Morgunblaðið - 07.01.1990, Side 10

Morgunblaðið - 07.01.1990, Side 10
r r 10 MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990 BÖRN Í KLÓM FULLORDINNA eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur/mynd: Ragnar Axelsson „HVER, SEM verður þess vís að foreldrar, forráðamenn, kennari, meistari eða aðrir þeir, sem forsjá barns eða ungmennis er falin leiða það á siðferðislega glapstigu, misbjóða því eða vanrækja á annan hátt uppeldi þess svo mjög að Hkamlegri eða andlegri heilsu þess eða þroska sé hætta búin, skal skyldur til að tilkynna það barnavemdanefnd þar sem barnið er. Vanræksla I þessu e&ii varðar sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að Iveimur árum. Annars er hverjum manni rétt að gera barnavemdarnefhd viðvart um hvert það tilvik, sem telja má að barnaverndarnefhd eigi að láta sig skipta.“ Þetta lagaákvæði er að finna í 48. grein barnaverndarlaganna og í 18. grein sömu laga er sérstaklega kveðið á um skyldur opinberra starfsmanna í þessum e&ium. „Ef opinber starfsmaður verður í starfi sínu var við misfellur á uppeldi og aðbúð barna eða ungmenna er honum skylt að gera barnaverndarnefhd viðvart. Sérstaklega er kennurum, prestum, læknum, ljósmæðram, hjúkrunarkonum, sálfræðingum, félagsráðgjöfúm og þeim, sem fara með framfærslumál skylt að fylgjast efltir fongum með hegðun og uppeldi barna og ungmenna og hafa náið samstarf við barnaverndarráð." I þessari grein verður fjallað almennt um ástand þessara mála hérlendis en á sunnudaginn kemur birtast einstök dæmi um ofbeldi gegn börnum á Islandi og rætt verður við fórnarlömb þess og félagsráðgjafa sem unnið hefúr með slík mál. Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar Starfsmenn fjölskyldudeildar Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur eru í senn starfsmenn barnaverndar- nefndar og félagsmálaráðs. Gunnar Sandholt, yfirmaður fjölskyldu- deildar, segir að við úrvinnslu mála verði starfsmenn stofnunarinnar vissulega varir við að börn séu beitt harðræði og ofbeldi. í slíkum málum' er rætt við barnið, foreldra og þá sem þekkja barnið svo sem kennara og fóstrur. í ljósi niðurstaðna úr viðtölum er lögð upp áætlun um úrbætur. „Við verðum lítið vör við beinar grófar líkamlegar misþyrm- ingar á börnum. Slíkar misþyrming- ar eru vissulega til, en þeim er afar sjaldan vísað til stofnunarinnar frá þeim aðilum, sem teljast vera sér- fræðingar í greiningu á þvílíkum Á HVERJU ÁRIER TILKYNNT UM FLEIRI TU6IUFBELUISVERKA FULLORUINNA GEGN BÖRNUM Á ÍSLANDI. EN HVERSU ALGENGT ER SLÍKT OFBELDI í RAUN? tilvikum, svo sem læknar á slysa- varðsstofu-. Langflest af þessum meiriháttar barnaverndarmálum tengjast öðrum alvarlegum vanda- málum í fjölskyldunni svo sem geð- veilu, óreglu, eða van- og treggefni foreldra. Auk þessara þátta eru aðstæður fjölskyldnanna oft mjög slakar félagslega. Ég hef engar forsendur til að fullyrða um hvort ofbeldi á börnum hafi aukist að undanförnu. Það hefði allt eins get- að dregið úr ofbeldi á börnum inni á heimilum. Hér áður fyrr þótti allt í lagi að beita börn hörðu og beija þau til hlýðni. Núna er sú aðferð ekki talin eðlileg uppeldisaðferð," segir Gunnar. Bakvaktir eru nú fastur liður í þjónustu fjölskyldudeildar Félags- málastofnunar. Allar helgar er unnt að ná símleiðis í starfsmann fjöl- skyldudeildar sem tekur ákvörðun í samráði við tilvísunaraðila um hvernig máli skal sinnt. Oft þarf að koma börnum fyrir utan heimil- is, þegar þau eru beitt harðræði eða grunur leikur þar á. Einnig ef þau eru í reiðileysi og ekki næst til for- eldra eða þeir hafna samvinnu. A ■ árinu 1988 sinntu bakvaktir stofn- unarinnar 47 