Morgunblaðið - 26.11.1989, Síða 8
0
8
MORGUNtíLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1989
T n APersunnudagur26. nóvember, semer325. dag-
T T'AvJur ársins. Árdegisflóð er í Reykjavík kl. 00.53
og síðdegisflóð kl. 13.16. Sólarupprás er í Reykjavík kl.
• 10.15ogsólarlagkl. 16.11. SólineríhádegisstaðíReykjavík
kl. 13.14 ogtunglið í suðri kl. 8.17. (Almanak Háskólans.)
Mattll.: DýrðKrists.
ÁRNAÐ HEILLA
n A ára afmæli. Á morgun,
I vl 27. nóvember, er sjö-
tugur Jóhann Hjálmarsson
frá Ljósalandi í Skagalirði.
Hann er fyrrv. húsvörður
Menntaskólans við Hamra-
hlíð, til heimilis á Digranes-
vegi 54 í Kópavogi. Jóhann
og kona hans, María Bene-
diktsdóttir, verða að heiman
á afm'ælisdaginn.
f7í\ ára afinæli. Næstkom-
• \/ andi þriðjudag, 28.
þ.m., er sjötug Viktoría Dan-
íelsdóttir, Stóragerði 7,
Rvík. Hún tekur á móti gest-
um á heimili fósturdóttur
sinnar, á Öldugötu 18 hér í
bænum, kl. 17-19 á afmælis-
daginn.
r A ára aftnæli. í dag, 26.
t)U nóvember, er fimmtug
frú Sólveig S. Jónsdóttir,
Hraunsvegi 7, Njarðvík.
Eiginmaður hennar er Árni
Júlíusson og ætla þau að taka
á móti gestum í safnaðar-
heimili Innri-Njarðvíkur-
kirkju í dag, afmælisdaginn,
eftir kl. 17.00.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
MÁLSTOFA í guðfræði.
Næstkomandi þriðjudag, 28.
þ.m., verður haldin málstofu
í guðfræði. Sr. Kristján Búa-
son flytur erindi sem hann
nefnir: Formgerðargrein-
ing (strúktúrismi) í ritstýr-
ingu: Dæmisagan um týnda
soninn. Málstofan verður
haldin í Skólabæ, Suðurgötu
26, og hefst kl. 16.
SÉRFRÆÐINGAR. í tilk.
frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu segir að það
hafi veitt þessum læknum
starfsleyfi sérfræðinga: Hös-
kuldi Kristjánssyni sérfræð-
ingi í alm. skurðlækningum,
Ómari Ragnarssyni, sér-
fræðingi í heimilislækning-
um, og Atla Guðlaugi
Steingrímssyni, sérfr. í
háls-, nef- og eyrnalækning-
um.
MS-félag íslands heldur sinn
árlega kökubasar í Blómavali
við Sigtún í dag frá kl. 12.
Kökum má koma í Blómaval
milli kl. 10 og 12.
VINAHJÁLP heldur sinn
árlega basar í dag kl. 14 í
Holiday Inn. Handunnir jóla-
munir til sölu og hið vinsæla
happdrætti. Vinningar mis-
stórir, allt frá smámunum upp
í flugmiða.
AGLOW, kristileg samtök
kvenna, halda fund á Hótel
Loftleiðum, Kristalsal, nk.
mánudag, 27. nóv., kl. 20.
Sagt frá alheimsmóti Aglow
í Texas sl. sumar. Athugið
nýjan fundarstað.
SAMTÖK- UM SORG og
sorgarviðbrögð eru með op-
ið hús í safnaðarheimili Laug-
arneskirkju í á _ þriðjudags-
kvöldum kl. 20. Á sama tíma
eru veittar upplýsingar og
ráðgjöf í s. 34516.
FÉL. eldri borgara hefur
opið hús í dag, sunnudag, í
Goðheimum, Sigtúni 3, kl._ 14.
Fijáls spilamennska. Boka-
kynning og upplestur kl.
15.30 og dansað kl. 20.00.
