Morgunblaðið - 18.02.1990, Side 18

Morgunblaðið - 18.02.1990, Side 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990 Blaða mönnum fjölgar Færri störf hjá stærstu fjölmiðlunum ÞRÁTT FYRIR samdrátt lyá stærstu fjölmiðlunum á síðasta ári, sérstaklega blöð- um og tímaritum, fjölgaði fé- lögum i Blaðamannafélagi Is- lands. Félagar í Blaðamanna- félaginu voru 402 samkvæmt félagaskrá um áramót, eða fjórum fleiri en árið á undan. Lúðvík Geirsson formaður fé- lagsins sagði í samtali við Morgunblaðið að sama væri að gerast hér á landi og víða annars staðar, að störfúm fjölgaði fyá fyrirtækjum, fé- lögum og stofnunum sem legðu aukna áherslu á kynn- ingarstarfsemi og upplýsinga- útgáfu. kOj Um helmingur félaga í Blaðamannafélagi íslands starfar á dagblöðum eða frétta- stofum á Reykjavíkursvæðinu. Um 50 starfa hjá tímaritum og um- 50 eru við störf úti á landi. Blaðamönnum í lausamennsku hefur hins vegar fjölgað töluvert og eru þeir nú um 50. Handhafí blaðamannaskír- teinis númer eitt, er Þórarinn Þórarinsson fyrrum ritstjóri Tímans. Hann hóf störf árið 1933. Handhafí skírteinis númer tvö er Þorbjöm Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu, sem hóf störf árið 1942 sam- kvæmt félagatali Blaðamanna- félags íslands. Leiörétting Mistök áttu sér stað við birtingu á súluriti sem fylgdi frétt í blaðinu sl. sunnudag. Fréttin fjall- aði um misjafnt gengi bresku sunnudagsblaðanna og átti myndin að sýna að vönduðu sunnudags- blöðin stæðu sig betur í samkeppn- inni en æsifréttablöðin. Þessu var snv ið við í súluritinu og eru lesend- v beðnir velvirðingar á mistökun- im. FOLK i fjölmiðlum UMARKÚS Öm Antonsson, út- varpsstjóri, hefur verið skipaður varaformaður í framkvæmdanefnd fyrir ný Evrópusamtök um málefni kvikmyndagerðar og sjónvarps. The European Film and Television Fomm, þing forráðamanna í kvikmyndaiðnaði og sjónvarps- rekstri auk full- trúa Evrópu- stofnana, kemur _ .. saman í fyrsta Markús Ora sinn í Lúxemborg í desember. A þeim vettvangi er fjallað um breytingar í Qölmiðlun í álfunni, m.a. vegna til- komu nýrra sjónvarpsstöðva og gervihnattasjónvarps. Þingið á að stuðla að eflingu samstarfs kvik- myndagerðarmanna og sjónvarps- stöðva um að gera hlut myndefnis af evrópskum toga fyrirferðarmeira í dagskrám evrópskra fjölmiðla en nú er. Þá hafa bætt samskipti fyöl- miðla í V-Evrópu og A-Evrópu verið til umræðu á sérstökum samráðs- fundum stjómenda sjónvarpsstöðva frá báðum hlutum álfunnar. Formað- ur þessara samtaka er Thompson lávarður af Monifleth, fyrrverandi formaður Independent Broadcasting Authority í Bretlandi, stjómamefnd- ar einkasjónvarpsstöðva þar í landi. ■ VWAR Eggertsson kemur aftur til starfa við dagskrárgerð hjá Út- varpinu í lok febrúar. Hann hefur að undanfömu unnið við uppfærslu á leikriti Giiðrúnar Ásmundsdótt- ur, „Heill sé þér þorskur" hjá Leikfélagi Akur- eyrar. Viðar mun annast umsjá Kviksjár, þáttar um menningar- mál, sem fluttur er alla virka daga nema mánudaga á Rás 1. Viðar sér einnig um þáttinn „Kíkt út um kýraugað" með þjóðlegum fróðleik af ýmsu tagi. Sá þáttur er fluttur á