Morgunblaðið - 07.01.1990, Síða 8
8
MÓRGUNBLMÆÐ DAGBÓK sunnúdÁgúr íUJ&Iúair
1990 ’ i •' /
T 'pv A er sunnudagur 7. janúar, sem er 1. sunnudagur
1 UA.VJTeftirþrettánda. Sjöundi dagur ársins 1990. Ar-
degisflóð í Reykjavík kl. 2.26 og síðdegisflóð kl. 14.58. Sólar-
upprás í Rvík kl. 11.11 og sólarlag kl. 15.57. Myrkurkl.
17.10. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.34 ogtunglið er
í suðri kl. 22.22. (Almanak Háskóla íslands.)
Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki
verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er
mín ekki verður. (Matt. 10,37.)
ÁRNAÐ HEILLA
QA ára afinæli. A morgun,
t/U mánudaginn 8. janúar,
er níræð fi*ú Elínborg Guð-
mundsdóttir, Skeggjagötu
10, hér i Rvík. Hún er frá
Loftsölum í Mýrdal. Maður
hennar var Guðjón Júlíusson
bflstjóri. Hann lést árið 1968.
Á afmælisdaginn tekur Elín-
borg á móti gestum í Víkinga-
sal Hótels Loftleiða eftir kl.
20.30.
r7 p ára afinæli. Á morgun,
I O 8. janúar, er sjötíu og
fimm ára frú Auðbjörg Guð-
mundsdóttir. Hún og maður
hennar, Kristinn Sörensen,
taka á móti gestum í dag,
sunnudag, á heimili dóttur
sinnar, Dvergholti 14 í Mos-
fellsbæ, eftir kl. 15.
r7f \ ára afinæli. I dag,
f U sunnudaginn 7. janúar,
er sjötug £rú Áslaug Krist-
insdóttir, Lönguhlíð 3, hér
í Rvík. Eiginmaður hennar
var Bjami Kristjánsson heild-
sali. Hann lést fyrir rúmu
ári. í dag, afmælisdaginn,
tekur hún á móti gestum í
Lönguhlíð 3 milli kl. 16 og 18.
p' ára afinæli. Á morgun,
OU mánudaginn 8. þ.m.,
er fimmtugur Konráð
Bjarnason framkvæmda-
stjóri Félagsprentsmiðj-
unnar og Anilín-prents.
Hann tekur á móti gestum í
félagsheimili FÍP, Háaleitis-
braut 58-60, á afmælisdaginn
frá kl. 17-19.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
DAGURINN í dag heitir Eld-
bjargarmessa. Það er al-
þýðlegt nafn á 7. janúar, deg-
inum eftir þrettánda, segir í
Stjömufræði/Rímfræði. —
Þar segir síðan: Skýring
nafnsins er óviss en hugsan-
legt, að það sé dregið af siðum
eða leikjum, sem hafðir hafa
verið um hönd á hinum fyrsta
virka degi eftir jólahald. —
Mun ekki vera íslenskt að
uppmna, en hingað komið frá
Noregi eða Svíþjóð. Dagurinn
heitir líka Knútsdagur og
segir Stjömufræði/Rímfræði
að hann sé til minningar um
Knút hertoga, sem veginn var
á Sjálandi árið 1131.
ÞEGAR vinnudagurinn hefst
á mánudag hefst 2..viðskipta-
vika hins nýja árs.
SERFRÆÐINGAR. I tilk. í
Lögbirtingablaðinu frá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu segir að þessir
læknar hafi hlotið starfsleyfí
sérfræðinga: Vigfús Magn-
ússon læknir, sem er sér-
fræðingur í geðlækningum,
Gunnar Herbertsson lækn-
ir, sérfræðingur í kvenlækn-
ingum og Björn Guðmunds-
son læknir, sérfræðingur í
heimilislækningum.
REYKJAVÍKURPRÓF-
ASTSDÆMI. Prestar halda
hádegisverðarfund í safnað-
arheimili Bústaðakirkju á
morgun, mánudag.
FATAUTHLUTUN. Næst-
komandi þriðjudag og mið-
vikudag, 9. og 10. janúar,
verður fataúthlutun á vegum
Mæðrastyrksnefiidar hér í
Reykjavík. Fer úthlutunin
fram í kjallara hússins Hring-
brautar 116, sem er homhús,
gengiðer inn frá Vesturvalla-
götu. Úthlutunin stendur yfir
frá kl. 15-18 hvom dag.
Spámaður
Vonandi dregst það ekki of lengi að stjórnin geti tilkynnt þjóðinni að hún sjái „Ljómann
FÉL. harmonikkuunnenda
heldur skemmtifund í Templ-
arahöllinni í dag, sunnudag,
kl. 15.
BÚSTAÐASÓKN.
Bræðrafélag Bústaðakirkju
heldur fyrsta fundinn á árinu
annað kvöld, mánudag, kl.
20.30. Kvenfélag Bústaða-
sóknar efnir til félagsvistar
annað kvöld og verður byijað
að spila kl. 20.30.
FÉL. eldri borgara hefur
opið hús í Goðheimum við
Sigtún í dag, sunnudag, kl.
14. Spilað og teflt. Þá
skemmtir þrefaldur kvartett
með söng kl. 16 og dansað
verður kl. 20.
KROSSGATAN
B
9
33
13
Hl_iz
|Z2 23 24
LÁRÉTT: — 1 rósemd, 5
skjögra, 8 durta, 9 dreng, 11
mjöggott, 14 álíta, 15 hindra,
16 skadda, 17 sefa, 19 Iengd-
areining, 21 beitu, 22 nálægt,
25 hrygla, 26 tunna, 27 lítil-
fjörlegur.
