Morgunblaðið - 18.02.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
C 29
Sif Þorsteinsdóttir.
peninginn og svo hef ég líka gaman
af þvi sem ér er að gera.“ Allir fjór-
ir eru í foreldrahúsum og sögðu að
námslánin dygðu sæmilega.
í Odda, hinu glæsilega húsi Fé-
lagsvísindadeildar, er ys og þys
enda hið akademíska kortér nýbyrj-
að. Á miðju gólfi stendur stórt aug-
lýsingaspjald þar sem óskað er eft-
ir þátttakendum í „pictionary-
keppni“ Stúdentakjallarans. Nokkr-
ir nemendur hafa skráð sig á til-
heyrandi lista. Gunnar Ásgeirsson
og Vilhjálmur Vilhjálmsson sitja á
bekk upp við þil. Þeir eru báðir í
viðskiptafræði. Þeir segjast eyða
að meðaltali átta tímum á dag í
námið „fjórir tímar í tímum og fjór-
ir í undirbúning“. Gunnar vinnur
annan hvern laugardag og segir að
ekki sé mikill tími eftir til frístunda-
iðkunar. Vilhjálmur „er í skvassinu"
þegar tími gefst.
I Árnagarði er enginn búinn að
skrá sig í „pictionary-keppnina". í
anddyrinu situr ung kona sem er í
íslensku. „Námið er fullt starf,"
segir Sif Þorsteinsdóttir. „Það fer
eftir árstímum hversu miklum tíma
maður ver í námið. Tveir tímar á
dag a.m.k. fyrir utan tímasókn."
Sif á tvö börn og segist hugsa um
fjölskylduna í frístundum. Henni
gengur vel að láta enda ná saman
og tekur ekki námslán.
Afiiotagjöld RÚV:
Orsaka glæpa
ekkí að leita
hjá lögreglu
Til Velvakanda.
Sunnudaginn 11. febrúar s.l.
birtist í Velvakanda stutt bréf
frá Hafliða Helgasyni, sem bar yfir-
skriftina Ofbeldi og rán. Undirritað-
ur vill taka undir hau orð hans að
„víst sé borgin hrein og snyrtileg,
en hún verði einnig að vera án of-
beldis og glæpa“. En það verður
ekki gert með því að lögreglan leiki
„maður á mann“. brsaka ofbeldis
og glæpa í samfélaginu er ekki að
leita hjá lögreglu - þó hún geti
lagt sitt af mörkum til þess að koma
megi í veg fyrir slíkt. Orsakirnar
eru fyrst og fremst félagslegar,
umhverfíslegar, hugarfarslegar,
viðhorfslegar, aðhaldslegar og for-
dæmislegar. Læknum er ekki kennt
um ef einhver fær kvef, en alltaf
er hætta á að lögreglunni sé kennt
um ef hún er ekki nálæg þar sem
afbrot er framið. Þannig er alltaf
hætta á að lögreglan liggi jafnt
undir ámæli fyrir það sem hún ger-
ir og það sem hún lætur ógert. Ef
afbrot er framið er rétt að menn
beini reiðinni að afbrotamanninum
fremur en lögreglunni, jafnvel þó
hann sé ekki við hendina þá stund-
ina. Annars er hætta á að sá kæt-
ist, sem skammir á skilið.
Ómar Smári Ármannsson,
lögreglunni í Reykjavík.
Húsaleigan ét-
ur upp trygg-
ingabæturnar
Oryrki skrifar.
Eg bý í leiguhúsnæði hjá bænum
og leigan er tekin jafnóðum af
tryggingagreiðslunum. Er það ágætt
út af fyrir sig. En það sem verra er
að húsaleigan hækkar þriðja hvem
mánuð en tryggingargreiðslur
kannski ekki nema einu sinni á ári.
Þetta endar sem sagt með því að
tryggingargreiðslur fara allar upp í
húsaleigu.
Þá er ekki mikið til að lifa á, því
eins og hver maður getur séð þá
þarf fólk að hafa til hnífs og skeiðar
tii að geta dregið fram lífið.
Það er ekki réttlátt að fólk sem
leigir hjá bænum, er fullfrískt og í
fullri vinnu skuli ekki þurfa að borga
hærri leigu en öryrki. Því í ósköpun-
um er þetta fólk ekki látið greiða
fulla húsaleigu?
