Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989 2 Stykkishólmur; Ríkið riftir einhliða samn- ingi um byggingu íþróttahúss SAMNINGUR ríkisins og Stykkishólmsbæjar um byggingu íþrótta- húss í Stykkishólmi hefiir verið felldur úr gildi af hálfu rikisins, en á fjárlögum ársins 1990 eru engar ráðstafanir gerðar til að standa við samningin. Að sögn Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra í Stykkis- hólmi er það álit menntamálaráðherra og fjármálaráðherra að samningurinn sé einhliða úr gildi fallinn vegna gildistöku laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, en greiðslur sem ríkið átti að inna af hendi á næstu þremur árum samkvæmt samningnum nema um 30 milljónum króna. >5 Það kemur okkur á óvart að hægt skuli vera að ganga á bak slíks samnings, sem gerður er af fjármálaráðherra og mennta- málaráðherra fyrir hönd ríkisins, en í samningnum segir að hann muni verða endurskoðaður verði gerðar breytingar á þeim lögum eða reglum sem hann styðst við á meðan á byggingu íþróttahússins stendur. Það hlýtur að vera siðaðra manna háttur að slík endurskoðun fari fram, og reynt að ná sam- komulagi um hvernig standa eigi við samninginn, en það er furðu- legt'að rikisvaldinu skuli vera stætt á því að gera samninga af þessu tagi og setja síðan lög sem fella þá úr gildi,“ sagði Sturla. Samningur um byggingu íþróttahússins var gerður árið 1987. Samkvæmt honum var gert ráð fyrir að framkvæmdir hæfust það ár og lyki árið 1991, en ríkið greiddi sinn hluta af kostnaði vegna byggingarinnar á árunum 1988-1993. „Við höfðum slæma reynslu af því að trysta á ótryggar fjárveitingar ríkisins og þess vegna lögðum við mikla áherslu á að gera samning til þess að vera ör- uggir um það hvemig ríkið greiddi sinn hluta af þessari framkvæmd," sagði Sturla. „Þegar framkvæmdir hófust við íþróttahúsið kynntum við við- skiptaaðilum okkar og lánastofn- unum samninginn við ríkið. Láns- fjármagn til framkvæmdanna var Kaup Landsbanka á Samvmnubanka: Fundur á þriðjudag FULLTRÚAR Sambands íslenskra samvinnufélaga munu ganga á fúnd fulltrúa Lands- bankans næstkomandi þriðju- dag. Er þá áformað að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambandsins, að fara ofan í kjöl- inn á tilboði Landsbankans 152% hlut SÍS í Samvinnubankanum. „Ég hvorki vil né get gefið nokkrar yfirlýsingar í þessu máli fyrr en í næstu viku,“ sagði Guð- jón. Stjórnarfundur Sambandsins verður hugsanlega í vikunni að sögn Guðjóns; verður það ákveðið að loknum fundinum með fulltrú- um Landsbankans. raunverulega útvegað með því að veðsetja samninginn, en það hefur nú sýnt sig að hann er ekki lengur sú trygging fyrir endurgreiðslu sem hann var þegar við kynntum hann.“ Að sögn Sturlu er inneign Stykkishólmsbæjar hjá ríkinu vegna samningsbundinna verka, þ.e. framkvæmda við höfnina, íþróttahús, skóla og heilsugæslu- stöð, um 40 milljónir króna nú um áramótin. Morgunblaðið/Sverrir Listilegar piparkökuhallir Margir tugir piparkökuhúsa bárust í samkeppni sem haldin var á Holiday Inn og lauk i gær. 131 þúsund erléndir ferða- menn til landsins 1989 Fjölgunin 45% síðustu fimm ár ERLENDIR ferðamenn til landsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 1989 eða 131 þúsund, 2.300 fleiri en á árinu 1988. Gjaldeyristekjur vegná þjónustu við ferðamenn hafa heldur aldrei verið jaln miklar, en áætlað er að þær nemi níu milljörðum króna. Þetta kemur