föstudagsmorgn- um. ■JÓHANNA Harðardóttir mun frá og með mánaðamótum sjá um samfelldan þátt á virkum dögum á Rás 2, frá klukkan 11-14, utan um hádegisfréttir. Þáttur Jóhönnu á Rás 2, Þarfaþing, hefur notið mik- illa vinsælda, en hann hefur verið á dagskrá á morgnana, á milli klukkan 11 og 12. Einnig eru fyrirhugaðar dagskrárbreyt- jóhanna ingar á Rás 2 á laugardögum. Ráð- gert er að Árni Magnússon hafi umsjá með helgarútvarpi, frá klukk- an 10-15 með íþróttaefni, fréttum úr menningarlífínu, leikjum og tón- list. Viðar Munu markaðslögmálin á endanum sameina félagshyggjublöðin? Vantar frjálsa samkeppni á íslenskan blaðamarkað? STÆÐU FÉLAGSHYGGJUÖFLIN saman að útgáfú blaðs myndi slíkt stórblað veita Morgunblaðinu og DV holla samkeppni og tryggja æskilega samkeppni að mati Hannesar Hólmsteins Gis- surarsonar, lektors við Háskóla íslands, en hann sendi frá sér nýverið skemmtilega bók sem ber heitið Fjölmiðlar nútímans. Rökin em þau að slíkt blað yrði ekki ofúrselt stjórnmálaöflum og teldi því hlutverk sitt vera að þjóna lesendum en ekki flokk- um. Hannes telur samkvæmt þessu að hér á landi sé markaður fyrir öflugt félagshyggjublað. Hér skal undir þetta tekið og við má bæta að slíkt blað bætti blaðamennsku hér á landi til muna því helsta meinsemd þeirrar greinar er þjónkun við flokkshags- Aíslenskum blaðamarkaði ríkir varla nokkur samkeppni. Morgunblaðið drottnar yfír morg- unblöðunum og DV er eitt á síðdegismarkaði. Útbreiðsla ann- arra morgunblaða er lítil og hún markast ekki af lögmálum frjálsr- ar samkeppni. I langflestum tilfellum kaup- ir fólk Alþýðu- blaðið, Tímann og Þjóðviljann vegna tengsla sinna við einhvem ákveðinn flokk en öðru máli gildir um stóru blöð- in tvö. Eins og Hannes bendir á þá eru þau eins og hver önnur vinsæl vara á frjálsum og almenn- um markaði. Aukin samkeppni á íslenska blaðamarkaðinum mun auka að- hald og kalla á vandaðri vinnu- brögð. Vissulega má búast við að í harðri samkeppni grípi einhveij- ir til óvandáðra meðala en það er áha^ttan sem fylgir því að losa litlu blöðin úr forsjá flokka og gefa þeim sjálfstæði. Mikilvægast af öllu er þó að þegar flokkshagsmunir ráða ekki ferðinni losna blaðamenn úr þeirri stöðu, sem tvímælalaust er niður- lægjandi, að þurfa að þjóna til- teknum hagsmunum. „Okkur leið siðferðilega illa vegna þess að við vöndumst á að segja annað en við hugsuðum," sagði Havel, forseti Tékkóslóvakíu, í embættistöku- ræðu sinni og þó svo það sé full- langtgengiðað BAKSVIÐ eftir Asgeir Fridgeirsson líkja ástandinu á ritstjómum flokksblaða við Austur-Evrópu fyrir fall Berlínarmúrs- ins, þá er það alltaf og alls staðar jafn slævandi að þurfa að tjá sig þvert á eigin skoðun. íslenskir blaðamenn á flokksblöðum þekkja flestir hið þrúgandi andrúmsloft sem ríkir á ritstjórnum þegar líða tekur að kosningum og blöðin ummyndast í áróðursrit. Sjálfs- virðing blaðamanna og virðing þeirra fyrir starfí sinu mun stór- lega aukast við það að blöðin be- rist lengra frá flokkum og út á markaðinn, svo stuðst sé við orða- lag Hannesar Hólmsteins í um- ræddri bók. Efni og dagskrár fjölmiðla era orðnar að