Morgunblaðið - 07.01.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEDUR StrflfjUDAGUR 7. JANÚAR 1990
9
Hátíðir
og h versdagsleiki
eftir HERRA OLAF
SKÚLASON
Eftir mikla birtu verður myrkr-
ið dimmara. Eftir stóra daga og
merkilega verður hversdagleikinn
oft þrúgandi. Það eru ekki aðeins
þeir, sem nú eru farnir að kvíða
uppgjöri frá krítarkortaeyðslu
síðustu dagana fyrir jól, sem finna
til sérstakrartilfinningar fyrstu
dagana í nýári. Ég heyrði einu
sinni konu segja, að hún væri
ekki nógu ánægð á hátíðum, af
því að hún fengi sig ekki til að
hverfa í hugsuninni alveg frá því,
sem tæki við að þeim loknum.
Ekki lengur bros og uppörvandi
kveðjur, ekki lengur fúsleiki til
þess, að allir leggi sitt af mörkum
til sameiginlegrargleði. Jafnvel
ónot, þar sem fyrr var uppörvun,
hryssingsskapur, þar sem fyrr var
hlýja. Það er von, að barnið spyrði,
hvort ekki væri alltaf hægt að
hafajól.
En í því mun sannleikur, að á
misjöfnu þrífast börnin best og á
við, án þess tekið sé tillit til ald-
urs. Ekki kunna þeir að meta
veðurblíðu, sem ekki þekkja neitt
annað en milda sólargeisla og eiga
víst færri orð um veðurfar en
nokkuð annað. Ekki þýðir að ætla
sér að setja jurt sem gróðurhús
hefur verndað út í hvassviðrið,
hafi aðlögunartími ekki verið
nægur. Og jafnvel þeir, sem eru
hvað mestir hátíðadýrkendur,
kunna vel að meta venjulega daga
með þessum hefðbundnu störfum.
Og nú er runninn upp fyrsti
venjulegi sunnudagurinn eftir há-
tiðir og áramót og kirkjumiðlæga
aðventu. Og við erum beðin um
að fylgja Jesú tólf áratil musteris-
ins. Þau voru grandvör í öllu,
María og Jósef og hlýddu ekki
aðeins boði keisarans í Róm, þeg-
ar hann vildi skrásetja þegna síná,
heldur lutu þau líka hefð trúar
sinnar um rækt við Jerúsalem,
heimsóknir þangað á páskum og
komu í musterið helga. Og nú fær
Jesús að fylgja með. Við þekkjum
söguna af því, hve hann gleymdi
sér hugfanginn við að hlusta og
spyija. Þekkjum líka, að ergelsi
getur gripið hina bestu foreldra
og beindist að Jesú, þegar hann
loksins fannst. Og vart er von,
þrátt fýrir undirbúning fyrir fæð-
ingu og viðburði á Betlehems-
völlum, að þau hafi getað skilið,
hvað hann átti við með því, að
sér bæri að vera í húsi föður síns.
En að hætti athugulla og kær-
leiksríkra mæðra geymdi móðir
hans þetta allt í hjarta sér, þar
sem það hefur fengið að vaxa og
dafna.
Það er vandi foreldra og ann-
arra uppalenda að sigla í milli
umburðarlyndis vegna kærleika
og ákveðni vegna réttra fyrir-
mæla. Börnin eru slíkar gjafir
Guðs, að fæðing þeirra og framtíð
breytir öllu hjáþeim, sem njóta
samvistanna. En þar fyrir er það
ekki minni vandi að sameina kær-
leika og ögun, fyrirmæli og eftir-
læti. Ekki síst þar sem bömin eru
spegill hins fegursta og leiðbein-
ing fram fyrir hinn hæsta. Enda
segir lýðskólamaðurinn og fyrir-
lesarinn Guðmundur Hjaltason, í
nýútkominni bók fyrirlestra og
greina og heitir Uppeldi, á þessa
leið: „Góð börn draga hjörtu vor
að því, sem er allra best og dýrð-
legast. Þau hafa dregið hjarta
mitt nær hinu guðlega en nokkuð
annað. Margt dregur oss að því.
Það gerir nú fyrst og fremst guð-
ræknin sjálf, einkum bænin. En
margt f leira gerir það líka.
Vísindin og fagrar listir gera það
stundum. En elskan gerir það
einna best, einkum elska góðra
barna. Það veit ég af reynslu."
