Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990
23
ATVIN N tMAUGL YSINGAR
Vélstjóri
1. vélstjóra vantar á Jökul SH-15 frá Ólafs-
vík, sem er að fara á línuveiðar. Báturinn er
74 lesta stálskip með nýrri vél.
Upplýsingar í símum 93-61146 og 93-61157.
ÖRVI
StarfsþjálfunarstaiSur
Kársneshraut 110, 200 Kópavogi,
Starfsleiðbeinandi
Starfsleiðbeinandi óskast til starfa á Örva,
sem er vinnustaður fyrir fatlaða. Um er að
ræða hálft starf og vinnutíma frá 12 til 16.
Starfið felst í verkstjórn í vinnusal. Starfsleið-
beinandi annast leiðbeiningastarf við starfs-
menn með það að markmiði að stuðla að
auknu sjálfstæði þeirra og færni í vinnu.
í Örva er rekin plastiðja, prónastofa, pökkun-
arþjónusta o.fl. og hafa starfsleiðbeinendur
daglega umsjón með framleiðslu og af-
greiðslu við viðskiptavini.
Umsóknum skal skila til Örva, Kársnesbraut
110, 200 Kópavogi, fyrir 16. janúar n.k.
Upplýsingar eru veittar í síma 43277.
fyt
KVENNA
AIHVARF
Starf með konum
Á næstunni mun Kvennaathvarfið ráða tvo
starfsmenn til tveggja ára. Um er að ræða
fjölbreytt og krefjandi starf með miklum
mannlegum samskiptum. Unnið er á vöktum.
Við leitum að ábyrgri starfsmanni, sem á
gott með að starfa með öðrum. Viðkomandi
þarf að vera eldri en 25 ára.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu, skal senda til
skrifstofu Samtaka um kvennaathvarf, Vest-
urgötu 3, pósthólf 1486, 121 Reykjavík, fyrir
16. janúar.
LANDSPÍTALINN
Sérfræðingur
Við svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítal-
ans er laus til umsóknar 100% afleysinga-
staða sérfræðings. Umsækjandi þarf að hafa
reynslu af svæfingum og gjörgæslu við opn-
ar hjartaaðgerðir. Umsóknarfrestur er til 10.
febrúar 1990.
Nánari upplýsingar gefur Þórarinn Ólafsson,
yfirlæknir, sími 601375. Umsóknir sendist
stjórnarnefnd Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31,
Reykjavík.
Aðstoðarlæknir
Reyndur aðstoðarlæknir óskast á handlækn-
ingadeild. Um er að ræða námsstöðu, sem
losnar 15. febrúar 1990. Umsóknarfrestur
er til 7. febrúar nk.
Umsóknir á umsóknareyðublaði lækna,
ásamt prófskírteini, upplýsingum um starfs-
feril og meðmælum, sendist yfirlækni.
Upplýsingar gefur Páll Gíslason, yfirlæknir,
í síma 601336.
Reykjavík, 7.janúar 1990.
Borgarnes
Óskum eftir að ráða starfsmann til að vinna
við pizzubakstur. Um er að ræða vaktavinnu,
þ.e. vinnutíma seinni hluta dags og á kvöldin.
Nánari upplýsingar gefur Jón Jóhannesson,
bakari, í síma 93-71200.
Brauðgerð K.B.,
Borgarnesi.
'J§É§ RÍKISSPÍTALAR
Fóstra og
starfsmaður
óskast nú þegar til starfa við Skóladag-
heimilið Litluhlíð, Eiríksgötu 34. Um er ræða
fullt starf í dagvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Þorvalds-
dóttir, forstöðumaður, í síma 601591.
Starfsmenn
óskast til starfa við ræstingar og býtibúr á
Landspítala. Vinnutími og starfshlutfall eftir
samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita ræstingastjórar í
síma 601530.
Reykjavík, 7.janúar 1990.
íþrótta- og
tómstundaráð
Reykjavíkur
óskar eftir starfsfólki á eftirtaldar félagsmið-
stöðvar:
Bústaði, Fellahelli, Tónabæ og Fjörgyn.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun
og/eða reynslu af uppeldisstarfi. Um er að
ræða fullt starf og hlutastörf.
Upplýsingar gefa æskulýðsfulltrúi, Fríkirkju-
vegi 11, sími 622215 og forstöðumenn félag-
smiðstöðvanna.
Störf - leikskólar
Kópavogsbæjar
Leikskólinn Furugrund
Þroskaþjálfi eða fóstra óskast til að sjá um
þjálfun fatlaðs barns.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 41124.