erindum viðvíkjandi illri meðferð á bömum sem snertu 63 börn. Af þeim voru 22 böm 4 ára og yngri, 15 börn voru 5-12 ára, 13 börn vom eldri en 12 ára. Óvíst er um aldur tveggja barna. Lögreglan í Reykjavík var sá aðili, sem oftast vísaði málum til bak- vaktar árið 1988, alls tíu málum og flestum þeim alvarlegustu. Rannsóknarlögreglan var tilvísuna- raðili í 9 málum og jafnoft aðilar sjálfir, það er foreldrar eða stálpuð börn. Þá hefur tilvísunum til fjöl- skyldudeildar vegna kynferðislegs ofbeldis gegn bömum fjölgað á undanförnum ámm. Alls bárust 19 meint kynferðisafbrotamál til fjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnunar á árinu 1988 þar sem gmnur lék á að 21 bam væri beitt kynferðislegu ofbeldi innan fjölskyldu sinnar. Meðalaldur barnanna, sem um ræddi, var 6,7 ár. Þau voru allt frá því að vera ársgömul upp í 15 ára. Alls vom 35 börn í umræddum fjöl- skyldum. Gunnar segir að tölur fyr- ir árið 1989 lægju ekki fýrir. Hins- vegar virtist ástandið vera svipað nú og árið áður, ef til vill væri held- ur aukning á málum, sem vörðuðu illa meðferð á bömum. Gunnar seg- ir að Félagsmálastofnun hefði áþreifanlega orðið vör við aukna spennu i fjölskyldum - spennu, sem tengdist atvinnuleysi og stóraukn- um fjárhagserfiðleikum. Rúmlega 20% fleiri fengu fjárhagsaðstoð frá Félagsmálastofnun árið 1989 miðað við 1988. Árið 1988 var 317 málum sérstaklega vísað til fjölskyldudeild- ar, oftast af foreldmm eða ættingj- um, eða í 74 tilvikum. í langf lestum tilvikum, alls 120 sinnum, er tilví- sunarástæðan skilgreind sem léleg- ar heimilisaðstæður og skólavandi. Þar á eftir fýlgja barnaverndarkær- ur, þó ekki sé uppgefið hvers vegna kært er, en það em í öllum tilvikum mjög alvarleg mál. Barnaverndarnefnd Alvarlegustu barnaverndarmálin koma til kasta barnaverndarnefnd- ar. Nefndin fjallaði um mál 109 barna úr 61 fjölskyldu árið 1988. Frá árinu 1981 hefur málum, sem komið hafa til kasta barnaverndar- nefndar, fjölgað um rúmlega 80%, en ekki er mögulegt að meta hvers vegna fjölgunin á sér stað, að sögn MQRGUNRLAÐH? SUNNUDAGUR,?. JANÚAR 1990 Gunnars. Hún gæti verið komin til vegna^ vaxandi ofbeldis á börnum eða aukinni umræðu, sem ýtt hefði fleiri málum til stofnunarinnar. Árið 1981 fjallaði barnaverndar- nefnd um mál 42 barna úr 34 fjöl- skyldum. Árið 1983 var um að ræða 56 böm úr 39 fjölskyldum. Árið 1985 73 börn úr 46 fjölskyld- um og árið 1987 112 börn úr 66 fjölskyldum. Nefnin þarf m.a. að taka ákvarðanir um dvalarstað barna, eftirlit með heimilum þeirra, að þau skuli vera í umsjá nefndar- innar um tíma og úrskurði um svipt- ingu foreldravalds. Árið 1988 voru ný mál 15 af 61, en 46 mál höfðu komið til kasta barnaverndarnefnd- ar fyrr. Kveðnir voru upp 4 úrskurð- ir um sviptingu foreldravalds sem tóku til 9 barna af heimilum sínum. Nefndin ákvað að 26 börn úr 15 fjölskyldum yrðu áfram á vistheim- ilum barna, eða í annarri vistun á vegum nefnarinnar. í 10 tilvikum fól nefndin starfsmönnum að leita eftir samþykki foreldra fyrir fóstri 11 bama. I tveimur tilvikum bann- aði nefndin umgengni föður við börn nema undir eftirliti. Nefndin skipaði eftirlit með 29 heimilum vegna 50 barna, en hætti eftirliti með 6 heimilum vegna 12 barna, þar sem aðstæður höfðu batnað. Rannsóknarlöareglan Á tíu ára tímabili, frá 1978 til 1988, var kært til Rannsóknarlög- reglu ríkisins vegna 33 barna. Þar af voru 30 mál vegna sifjaspella. í 57% tilvika var það móðir, sem kærði. í 37% tilvika var um að ræða opinbera aðila og í 6% tilvika kærði barnið sjálft. Frá 1982 til 1988 voru kærur flestar og í öllum tilvikum voru karlmenn gerendur, feður í 75% tilvika. Lengst