fram í grein eftir Birgi Þorgilsson, ferðamálastjóra, í blaðinu í dag. ÞÞar kemur ennfremur fram að fjölgun erlendra ferða- manha er heldur minni en almennt var búist við. Ástæðurnar séu áframhaldandi fækkun ferðamanna frá Bandaríkjunum, auk fækkunar ferðamanna frá Hollandi og Norð- urlöndunum, en ferðamönnum það- an hafði fjölgað um árabil. Alvar- legast sé að ferðamönnum frá Bandarikjunum fækki nú annað árið í röð. Fækkunin sé 19%, sem jafngildi því hð 9.500 færri Banda- ríkjamenn hafi komið til landsins. Sex þúsund færri íslendingar hafa hins vegar lagt leið sína til útlanda en árið áður, en það er samt hlutfallslega minni samdrátt- ur en á öðrum neyslusviðum að því er fram kemur í greininni, jafnframt því sem ferðalög ísiendinga innan- lands hafi aukist. Fram kemu,r að árið 1950 hafi skipulegar aðgerðir hafist til að fá erlenda ferðamenn til landsins og að á þessu árabili hafi þeim fjölgað úr 5.000 í 131 þúsund, sem hafi eytt hér 800 þúsund gistinóttum. Fjölgunin á síðustu fimm árum sé 45%. Sjá grein ferðamálastjóra á bls. 19. Annríki hjá lögreglunni ANNASAMT var hjá lögreglunni í Reykjavik í fyrrinótt vegna ölv- unar og óspekta víða um bæinn og fylltust fangageymslurnar þegar leið að morgni. u m hálffjögurleytið um nóttina lentu tveir menn í slagsmálum fyrir utan Rauða ljónið á Seltjarnar- nesi og lauk slagsmálunum með því að annar sparkaði í andlit hins með þeim afleiðingum að sá nefbrotnaði og sauma þurfti á annan tug spora í andlit hans. Sá sem áverkanum olli var yfirheyrður hjá Rannsókn- arlögreglu ríkisins í gærmorgun. A Isamtali við Morgunblaðið sagði Guðjón B. Ólafsson að hann myndi skoða tilboðið yfir helgina með samstarfsmönnum en ekki yrði farið ofan í kjölinn á því fyrr en á þriðjudag á fundi með fulltrú- um Landsbankans. í blaðinu í dag eru ýmsar upplýsingar sem geta verið handhægar fyrir lesendur um áramótin: Dagbók er á blaðsíðu 8, dagskrá hljóðvarps og sjónvarps yfir hátíðirnar bls. 45-47, minnisblað lesenda um áramót bls. 14b og upplýsingar um áramótabrennur bls 20- 21b. Kyrrahaf: Fyrsti fisk- urinn unn- inn í Andra ANDRI I, verksmiðjuskip ís- lenska úthafsveiðifélagsins hf., fékk fyrsta fiskinn til vinnslu á miðunum við Aleuta-eyjar á Kyrrahafi í fyrrinótt, að sögn Ragnars Halldórssonar fram- kvæmdastjóra útgerðarfélagsins. Bandarískt veiðiskip landaði af 1- anum um klukkan 2 um nótt- ina. Andri kom á miðin fyrir jól. Þá var blindhríð og síðan var unnið að undirbúningi veiða og vinnslu og sagði Ragnar að vinnslan væri nú komin vel í gang. Staða viðræðna um nýja kjarasamninga: Erfið úrlausnarefiii framundan áður en samningar geta tekist Langstærstur hluti launþega með lausa kjarasamninga um áramót Á ÞESSU stigi málsins er ekki hægt að spá fyrir um afdrif þeirra viðræðna um kjarasamninga sem fram hafa farið á hinum al- menna vinnumarkaði á undaníornum vikum. Til þess eru viðræð- urnar of skammt á veg komnar. Ennþá hefur ekki verið tekist á um meginatriði, eins og launatölur og tryggingarákvæði samn- ingsins. Segja má á hinn bóginn að samningsaðilar séu sammála um aðferð og stefnumið, þ.e.a.s um að reyna að gera kjarasamn- inga við eins litla verðbólgu og nokkur er kostur til ekki skemmri tíma en eins árs, samning sem gæti orðið undirstaða stöðugleika í efnahagslíflnu á árinu 1990 og jafnvel lengur. Til þess þarf að fara mjög vandlega yfir ýmsa þætti efnahags- og verðlagsmála