Við emm samt vanari því að
rekja trú barnsins til áhrifa for-
eldra, heldur en að þau kveiki slíkt
í bijótum annarra. En auðvitað
fer þetta saman, þegar við tengj-
um hin máttugu áhrif trúar og
kærleika. Að signa barn sitt sof-
andi og fela það Guði er túlkun
kærleika. Að kenna því bænir og
fögur vers er að þiggja sjálfur af
ríkdómi þess. Að rétta því hendi
sína, er ekki aðeins að gæta þess,
hvar það stígur niður, heldur einn-
ig að huga að eigin ferð.
María fann því gremju sína
gufa upp fyrir brosi sonar síns.
Og hún hefur sótt styrk til þessar-
ar reynslu í musterinu seinna
meir, þegar næddi um hana. Eins
er það ekki síður vandi foreldra
í dag að taka barn sitt áfram í
gleði hátíðanna og beina spomm
þeirra í sömu áttir, þótt hvers-
dagleikinn hafi tekið við. Og má
þó reyndar spyija sig, hvort við
séum nokkurn tímann án hátíðar
og hvort við séum nokkmn tímann
svo umkomulaus, að hvergi bregði
birtu yfir frá hæð, sem lýsir upp
jafnsléttuna. Þannig geta þessir
sunnudagar þrettándans, þótt
engin fylgi sérstök hátíð verið
eðlilegt framhald síðustu vikna
og stuðlað að því, að trúin, sem
kærleikurinn kann að hafa kveikt,
vaxi og dafni þeim sjálfum til
heilla, sem varðveitir og öðmm
til blessunar.
VEÐURHORFUR I DAG, 7. JANUAR
Eljagangur suðvestanlands
YFIRLIT kl. 10:10 í GÆR: Skammt suður af Hornafirði er 970
mb lægð á hreyfingu norður en heldur vaxandi 970 mb lægð við
Hvarf hreyfist norðaustur.
HORFUR á SUNNUDAG: Vestan- og suðvestan átt um sunnanvert
landið, éljagangur SV-lands, en víða léttskýjað á SA-landi. Norðan-
lands verður austlæg átt og slydda eðæsnjókoma á víð og dreif fram
eftir degi, og síða V og SV-átt og léttir heldur til.
HORFUR á MÁNUDAG og ÞRIÐJUDAG: Vaxandi austlæg átt
og hlýnandi veður. Slydda eða rigning um sunnanvert landið og síðar
einnig norðanlands. Aðfaranótt þriðjudags fer lægð norður yfir landið
og á þriðjudag lítur út fyrir nokkuð hvassa V- og SV- átt og kóln-
andi veður, él um vestanvert landið en léttir til austanlands.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6:00 í gær að ísl. tíma
Staður hiti veður Staður hiti veður
Akureyri 0 snjókoma Glasgow 9 rigning
Reykjavík 1 þokaígr. Hamborg 2 alskýjað
Bergen 6 súld London 9 rigning
Helsinki -2 frostúði Los Angeles 13 heiðskírt
Kaupmannah. 2 þokumóða Lúxemborg 0 þoka
Narssarssuaq 1 alskýjað Madrid 2 þoka
Nuuk -4 alskýjað Malaga 12 súld
Osló -2 þokumóða Mallorca 2 léttskýjað
Stokkhólmur -2 léttskýjað Montreal -4 snjókoma
Þórshöfn 8 hálfskýjað NewYork 2 alskýjað
Algarve 10 heiðskírt Orlando 19 skýjað
Amsterdam 4 þokumóða París 5 þokumóða
Barcelona 7 heiðskírt Róm 2 þokumóða
Chicago 0 léttskýjað Vín -7 þokumóða
Feneyjar -2 þokumóða Washington 6 alskýjað
/ / / Norðan, 4 vindstig:
G Heiðskírt / / / / / / / Rigning V Skúrir f Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaörirnar
4 LéttskýjaS * / * Slydda * Slydduél I vindstyrk, heil fjöður er tvö vindstig.
■Qk / / * V
Hálfskýjað / * / 10 Hitastig:
Skýjað * * * * * * * * * * Snjókoma * V Él 10 gráður á Celsíus Þoka
Alskýjað 5 5 • Súld oo Mistur z= Þokumóða
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík dagana 5. janúar til 11. janúar, að báöum dög-
um meötöldum, er í Holts Apóteki. Auk þess er Lauga-
vegs Apótek opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema
sunnudag.
