Morgunblaðið - 18.02.1990, Side 22

Morgunblaðið - 18.02.1990, Side 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990 Suðrið fagra CHRISTIAIMS r 1 f ; • J K • ' ^ ' Morgunblaðið/Einar Falur Garry Christian í Laugardalshöll. THE Housemartins lögðu breska poppheiminn að fótum sér með miklum lát- um 1986/1987; sendu frá sér tvær gull- og eina platínuplötu og hættu svo þegar hæst lét. Ekki gátu þeir þó allir hætt að fást við tónlist. Textasmiður og söngvari The Housemartins, Paul Heaton, og trymbill hennar, Dave Hemingway, ákváðu að taka upp þráðinn að nýju með nýjum samstarfsmönn- um. Til skjalanna kom Dave Rotheray, sem samdi lög og sveitin The Beautiful South varð til. Aðal The Beautiful South eru angurværir ástartextar, margir hveijir með kald- hæðnu ívafi, sem stangast á viðtónlistina, sem erglaðvær og létt. Paul Heaton segir þetta allt með ráðnum hug; þunglyndislegir textar passi einkar vel við létta tónlist, „á næstu plötu verður þessu þveröfugt farið: tónlistin þunglyndisleg og drungaleg, en textamir létt froða.“ Beautiful South er popp- sveit, segir hann einnig og „eftir 1992 verður rokktón- listin dauð, en poppið mun lifa áfram, við munum lifa áfram“. Eina sem bjátar á er að blaðamenn og ljós- myndarar séu alltaf að draga hann útúr og skilja hina í sveitinni útundan, „hinum líður eins og þeir séu í Tin Machine". BRESKU poppsveitina The Christians þekkja sjálfsagt margir, enda hélt sveitin hér eftirminnilega tónleika á listahátíð 1988. Fyrsta breiðskífa sveitar- innar kom út 1987 og seld- ist í bílförmum á Bret- landseyjum. Fyrir stuttu kom út önnur breiðskífan, Colour. Christians eru bræðumir Russell og Garry Christ- ian og Henry Priestman. Þeir Russell og Garry hófu tónlistarferil sinn sem söngtríóið Equal Tempera- ment með þriðja bróðumum Roger. Henry Priestman var hljómborðsleikari í rokksveit þegar hann heyrði fyrst í bræðmnum og hreifst af. Hann fékk þá til liðs við sig, og undir nafninu The Christ- ians náði sveitin útgáfu- samning við Island. Roger sagði skilið við bræður sín skömmu áður en fyrsta plat- an kom út og hefur starfað einn síns liðs síðan. Sem fyrr er það Henry Priestman sem semur nær öll lög og texta (reyndar öll nema eitt) og útsetningar eru í höndum hans. Það var ekki fyrr en á lokastigi sem platan fékk heiti og varð Colour (lit- ur) fyrir valinu, því þeim bræðmm fannst það eiga einkar vel við lögin á henni. Því má svo bæta við að Colo- ur fór beint í efsta sæti breska breiðskífulistans og er þar enn þegar þetta er ritað. DÆGURTÓNLIST Til hvers ab stœkka á sér eyrun? Hdmsrása BRESKA fyrirtækið Globestyle hefur verið í farar- broddi í útgáfu á heimshornapoppi, en slík tónlist er nú vinsælli á Vesturlöndum en nokkru sinni. Flest hafa fyrfrtæki scm gefa út slíka tónlist einbeitt sér að einni álfú eða landsvæði, þá helst Afríku eða S-Ameríku, þar sem af nógu er að taka, en Globestyle hefur Ieitað fanga ótrúlega víða. Er það vel, því þegar menn eru einu- sinni komnir á bragðið verða þeir haldnir einskonar framandlcikafíkn og verða í sífellu fá að heyra eitthvað nýstárlegra. Jova Stojiljkovic og hljómsveit Grísk/tyrkn- Til að kynna útgáfuna hefur fyrirtækið gefíð út tvær safnplötur. Fyrstu plötuna, sem út kom 1987 og hét Worldwide Your Gu- ide, ein- kenndi afrísk popptón- list og salsatón- list frá Mið- Ameríku, með eftir- minnilegu innskoti frá Mad- agaskar. Seint á síðasta ári kom svo út önnur safnplata frá Globestyle, Worldwider, Your Guider; fímmtugasta platan sem fyrirtækið gefur út. Enn ber mest á afrískri og s-amerískri tónlist, sem vonlegt er, en áherslur em aðrar og blandan er krydduð með tónlist frá Mið-Evrópu, Suðaustur-Asíu og Norður- Afríku. Á geislaútgáfu plöt- unnar em átján lög og heimsreisan tekur tæpar 80 mínútur. Tónlistin er eharanga frá esk/serbnesk danstónhst. Kúbu, jive frá S-Afríku, vallenato frá Colombíu, zo- uk frá Martinique, rai frá Alsír, serbnesk lúðrasveita- tónlist frá Júgóslavíu, tar- aab frá Tanzaníu og Zanz- ibar, mawlum frá Thailandi, valiha frá Madagaskar, benga frá Kenýa, farró frá Brasilíu og svo mætti lengi telja. Bestu lög disksins em frábært lag serbneska trompetleikarans Jova Stoj- iljkovié „Besir“ og lúðra- sveitar hans, Sampionski cocek; seiðandi taraab-lag, Nazi með Black Star Music- al Club frá Tanzaníu, og framandlegt