Ráðgert er að halda basar til
eflingar félagsstarfinu laug-
ardaginn 9. desember og
væntir stjórnin þess að fólk
bróðir
ORÐABÓKIIU
Faðir ■
Þessi nöfn heyra til svo-
nefndra frændsemisorða, en
hin eru móðir, dóttir og
systir. Upprunaleg beyging
alira þessara orða er sú, að
þau enda á -ir í nf. et., en
-ur í aukaföllum, þ.e. þf.,
þgf. og ef. Rétt er því að
segja og skrifa faðir og
bróðir í nf., en tala um föð-
urog bróðurí öðrum föllum.
Þetta er faðir minn, en ég
ætla til föður míns. Ég sá
bróður minn, ég verð hjá
bróður mínum. Þennan
uppruna ber okkur að sjálf-
sögðu að virða, enda er á
þetta bent í öllum kennslu-
bókum. Hinu verður samt
ekki neitað, að snemma
hafa menn ruglazt hér í
ríminu, og enn er svo í
venjulegu talmáli. Aðallega
eru öll frávik bundin við
et., því að ft. hefur að mestu
haldizt samkv. uppruna.
Þegar í elztu prentaðri bók
á íslenzku, Nýja testamenti
Oddsfrá 1540, kemurönnur
beyging fram, en oftast fer
hann samt eftir fornum sið.
Þar má samt finna bróðir í
stað bróður. Hið sama sést
einnig víða í Guðbrands-
biblíu frá 1584. Einkum er
algengt, að ef. verði föðurs
og nær alltaf, þegar orðið
er með greini: til föðursins.
Sama gildir og oft um bróð:
ur í ef.: til bróðursins. í
vönduðu máli forðast menn
samt að nota þessar orð-
myndir. — JAJ.
Borgarfulltrúi byggir á lóö sem hann hefur fengiö úthlutað viö Lágmúla:
BYGGT 700 FERMETRA
HUS FYRIR SIMSVARA?
Hvar finnst þér ég ætti að hafa símsvarann minn, Alíreð?
leggi í púkkið basarmuni og
kökur. Nánari uppl. á skrif-
stofunni.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Gerðubergi. Basar verður í
dag kl. 14-17. Þar ætlar kór
Félagsstarfs aldraðra í
Reykjavík að láta til sín heyra
undir stjórn Signrbjargar
Hólmgrímsdóttur. Þá fer
einnig fram sýnikennsla í að-
ventuskreytingum — og verð-
ur hægt að fá keypt greni.
SVR — leiðir 12 og 13 — aka
að Gerðubergi.
KFUK, Haftiaríírði. Nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.30 er
kvöldvaka í húsi félaganna á
Hverfisgötu 15. Kristniboðs-
hjónin Valdís og sr. Kjartan
Jónsson segja frá starfinu í
Kenýa og sýna myndir úr
safni sínu þaðan. Jafnframt
verður sr. Kjartan ræðumað-
ur kvöldsins. Kaffisala verður
til ágóða fyrir kristniboðið í
Kenýa.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Fregnin um það er
breskt herskip stöðvaði
Esju í fyrradag, virðist
hafa verið símuð til
Þýskalands, því þýska
útvarpið hafði skýrt frá
þessum atburði í frétta-
tíma sínum í gær á þessa
leið:
„Bretar halda áfram
að trufla siglingar hlut-
lausra þjóða. Þeir ganga
jafhvel svo langt að
stöðva herskip þeirra og
heimta að fá að rannsaka
þau. — Þannig stöðvaði
breskt herskip íslenska
herskipið „Esju“ við ís-
land í gær og setti 20
vopnaða sjóliða um borð
í það. Kröfðust þeir að
fá að skoða skipsskjölin.
Síðan urðu bresku sjó-
liðarnir raunar að biðja
yfirmann íslenska her-
skipsins afsökunar á
þessum yfirgangi
sínum.“
KVENFÉL. Kópavogs. Fé-
lagsvist verður spiluð í félags-
heimili bæjarins nk. þriðju-
dagskvöld kl. 20.30.
ÁRBÆJARSÓKN. Annan
hvern mánudag fer fram
fótsnyrting fyrir eldra fólk
safnaðarins í safnaðarheimil-
inu kl. 15-17. Nánari uppl.
veittar í s._ 74521. — Öldrun-
arfulltrúi Árbæjarsóknar hef-
ur símaviðtalstíma á þriðju-
dögum kl. 13-14, s. 83083.
