Morgunblaðið - 18.02.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MINIUINGAR
SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
C 25
Pálína G. Guðjóns-
dóttir - Minning
Fædd 12. maí 1920
Dáin 10. febrúar 1990
Elsku besta amma min, Pálína
Guðrún Guðjónsdóttir, er dáin.
Amma sem var alltaf svo góð og
umhyggjusöm. Hún átti ótakmark-
aða þolinmæði handa okkur og var
okkur svo eftirlátssöm, sem kom
fram í því að óskir okkar og þarfir
gengu fyrir öllu öðru, ekki síst eft-
ir að við fórum að búa í útlöndum.
Hún var alltaf svo glaðleg og við
vorum oft svo kátar þegar við vor-
um að spila og annað að gera.
Aðeins þriggja ára fór ég með
ömmu og afa til Mallorka um vor,
en þá kólnaði í veðri um tíma og
íbúðin sem við vorum í var svo
köld af þvi að hún var svo rök eft-
ir veturinn og við nöfnumar fengum
inflúensu í nokkra daga. Þá var
ekki gott að vera í svona órafjar-
lægð frá mömmu og pabba. Það
kemur oft upp í huga mér hve gott
það var að eiga hlýju og gæsku
þessarar indælu ömmu. Amma var
svo falleg og glæsileg og mikil reisn
yfir henni en samt látlaus og hóg-
vær og vildi ekki láta sínar þarfir
ganga fyrir svo að annarra þarfir
kæmust að. Það fannst okkur að
minnsta kosti þegar hún og afi
komu í heimsókn til okkar, til
Þýskalands síðastliðið haust, en þá
var hún orðin svo lasburða en samt
var hún svo dugleg. Við trúum á
Guð og við vitum að amma er hjá
Guði og að henni líður vel.
Við Pétur bróðir-minn erum svo
þakklát að hafa fengið að vera með
henni þó árin séu ekki fleiri. Guð
blessi hana og við biðjum hann að
hugga afa.
Pálína
Með örfáum orðum viljum við
minnast Pálínu Guðjónsdóttur fyrr-
um samstarfskonu okkar sem lést
í Landakotsspítala föstudaginn 10.
febrúar sl. eftir erfið veikindi. Kynni
okkar af Pálínu hófust fyrir mörg-
um árum þegar hún tók að sér að
vinna við útsendingar á verkefnum
Umferðarskólans Ungir vegfarend-
ur. Ennfremur þekktum við hana
sem eiginkonu starfsfélaga okkar í
mörg ár, Sigurðar Ágústssonar.
Pálína er okkur minnisstæð fyrir
margra hluta sakir en einkum þó
fyrir prúðmennsku og hlýju. Aldrei
heyrðist hún hækka röddina eða
taka sér stóryrði í munn — það var
ekki hennar máti. Störf sín vann
hún af einstakri trúmennsku og
vandvirkni svo ekki verður betur
gert.
Pálína var einkum húsmóðir enda
heimilið stórt og barnmargt. Hún
vann þó einnig við saumaskap og
var snillingur á því sviði. Pálína
giftist Sigurði Ágústssyni 17. apríl
árið 1943. Hann starfaði lengi í
lögreglunni í Reykjavík en síðar
sem fulltrúi hjá Umferðarráði. Þau
Sigurður eignuðust 5 mannvænleg
börn, þau Kristínu starfsmann
IfV
innréttingar,
Dugguvogi 23,
gæðanna vegna
Framleiöum
eldhúsmnréttmgar,
fataskápa,
baöínnréttingar
og sólbekki.
Leitiö tilboöa.
Eigum baöinnréttingar
álager.
Opið sunnud. frá kl. 13-18.
Reykjavíkurapóteks, Grétu skrif-
stofumann hjá Silkiprenti sf., Her-
mann flugmann hjá Landhelgis-
gæslu íslands, Guðjón starfsmann
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga og Helgu sem er húsmóðir og
býr í Vestur-Þýskalandi. Bama-
börnin eru orðin 15 og barnabama-
börnin em 3. Það fór ekki fram hjá
okkur að Pálína bar mikla um-
hyggju fyrir fy'ölskyldu sinni og
vann henni allt sem hún mátti.
Umhyggja Sigurðar fyrir konu
sinni í erfiðum veikindum var mikil
og er missir hans sár.
Við sendum honum, börhum
þeirra hjóna, bamabörnum og öðr-
um aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé minning Pálínu Guð-
jónsdóttur.
Starfsfólk Umferðarráðs
Kveðja frá barnabörnum
Föstudaginn 9. febrúar barst
okkur sú sorgarfregn að amma
Palla væri látin. Með nokkmm orð-
um langar okkur barnabörnin að
minnast hennar.
Þrátt fyrir að amma hafí átt við
sjúkdóm að stríða síðustu mánuði
kom þessi fregn okkur mjög á
óvart. Hún hafði sýnt svo mikinn
kjark og dugnað í baráttu við sjúk-
dóminn. í hjörtum okkar ríkir mikil
sorg. Það stendur í bók Kahil Gibr-
ans, Spámanninum, að þegar fólk
er sorgmætt eigi það að skoða aft-
ur hug sinn og þá muni það sjá að
það gráti vegna þess sem var gleði
þess. Amma og afi í „Njörvó" skip-
uðu stóran sess í lífí okkar. Heimili
þeirra var miðpunkturinn í fjöl-
skyldu okkar og áttum við þar
margar gleðistundir. Okkur var allt-
af jafn vel tekið hvort sem við vild-
um gista eða koma í heimsókn.
Amma og afí voru einstök hjón sem
innilega unnu hvort öðru.
Við eigum góðar minningar um
ömmu Pöllu. Hún var alltaf svo
elskuleg og góð við alla. Hún var
einkar handlagin og hafði sérstak-
lega gaman af ferðalögum, bæði
innanlands og utan. Á sumrin var
oft farið í sumarbústað og í dags-
ferðir í Heiðmörk, Herdísarvík og
Bolabás með nesti. Það var alltaf
mikið fjör og gleði. Margs fleira
mætti minnast og það munum við
gera í hjörtum okkar. Við munum
líka minnast þess hve afí reyndist
ömmu vel í veikindum hennar.
Megi góður Guð styrkja afa okk-
ar í sorg hans og söknuði.
ISUZU
Nýr Jötunn
Um áramótin voru Búnaöardeild Sambandsins, Jötunn hf og Bílvangur sf
' sameinuð í eitt fyrirtæki, sem heitir JÖTUNN, og tekur yfir
allan rekstur fyrirtækjanna þriggja.
Skrifstofur hins nýja JÖTUNS, sem er deild í Sambandinu, veröa opnaðar
mánudaginn 19. febrúar aö Höfðabakka 9.
Síminn er
670000
• Starfsemi Búnaöardeildar, nema varahlutaverslunin, flyst úr
Ármúla 3 að Höfðabakka 9.
• Varahlutaverslunin verður enn um sinn að Ármúla 3,
Hallarmúlamegin, sími 38900.
• Símanúmer bíla- og rafvélaverkstæða og varahlutaverslana
að Höfðabakka 9 verða óbreytt fyrst um sinn.
Veríð velkomin að Höfðabakka 9.
~ "" SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
HÖFÐABAKKA 9, SÍMI 670000