Morgunblaðið - 26.11.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1989
15
VIRÐISAUKASKATTUR
Ný aðferð sem
kemur í veg fyrir
uppsöfnun skatts
í vöruverði
Virdisaukaskattur tekur við af söluskatti um næstu áramót.
Hánn tryggir að skattur leggst aðeins einu sinni á sömu
vöruna, hvort sem framleiðsluferlið er einfalt eða fjölþætt
og óháð því hversu oft hún gengur á milli viðskiptastiga.
Frádráttarheimild virðisaukaskatts gerir fyrirtækjum
kleift að draga skatt sem þau greiða við kaup á vörum
eða aðföngum (innskattur) frá skatti af seldum vörum
(útskattur). Slíkurfrádráttur erekki fyrirhendi í sölu-
skattskerfinu. Fyrirtækin greiða nú söluskatt af
aðföngum og leggja síðan söluskatt á endanlegt vöru-
verð. Þetta hefur í för með sér að skattur leggst ofan á
skatt sem skilar sér sem uppsafnaður skattur í vöru-
verði til neytenda. Til að mæta þessu hafáverið búin
til flókin undanþágu- og endurgreiðslukeríi sem nú
leggjast af.
Virðisaukaskattur leggst hins vegar aðeins einu sinni
á sömu vöru eða þjónustu, óháð fjölda þeirra fram-
leiðslu- og viðskiptastiga sem verðmætin fara um áður
en neytendur fá þær í hendur. Með frádráttarheimild-
inni er því komið í veg fyrir margsköttun. Sam-
keppnisstaða íslenskra fyrirtækja og atvinnugreina
jafnast þá innbyrðis, traustari grundvöllur myndast
fyrir nýsköpun í atvinnulífinu og staða íslenskrar
íramleiðslu styrkist í samkeppni við erlendar vörur,
hérlendis sem erlendis.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