Leikfimi aldraðra er á þriðju-
dögum kl. 14.
FRAMKONUR halda köku-
basar í félagsheimili Fram í
Safamýri í dag, sunnudag,
kl. 14.00 til ágóða fyrir fé-
lagsheimilið.
LÁRÉTT: — 1 eldstæðum,
5 versa, 8 ófagurt, 9 fleka,
11 mannsnafns, 14 gutl, 15
sól, 16 ýlfrar, 17 vond, 19
karldýr, 21 gefi að borða, 22
getið um, 25 illdeila, 26 spor,
27 skel.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
I gær kom Jökulfell að utan
og togarinn Viðey kom inn
til iöndunar. Danska eftirlits-
skipið Hvidbjömen kom. í
dag kemur til landsins tii
strandsiglinga í stað Heklu,
sem er til viðgerðar, norskt
leiguskip, Tananger.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í gær fór Hofsjök-
ull á ströndina. í dag heldur
togarinn Sjóli til veiða og
Lagarfoss er væntanlegur að
utan í kvöld. í gær kom togar-
inn Víðir úr söluferð. Súráls-
skipið sem kom á dögunum
er farið út aftur.
LÓÐRÉTT: - 2 leyfi, 3
reyfi, 4 skynsemi, 5 ótraust,
6 stefna, 7 grönn, 9 ófreskja,
10 fiðluleikara, 12 illfygli, 13
harminn, 18 mjúka, 20 drykk-
ur, 21 skóli, 23 tveir eins, 24
titiil.
ÞETTA GERÐIST
26. nóvember
ERLENDIS:
1580: Fleix-friður bindur
enda á sjöunda trúarstríðið í
Frakklandi.
1680: Loðvík XIV segir Hol-
Iendingum stríð á hendur’ og
Frakkar taka Pfalz.
1764: Regla jesúíta bæld nið-
ur í Frakklandi.
1791: Jósef keisari II leysir
bændur úr ánauð í Austurríki.
1812: Franski herinn geldur
afhroð á undanhaldinu yfir
Berezina-fljót, Rússlandi
(Berezina-orrustan).
1857: Fyrsta ástralska þingið
sett í Melbourne.
1880: Tyrkir leyfa Monte-
negro að hertaka Dulcagno.
1896: Rússar skýra frá áætl-
un um að taka Konstantínóp-
el, ef Bretar grípa til íhiutun-
ar á Krít.
1898: Georg Grikkjaprins
skipaður landstjóri á Krít.
1917: Rússar bjóða Þjóðverj-
um og Austurríkismönnum
vopnahlé.
1922: Grafhýsi Tutankham-
ons opnað í Egyptalandi.
1949: Indland verður sam-
bandslýðveldi í brezka sam-
veldinu með gildistöku stjórn-
arskrár.
1955: Neyðarástand á Kýpur.
1970: Páli páfa sýnt mis-
heppnað banatilræði í Manila.
1977: ísraelsmenn taka boði
Egypta um þátttöku í ráð-
stefnu margra þjóða í Kaíró
um friðarviðræður í Genf.
HÉRLENDIS:
1450: Langaréttarbót Krist-
jáns I.
1837: Guðmundur sýslumað-
ur Scheving látinn.
1887: Magnús Jónsson ráð-
herra fæddur.
1887: Pétur Halldórsson
borgarstjóri fæddur.
1895: Björn Ólafsson ráð-
herra fæddur.
1903: Thor Thors fæddur.
1912: Samið um strandferðir
við Sameinaða gufuskipafé-
lagið.
1943: „Hilmir" frá Þingeyri
ferst.
1949: Ólafur Thors tekur að
sér stjórnarmyndun.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 ósatt, 5 æstur, 8 áræði, 9 holla, 11 undur,
Í4 urr, 15 iðnað, 16 iðjan, 17 ann, 19 náin, 21 egni, 22
nistinu, 25 men, .26 æsi, 27 Rán.
LÓÐRÉTT: — 2 svo, 3 tál, 4 trauða, 5 æðurin, 6 sin, 7
Unu, 9 heilnæm, 10 lundinn, 12 dtjúgur, 13 runninn, 18
nets, 20 Ni, 21 en, 23 sæ, 24 II.