Morgunblaðið - 17.02.1990, Page 18

Morgunblaðið - 17.02.1990, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LATJGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Er draumur ráðherrans martröð skattborgarans? SLAGORÐ stjórnraálamanna, einkum stjórnmálamanna í kosn- ingabaráttu, þess efiiis að „stefnt skuli að niðurskurði opinberra útgjalda, aðhaldi í ríkisrekstri, takmörkun erlendrar lántöku, sölu ríkisíyrirtækja, fækkun opinberra starfsmanna, sparnaði á öllum sviðum rikisreksturs“, eru fyrir löngu farin að hljóma eins og meiningarlausar, gamlar lummur í eyrum íslenskra kjós- enda. Enda hafa þeir löngum horft upp á vanefiidir sömu stjórn- málamanna, þegar þeir komust á valdastól í skjóli þess atkvæða- magns sem þeir tryggðu sér með loforðunum innantómu. Hug- renningar í þessa veru eru mörgum ofarlega í huga nú, laust eftir að afar aðhaldssamir kjarasamningar hafa verið gerðir á vinnumar kaðinum, sem krefja launþega um ákveðnar kaup- máttarfórnir, atvinnurekendur um aðhald í rekstri og bændur um ákveðnar launafórnir. Nú horfa menn til ríkisstjórnarinnar °g Alþingis og spyrja sem svo: Ætla stjómmálamennirnir enn einu sinni að skerast úr leik og skjóta sér undan ábyrgð? Það er ekki að fúrða að það fjúki athugasemdir í þá vem að þeir Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson geti bara leitað sér að annarri vinnu, séu þeir ekki reiðubúnir að sætta sig við niðurskurð fjármagns til þeirra málaflokka sem þeir fara með í ríkissljóm. Að vísu bendir nú allt til þess að þeir muni sætta sig við niðurskurð, en víðsfjarri því jaftimikinn og upphaflegar tillögur fj ármálaráðherra gerðu ráð fyrir. En hvers konar tregðulögmál er það sem ræður því að ríkisumsvifin aukast stöð- ugt, andstætt annarri þróun í þjóðfélaginu? Er það aðeins fræði- lega mögulegt að skera niður ríkisútgjöld, en ekki í reynd? Kemur það heim og saman að samgönguráðherra skuli ferðast um Vestfírði og lofa því að flýta jarðgöngum um tvö ár, á með- an þeir sem boða niðurskurð, og vilja standa við hann, benda á að vænlegustu leiðimar til niðurskurðar séu frestun fram- kvæmda, tímabundinn samdráttur í opinberri þjónustu og þess háttar, þar sem reynslan sýni að tilraunir til þess að skera nið- ur rekstrarþætti hins opinbera mistakist nánast undantekinera- laust? Tekjur og gjöld hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu 1945-88 % GJÖLD u , TEKJUR J/ 1 tKJUn" 30 GJÖLD i 1 1 1 1 1 1 1 1 r 1945- '51- '56- '61- '66- 71- 76- '80 '81 '82 50 55 60 65 70 75 80\— meðaltal 5 ára i i i i i i '83 '84 '85 '86 '87 '88 Heimild: Þjóðhagsstofnun 3 ■llllllll | % 1945- '51- '56- '61- '66- 50 55 60 65 70 76- '80 81 80— meðaltal 5 ára 82 '84 Hallinn er orðinn að reglu ! Tekjuafgangur/halli hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu 1945-88 Heimild: Þjóðhagsstolnun |Ml Yfirteknar skuldir - orkuveitna--------- Alþingi, eins og það leggur sig, er síður en svo sak- laust í þessum efnum. Alþingismenn eru mun iðnari við að samþykkja lög um nýjar framkvæmdir, nýja sjóði, nýja þjónustu, auknar almanna- tryggingar og auknar endurbætur. Framleiðsla þeirra á lögum sem krefjast fjármagns er miklum mun méiri en tekjuöflunarfrumvörp þeirra, enda þau fyrmefndu mun vænlegri til vinsælda og þess að tryggja þingmönnunum endurkjör. í þessum efnum virðast engar flokkslegar línur ráða, heldur miklu fremur búseta viðkomandi þingmanna. Sama má segja um ríkisstjómir hveiju sinni. I Vís- bendingu, 30. nóvember 1988, vikuriti um viðskipti og efnahags- mál sem Kaupþing hf. gefur út, er grein eftir Finn Geirsson, sem nefnist Opinber umsvif og velferð- in. Þar segir Finnur m.a. „Fjár- lagafmmvörp hafa verið lögð fram af fjórum ráðherrum úr mismun- andi flokkum á siðustu fjómm eða fimm ámm. (Albert Guðmunds- syni, Þorsteini Pálssynij Jóni Bald- vin Hannibalssyni og Ólafi Ragn- ari Grímssyni. Innskot AB.) Allir hafa þeir verið ákafir talsmenn aðhalds og samdráttar í ríkisút- gjöldum við upphaf fjárlagatíma- bils, en allir, sem reynsla er komin á, hafa orðið að'lúta í lægra haldi fyrir útgjaldaþenslu þegar upp var staðið. 