Leikskólinn Grænatúni
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast í 50% starf fyrir hádegi.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 46580.
Leikskólinn Kópasteinn við Hábraut
Staða ráðskonu við leikskólann er laus til
umsóknar.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 41565.
Auk þess veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar
um störfin í síma 45700.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Lausar stöður í
Kenya við norrænt
samvinnuverkefni
(Kenyan/Nordic Co-operative
Development sector)
í júlí 1988 hófu fjögur Norðurlandanna fimm
ára verkefni til stuðnings samvinnufélögunum
í Kenya. DANIDA og Swedish Co-operative
Centre (SCC) annast þetta verkefni fyrir hönd
ríkisstjóma og samvinnusambanda landanna
fjögurra. Nú þarf að bæta við þremur ráðu-
nautum (advisers) frá og með júlí nk. Tvö fyrst
nefndu störfin eru samkvæmt ráðningarkjör-
um SCC, en hið þriðja er á vegum DANIDA.
1.
Stjórnunarráðgjafi
(Cooperative Management Specialist)
Starfssvið: Vera til ráðuneytis um áætlunar-
gerð og stjórnunarhætti innan Samvinnusam-
bands Kenya (Kenya National Federation of
Cooperatives), þróun nýrra verkefna og könn-
un á þörf fyrir tölvuvæðingu verkefna innan
samvinnufélaganna. Ennfremur að aðstoða
Samvinnusambandið og stjórn Norræna sam-
vinnuverkefnisins við skipulagningu og fram-
kvæmd aðstoðarinnar.
Ráðningarskilyrði: Áralöng reynsla af störfum
í ábyrgðarstöðum, svo og reynsla af störfum
í þróunarlöndum.
Starfsvettvangur: Nairobi.
2.
Fræðsluráðgjafi í banka.
(Banking Training and Systems Specialist).
Starfssvið: Aðstoða við skipulagningu starfs-
þj'álfunar og fræðslunámskeiða innan Sam-
vinnubankans (The Co-operative Bank of
Kenya) fyrir hina ýmsu starfshópa. Aðstoða
samvinnumálaráðuneytið við skipulagningu
samvinnusparisjóða í dreifbýli. Aðstoða við
gerð fræðsluefnis um bankastörf fyrir Samvinnu-
skólann (The Co-operative College of Kenya).
Ráðningarskilyrði: A.m.k. fimm ára reynsla í
bankastörfum, svo og reynsla af störfum í
þróunarlöndum.
Starfsvettvangur: Nairobi.
3.
Stjórnunarráðgjafi
(Management Field Officer)
Starfssvið: Vera til ráðuneytis um daglega
stjórnun og eftirlit með starfsemi samvinnufé-
laga og aðstoða samvinnumálaráðuneytið
(Ministry of Co-operative Development) við
skipulagningu og framkvæmd þjálfunar- og
fræðslunámskeiða fyrir starfsfólk samvinnufé-
laga. Ennfremur aðstoða við könnun á þörf
fyrir tölvuvæðingu einstakra verkefna.
Ráðningarskilyrði: Reynsla í stjórnun fyrir-
tækja og góð bókhaldsþekking.
Starfsvettvangur: Mombasa.
Fyrir öll ofangreind störf er krafist háskóla-
prófs eða sambærilegrar menntunar á sviði
viðskipta-, landbúnaðar- eða fjármálastjórnun-
ar, auk mjög góðrar enskukunnáttu. Reynsla
af störfum hjá samvinnufélögum og í þróunar-
löndum er æskileg.
Ráðningarkjör eru m.a. skattfrjáls laun,
greiðsla ferða- og flutningskostnaðar, auk
trygginga fyrir ráðgjafa og fjölskyldur þeirra
samanber nánari skilmála um kjör starfs-
manna SCC og DANIDA eftir því sem við á .
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
hjá:
Störf 1 og 2
Ólafur Ottósson,
Lánastofnun sparisjóðanna hf.,
sími 91-623400 eða
Reynimel 23, 107 Reykjavík,
sími 91-14121 eftir kl. 18.00.
Starf 3
DANIDA The Ministry of Foreign Affairs,
Asiastisk Plads 2, 1448 Kaupmannahöfn K,
sími 90 4533 92 09 85 eða 90 4533 92 09 87.
ítarlegar upplýsingar um norræna Samvinnu-
verkefnið í Kenya veitir Marianne Ouma ísíma:
90 468 743 21 54.
Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 1990.