Morgunblaðið - 18.02.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
C 21
Bryndís Ólafsdótt-
ír Sepp —
Hvíl mig rótt, það hallar degi,
hvíl mig ljúfa þögla nótt.
Vef mig þínum vinarörmum.
Vagga mér í draumi rótt.
Hvíldu mig er höfði þreyttur,
hinsta sinn ég drúpi rótt,
Ber mig þá til bjartra sala,
blíða kyrra stimda nótt.
(B.Þ. Gröndal)
Bryndís Ólafsdóttir Sepp andað-
ist á Sólvangi þann 9. febrúar sl.
Með henni er genginn heill og glað-
ur persónuleiki og við viljum að
leiðarlokum minnast hennar með
fáeinum orðum.
Bryndís átti við veikindi að stríða
frá 1974 og síðustu ár ævinnar
dvaldist hún á Sólvangi. Við viljum
senda því góða fólki, læknum og
hjúkrunarfólki sem annaðist hana
þar, hugheilar kveðjur fyrir frábæra
umönnun og hlýju. En það er ein-
mitt í anda Bryndísar hlýhugur,
góðvild og glaðlyndi er okkur fannst
einkenna hana.
Þrátt fyrir veikindi sín brást skap
hennar ekki, mótlætið bar hún með
sama glaðlyndinu, þótt það væri
erfitt fyrir hana að leggja hendur
í skaut og geta ekki sakir veikinda
haft eitthvað fyrir stafni, iðjusemin
var henni eins og hennar kynslóð í
blóð borin.
Bryndís var líka glæsileg at-
hafnakona og það var viss reisn
yfir henni, sem hélst til hinsta dags,
er hún gekk sátt á vit almættisins
og andaðist með frið og ró í sinni.
Við munum stikla á stóru um
ætt Bryndísar. Hún fæddist 7. nóv.
1913. Foreldrar hennar voru Ólafur
Þórðarson skipstjóri og Ingveldur
Gestsdóttir matreiðslukona.
Sorgin gleymir engum og sex ára
gömul missir Bryndís móður sína,
en hún fékk að njóta föður síns og
síðar stjúpmóður, Guðrúnar Eiríks-
dóttur. Einnig naut hún þriggja
hálfsystkina: Sigrúnar Sigurjóns-
dóttur, Gísla Ólafssonar og Rögnu
Ólafsdóttur. Gísli og Sigrún eru nú
látin.
Bryndís ólst snemma upp við
margskonar vinnu og ung að árum
giftist hún fyrri manni sínum, Þor-
valdi Magnússyni skipstjóra úr
Hafnarfirði, en hann drukknaði eft-
ir skamma sambúð þeirra hjóna.
Slíkur missir varð Bryndísi mik-
ill harmur en hún lét ekki hugfall-
ast og var alltaf sjálfri sér sam-
kvæm, tók öllu sem lífið gaf, jafnt
gleði sem sorg með manndóm og
festu. Vitandi það að gleði lífsins
Minning
skulu menn veita viðtöku og varð-
veita í hjarta sínu, en eins verða
menn að taka á móti sorgum og
mótlæti með jafnaðargeði, minnug
þess að enginn gróður þrífst án
vætu.
Síðar á ævinni kynntist hún úti
í Danmörku Karli Sepp lögfræðingi
að mennt, er var af eistlensku bergi
brotinn. Þau giftust eftir stríðið og
ól Bryndís upp son Karls, Tómas
Pétur, sem nú er búsettur í Dan-
mörku. Karl og Bryndís dvöldu
m.a. í Argentínu um skeið, en lengst
af bjuggu þau í Hafnarfírði þar sem
Bryndís starfaði lengst af við versl-
unarstörf.
Já, minningarbrotin um elsku
frænku og mágkonu mína eru að
sönnu mörg sem bregður fyrir og
munu geymast í hugskotinu. Hún
bar með sér gleði. Hún var raunsæ
og jákvæð alla tíð og með þakklæti
minnumst við gleðistunda á jólum,
áramótum og afmælum. Hún var
mikil barnagæla og öll litlu bömin
í fjö'skyldunni nutu mannkosta
góðrar konu.
Við erum lánsamar að hafa þekkt
og fengið að njóta glaðværðar, hlýju
og sannrar vináttu og við vorum
heppnar að geta stutt Bryndísi á
síðustu augnablikunum í lífi hennar.
Guð geymi elsku Bryndísi. Hafi
hún þakkir fyrir allt sem hún hefur
gert fyrir okkur og fjölskyldur okk-
ar.
Hvíli hún í friði.
Lilja og Ragna
Vorfatnadurinn frá
^tíUC
coord/na/eó
kominn
Gubrún
Raudarárstíg, sími 615077
Við
l<y717114771:
cihlceðcisettin
frú Bretlctndi
Sófasett og stakir sófar