Morgunblaðið - 26.11.1989, Qupperneq 6
é FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1989
Gunnar Þórðarson, rækjuverkandi á ísafírði:
Vildi auka hagræðingu í
rækjuvinnslu við Djúp
GUNNAR Þórðarson, rækjuverkandi á ísafirði, hefur boðið 130
milljónir króna í eignir rækjuvinnslunnar Bjartmars á ísafirði, en
þær voru seldar í vikunni á nauðungaruppboði. í gær var ekki ljóst
hvort tilboði hans yrði tekið. Gunnar er eigandi fyrirtækisins ís-
vers, áður Vinaminnis, og hefur til þessa haft til umráða 10%
rækjukvótans í Djúpinu. Þann hluta hefúr hann látið N.O. Olsen
og Niðursuðuverksmiðjuna hf. vinna fyrir sig, en ætlun hans var
að færa þá vinnslu inn í Bjartmar auk þeirra vinnsluheimilda, sem
það fyrirtæki hefur, eða 15% kvótans. Ætlun hans var að vinna 25%
rækjukvótans í Djúpinu í hinu nýja sameinaða fyrirtæki, yrði til-
boði hans tekið. Eftir að hann bauð í eignir Bjartmars, barst lionum
hins vegar skeyti frá sjávarútvegsráðuneytinu þess efnis, að ekki
sé lengur forsenda til að úthluta fyrirtæki hans (ísveri) vinnsluk-
vóta þar sem það sé ekki fengur starfrækt. Gunnar segist ekki
skilja þessa leyfissviptingu enda sé hún hvergi skýrð af ráðuneyt-
inu. Jafnframt sé það ljóst að sviptingin raski algjörlega þeim for-
sendum, sem tilboðið í eignir Bjartmars hefði verið byggt á.
Gunnar Þórðarson er 35 ára
ísfirðingur, kvæntur Kristínu
Hálfdánsdóttur og eiga þau þijú
börn. Hann er sonur Þórðar Júiíus-
sonar, sem er einn eigenda togar-
ans Júlíusar Geirmundssonar, en
hann stofnaði rækjuvinnslu við
heimili sitt Vinaminni við Selja-
landsveg árið 1960. Gunnar var
um tíma á togurum frá ísafirði,
en frá árinu 1981 leigði hann rekst-
ur rækjuvinnslunnar af föður
sínum og keypti hann síðan um
áramótin 1986 til 1987 og nefndi
fyrirtækið ísver. Byggðin þrengdi
stöðugt að vinnslunni og þegar
Gunnar keypti, lá fyrir að. hætta
yrði vinnslunni við Vinaminni og
byggja nýtt verkunarhús. Gunnar
er meðal annars þekktur fyrir
áhuga sinn á siglingum og á hlut
í skútu á Mallorca, en skíðin eru
þó aðaláhugamál hans og fjölskyld-
unnar.
„Ég sá hins vegar ekki að slík
bygging gæti borgað sig,“ sagði
Gunnar í samtali við Morgunblaðið.
„Mér leizt illa á fjármögnunina og
fyrir voru tvær stórar verksmiðjur
og leyfi hafði verið gefið fyrir þeirri
þriðju. Mér fannst það því að bera
í bakkafullan lækinn að byggja enn
eina nýja verkun, en ]eizt betur á
einhvers konar samvinnu um
vinnsiuna. Þess vegna gerði ég
samning við N.O. Olsen um pillun
á rækjunni og var það gert í sam-
ráði við sjávarútvegsráðuneytið í
upphafi ársins 1987. Við vorum
hræddir um kvótaskerðingu vegna
þess, en í bréfi ráðuneytisins frá
því í febrúarbyijun, undirrituðu af
Jóni B. Jónassyni, skrifstofustjóra,
segir að samstarf af þessu tagi
hafi ekki áhrif á úthlutun rækju-
vinnsluleyfa. Síðan gerðist það, að
Gunnar Þórðarson
N.O. Olsen fór á hausinn og gerði
ég þá pillunarsamning við Niður-
suðuverksmiðjuna hf. Þegar rekstri
Bjartmars var svo hætt, sá ég mér
leik á borði oggerði tilboð í eignirn-
ar með það í huga að auka hagræð-
ingu við þessa vinnslu við Djúp
með sameiningu tveggja fyrir-
tækja, þar sem ég gerði ráð fyrir
því, að kvóti Bjartmars fylgdi með
í kaupunum.
