Morgunblaðið - 01.02.1990, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRUAR 1990
49
■ áí
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
uuuutu^MáaLM,
VEGGTENNIS
Skemmtileg ílirðtt sem ailir hata gaman at. V
Stimpil á lambakjötið
Til Velvakanda.
Fyrir skömmu skrifaði einhver í
Velvakanda og vakti athygli á að-
merkinjgum á matvörum sé ábóta-
vant. Eg tel að mikil framför hafí
orðið í þessum málum síðustu árin
og hafa flestir framleiðendur brugð-
ist vel við kröfum neytenda.
Með einni undantekningu þó og
það eru kjötvörunar. Ekki hef ég
heyrt neina skýringu á þeirri leynd
sem virðist hvíla yfir aldri lamba-
kjötsins til dæmis. Þó maður kaupi
Kæri Velvakandi.
Ég vitna í athyglisverða forustu-
grein í Morgunblaðinu fimmtudag-
inn 25. janúar, varðandi ástandið í
Austur-Evrópu og Sovétríkin.^ I
greininni var varpað fram þeirri
hugmynd að jafnvel landamæri
þyrftu að breytast til þess að þjóð-
emisjafnvægi kæmist á. En í þess-
um tilfellum verður að stiga skrefið
til fulls. Til dæmis þyrftu landa-
mæri ■ Sovétríkjanna, Tyrklands,
Sýrlands, Iraks og Irans að breyt-
ast til þess að ýmsar þjóðir gætu
sameinast.
En það verður einnig að íhuga
það í heilum skrokkum er ekki
hægt að sjá hve gamalt það er. Ég
vil hvetja til þess að allir lamba-
skrokkar séu stimplaðir með ártali
þess árs sem slátrun fer fram. Og
þetta ætti reyndar að eiga við um
allt kjöt, að það ætti að vera hægt
að ganga úr skugga um hversu
gamalt það er. Ekki getur þetta
kostað mikið en það væri mikil
trygging fyrir neytandur.
Húsmóðir
breytingar í Vestur-Evrópu. Til
dæmis sameiningu Þýskalands,
sameiningu írlands, að Gibraltar
verði skilað aftur til Spánar, fullt
sjálfstæði Skotlands, Vels, írlands,
Englands, Færeyja og Grænlands.
Og fleiru má breyta í Evrópu. Það
eru nýjar tíðir gengnar í garð og
haldið verður áfram með uppbygg-
ingu nýju Evrópu. Það mun að vísu
valda mörgum áhyggjum en þróun-
in er óstöðvandi og mun ekki stöðv-
ast fyrr en þjóðernisjafnvægi er
komið á um gervalla Évrópu.
Vilhjálmur Alfreðsson
Klaufar
við kassa
Til Velvakanda.
Mér finnst gaman að fara í búðir
og velja mér vaming. Þegar ég var
ung lærði ég margföldunartöfluna
eins og þá þótti sjálfsagt. Gamanið
kárnar þegar að svokölluðum kassa
kemur. Þá þarf maður að setja sig
í stellingar og fylgjast vel með. Mér
var kennt að bæta núlli aftan við
tölu, þegar margfaldað er með 10.
í dag slá klaufarnir við kassann tiu
sinnum sömu tölu á kassavélina.
Maður þarf alltaf að vera á verði.
Tvisvar hefur það komið fyrir í vetur
að átt hefur að snuða mig við kass-
ana um kr. 2000,- tvö þúsund — en
ég er vör um mig og læt ekki
„trekkja mig upp“ þó að ég sé kven-
maður. Gætið vel að Visa-kortinu,
oft þarf maður að ganga eftir því
að fá það til baka.
Hjá opinberri stofnun skellti karl-
remba, sem ekki gat útskýrt fyrir
mér bréf frá stofnuninni, á mig tól-
inu. Astæðan var sú að ég sagðist
telja mig vera með fullu viti. „Ja,
ekki má nú mikið í Miðengi".
Mér finnst eftirtektarvert að víða
er talað við okkur eldri borgara eins
og við séum ekki lengur með fullu
viti. Ég held þvert á móti að við
tölum betra mál og séum færari í
reikningi, heldur en fólk það; sem
þannig meðhöndlar okkur. Ég er
sammála Birni S. Lárussyni, sem er
með eftirtektarverða þætti í útvarp-
inu „Neytendapunkta", að það þora
ekki allir að leiðrétta eða kvarta.
Að lokum til allra þeirra, sem
setja sig á háan hest gagnvart þeim
sem eldri eiu:
Þó þú berir fínni flík
og fleiri í vösum lykla
okkar verður iestin lík
lokadaginn mikla.
(Gísli Ólafsson 1885-1967.)
Halldóra
Til „Aróþ“
Þér er velkomið að koma við á rit-
stjórn Morgunblaðsins og fá ljóð
þitt afhent eða hafa samband við
Jónu Ágvstu vegna þess.
NÝ EVRÓPA
ATH!
Skólaafsláttur á tímabilinu 13.15-17.00
alla virka daga
9.30-16.00 laugardaga.
Aðeins 250 kr. á mann
SIEMENS
Ódýr örbylgjuofn!
HF1102
• Stiglaus stilling á örbylgjustyrk upp
í 500 W.
• Tímarofi með hámarkstíma 30 mín.
• Tekur 14,5 lítra.
✓
• Isl. leiðarvísir og matreiðslubók.
• Almennt verð: 20.300,- kr.
Staðgreiðsluverð: 19.285,- kr.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
FATASKÁPUR ER NAUÐSTN
Þess vegna eignm við landsins mesta úrval af fataskápnm,
sem eru ódýrir, fallegir og auðveldir í uppsetningu.