Læknastofur eru lokaðar laugardaga og helgidaga.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúöir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
Tannlæknafél. Símsvari 18888 gefur upplýsingar.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími fram-
vegis á miðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknir eða hjúkr-
unarfræöingur munu svara. Uppl. í ráðgjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessum símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráðgjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miðviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miðvikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur við númeriö. Upplýsinga- og ráðgjafasími Sam-
taka '78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11..
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó-
tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga —
• fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opið virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofa
Ármúla 5. Opin miðvikudaga og föstudaga 13.00-17.00.
s. 82833.
Samb. fsl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiðsluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. í
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miövikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21260.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Sföu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafn-
arstr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál aö stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsíns til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Betlands og meginlands Evr-
ópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 15767, 15790, 13855
og 11418 kHz. kl. 18.55-19.30 á 15767, 13855, 11418,
9268, 7870 og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum er bent á 15790, 11418
og 7870 kHz og á 15767 kHz kl. 14.10, 13855 kHz kl.
19.35 og 9268 kHz kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 13855,
13830, 15767,og kHz.
Kl. 19.35-20.10 á 15767, 15780 og 13855 kHz.
23.00-23.35 á 13855, 11418 og 9268 kHz.
Hlustendur geta einnig oft nýtt sé sendingar kl. 12.15
og kl. 18.55 og hlustendum í mið- og vesturrikjum Banda-
ríkjanna og Kanada er bent á 15780, 13830 og 11418
kHz.
Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspftalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. kvennadeildin. kl. 19.30-20. Sængurkvennadeíld.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður
kl. 19.30-20.30. Barnaspftali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspftalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Landakotsspít-
ali: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19. Barna-
deild : Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16-17.
— Borgarsprtalinn f Fossvogí: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardög-
um og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga
kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúk-
runarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensás-
deild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. — Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. — Kleppsspftali: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flóka-
deild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. — Kópavogshælið:
Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. — Vífilsstað-
aspítali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl.
19.30-20. — St. Jósefsspítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30. Sunnuhlfð hjúkrunarheimili í Kópavogi:
Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkra-
hús Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslustöðvar:
Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suöurnesja. S. 14000. Keflavfk - sjúkrahúsið: Heimsókn-
artími virka daga kl. 18.30—19.30. Um helgar og á hátíð-
um: Kl. 15.00—16.00 og 19.00-19.30. Akureyri — sjúkra-
húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og
19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00-
8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðal lestrarsalur opinn mánud.
— föstudags kl. 9-19. Laugardaga kl. 9—12. Útlánssalur
(vegna heimlána) mánud. — föstudags 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar í aðalsafni, s. 694326.
Árnagarður: handritasýning StofnunarÁrna Magnússon-
ar, þriðjud., fimmtud.- og laugardögum kl. 14-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Þjóðminjasafnið: Opiö þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi s. 671280.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafn Akureyrar: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122 og 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind
söfn eru opin sem hór segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21,
föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn — Lestrarsal-
ur, s. 27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Hof-
svallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud. —
föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir
víðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn
þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi
fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. —
Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuveg, opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
Safn Ásgríms Jónssonar: Opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13.30-16.00.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opiö alla daga kl. 10-16. r
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30—16. Höggmyndagarðurinn er opinn dag-
lega kl. 11—17.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11—18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14—17 og á þriðjudagskvöldum
kl. 20-22.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-18. Aðra eftir samkomulagi. Heimasími safnvarðar
52656.
Sjóminjasafn íslands: Laugardaga og sunnudaga kl.
14-18. Sími 52502.
ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000.
Akureyri s. 96-21840. Siglufjörður 96-71777.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokað í laug kl. 13.30-16.10. Opið í böð
og potta. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00- 15.00.
Laugardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30.
Vesturbæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Breiðholtslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laug-
ard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundhöil Keflavíkur er opin mánudaga — fimmtudaga.
7-9, 12-21. Föstudaga kl. 7-9 og 12-19. Laugardaga 8-10
og 13-18. Sunnudaga 9-12. Kvennatímar þriðjudaga og
fimmtudaga 19.30-21.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-12. Kvennatímar eru þriðjudaga og miövikudaga kl.
20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánud. — föstud. kl.
7-21. Laugard. frá kl. 8-16 og sunnud. frá kl. 9-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.