og horfurnar framundan í þeim efhum. Tími samningsaðila hefur farið í þá undirbúningsvinnu undanfarið, en fljótlega eftir áramót- in er þess að vænta að virkilega fari að reyna á hvort þessi leið sé fær. Og það eru önnur ljón í veginum. Samhingar allra landssam- banda Alþýðusambands ís- lands eru lausir um áramót og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur verið með lausa samn- inga frá því um mánaða- mótin nóvemb- er/desember. Langstærstur hluti launþega í landinu verð- ur því með lausa samninga á nýju ári. BSRB hefur knúið á um viðræður en fengið þau svör að launastefnan verði mörkuð á almenna markaðn- um og ríkisvaldið muni halda að sér höndum meðan viðræður eru í gangi þar. Þá hefur BSRB gert kröfur um að fá fram ýmsar leið- réttingar á kjörum einstakra hópa innan sinna vébanda áður en gengið verður frá samningum til lengri tíma. Þar er bæði um að ræða ieiðréttingar vegna gildis- töku laga um verkaskiptingu ríkis og sveit- arfélaga, en sagt er að það geti munað á bilinu 10-30% á launum heilbrigðisstarfsmanna eftir því hvort þeir hafa verið á launum hjá ríkinu eða sveitarfélögum út um land. Þá er einnig um að ræða mun á kjörum fólks sem vinnur hlið við hlið en er á ólíkum kjörum vegna aðildar að mismunandi verkalýðsfélögum. Svo dæmi sé tekið eru rafeindavirkjar hjá sjón- varpinu bæði í Rafiðnaðarsam- bandinu og Starfsmannaféiagi sjónvarps. Það er ljóst að kjarasamningar eins og þeir sem rætt hefur verið um, sem byggja á litlum kaup- hækkunum, verðlagsaðhaldi á öllum sviðum og vaxtalækkun, ganga varla upp nema um þá takist víðtæk samstaða í þjóðfé- laginu. Forsvarsmönnum BSRB hefur þegar verið gerð grein fyrir þeim hugmyndum sem verið er að vinna eftir í þessum viðræðum og þess er að vænta að þegar til úrsiita dregur verði reynt að ná sem víðtækastri samstöðu um samninginn. Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna er sér á báti samanborið við hin launþegasam- tökin. Eftir harðvítuga baráttu og langt verkfall í vor er leið, sem hafði það markmið að samræma kjör háskólamanrm hjá ríkinu því sem gerist á almennum markaði, tókust samningar um að leiðrétta þennan mun í áföngum á fimm árum. Þannig eiga þeir að hækka um einn launaflokk hið minnsta að meðaltali 1. júlí í sumar og síðan árlega eftir það. Þá kveður samningurinn á um 1,5% hækkun 1. janúar og 1. maí 1990 og heim- ild til endurskoðunar verði breyt- ingar á launakjörum annarra launþega umfram þessi rúmlega 3% eftir 30. nóvember í ár. Það eru þessi atriði kjarasamn- ings BHMR sem formaður Vinnu- veitendasambandsins hefur lýst sem tímamsprengju og krafist að þau verði afnumin. Hann hefur sagt það forkostuleg vinnubrögð stjórnvalda að búa til samning við einn hóp launþega þar sem kveðið er á um að hann skuli alltaf fá meiri hækkanir en aðrir. Næsti fundur samningsaðila hefur verið boðaður miðvikudag- inn 3. janúar. Ríkisstjómin hefur frestað fyrirhuguðum verðhækk- unum í bytjun ársins þar til niður- staða fæst í viðræðurnar. Búast má við að forsvarsmenn Alþýðu- sambandsins kynni það sem fram hefur komið fljótlega eftir ára- mótin í verkalýðsfélögunum og leiti eftir viðbrögðum. Jafnframt má reikna með að unnið verði að samningagerðinni af fullum krafti og að reynt verði að fá niðurstöðu á annan hvorn veginn áður en þing kemur saman 22. janúar. BAKSVIP eftir Hjálmar Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.