mawlum-lag, Lam Toei Thammada, með Isan Slete frá Thailandi. Reyndar vom breiðskifum- ar sem þessi lög em af með þeim bestu sem komu út á síðasta ári (síðustu árum). Sérlega eftirminnileg er plata Jovas Stojiljkovics og sveitar hans sem á er grísk/tyrknesk/serbnesk danstónlist leikin af full- skipaðri lúðrasveit með bassatrommu. Einnig er eft- irminnileg platan Nyota frá Tanzaníu, sem á er taraab- tónlist af afrískum og arabískum uppruna. Fyrsta skrefið í átt að stærri eyrum og betra lífi er að fá sér Worldwider Your Guider og síðan að kaupa hinar piöturnar 49. eftir Árna Matthíasson WNOKKUÐe rnú liðið síðan síðasta plata Dire Straits kom út. Þrátt fyrir það er sveitin enn til, að sögn leiðtogans Marks Knopflers, en hann rekur aðra sveit, sem er í þá mund að senda frá sér sína fyrstu breiðskífu. Sveitin er óform- legur félgasskapur og heitir The Notting Hillbillys. Með Knopfler í henni er meðal annars gamall félagi hans, Brendnn Crocker, en eins og glöggir muna eflaust lagði Knopfler hon- um til gítarsóló á síðustu plötu Crockers. Knopfler mun aðeins eiga eitt lag á plötunni. Gítarrokk SMITHEREENS er bandarísk rokksveit sem er sjálfsagt mörgum að góðu kunn, enda hélt sveitin tvenna eftirminni- lega tónleika í Islensku óperunni snemma árs 1987. Smithereens stofnaði söngvarinn og gítarleik- arinn Pat DiNizio fyrir rúm- um tíu árum til að leika gamaldags gítarrokk að hætti Buddy Holly, Who og Bítlanna. Sveitin sendi frá sér tólftommu 1980 og náði samning við bandaríska fyr- irtækið Enigma 1985. Fyrsta breiðskífan, áður- nefnd Especially for You, kom út 1986 og seldist all- vel í Bandaríkjunum og víðar á löngum tíma, en komst á topp íslenska breiðskífulistans um það leyti sem sveitin kom hingað til lands. Pat sagði í viðtali fyrir stuttu að þegar þær Morgunblaðið/Bjami Pat DiNizio í óperunni. upplýsingar bárust að plat- an hefði farið á topp íslenska listans hefði hann gert sér ljóst að hljómsveitin ætti framtíð og tími væri til kominn að fara að taka hlutina föstum tökum. Næsta plata, Green Thoughts, var þó unnin á svipaðan hátt og Especially for You, samin á mettíma og tekin upp og hljóðblönd- uð^á 16 dögum (Especially for You á 10 dögum). Hún þótti misjöfn og náði ekki að auka mikið vinsældir sveitarinnar. Þeir félagar gáfu sér því drýgri tíma en áður til að taka upp næstu plötu. Lagasmíðar tóku þijá mánuði og platan, Smith- ereens 11, var unnin á rúmr um mánuði. Það hafði sitt að segja, því platan hefur hvarvetna fengið góðar við- t.ökur gagnrýnenda og selst mjög vel. Um þessar mund- ir siglir hún rólega upp bandaríska breiðskífulist- ann og allt virðist því benda til þess að íslenskir plötu- kaupendur hafí verið fyrstir til að uppgötva Smithereens en ekki síðastir. Man- chest- ersveit MANCHESTER hefúr ver- ið kölluð höfúðborg bre- skrar nýbylgju, enda hafa komið þaðan margar af fremstu bresku rokksveit- um seinni ára. Nægir þar að nefna Buzzcocks, Fall, Smiths, Joy Division, New Order, Stone Roses og Happy Mondays. Happy Monday telst ein hugmyndaríkasta rokk- sveit Bretlands um þessar mundir og plata sveitarinnar, Bummed, sem út kom á síðasta ári er ein eftirminni- legasta nýbylgjuplata seinni ára að mati gagnrýnenda, en upptökustjóri var Martin Hannett, sem meða annars hefur unnið mikið með Joy Division, New Order og Stone Roses. Happy Mondays Tónleikar í MH í mars. Tónlist sveitarinnar er nýstárleg fönk/rokk/popp blanda sem fellur vel í kram- ið hjá dansfíflum um gervallt Bretland. Vegur hennar fer og vaxandi og ekki er langt síðan hún lék fyrir á fjórða þúsund í Manchester og var öðrum eins fjölda snúið frá. Seint á síðasta ári átti Happy Mondays lag á breska vin- sældalistanum og fékk að koma fram í þættinum Top of the Pops fyrir vikið. Þess má svo geta að hinn frægi Steve Lillywhite útsetti lag á tólftommu sem út kem- ur á næstunni. Happy Mondays er er yfir- leitt nefnd í sömu andrá og önnur Manchestersveit, Stone Roses, .þegar spáð er í hvaða popp/rokksveitir eigi eftir að setja mestan svip á komandi áratug, enda þykja þær báðar vera frumlegar og um leið aðgengilegar. Af ofangreindu má ráða að mikill fengur er að því að fá Happy Mondays hingað til lands til tónleikahalds, en sveitin heldur tónleika í há- tíðasal Menntaskólans í Hamrahlíð 17. mars.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.