Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 20
J®l0íriöw#ltofoíi>
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
M^^mmmm^^^^mm^mmmmmmi^mmmmmmm^^^^^mmmmmmmmm^^^^^mmmmmm^mmmmmm^mmmmmmm^mmmmmmm^mmi^^mi
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Starf laust í Frakk-
landi
í blaðinu í dag er auglýsing frá innflutningsfyrirtæki í
Frakkiandi sem leitar að frönskumælandi Islendingi til
starfa. Tekið er fram, að hann þurfi helst að hafa ein-
hverja reynslu af fiskviðskiptum með frystan fisk.
Vilt þú starfe, með
öldruðum?
Reykjavíkurborg auglýsir eftir starfsfólki í þvottahús við
þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27, og lausa aðstöðu
fyrir sjúkraþjálfá í t'englsum við þjónustuíbúðrnar. Félags-
málastjóri Kópavogs óskar eftir starfsmanni í hárgreiðslu
í 50% starf. Félagsmálastofnun Reykjavíkur auglýsir eft-
ir sjúkraþjálfa til starfa við Droplaugarstaði. í auglýsing-
unni segir að vinnuaðstaða sé góð, umhverfið skemmti-
legt, starfsandinn sé góður og samkomulag sé um vinnut-
ilhögun.
Styrkir til starfsemi
atvinnuleikhópa
í könnuninni kemur fram, að um fjórðungur svarenda hefur menntun á heilbrigð-
issviði. Af þeim hafa tæp 25% kvennanna læknismenntun á móti 94% karlanna.
í auglýsingu frá menntamálaráðuneytinu í dag segir að
í fjárlögum fyrir árið 1990 sé gert ráð fyrior sérstakri
fjárveitingu, sem sé ætluð til styrktar leiklistarstarfsemi
atvinnuleikhópa, sem hafi ekki sérgreinda fjárveitingu í
fjárlögum. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu fyrir 25. janúar, en umsóknareyðublöð fástí ráðu-
neytinu.
RAÐA UGL ÝSINGAR
Jafinréttiskönnun BHM;
Launamunur karla og
kvenna mestur hjá ríki
Háskólamenntaðar konur eru ofitar einhleyp-
Mennt er máttur
Nú er kominn tíminn til að innrita sig í námskeið og
skóla fyrir næstu vorönn. Menntaskólinn við Hamrahlíð,
öldungadeild og dagdeild, auglýsir afhendingu einkunna,
innritun nýnema og val eldri nema. Stýrimannaskólinn í
Reykjavík auglýsir innritun á vornámskeið í 30 rúmlesta
réttindanám. Kennsla hefst 15. janúar. Nemendur Iðn-
skólans í Reykjavík eru beðnir að sækja stundaskrá og
bókalista á morgun, 8. janúar kl. 11-13. Kennsla hefst
9. janúar.
Ymis námskeið
Ásta Ólafsdóttir auglýsir bamajazz frá 2ja ára aldri, jazz:
ballett og almenna þjálfun fyrir konur á öllum aldri. í
Gítarskólanum er innritun hafin og Björg ísaksdóttir
sníðameistari auglýsir saumanámskeið og tekur fram að
nú sé tími til að sauma fyrir árshátíðirnar. Tónskóli
Eddu Borg getur bætt við nemendum í nokkra byijenda-
hópa. Innritun er í dag og á morgun. Að síðustu er aug-
lýst enskunám í Englandi. Námskeiðin byija í janúar og
eru frá 2 vikum upp í 1 ár.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Nýársfagnaður
Hjálpræðisherinn auglýsir nýársfagnað sunnudagaskól-
ans í dag kl. 14. Fjölbreytt dagskrá og veitingar. Öll
börn eru velkomin.
Þorrablót
Félag austfirskra kvenna heldur þorrablót miðvikudaginn
17. janúar kl. 20 í Templarahöllinni við Eiríksgötu.
ar en karlar í öllum aldurshópum
ÁTTA ef hveijum tíu háskólamenntuðum
konum eru 45 ára eða yngri á móti sex af
hverjum tíu háskólamenntuðum körlum. Um
70% háskólamenntaðra kvenna hafa lægstu
prófgráðu eða eins árs viðbótarnám þar á
ofan, meðan rúm 57% karla hafa MA/MSc-
gráðu eða meira. Þessar niðurstöður eru
meðal þeirra upplýsinga sem koma fram í
skýrslu Jafnréttisnefndar Bandalags háskóla-
manna, sem er nýlega komin út, en Þorgerð-
ur Einarsdóttir félagsfræðingur var fengin
til að gera könnun á stöðu jafnréttismála inn-
an bandalagsins. I skýrslunni kemur einnig
í ljós að greinilegur munur er á hjúskapar-
stöðu og barnafjölda háskólamenntaðra karla
og kvenna. I nágrannalöndunum okkar hefur
þessi tilhneiging verið túlkuð sem vísbending
um að háskólamenntaðar konur eigi erfítt
með að samræma fjölskyldulíf og krefjandi
starfsframa.