Það gerist svo skyndilega klukk-
an 16.30 á miðvikudag, að ég fæ
skeyti frá sjávarútvegsráðuneytinu
um það að ég hafi ekki lengur
rækjuvinnsluleyfi. Ég er með fjóra
báta í viðskiptum og þeir voni á
leið í land. Fyrsta verkið var því
að hringja í þá og láta vita af þess-
um tíðindum svo hægt væri að
útvega löndun annars staðar. Þessi
leyfissvipting kom mér gjörsam-
lega á óvart. Ég taldi bréfið frá
ráðuneytinu frá 1987 fulla trygg-
ingu fyrir því, að ekki yrði hróflað
við því fyrirkomulagi, sem í gildi
var. Ég veit ekki til þess að ég
hafi brotið af mér og hef enga við-
vörun fengið. Ég hef því enga skýr-
ingu á þessu. Mér finnst það rangt
að framkvæmdavaldið skuli geta
tekið svona gerræðislegar ákvarð-
anir og hlýt að verða að leita rétt-
ar míns fyrir dómstólum eða leita
ásjár umboðsmanns Alþingis,
gangi þessi leyfissvipting eftir,“
sagði Gunnar.
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, segir að
fyrirtæki Gunnars hafi einfaldlega
ekki verið í rekstri og því sé for-
senda úthlutunar vinnslukvóta til
þess úr sögunni. Gunnar hafi feng-
ið heimild til eins árs til að láta
O.N. Olsen pilla rækjuna fyrir sig
og sá tími sé einfaidlega liðinn.
Engin tengsl séu á milli afturköll-
unar leyfisins og tilboðs Gunnars
í eignir Bjartmars. Vinna við endur-
skoðun úthlutunar rækjukvóta við
Djúpið hafi að undanförnu staðið
yfir í ráðuneytinu og í kjölfar þess
hafi Gunnari verið sent skeytið.
Lengi hafi verið deilt á núverandi
fyrirkomulag og meðal annars þess
vegna verði rætt við hagsmunaað-
ila við Djúp um helgina um þessi
mál.
Aður en eignir Bjartmars voru
seldar á uppboði, var það ætlunin
að þar yrði unninn hörpudiskur af
skelveiðiskipinu Villa Magg, sem
nýlega var seidur til Bolungarvík-
ur. Gunnar sagðist, í viðtali við
Sjónvarpið, ekki taka þátt í því að
hleypa Villa Magg á hörpudiskveið-
ar í Djúpinu á kostnað þeirra, sem
hefðu þar kvóta fyrir. Hann segir
í samtali við Morgunblaðið, að hann
hafi ekkert annað en gott um það
að segja að Villi Magg farið á
hörpuskel, svo fremi sem það rýri
ekki kvóta þeirra sem fyrir eru.
Sjálfsagt sé að hann fari til dæmis
á miðin við Hom, út af Húnaflóa,
og ekkert sé við það að athuga að
skipið fái að reyna veiðarfærin eitt-
hvað í Djúpinu áður. Hann sé því
fyllilega tilbúinn til þess að taka
þátt í vinnslu afla Villa Magg, fari
mál með þessum hætti. Gunnar
bíður því úrslita í tveimur málum.
Hvort leyfissviptingin sé endanleg
og þá hvort tilboð hans í eignir
Bjartmars sé óraunhæft, eða hvort
hann haldi leyfinu og tilboði hans
í Bjartmar verði tekið.
B-álma Borgarspítalans:
Ný deild tekin í notk-
un í þessum mánuði
Verður einnig ætluð fyrir öldrunarbæklunarlækningar
NÝ DEILD verður tekin í notkun í B-álmu Borgarspítalans í þess-
um mánuði. Þar verða stundaðar öldrunarbæklunarlækningar að
hluta jaftihliða öldrunarlækningum. Með opnun þessarar deildar
verður búið að taka helming sjúkradeilda B-álmunnar í notkun.
Alls eru þar sex deildir og er rúm fyrir 27 sjúklinga á hverri deild.
Jóhannes Pálmason fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans
sagði í samtali við Morgunblaðið
að vitað væri um margt aldrað
fólk sem ætti í verulegum vand-
ræðum vegna þess hve biðlisti eft-
ir bæklunarlækningum væri lang-
ur. Á þetta sérstaklega við um
fólk sem þarf að skipta um
mjaðmaliði eða hnjáliði í.
Algengt er að fólk þurfi að bíða
eftir slíkum aðgerðum í allt að tvö
ár. Margir eru sárþjáðir og jafnvel
bundnir við rúmið heima hjá sér
við erfiðar aðstæður. Hugmyndin
með því að hafa deildina blandaða
var því sú að hægt væri að lina
þjáningar þessa fólk svo það geti
lifað eðlilegu lífi utan veggja
sjúkrahúsa.
Fjárveitingar til B-álmunnar
eru af skornum skammti að sögn
Jóhannesar og á fjárlögum næsta
árs eru 10 milljónir króna ætlaðar
til byggingarinnar.
