Morgunblaðið - 07.01.1990, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990
ATVINNUAI YSINGAR
Útgerðarmenn
Vanur togaraskipstjóri og 1. stýrimaður með
mikla reynslu óska eftir skipi.
Upplýsingar í síma 50425.
& LISTAHÁTÍÐ I' REYKJAVÍK
Ritari Listahátíðar
Ritari óskast til starfa við undirbúning Lista-
hátíðar, sem haldin verður í júní 1990.
Umsóknir með greinargóðum uppl. um
menntun og fyrri störf sendist auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 15. janúar merktar: „Lista-
hátíð - 4122“
Gjaldkeri
Hótel í borginni vill ráða gjaldkera til starfa,
fljótlega. Viðkomandi sér um allar inn- og
útborganir, ásamt skyldum störfum.
Leitað er að samviskusömum og töluglögg-
um aðila með einhverja starfsreynslu á þessu
sviði eða góða bókhaldsþekkingu.
Gott framtíðarstarf. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 13. janúar nk.
Félagsstarf aldraðra
Starfsmaður í
hárgreiðslu
Starfsmaður óskast frá 1. febrúar í 50%
starf. Vinnutími frá kl. 13.00-17.00 virka daga.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Félags-
starfs aldraðra í síma 43400 milli kl. 11.00
og 12.00 virka daga.
Félagsmálastjóri Kópavogs.
Matsmann og stýri-
mann vantar á
frystitogara
Matsmann vantar á frystitogarann Vest-
mannaey VE-54. Einnig vantar 2. stýrimann
með full réttindi til afleysinga á frystitogar-
ann.
Vinsamlegast leitið upplýsinga hjá skipstjór-
anum í síma 98-12270 eða á skrifstofu út-
gerðarfyrirtækisins í síma 98-11444.
Bergur-Huginn hf.
Starfsfólk við fram-
köllunarþjónustu
Vantar starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Við prentun á litmyndum (einhver starfs-
reynsla æskileg).
2. Við afgreiðslustörf.
Hálfsdagsstörf koma til greina í báðum tilfellum.
Þeir sem áhuga hafa leggi inn nafn og síma-
númerá auglýsingadeild Mbl. merkt: „Traust
fólk - 978“.
Bílstjóri
Fróði hf. óskar að ráða bílstjóra í fullt starf.
Við leitum að áreiðanlegum starfskrafti til
vinnu í hraðvaxandi fjölmiðlafyrirtæki með
fjölda af hressu og færu starfsfólki.
Þeir, sem hafa áhuga á ofangreindu starfi
eru vinsamlegast beðnir að senda okkur
skriflegar umsóknir fyrir 10. janúar er til-
greini aldur, menntun, starfsreynslu og
persónulegar upplýsingar sem að gagni
gætu komið við mat á hæfni.
Öllum umsóknum verður svarað.
Fróðihf.,
Ármúla 18, 108 Reykjavík,
sími 82300.
Gtiðntíónsson
RÁÐCJÖF fcr RÁÐNI NCARNÓN LISTA
TIARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Starfsmenn óskast
Traust verslunarfyrirtæki óskar eftir starfs-
mönnum til framtíðarstarfa. Stundvísi, snyrti-
mennska og reglusemi eru skilyrði.
1. Sölumaður: Raffræðingur eða rafvirki.
Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið við
tölvu.
2. Afgreiðslumaður í verslun. Rafvirki
eða vanur starfsmaður við afgreiðslustörf
með einhverja þekkingu á rafvörum.
Verslunarstjórastarf hugsanlegt.
3. Starfsmaður á lager, heilsuhraustur,
reglusamur og starfsamur.
Góð laun fyrir rétta aðila. Góð vinnuaðstaða.
Umsóknum ásamt greinagóðum upplýsing-
um og um fyrri störf óskast send auglýsinga-
deild Mbl. með kennitölu fyrir 12. janúar
merkt: „Framtíð - 6243“.
Húsvörður
vaktavinna
Fyrirtækið er öflugt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík.
Starfið felst aðallega í því að vakta húsnæði
fyrirtækisins að hefðbundnum vinnudegi
loknum auk lítilsháttar vinnuskyldu á meðan
á viðveru stendur.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
reglusamir og áreiðanlegir. Kostur er ef sam-
bærileg reynsla er fyrir hendi.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar
nk. Viðkomandi þyrftu að geta hafið störf
strax.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavórdustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355
Bókari
Landsbyggðin
Fyrirtæki í útgerð og fiskvinnslu á Suð-
austurlandi vill ráða bókara til starfa. Góð
bókhaldsþekking er algjört skilyrði. Góð laun
eru í boði fyrir réttan starfsmann og framtíð-
armöguleikar. Gott tækifæri fyrir einstakling
eða hjón, sem vilja flytja út á land. Allar
nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar.
GtjðntIónsson
RÁÐCJÓF & RÁÐN I NCARÞJÓN LISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
HJARNI h/f
Forritari
Hjarni hf. óskar að ráða forritara. Starfið er
annars vegar fólgið í vinnu við tölfræðilega
gagnaúrvinnslu í alþjóðlegri rannsókn, og
hins vegar í kerfishönnun og forritun, aðal-
lega í Clipper og C.
Starfið krefst lipurðar í samskiptum og er
góð enskukunnátta nauðsynleg vegna mikill-
ar samvinnu við erlenda aðila. Tölfræðiþekk-
ing er æskileg. Laun verða miðuð við hæfni,
reynslu og menntun viðkomandi. Boðið er
upp á góða vinnuaðstöðu miðsvæðis í
Reykjavík.
Hjarni hf. er hugbúnaðarfyrirtæki, sem hefur
sérhæft sig í framleiðslu á hugbúnaði fyrir
heilbrigðiskerfið, auk þess sem fyrirtækið
vinnur við rannsóknir og ýmis fleiri verkefni.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknir, ásamt helstu upplýsingum,
sendist framkvæmdastjóra Hjarna hf., Skeif-
unni 19, 108 Reykjavík.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN reykjavíkurborgar
Droplaugarstaðir
Snorrabraut 58, Reykjavík
Sjúkraþjálfari
óskast frá og með 1. febrúar næst kom-
andi. Um er að ræða 70% stöðu en 50%
ef sjúkraþjálfarinn óskar eftir að vinna sjálf-
stætt.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 9.00-12.00 fyrir hádegi alla
virka daga.
Skrifstofustörf
Óskum að ráða eftirfarandi starfsmenn sem
fyrst.
Fjölhæfan skrifstofumann
hjá litlu en ört vaxandi innflutnings- og smá-
sölufyrirtæki. Skilyrði er reynsla af færslu
bókhalds auk annarra skrifstofustarfa.
Enskukunnátta nauðsynleg. Vinnutími frá kl.
9-18.
Móttökuritara
hjá fyrirtæki á sviði fjármála. Stúdentspróf
frá Verslunarskóla íslands eða sambærileg
menntun skilyrði.
Skrifstofumann
hjá félagasamtökum. Reynsla af bókhalds-
og skrifstofustörfum nauðsynleg. Vinnutími
frá kl. 13-17.
Skrifstofumann
hjá endurskoðunarskrifstofu. Aðallega er um
símavörslu og létt skrifstofustörf að ræða.
Einungis er unnið hálft ár í senn frá 1. jan-
úar til 1. júlí ár hvert.
Skrifstofumann/sendil
hjá framleiðslufyrirtæki. Skilyrði er að við-
komandi noti eigin bíl til vinnu.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355