markaðsvöru víðast hvar í hinum vestræna heimi að mati Hannesar. Samkvæmt frem- ur óljósri kenningu hans hafa þeir þróast úr höndum stjóm- málaafla og bendir hann á dæmi úr sögu Morgunblaðsins og DV þessu til stuðnings. Hann gefur réttilega í skyn að leið þessara blaða til sjálfstæðis frá Sjálfstæð- isflokki sé e.t.v. enn ekki lokið, en minnist ekki á hvemig tengsl- um sé háttað nú. Af orðum Hannesar er það helst að skilja að flokksblöð séu gamal- dags og þjóni illa hagsmunum flokkanna nú á dögum. Trúlega hefur hann talsvert til síns máls, a.m.k. má færa fyrir því rök að Tíminn, Alþýðublaðið og Þjóðvilj- inn hafi sjaldan eða aldrei þjónað sínum flokkum ver en einmitt á síðustu áram, auk þess sem þau hafa reynst þeim þungur baggi að bera þrátt fyrir ríkisstyrki. Hann bendir meðal annars á að Kvennalistinn hafí ekki yfir neinu dagblaði að ráða og ekki virðist það hafa nein varanleg áhrif á vöxt hans. Hannes segir þá sögu í bók sinni að Matthías Johannessen hafí fljótlega eftir að hann varð ritstjóri Morgunblaðsins svarað einhveijum pólitíkusi sem vildi lesa honum fyrir með ritstjórnar- efni að hann væri ritstjóri en ekki ritvél. Þama hittir Matthías nagl- ann á höfuðið því aðalatriði þess- arar umræðu er hvort fjölmiðillinn stjómi sér sjálfur eða hvort að hann sé viljalaust verkfæri sem stjómmálaflokkar hamri á að vild. Það ætti að vera metnaðarmál íslenskra blaðamanna að losa blöðin undan ægivaldi stjórn- málaflokkanna. líka áhorfendur Þaueru að hefur verið áberandi undanfarið að sjón- varpsstöðvamar hafa keppst um ákveðinn aldurshóp áhorfenda. Bömin. Stöð 2 hefur langa bamadagskrá á laugar- dags- og sunnudagsmorgnum og þar er mokað á skjáinn ijöl- mörgum þáttum og myndaröð- um i hejlar þijár klukkustundir hvom morgun. Sjónvarpið hef- ur einnig aukið barnadagskrá sína talsvert frá því sem var, þar er nú sjónvarpsefni handa bömum flesta eða alla daga. Sé Iitið á bamaefnið í heild er ljóst að það er mikið að magni en um gæðin kann að gegna öðm máli. Ég ætla að vísu ekki að ræða hér hvaða efni börnum er gefið á garðann eða hverjir em þess umkomnir að ákveða hvað eigi að sýna þeim. Hins vegar langar mig til að fara nokkmm orðum um það hvemig þetta efni er mat- reitt, ef svo má að orði komast. Barnaefni sjónvarpanna er að langmestu leyti erlent. Mik- ill hluti þess em teiknimyndir sem framleiddar em í verk- smiðjum í útlöndum handa gríðarlega stórum alheims- markaði. Þama er hvað öðm líkt og það er út af fyrir sig kannski allt í lagi því böm vilja oft láta lesa sér sömu sögumar aftur og aftur og því má ætla að þau þiggi ekki síður endur- tekningu í myndasögum í sjón- varpi. Framan af horfðu íslensk böm á þessar myndir og hlust- uðu á útlent tal og skræki sem þeim fylgir, en svo kom að ein- hveijum þótti nauðsynlegt að reiða þetta efni fram á íslensku. Eitthvert mesta snjallræði sjón- varpanna var þá að setja neðan- málstexta á þessar bamamynd- ir! Þá áttaði sig einhver á því að lítils virði væri að beita ólæs- um börnum á prentað mál, sem auk annars birtist ekki nema örskotsstund á skjánum, og þá hófst annar liður í því verki