálfstæðismanna í Vest-
ur- og miðbæjarhverfi verður í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, mánudaginn 30. október kl.
20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Friðrik Sophusson,
alþingismaður.
Stjórnin.
Akranes
Sjálfstæðiskvennafélagið Bára heldur al-
mennan félagsfund mánudaginn 30. október
kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu, Heiðargerði.
Gestur fundarins verður Guðrún Zöega,
formaður Hvatar.
Kaffiveitingar.
Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna í
Bakka- og Stekkjahverfi
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna
Bakka- og Stekkja-
hverfi verður hald-
inn í Valhöll þriðju-
daginn 31. október
kl. 18.15. . -
Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
Gestir fundarins
verða Magnús L.
Sveinsson, borgarfulltrúi, og Július Hafstein, borgarfulltrúu
Stjórnin.