LOÐRETT: - 2 fálm, 3
knæpa, 4 refsar, 5 þrútna af
mjólk, 6 háttur, 7 megna, 9
spil, 10 smábók, 12 þjálfunar,
13 vanrækir, 18 beltum, 20
komast, 21 árið, 23 leyfíst,
24 frumefni.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGATU:
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 skref, 5 kátar, 8 fitan, 9 hrafn, 11 nafar,
14 net, 15 launa, 16 aftri, 17 rór, 19 undu, 21 eðla, 22 iðn-
inni, 25 ann, 26 ára, 27 rót.
LÓÐRÉTT: — 2 ker, 3 eff, 4 Finnar, 5 kantar, 6 ána, 7
ana, 9 holduga, 10 afundin, 12 fátíðir, 13 reiðast, 18 óðir,
20 uð, 21 en, 23 ná, 24 Na.
ARBÆJARSOKN.
Æskulýðsfundur í kvöld,
sunnudag, kl. 20.30.
SELTJARNARNES-
SOKN. í kvöld, sunnudag,
er æskulýðsfundur í kirkjunni
kl. 20.
HVASSALEITI 56-58.
Félagsstarf aldraðra. Á
morgun, mánudag, hefst
starfið með leikfimi kl. 9.
Silkimálun m.m. kl. 10. Fóta-
aðgerðir kl. 13. Opið hús er
frá kl. 13 og kaffítími kl. 15.
ITC-deildin Irpa heldur
fund annað kvöld, mánudag,
í Brautarholti 30. Þar verða
hringborðsumræður. Uppl.
gefa Kristín í s. 74884 og
Guðrún í s. 675781.
SAMTOK um sorg og
sorgarviðbrögð halda
fræðslufund nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30 í safnaðar-
heimilj Laugarneskirkju. Sr.
Ólöf Ólafsdóttir flytur erindi
sem hún nefnir sorg og ekkj-
ur.
JC-klúbbarnir Nes og Breið-
holt halda sameiginlegan
fund á morgun, mánudag, kl.
20.30, á Laugavegi 178.
Gestur fundarins verður
Gunnlaugur Guðmundsson
stjörnuspekingur. Fundurinn
er öllum opinn.
SÝNINGIN á lokaverkefn-
um nýútskrifaðra arkitekta,
sem nú stendur yfír í Ás-
mundarsal við Freyjugötu, er
opin daglega kl. 14-18 fram
til 14. janúar nk.
JC-Reykjavík heldur fé-
lagsfund nk. þriðjudagskvöld,
9. þ.m., kl. 20 á Laugavegi
178. Gestur fundarins verður
Hlynur Árnason væntanleg-
ur landsforseti JC-samtak-
ánna.
ASPRESTAKALL. í
dag, að lokinni messu í kirkj-
unni, sem hefst kl. 14, verður
kaffisala á vegum safnaðarfé-
lagsins í safnaðarheimili
kirkjunnar.
AUSTFIRÐINGAFÉL.
Suðurnesja efnir til þorra-
blóts í Stapa laugardaginn
13. janúar nk. og hefst borð-
haldið kl. 19. Heiðursgestur
félagsins verður sr. Þorleifur
Kristmundsson á Fáskrúðs-
fírði. Nánari uppl. gefur Jó-
hanna Hallgrímsdóttir í
Keflavík, formaður þorra-
blótsnefndarinnar.
ITC-deildin Ýr heldur
fund annað kvöld, mánudag,
í félagsheimili frímerkjasafn-
ara í Síðumúla 17 og hefst
hann kl. 20.30. Nánari uppl.
gefa Kristín í s. 34159 og
Pálína í s. 27896.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í gærkvöld, seint, var Grund-
arfoss væntanlegur að utan
og leggur af stað aftur til
útlanda í kvöld, sunnudag.
Þessir togarar fara til veiða
í dag: Ásgeir og Ottó N.
Þorláksson. Togarinn Eng-
ey er væntanlegur úr söluferð
í dajg. í fyrramálið, mánudag,
er Arfell væntanlegt að utan.
í fyrrakvöld fór leiguskipið
Skandia á ströndina.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í gær hélt togarinn
Venus til veiða.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Það einkennilega ástand
hefiir ríkt hér í bænum
síðan um áramót að hér
hefur enginn maður verið
til að sem haft hefur
dómsvald í opinberum
málum, saka- og lög-
reglumálum. Af þessum
ástæðum hefiir ekki verið
hægt að úrskurða mann
í gæsluvarðhald eða gefa
út úrskurð um húsrann-
sókn og ekki hægt að
halda réttarpróf yfir
grunuðum sakborningi.
— Þannig var t.d. 5 mönn-
um sleppt úr „Steininum"
í gærmorgun sem lög-
reglan setti í varðhald í
fyrrinótt án þess að nokk-
ur réttarpróf væru yfir
þeim haldin, en um var
að ræða lögreglubrot.
Efltir áreiðanlegum heim-
ildum Morgunblaðsins
verða nýir embættismenn
skipaðir í dag, en þá mun
Jónatan Hallvarðsson
verða settur sakadómari,
en hann hefur verið sett-
ur lögreglustjóri. Lög-
reglustjóri verður Agnar
Kofoed-Hansen, flugmað-
ur.
Þessir krakkar tóku sig saman um að efiia til hlutaveltu
til ágóða fyrir Þroskajálp og söfnuðu þau tæplega 2.200
kr. Krakkamir heita: Birkir, Svana, Áslaug, Halldóra
og Tómas.