Morgunblaðið - 26.11.1989, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C/D
271. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1989 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Þorkell
EKKERT BRA UÐ Á ÞESSUM BÆNUM
Haidlíiniinöiinuiii komið frá völdum í Tékkóslóvakíu:
Geri mér engar gyllivon-
ir um nýju forystusveitina
- segir Vaclav Havel, helsti forystumaður andófsaflanna
Vanmetinn
söngvari
SÖNGELSKUM starfsmanni bresku járn-
brautanna hefur verið sagt að farþegar
hafi af því litla skemmtun er hann hefur
upp raust sína í hátalarakerfi járnbraut-
arlestarinnar snemma að morgni og
syngur gamla slagara. Farþegarnir virð-
ast kjósa að verja tíma sínum með öðrum
hætti, alltjent komu nokkrir þeirra að
máli við forráðamenn bresku járnbraut-
anna í Kent og sögðu að söngur Les
Bassets væri gjörsamlega óþolandi. Bass-
et fer á eftirlaun í desember og hyggst
skemmta farþegum allt þar til síðasta
vinnudegi hans lýkur.
Kyrkislöngu-
dráp getur vald-
ið hamskiptum
SÝNT ÞYKIR að kyrkislöngudráp geti
verið stórhættulegt athæfi hafi menn
ekki önnur vopn tiltæk en tenn sín.
Kínverskir læknar standa nú öldungis
ráðþrota frammi fyrir því hvernig skýra
beri hamskipti ungrar stúlku sem fjórum
dögum áður hafði grandað kyrkislöngu
með því að bíta hana „á barkann". Stúlk-
an, Lian Lian, hafði lagst til svefns á
árbakka en vaknaði við það að kyrki-
slanga ein hafði náð á henni heljartökum.
Lauk viðskiptum þeirra með því að sú
stutta beit slönguna og drap hana. Und-
anfarna þijá mánuði hefur Lian skipt
reglulega um ham frá bringu og niður
að tám.
Heita gestun-
um vítiskulda
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara
Morgunblaðsins.
GRÆNLEN SKIR
ferðaþjónustuaðilar
sækjast nú eftir ferða-
mönnum sem eru reiðu-
búnir að greiða 25.000
danskar krónur (ríflega
220.000 ísl. kr.) fyrir
orlofsferð sína. Fyrir þessa fjárhæð fá
menn m.a. átta daga hundasleðaferð eft-
ir vesturströnd Grænlands, frá Holsteins-
borg til Jakobshavn. I ferðinni fær hver
þátttakandi til umráða hundasleða, sem
grænlenskur veiðimaður stjórnar. Gist
er í tjöldum á leiðinni og eldað á olíu-
prímusum. Þátttakendum er lofað 30-35
gráða frosti.
Prag. Reuter.
SJÖ MÖNNUM hefur verið vikið úr for-
sætisnefnd tékkneska kommúnista-
flokksins. Sex þeirra eru taldir til rétt-
nefndra harðlínumanna en á óvart kom
að miðstjórn flokksins skyldi setja_ La-
dislav Adamec forsætisráðherra af. I for-
sætisnefndinni sátu 13 menn og voru sex
fyrrum meðlimir endurkjörnir og þrír
bættust við.
Yaclav Havel, einn þekktasti andófsmað-
ur Tékkóslóvakíu, sagði að ótrúlegur
hraði einkenndi umskiptin í landinu og gaf
í skyn að umbótabaráttunni væri ekki lokið
enn. „Eg geri mér engar gyllivonir um þá
herramenn sem komið hafa í stað þeirra sem
nú hafa sagt af sér.“ Breytingarnar voru
ákveðnar á 16 klukkustunda löngum fundi
miðstjórnarinnar aðfaranótt laugardags.
Auk Milos Jakes, fyrrum leiðtoga flokksins
sem stóð fyrir hreinsunum þeim sem fylgdu
í kjölfar innrásar Sovétmanna árið 1968,
var fimm harðlínumönnum öðrum komið frá
völdum. Þeir eru Jan Fojtik, hugmyndafræð-
ingur flokksins, Gustav Husak, forseti og
fyrrum flokksleiðtogi, Karel Hoffman, Alois
Indra og Frantisek Pitra. Stjórnarandstæð-
ingar höfðu krafist afsagnar þessara manna
sem og þeirra Miroslavs Stephans, flokks-
leiðtoga í Prag, og Miroslavs Zavadils en
þeir héldu sætum sínum.
Það kom hins vegar nokkuð á óvart að
forsætisráðherra Tékkóslóvakíu, Ladislav
Adamec, skyldi ekki haida sæti sínu í forsæt-
isnefndinni en hann sagði jafnframt af sér
embætti forsætisráðherra. Fyrr í vikunni
átti hann viðræður við fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar og hét þá verulegum tilslökunum
á alræði kommúnista. Talsmaður kommún-
istaflokksins sagði að Adamec hefði kunn-
gert Jakes þá ákvörðun sína að segja af sér
í bréfi er hann sendi flokksleiðtoganum
nokkru áður en lýðræðissinnar tóku að krefj-
ast umbóta á götum Prag.
Sjá „Svipmynd" á bls. 4.
JIvaé'crMivtó
j«i dökku
gleraugu?
Síddegisstund med
Þorbjörgu Leifs
10-11
MANNSMYND
SlcingrímurJ.
Sigfússon
BLAÐ
UNGVERSKT
(T|
GULLAS
12-14