Þorgerður var spurð að því, hvað
hefði komið henni mest á óvart
í sambandi við könnunina. „í heild-
ina kom mér kannski mest á óvart
að við fyndum sama mynstur svona
skýrt á íslandi og á hinum Norður-
löndunum, t.d. að háskólamenntað-
ar konur eru ógiftar í meira mæli
en karlkyns jafnaldrar þeirra og að
þær eiga færri böm. 89% karla eru
giftir eða í sambúð á móti tæpum
73% kvenna og kemur í ljós að
konur eru oftar einhleypar en karl-
ar í öllum aldurshópum. Munur
kynjanna er mestur í aldurshópnum
21-30 ára þar sem um 35% kvenna
en rúm 14% karla eru ógift. Karlar
í þessari könnun eiga að meðaltali
2,4 börn, en konur eiga að meðal-
tali 1,7 börn. Einnig kom mér á
óvart, að konur gera meiri mála-
miðlanir milli atvinnu- og fjöl-
skyldulífs en karlar.Ég hélt að það
væri meira jafnræði. Launamis-
muninn vissi maður meira um.“
Laun kvenna 71-77% af
launum karla
Konur hafa í öllum tilfellum lægri
laun en karlar og gildir það bæði
um föst laun og heildarlaun og
hvort sem skoðaðir eru allir virkir
í atvinnulífmu eða eingöngu full-
vinnandi. Lægst eru laun hjá ríki
og sveitarfélögum, bæði föst laun
og heildarlaun. Þar næst koma fé-
lagasamtök og sjálfseignarstofnan-
ir og langhæst eru laun þeirra sem
vinna hjá einkafyrirtækjum. Er bilið
milli karla og kvenna mismikið. Ef
miðað er við föst dagvinnulaun allra
virka daga, þ.e. bæði full- og hluta-
vinnandi er launamunur mestur hjá
ríki en minnstur hjá einkafyrirtækj-
um. Séu laun kvenna reiknuð sem
hlutfall af launum karla eru föst
laun þeirra frá 71% og upp í 77%
af föstum launum karla.
Alls tóku um 700 manns þátt í
könnuninni og var skiptingin jöfn
milli kynjanna, en einungis bárust
tæp 53% svara og segir í skýrsl-
unni, að ljóst sé að heimntur sem
þessar takmarki ályktunarhæfni
niðurstaðanna. Þrátt fyrir þetta sé
hægt að skoða hin stóru samhengi,
gera innbyrðis samanburð og skoða
hvernig einstakir þættir tengist.
Eyrarbakki:
Atvinnu-
leysis far-
ið að gæta
Eyrarbakka.
UNDANFARIN ár hefur ekki ver-
ið atvinnuleysi hér, svo nokkru
nemi, en í haust hefnr hins vegar
verið atvinnuleysi. I lok september
voru 33 á atvinnuleysisskrá, 29
konur og 4 karlar. I októberlok
voru 22 á skrá, 17 konur og 5
karlar, og 30. nóvember voru 25
atvinnulausir, 22 konur og 3 karl-
ar. í árslok var 41 á skrá, 33 kon-
ur og 8 karlar.
Bátar Bakkafisks hafa aflað
þokkalega. Um 25 manns hafa
unnið í frystihúsinu í haust. Bátur
Fiskivers hefur verið á línu og hefur
fastafólk þar haft nóg að gera. Þá
hefur lítiil bátur, Máni, einnig róið
með línu.
Nú er unnið að uppsetningu flat-
fiskvinnslukerfis í frystihúsi Bakka-
fisks. Ekki er gert ráð fyrir að
vinnsla hefjist þar að ráði fyrr en
um næstu mánaðamót.
Hjá Alpan hf. hefur verið mikið
að gera í allt haust og starfsmenn
verið sem næst 50, en þar er að hluta
til unnið á vöktum og verksmiðjan
er í gangi allan sólarhringinn.
- Oskar
Sauðárkrókur:
Minna at-
vinnuleysi
en á sama
tímaífyrra
Sauðárkróki.
ATVINNULEYSISDAGAR á
Sauðákróki urðu 1128 í desem-
ber og skráðir atvinnulausir í
mánaðarlok voru 61. Að sögn
Matthíasar Viktorssonar fé-
lagsmálastjóra munaði mestu í
desember um það, að atvinna
var alveg til jóla í frystihúsun-
um og lausráðið fiskvinnslufólk
kom aðeins á skrá yíír jólin.
Hins vegar hefur nokkuð bæst
við í hóp atvinnulausra þar
sem verulegar skipulagsbreyting-
ar hafa verið gerðar hjá stórum
fyrirtækjum og stofnunum, s.s.
Sjúkrahúsi Skagfirðinga, kaup-
félaginu og Pósti og síma. Hins
vegar gerði Matthías sér vonir
um að eitthvað af því fólki, sem
atvinnulaust var um áramót,
fengi vinnu á sjúkrahúsinu, m.a.
vegna vetrarafleysinga og einnig
að fiskvinnslan tæki aftur við því
fólki, sem lausráðið er.
Atvinnuleysisdagar á árinu
1989 urðu alls 10.593 og er það
allveruleg aukning frá árinu áður
og munaði mestu um að á þrem-
ur fyrstu mánuðum ársins urðu
þessir dagar rúmlega 4.200.
BB