Morgunblaðið - 07.01.1990, Qupperneq 30
Aðgerðin
eftir Steingrím S.
Olafsson
vera bara
Eg er hættur við að fara í
aðgerð. Ég skipti um sko<3-
un bara einn, tveir og þrír. Ég
held nefnilega að þetta hafi
bara verið svona karlmannleg
^mmmmmm^m vitleysa. Nú
líður mér vel og
kvenmenn
mega vera
kvenmenn í
friði fyrir mér.
En hvað var það
svo sem sann-
færði mig um
ágæti þess að
karlmaður? Jú,
frosthörkur gömlu Kristjaníu.
Maður veit svo sem að þið,
kæru landar, hafið ekki lent í
miklum frosthörkum síðustu
vikurnar í kringum mánaða-
mótin, en ástandið hefur
hreinlega verið allt annað hér
í Ósló. Síberíuvetur upp á
hvern dag, og ef ekki hefði ver-
ið fyrir föðurland, og það stolt
að vera íslendingur, sem ekki
^efst upp fyrir nokkrum
mínusgráðum, þá væri ég
löngu kominn í híði. Norskir
veðurfræðingar (að sjálfsögðu
allt karlmenn) hafa byrst sig á
skjánum og sagt að nú sé jafn-
heitt á íslandi og á Krít og í
Aþenu. Þá andvarpa ég og lít
út um gluggann. Ég er ekki frá
því að dagurinn sé.aðeins leng-
ur að líða í frosthörkunum.
Kannski gengur klukkan hæg-
ar . . . en hvað um það. i frost-
inu sé ég kvenfólk. Þetta kven-
^jþlk sýndi mér svart á hvítu,
nvað ég raunverulega er hepp-
inn að vera karlmaður. Konur
eru nefnilega mjög misgáfaðar.
Með þessu á ég ekki við að ein
kona sé gáfaðri en önnur, held-
ur að hver einstök kona sé
misgáfuð. Þetta þarfnast út-
skýringar.
Hvort sem við karlmenn við-
urkennum það eða ekki, þá
kunna konur að fara með pen-
inga. Hvernig stendur annars
á þvi að heimilisbókhaldið lag-
ast alltaf þegar þær fá peninga-
völdin á heimilinu? Við vitum
líka að kvenmenn eru betri
bílstjórar. Þær lenda í mun
færri árekstrum en við karl-
Jfienn. Kvenfólk er líka harð-
duglegt og virkilega þrautseigt.
Hvernig hefðu þær annars far-
ið að því að ná árangri í jafn-
réttisbaráttunni? Við vitum
líka að kvenfólk er yfir höfuð
mun fallegra en karlmenn. Það
skýrir sig sjálft. Við vitum líka
að kvenfólk býr yfir þróaðri
likama en við karlmenn. Ekki
getum við alið börn?! Sumir
karlmenn hafa meirá að segja
gengið svo langt að segja að
kvenfólk sé gáfaðra en karl-
menn. Ég ætla svo sem ekki
að neita því neitt sérstaklega.
Þetta allt getur verið hárrétt.
Það undrar mig samt, og raun-
ar mjög mikið, að sé þetta rétt,
þá hljóta kvenmenn að vera
mjög vanþróaðar á einu stigi
hugsunar. Það er fatahliðin.
Þú sérð nefnilega ekki karl-
mann gangandi úti í 27 stiga
frosti í mínipilsi, sokkabuxum,
næfurþunnri silkiskyrtu, í
popplínjakka með uppbrettar
ermar og á háum hælum. Nei,
karlmenn klæða sig eftir veðri.
Ef það er kalt, þá fara þeir í
hlý föt, og ef það er hlýtt, fara
þeir í létt föt. En ekki kvenfólk.
ÞÓ járnbrautarlestir fijósi
íastar á teinum sínum, piss-
andi hundar festist við ljósa-
staura og grýlukerti hangi neð-
an úr skýjunum, þá fer kven-
fólk út samkvæmt skipun Pi-
erre Cardin og lagsbræðra
hans. Þar með voru örlög mín
ráðin. Ég er hættur við aðgerð-
ina. Nema náttúrulega maður
flytji eitthvað suður á bóginn.
Ænei, mér fer bikiní svo
illa ...
MORGUNBLAÐIÐ
FÖLK í FRÉTTUM
.....
SUNNUDÁGUR 7. JANÚAR 1990
GRUNN I 15. janúar kl. 9-16
Fyrir byrjendur í tölvunotkun. Fjallað verður um Victor PC-tölvuna, MS-DOS
stýrikerfið kynnt ásamt ýmsum jaðartækjum, t.d. prentara, mús, módemi o.fl.