„Með sama áframhaldi verður
byggingunni kannski ekki lokið
fyrr en á næstu öld. Það er í sjálfu
sér ótrúlegt að það verði látið við-
gangast, eins og ástandið er í
málefnum aldraðra," sagði hann.
Verið er að ráða starfsfólk og
sagði Jóhannes að það gengi
þokkalega. Almennt væri auðveld-
ara nú en áður að fá fólk til starfa.
Tröllvaxin eldisker íslandslax.
*
Islandslax auglýstur
til sölu í næstu viku
FYRIRTÆKIÐ íslandslax, sem er nú rekið af bústjórunum Sigurmar
K. Albertssyni og Garðari Garðarssyni verður auglýst til sölu í vik-
unni. Fulltrúar stærstu kröfúhafanna, þ.e. Landsbankans, Fiskveiða-
sjóðs og Framkvæmdasjóðs komu saman til fúndar með bústjórunum
í gær, þar sem þessi ákvörðun var tekin.
Sigurmar K. Albertsson, annar
bústjóranna sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að fyrirtækið
yrði auglýst til sölu bæði hér innan-
lands og erlendis. Hann kvaðst ekki
geta upplýst hvert áætlað söluverð
fyrirtækisins yrði, því það hefði
ekki verið reiknað út. Hann sagði
að verið væri að undirbúa mats-
gerðir bæði á afurðum stöðvarinnar
og eignum. Sigurmar sagði að-
spurður að stöðin yrði einungis
auglýst til söiu, en ekki til leigu.
Sigui-mar sagði að kröfuþafar
væru sammála um að reka bæri
stöðina áfram, jafnt þeir sem ættu
kröfur í afurðir stöðvarinnar og
eignir.
Knud A. Kaaber fv.
framkvæmdastjóri látinn
SÍÐASTLIÐINN föstudag lést á
Borgarspítalanum Knud A. Kaa-
ber fyrrum framkvæmdastjóri,
Hæðargarði 7, 67 ára að aldri.
Hann fæddist í Reykjavík 20.
janúar 1922. Foreldrar hans
voru frú Astrid og Ludvig Kaaber
Landsbankastjóri. Knud Kaaber var
framkvæmdastjóri Sigurplasts hf. í
nær þrjá áratugi. Hann lét af þeim
störfum á haustmánuðum 1988, en
starfaði áfram hjá fyrirtækinu til
dauðadags. Hann lést eftir stutta
sjúkrahúsvist.
Eftirlifandi kona hans er Jónína
Ásgeirsdóttir. Þeim varð 5 bama
auðið.
Stéttarsamband bænda:
Verðmyndun landbún-
aðarvara verði skoðuð
STÉTTARSAMBAND bænda
óskaði eftir því nýlega við
stjórnvöld að settur verði á
stofn starfshópur til þess að fara
yfir alla verðmyndunarþætti
landbúnaðarafúrða. Svar hefur
ekki borist írá stjórnvöldum
ennþá.
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda,
sagði að bændur vildu að verð-
myndunarþættir landbúnaðarvara
allt frá bóndanum og í gegnum
vinnslu- og sölustigið yrðu skoðað-
ir. „Þegar við sjáum að launaliður
bóndans er kannski innan við 20%
af endalegu verði vörunnar hljót-
um við álykta sem svo að það sé
hægt að ná þessu verði niður á
einhvern hátt,“ sagði Haukur.
Hann sagði að ákveðnum þátt-
um í höndum stjórnvalda, eins og
framleiðslustjórnun til dæmis,
gæti verið þannig fyrir komið að
það leiddi til óhagræðis og einnig
þyrfti að skoða skattlagningu á
aðföng, eins og kjarnfóðurskatt-
inn.
„Við teljum að það sé ekki
hægt að rýra kjör bænda, en það
getur komið út úr þessu að af-
kastageta sé of lág á hvert árs-
verk, svo dæmi sé tekið. Eða að
í verðlagningu okkar sé of mikill
vinnutími á bak við framleiðsluein-
ingu. Að .sjálfsögðu getum við
skoðað það líka,“ sagði Haukur.
Atlantshafs-
bandalaffið:
- ^
Varnir Is-
lands rædd-
ar í her-
málanefhd
^ Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni.
Á MÁNUDAG munu fúlltrúar
íslands gera hermálanefnd Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
grein fyrir vörnum landsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem ís-
lendingar gera slíkt á fúndi
nefndarinnar.
mór Sigurjónsson varnarmála-
ráðunautur og Þorsteinn Ing-
ólfsson skrifstofustjóri varnarmála-
skrifstofu mæta á fundinn ásamt
aðmírálnum á Keflavíkurflugvelli
til að gera nefndarmönnum grein
fyrir hvernig staðið er að því að
tryggja öryggi og varnir íslands.
Að þessu sinni sitja formenn herr-
áða aðildarríkjanna fund hermála-
nefndarinnar.