Morgunblaðið - 26.11.1989, Page 12
I dag taka Ungverjarþátt íþjóðar-
atkvœöagreiðslu um hvort kjósa
skuli forseta landsins beinni kosn-
ingu. En hvaða vonir bindurfólkið
við umbœturnar og áhrifþeirra á
hversdagslífið?
Texti og myndinAnna Bjarnadóttir
GAMALL MAÐUR sagði mér að hann hefði séð rússneska hermenn
bijóta upp sykurgeymslur eftir stríðið og fólk æða þangað inn.
Það hámaði í sig sykurinn þangað til því varð illt og sumt veiktist
alvarlega. Hann sagði að ástandið í landinu minnti sig á þessa
sjón. Hér ríkir allt í einu skoðanafrelsi og fjölílokkakerfí eftir
áratuga einræði Kommúnistaflokksins. Eg vona bara að við
kunnum að fara betur með fi’elsið en fólkið með sykurinn."
Ungverska konan sem segir þetta er
vel stæð og býr í Búdapest. Hún
starfar hjá fyrirtæki sem gefur út
litskrúðugar kynningarbækur um
Ungveijaiand. Hún segist hafa
nokkuð fijálsar hendur og getur
því tekið að sér að leiðbeina litlum
hópum um borgina eða túlka fyrir
fólk. Fyrii' það fær hún borgað í
gjaldeyri. Hún er að hefja innflutn-
ing á austurrísku kexi. „Ég er
hlynnt einkaframtaki en mér líst
ekki á að erlendum fyrirtækjum
verði leyft að Qárfesta hér án ung-
verskrar aðildar. Það gæti farið
fyrir Ungveijalandi eins og Mið-
Ameríku þar sem amerísk fyrirtæki
sátu ein að gróðanum.“
Áhugi erlendra aðila á fjárfest-
ingu í landinu er þó nokkur. Eitt
dæmi er hlutdeild Roberts Max-
wells, fjölmiðlakonungs, í stjórnar-
blaðinu Magyar Hirlap. Hann fékk
aðeins að kaupa 40% og ríkisstjórn-
in er meðeigandi í útgáfufélaginu.
Aðstoðarritstjórinn Andras Tabori
sagði að dagblaðið yrði áfram vin-
veitt stjórninni í pólitískum skrifum.
Rupert Murdoch, ástralski fjöl-
miðlakóngurinn, kaupir hins vegar
50% í óháða forlaginu Reform. Það
hóf útgáfu vikublaðsins Reform í
fyrra og hefur gengið vel frá fyrsta
degi. Það gefur einnig út síðdegis-
blaðið Mai nap.
Ný blöð og flokkar skjóta svo ört
upp kollinum að fólk á fullt í fangi
með að fylgjast með/ Umbóta-
sinnarnir í Kommúnistaflokknum
stofnuðu flokk sósíalista á síðasta
landsfundi kommúnista. Gamli
flokkurinn hafði 70.000 meðlimi en
aðeins 15 til 20 þúsund hafa geng-
ið í hinn nýja. Þar á meðal 150 af
250 þingmönnum Kommúnista-
flokksins. Harðlínumennirnir í hon-
um fullyrða að 120.000 manns hafi
lýst yfir stuðningi við gamla flokk-
inn. Fólk er á báðum áttum hvort
það eigi að taka mat'k á því en
túlkurinn minn og blaðamaður á
Magyar Hirlap gerðu það báðir.
„Gamalt fólk sem hefur stritað alla
sína ævi — konur með bólgnar
hendur og karlar með slitin bök —
í þeirri trú að það væri að vinna í
þágu kommúnismans til að greiða
veginn fyrir bjartari framtíð kom-
r'
A flótta
undan
Ceausescu
SAMI maðurinn hefur tvisvar
sinnum sníkt af mér aur þeg-
ar ég hef verið á rangli að
kvöldlagi í nágrenni við Hil-
ton-hótelið í Búdapest. Hann
hefur ávarpað mig á ensku
og þýsku og sagt hið sama í
bæði skiptin: ;,Vinsamlega
hjálpið mér. Eg er flóttamað-
ur frá Rúmeníu og mig vant-
ar peninga." Ég held að þetta
sé það eina sem hann kann
í þessum tungumálum.
Hann er í hópi 30.000
flóttamanna sem hafa
komið til Ungveijalands frá
Rúmeníu á tæplega tveimur
árum. Um 1.300 komatil lands-
ins að meðaltali á mánuði.
Langflestir eru af ungversku
bergi brotnir en hluti er þýskur
og aðrir rúmenskir. Þeir eru í
leit að betri lífsskilyrðum og á
flótta undan harðstjórn Ceaus-
escus.
Ungveijar taka á móti þeim
í flóttamannabúðum og veita
dvalarleyfi í ákveðinn tíma.
Þeir undirrituðu Flóttamanna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna
fyrr á þessu árí"og stofnunin
er að opna skrifstofu í Búda-
pest um þessar mundir. Stór
hluti flóttamannanna vill halda
ferðinni áfram til Vestur-
Þýskalands eða annars iðnríkis.
Ungverska þingið - Stjórnarand-
stöðuflokkurinn Fijálsir demókratar
kröfðust þess að þingið frysti eignir
gamla Kommúnistaflokksins og hann
gerði grein fyrir þeim opinberlega...
Istvan Bernath, íslenskukennari
í háskólanum - launin eru svo
léleg að aukastörf eru nauðsyn-
leg.
andi kynslóða, - þetta fólk afneitar
ekki trúnni svo glatt,“ segir túlkur-
inn.
Eva Varga, starfsmaður í lyfja-
fyrirtæki - fólk er svo þreytt eft-
ir langan vinnudag að það hefur
ekki þrek til að velta pólitík fyr-
ir sér.
Gamli flokkurinn á miklar eignir
og enn eV óvíst hvað verður um
þær. Stjórnarandstaðan, með Lýð-
ræðishreyfinguna og Fijálsa demó-
krata í broddi fylkingar, hefur oft
lagt til að þeim verði skipt milli
stjórnmálaflokkanna á þessu ári en
án árangurs. í sumar ljóstruðu
Fijálsir demókratar því upp að
Kommúnistaflokkurinn hefði reynt
að koma hluta eignanna undan með
því að skrá þær á nafn fyrirtækis-
ins Next 2000 sem hann hafði ný-
lega stofnað. Demókratarnir kröfð-
' ust að þingið frysti eignir flokksins
og að hann greindi frá eignum
sínum opinberlega. Laszlo Bekesi,
fjármálaráðherra, skýrði loks frá
því að flokkurinn ætti 2.884 bygg-
ingar og hefði þegið 56 milljarða
forinta (ein forint er svo til jafn-
virði einnar krónu) frá ríkinu und-
anfarin 20 ár. Sósíalistaflokkurinn
hefur nú falið rtefnd að ákveða
hvaða byggingar flokknum ber að
afhenda ríkinu.
Það stendur einnig til að skila
byggingum trúfélaga sem voru
gerðar upptækar fyrir tæpum fjör-
utíu árum. Yfir 2.500 munkar og
tæplega 9.000 nunnur voru þá
starfandi í 63 rómversk kaþólskum
trúfélögum. Þau ráku skóla og
I