stóðu sifjaspellin í 20 ár. Meðal afgreiðsl- utími mála hjá RLR voru 120 dag- ar. Af þeim 33 kærum, sem bárust til RLR, voru 22 sendar saksókn- ara, sem síðan gaf út 11 ákærur. Meðal afgreiðslutími þeirra nam 138 dögum. Lengd dóma var tveggja og hálfs árs fangelsisvist. Að sögn Helga Daníelssonar, rann- sóknarlögreglumanns, eru mál vegna líkamlegs og andlegs barna- ofbeldis fátíð hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Lugieglan Útköll á heimili eru tíð hjá lög- reglunni vegna ölvunar, slagsmála og jafnvel vegna barna, sem eru skilin ein eftir í hirðuleysi. Útköll lögreglu vegna beinna misþyrminga á börnum er fátíð heldur tengjast afskiptum lögreglu af málefnum fullorðna fólksins. Börnin koma inn í myndina þar sem þau eru til stað- ar og eru slík mál send viðkomandi stofnunum, að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlög- reglumanns í forvarnardeild. Hann sagði að æskilegt væri ákveðið sam- starfsskipulag félagsmálayfirvalda og lögreglu og hefði lögreglan reyndar farið þess á leit við Félags- málastofnun að félagsráðgjafi yrði til staðar á lögreglustöðinni. Þannig væri hægt að koma málefnum barna og ungmenna strax í hendur réttra aðila. „Slíku skipulagi var komið á í Noregi árið 1982 og hef- ur það skilað sér í ’mun jákvæðari samskiptum aðilanna og mun virk- ari úrlausnum þeirra, sem lenda hjá lögreglunni. Það er ríkjandi ákveðið sambandsleysi á milli lögreglu og félagsmálayfirvalda og þó að margt gott sé gert hjá Félagsmálastofnun, er hægt að gera betur með skilvirk- ara samstarfi aðila á milli. Það yrði til dæmis hægt að taka á málum á frumstigi," segir Ómar Smári. „Við getum aldrei útilokað of- beldi því talið er að samfélagið fái það ofbeldi sem það á skilið. Sam- félagið er aldrei betra en það birt- ist okkur, en spurningin er hvernig við getum haft áhrif á samfélagið til hins betra, hversu mikil áhrif það getur haft á ofbeldisþáttinn. Eftir því sem viðlagakerf ið er skilvirkara, þeim mun meiri von um varnað til hinna sem hugsanlega kynnu að bijóta af sér. Eldur þarf til dæmis hita, súrefni og eldsneyti til að geta logað. En ef við tökum einn þess- arra þátta í burtu, logar enginn eldur. Afbrot þurfa löngun, tæki- færi og möguleika. Ef við vinnum að einhveijum þessara þátta, minnkum við um leið líkurnar á afbrotinu," segir Ómar Smári. Athvarf Rauða krnssins Unglingaathvarf Rauða krossins við Tjarnargötu hefur verið starf- rækt í fjögur ár og er það eina sinnar tegundar hérlendis. Þar er opið hús og opinn neyðarsími allan sólarhringinn. Á fjórum árum hafa 450 krakkar gist í athvarfinu í lengri eða skemmri tíma, þar af koma 18% vegna líkamlegs, andlegs eða kynferðislegs ofbeldis. Áuk þess hafa 13% krakkanna komið vegna vanrækslu foreldranna. Þau eru afskipt, félagslega vanrækt ogjafn- vel vannærð, segir Hans Henttinen, forstöðumaður athvarfsins. „Á þremur árum hafa alls 2.500 krakk- ar hringt í neyðarsímann, allt niður í fimm ára aldur. Þar af hringdu 1.500 krakkar á árinu 1989, en 500 krakkar hvort árið þar á undan. Að meðaltali hringja nú 120 ungl- ingar í neyðarsímann á mánuði. Sú tala jókst upp í 200 síðustu þijá mánuði síðasta árs. 10% hringja vegna ofbeldis á heimilum. Vanda- málin hjá þessum krökkum eru jafn misjöfn eins og krakkarnir eru margir. Það eru samt ýmsir þættir, sem við sjáum oftar en aðra. Þar ber fyrst að taka áfengisneyslu og neyslu á vímuefnum á heimilinu, annaðhvort hjá krökkunum sjálfum eða foreldrum. Sundrung í fjöl- skyldum er mjög algeng og önnur röskun á heimilislífi. Aðeins fjórð- ungur þeirra krakka, sem hingað kemur, hefur alist upp hjá báðum foreldrum sínum. Algengasta