011 árin hafa skattar ekki dugað fyrir útgjöldum sem þýðir vaxandi ríkisskuldir og um leið aukin vaxtagjöld. Til að ná jafn- vægi er um tvennt að velja; draga út ríkisumsvifum eða hækka skatta.“ Legg eitthvað af mörkum Steingrímur J. Sigfússon, sam- göngu- og landbúnaðarráðherra, er sá ráðherranna, sem hvað harð- ast hefur bragðist við áformum fjármálaráðherra um niðurskurð ríkisútgjalda: „Ég hef auðvitað all- an tímann verið reiðubúinn að leggja eitthvað af mörkum í þessu. Ég mun sjá um það sem ég kalla sanngjarna hlið á mínum mála- flokkum, í þessum niðurskurðar- áformum,“ sagði Steingrímur í samtali við mig fyrr í vikunni. Á ámnum 1945 til 1955 námu tekjur ríkissjóðs um 25% af lands- framleiðslu og þar af vom skatt- tekjur 24,6%. A ámnum 1980 til 1988 vom tekjur ríkissjóðs af landsframleiðslu um 33,7% og skatttekjumar vom þar af um 31%. Auðvitað er ekki hægt að bera þesjsi tímabil saman tölulega séð, án þess að horfa til þeirrar staðreyndar að það er á síðustu áratugum sem velferðarkerfi okk- ar íslendinga hefur verið byggt upp, og öllum má vera ljóst hver kostnaður er í því fólginn. Fjárlög ársins í ár hljóða upp á um 95 milljarða og þar af eru fjárveiting- ar til almannatryggingakerfisins um 22 milljarðar króna. Það er miklu frekar staðreyndin um vaxtagreiðslur ríkissjóðs og þróun þeirra sem er uggvænleg. Sem hlutfall fjárlaga vora vaxtagreiðsl- ur árið 1980 5,3%, en síðastliðið ár voru þær um 10% og í ár stefna þær einnig í að verða um 10% fjár- laga, eða nálægt 10 milljarðar króna. í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að ríkissjóður yfir- tók skuldir orkuveitna árið 1986 að upphæð 5.066 milljónir króna, sem jafngildir auðvitað því að pólitísk ákvörðun var tekin um það að skattborgarar framtíðarinnar skyldu greiða .niður lágt raforku- verð landsmanna nú. Þróunin er sú að vaxtagreiðslur vegna lána þeirra sem ríkissjóður tekur verða stöðugt meiri, frá ári til árs, og þar með em minni fjármunir eftir til framkvæmda. Fjármunir þeir, sem ríkisvaldið mun ráðstafa til framkvæmda í ár, em minni en fara munu í vaxtagreiðslur. Framt- íðarsýnin getur því ekki talist björt að þessu leyti. Einkaneysla og samneysla okkar eykst meira en landsframleiðsla Landsframleiðsla íslendinga jókst frá árinu 1980 til ársins 1987 um 24,1%. Til viðmiðunar má geta þess að í Japan jókst hún á sama tímabili um 29,4%, Kanada um 23,5%, Tyrklandi um 46,8%, Dan- mörku um 16,4% og Svíþjóð um 13,2%. Einkaneysla íslendinga á sama tímabili jókst um 39,4%, Jap- ana um 23,2%, í Kanada um 24,1%, Tyrklandi 40,9, Danmörku um 14% og Svíþjóð um 12,5%. Samneysla (útgjöld ríkis og sveitarfélaga, að fjárfestingum undanskildum) jókst hjá okkur íslendingum á ofan- greindu tímabili um 43,2% og þar skipum við langefsta sætið. í Japan jókst samneyslan um 21,8%, í Kanada um 13,9%, í Tyrklandi um 36,3%, Danmörku um 11,1% og í Svíþjóð um 11%. Af þessum sam- anburðarlöndum, sem valin eru af handahófi, sépt að einkaneysla og samneysla þessara landa eykst inn- an marka aukningar landsfram- leiðslunnar, en hér á landi er ekki hægt að segja hið sama. Sam- neysla og einkaneysla eykst jafnt og þétt, án þess að aukin lands- framleiðsla gefi svigrúm til slíks og niðurstaðan er auðvitað sú, að aukin velmegun er fjármögnuð með auknum halla á ríkissjóði, sem aftur er fjármagnaður með lántök- um og af þeim lánum þarf óumdeil- anlega að greiða vexti. Þá er athyglivert að bera saman hvernig þróunin hefur verið í starfsmannaaukningu hins opin- bera, miðað við einkafyrirtæki. Sé litið til áranna 1985 til 1987 sést að á þessum árum fjölgar opin- berum starfsmönnum um 11,7%, en hjá einkafyrirtækjum um 8,2%. Reyndar hefur það verið svo um langa hríð að fjölgun ríkisstarfs- manna er ávallt meiri en hjá einka- fyrirtækjum landsins, sem standa þó undir framleiðninni í landinu. ISLAND Breytingar (%) á landsframleiðslu, einkaneyslu og samneyslu í nokkrum löndum 1980-87 Spánn Tyrkland Noregur Finnland Heimild: OECD Japan Grikkland Kanada Danmörk Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.