Framhaldsnámskeið Grunn II verður 15.-16. nóv. kl. 9-13.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur,
Einari J. Skúlasyni hf., Grensásvegi 10, sími 686933
A TH: I/R og fleiri stéttarfélög styrkja féiaga sina til þátttöku.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.
LOS ANGELES
Einþáttungar efitir
Islending sýndir
Morgunblaðið/Guðmundur S. Kristjánsson.
Höfundur einþáttunganna, Sveinbjörn I. Baldvinsson, og leikkonan
Elizabeth Herron, sem lék í Stjörnum Cesars, á frumsýningarkvöldið.
Leikfélag í Los Angeles í Banda-
ríkjunum tók nýlega til sýninga
tvo einþáttunga eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson rithöfund en hann er
nú búsettur þar vestra. Sveinbjörn
hefur nýlega lokið námi í gerð kvik-
myndahandrita við University of
Sourhern Califomia. Frumsýning-
arkvöldið var þann 20. nóvember
síðastliðið og var ætlun leikhópsins
að sýna einþáttungana í mánuð.
Annar einþáttungurinn ber heitið
„Stjömur Cesars" og birtist meðal
annars í nýútgefnu smásagnasafni,
sem komið er út hjá Almenna bóka-
félaginu. Hinn einþáttungurinn ber
nafnið „Heimsóknartími".
Morgunblaðið/Guðrún Guðjónsdóttir
Jónas og frú á góðri stundu, n’anar tiltekið á afmælisdaginn
við Norðurá í fyrra. Á bak við þau grillir í tvo veislugesti,
Guðlaug Bergmann og Ragnheiði Söru Hafsteinsdóttur.
ENDEMI
„Konan eitthvað að
tala um svikna vöru“
hann, að hann varð sjötugur á
sumrinu og sér liggi ekkert á að
ná áttræðu.
Svo er það hin bókin. Þannig var
nefnilega mál vexti, að Jónas var
simdkennari Hebu sendiherrafrú-
arinnar sem lét gamminn geysa
í endurminningabókinni „Sendi-
herrafrúin segir frá“. Fer ekki hjá
því að Jónasar er það getið, nema
hann sagður Guðmundsson!
Jónas dæsti mæðulega f símann
er Morgunblaðið ræddi við hann
í vikunni, en tók sig svo á og
skellihló, sagði þetta svo niður-
drepandi að nauðsynlegt væri að
hlæja ærlega að því. „Annars var
konan mín eitthvað að tala um
að hún hefði fengið svikna vöra,
hún hefði talið sig vera gifta Jón-
asi Halldórssyni sjötugum heið-
ursmanni, en svo væri hann bara
Jónas Guðmundsson, áttrætt
gamalmenni!" sagði Jónas.
Sá vel þekkti góðborgari Jónas
Halldórsson, betur þekktur
e.t.v. undir nafninu Jónas sund-
kappi, reið ekki feitum hesti frá
jólabókavertíðinni. Sjálfsagt fékk
hann sinn skammt af bókum í
jólagjöf, en það var ekki rituð um
hann bók þótt kannski væri full
ástæða til þess. Hins vegar var
hans getið í tveimur bókum og
það með þeim endemis vitleysum
að til leiðinda má telja jafnt fyrir
bókarhöfunda jafnt sem og auð-
vitað Jónas sjálfan.
Fyrst er að nefna stangveiðiár-
bókina „Stangaveiðin 1989“. Jón-
as er mikil veiðikló og umsjónar-
menn umræddrar bókar vildu gera
að umtalsefni stórafmæli sem
Jónas hélt með vinum sínum í
veiðihúsinu við Norðurá um miðj-
an júní. Undir mynd sem birt var
af afmælisbarninu stóð að Jónas
hefði fagnað áttræðisafmæli sínu!
Jónas veit það best sjálfur, segir
FJÖLSKYLDAN
Fimm ættliðir
3ja til
að er ævinlega nokkur hátíð-
arljómi yfir þeim stundum er
heilir fimm ættliðir era saman-
komnir og ekki laust við að fjöl-
skyidumeðlimir finni til nokkurs
stolts. Hjá fjölskyldu einni rann upp
slík stund fyrir nokkru og var at-
burðurinn festur á filmu. Á með-
95ára
fylgjandi mynd má sjá fimm ætt-
liði, standandi t.v. er Fanney Jóns-
dóttir og t.h. Rúna Björg Magnús-
dóttir. Sitjandi f.v. eru Jón Helga-
son, Sigurósk Sunna Magnúsdóttir
og Magnús Jón Pétursson. Aldurs-
forsetinn, Jón Helgason verður 95
ára á morgun.