heim- ilisofbeldið, sem við höfum ein- hveija vitneskju um, er líkamlegs og andlegs eðlis. Aðeins 5% þeirra krakka, sem hingað koma, hafa verið hér vegna kynferðisiegrar misnotkunar heima fyrir,“ segir Hans. Viðmælendum bar saman um að félagsleg aðstoð væri af mjög skornum skammti úti á landi, en töluvert margir aðilar sinntu slíkum málum á höfuðborgarsvæðinu. Hans segir að 70% þeirra, sem hefðu samband símleiðis við ungl- ingaathvarf Rauða Krossins, væru utan af landi, 20% úr Reykjavík og 10% úr nágrannabyggðum Reykjavíkur. Siljaspellshópurinn „Kannanir, sem gerðar hafa ver- ið á Norðurlöndunum, hafa sýnt að tíunda hvert barn verður fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi. Engar sambæri- legar kannanir liggja fyrir hér á landi, en við höfum enga ástæðu til að ætla að hlutfallið sé minna hér á landi,“ segir Sara Karlsdóttir, sem starfar á skrifstofu vinnuhóps gegn sifjaspellum að Vesturgötu 3. „Hingað leitar fjöldi kvenna. Á tæpum þremur árum hafa hátt á annað hundrað konur leitað til okk- ur, sem allar höfðu orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi í æsku, auk þriggja karlmanna sem misnotaðir höfðu verið af sér eldri karlmönn- um. Þeir einstaklingar, sem misnot- aðir hafa verið kynferðislega, hafa allir fallið inn í ákveðið mynstur. Konumar eru til dæmis langflestar haldnar sjálfseyðingarhvöt. Margar hafa reynt það og sumum hefur tekist það. Margar lýsa langvarandi baráttu við þunglyndi, sektarkennd, sjálfsásökun, hræðslu, öryggisleysi, skorti á einbeitingu og vantrausti á sjálfar sig og gagnvart öðrum. Kynlíf þessarra kvenna er oftast í molum. Margar eiga fleiri en eitt hjónaband að baki og algengt er að þær leiðist út í áfengi eða fíkni- efni,“ segir Sara. „Við höfum töluvert rætt um þær manngerðir, sem gera börnum sínum þetta, en þær virðast ekkert líkar innbyrðis. Það virðist eins og ekkert eitt atriði tengi þessa menn saman. Þó má segja að í mörgum tilvikum sé um að ræða menn sem eru einskonar harðstjórar á sínum heimilum. Þetta eru menn í öllum þjóðfélagsstéttum, menntaðir menn og ómenntaðir, prestar, læknar, lö- græðingar og stjórnmálamenn svo dæmi séu tekin. Þeir feður, sem ekki kunna glögg skil á föðurlegri ■ blíðu og kynlöngun og áreiti ættu að láta athuga sig. Slík vandamál hijá ekki konur og eru þær þó að minnsta kosti 97% af þolendunum. Auðvitað er hægt að kæra, en refs- ingin er væg. Þeir eru dæmdir til þetta tveggja og hálfs árs fangelsis- vistar og fá síðan frelsi eftir fjórtán mánuði vegna góðrar hegðunar. Fólk treystir sér oft á tíðum ekki til að kæra. Slík mál eru strax kom- in í blöðin og börnin vera fyrir aðk- asti í skólum. Börnin þurfa jafnvel að koma í vitnastúku til að lýsa atburðum í áheyrn gerandans auk þess sem mikill seinagangur tíðkast í dómskerfinu. Ég verð að álíta að það sé leyfilegt á íslandi að skaða börn á sáj og líkama. Þó get ég ekki ímyndað mér að fangavist ein og sér bæti nokkurn mann. Það mætti veija fjármunum í að rann- saka þessa menn. Það hefur ekki verið rannsakað hvað það kostar þjóðfélagið að leiða fórnarlömbin gegnum lífið frá byijun sifjaspell- anna og þar til þau deyja södd lífdaga. Barn, sem verður fyrir kyn- ferðisofbeldi, byijar feril sinn mjög líklega hjá skólasálfræðingi. Næstir koma aukatímarnir í skólanum, jafnvel sérkennsla. Seinna falla þau út úr skóla. Sum eru vistuð á með- ferðarstofnunum fyrir unglinga. Þá fara þau í áfengis- og fíkniefnameð- ferð, lenda hjá sálar- og geðlæknum en segja mörg aldrei frá þeirri reynslu, sem veldur ógæfu þeirra," segir Sara. Næsta sunnudag: Fórnarlömbin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.