að íslenska útlent bamaefni; að tala á íslensku inn á myndirnar. Talsetning er tiltölulega ný grein í íslensku sjónvarps- og kvikmyndastarfi. Þetta er vandasörn grein og reynir á samvinnu þýðanda og lesara því hér eru öllu settar þröngar tímaskorður. Ef vel ætti að vera þyrfti að liggja yfir þessu verki og gefa því góðan tíma. Það virðist þó ekki gert. Að minnsta kosti tala lesaramir iðulega svo hratt og óskýrt að erfitt er að skilja þá og halda þræði. Þá eru þýðingar á þessu efni ekki alltaf á burðugu eða hæfu íslensku máli, en það er svo sem ekkert sérvandamál bamaefnis. Þýðingar í sjón- varpi og kvikmyndum eru mik- ið vandamál og meira en svo að unnt sé að gera því skil í stuttri grein. Ekki bætir úr skák að til talsetningar á bamaefni virðist svo óskaplega sparað að sami lesarinn (oft sami leikarinn) er látinn lesa fjölmörg hlutverk, jafnvel öll hlutverkin í myndinni, oft með kjánalegum og óvönduðum raddbreytingum. Það er vægast sagt bæði hallæris- og klúðurs- le^,. Islenskt sjónvarpsefni handa börnum er líka til. Það er að vísu talsvert einhæft og stund- um fremur myndskreytt út- varpsefni en sjónvarps. Brúðu- leikhús getur út af fyrir sig verið gott í sjónvarpi, en þegar það er orðið uppistaðan í því sem gert er fyrir börn er nokk- uð iangt gengið. Þá má og benda leikurum og öðrum á, sem iátnir em flytja bömum dagskrá, að það eru til ýmsar aðrar leiðir til að komast að huga og hjarta barna en að hafa í frammi glennuverk og fíflalæti. Þeir sem helst hafa farið á mis við sjónvarpsefni em trú- lega unglingar. Iðulega er ekk- ert efni handa þeim annað en myndskreyttar dægurflugur. Þó bregður stöku sinnum fyrir á skjá Sjónvarpsins unglinga- þáttum af öðra tagi, en þá er oft engu líkara en unglingar séu þriðja eða fjórða flokks neytendur. Nef margra umsjón- armannanna virðist ekki ná lengra en að fá fáeina skóla- nema ! illa undirbúinn spjall- þátt, þar sem ’spyijandinn virð- ist jafnvel óráðinn í því sjálfur um hvað fjaila skal, svo er bætt við þetta smáhugvekju um kynlíf unglinga eða getnaðar- varnir, skotið inn klaufalega leiknum skrítlum og horft á eitt eða tvö lög með Bubba Morthens. Þannig minnir mig að séu flestir unglingaþættir sem ég hef séð undanfarin ár. Unglingar eiga skilið, ekki síður en böm, vandað sjón- varpsefni og ég fer ekki ofan af því að margir þeirra þátta, sem framhaldsskólanemar gerðu fyrir Sjónvarpið fyrir fáum ámm og vom nefndir Annir og appelsínur vom eitt- hvert besta sjónvarpsefni sem hér hefur verið gert. Mér þykir sæta undrum að sjónvarps- stöðvamar skuli ekki nýta sér þá hugkvæmni og kraft sem býr með ungu skólafólki um allt land, ekki síst að fenginni góðri reynslu. Grundvallaratriðið er að börn og unglingar eiga að fá að njóta vandaðs og vel gerðs dagskrár- efnis. Þetta eru líka áhorfendur og ekki svo ósköp fáir. Það er sorglegt að þessu unga fólki skuli aðallega sýnt ódýrt fúsk. Ef til vill stafar það af því einu að það lætur ekki mikið í sér heyra og hangir ekki sífellt í frekjusímum kvörtunarútvar- panna. Sverrir Páll Erlendsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.