Nnr. 7257-8627
Núverandi innheimtukerfi óréttlátt
J. Gunnarsson skrifar:
Segja má að sjónvarpsstöðvamar
báðar hafí staðið sig mjög
þokkalega á sl. ári hvað efnisval
snertir. Allmikið af velgerðu
íslensku skemmti- og fróðleiksefni
hefir verið í dagskrám, vönduð og
fagmannleg fréttamennska ein-
kennir báðar stöðvarnar, að vísu
eru þó að mati undirritaðs fréttir
Stöðvar 2 yfírleitt nokkuð ýtarlegri.
Mjög væri vel þegið af mörgum
að Ríkissjónvarpið sýndi annað
slagið eitthvað af ágætum þáttum
(svarthvítum) frá fyrri árum sjón-
varpsins svo sem margskonar ágætt
skemrntiefni og viðtöl svo og af
danshljómsveitum þeirra tíma. Við
viljum gjarnan sjá og heyra aftur
marga af okkar uppáhalds söngvur-
um í dægurlagatónlist, nefna má
t.d. okkar dáðustu og glæsilegustu
dægurlagasöngkonum allra tíma á
íslandi, Ellý Vilhjálms, hljómsveit
Ingimars Eydals og Helenu og fjöld-
ann allan af listafólki okkar frá
fyrri áratugum.
Tónlistarval virðist einskorðast
um of bæði í sjónvarpi og útvarpi
við Bretland og Bandaríkin, gjarnan
mætti heyrast meira frá Þýska-
landi, Frakklandi, Ítalíu og Rúss-
landi. Nú þegar afnotagjöld ennþá
sem oftar hafa verið hækkuð og
látið í veðri vaka að það þurfi að
hækka ennþá meira á næstunni
verður sjálfsagt mörgum á að
spyija hvort ennþá eigi að sleppa
þeim notendum er skulda 200 millj-
ónir króna frá árinu 1988 en þeir
munu hafa breytt upp fyrir haus
og neitað að greiða, hafa þeir einn-
ig spilað frítt á sl. ári? Þá munú
til viðbótar um 15 þúsund notendur
hafa verið í felum með tæki sín.
Skilvísir notendur hafa síðan, með
sífelldum hækkunum, verið látnir
greiða fyrir allt þetta vanskilafólk.
Hin ófagra einkunnagjöf Ríkis-
endurskoðenda á sl. ári bendir ekki
beinlínis til að hjá stofnuninni séu
miklir áhuga- og kunnáttumenn í
bókhalds- og innheimtustarfsemi,
en þetta fyrirtæki okkar mun þurfa
um 5 milljónir á sólarhring til að
halda starfseminni gangandi nætur
og daga.
Undirritaður vill beina þeirri
spurningu til fjármálastjórnar RÚV
hvort eitthvað gangi að leysa þau
vandamál stofnunarinnar sem hér
að framan hafa verið nefnd?
Svo sem nú er komið í sjón-
varpsmálum á íslandi væri senni-
lega réttlátast og einfaldast að reka
fyrirtækið með fjármagni úr ríkis-
sjóði eða þá með notkun á mynd-
lyklakerfi. Það ber margt til þess
að núverandi innheimtukerfí verði
að teljast ákaflega óréttlátt. Einnig
má benda á, að á þeim fjárhagslegu
vandræðatímum sem nú ganga yfír
þjóðina væri sjálfsagt að stytta
dapkrár eitthvað, draga einnig úr
þeirri kappreiðakeyrslu sem ein-
kennir fokdýran efnisflutning um
gervihnetti, þá er einnig erfitt að
koma auga á hvaða tilgang það
hafí að keyra margar margar út-
varpsstöðvar að næturlagi.
frá Bretlandi munu sýna
módel sín með
sunnudagskaffihlaðborðinu.
Löwenbrau
brandara-
keppni
íkvöld.
Húsið opnað
kl. 21.00.
Aðg. kr. 100,-
LANPSBANKI
í S L A N D S
HÁM-flN
NÁMU NÁMSSTYRKiR
Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um
tvo styrki sem veittir verða NÁMU-félögum.
U Einungis aðilar að námsmannaþjónustu
Landsbanka Islands, NÁMUNNI, eiga rétt á að
sækja um þessa styrki.
B Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁM-
UNNI fyrir 15. mars 1990, eiga rétt á að sækja um
styrk vegna þessa námsárs.
B1 Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund
krónur og verða þeir afhentir í byrjun apríl 1990.
Ki Umsóknir er tilgreini námsferil, heimilishagi
og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka ís-
lands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
19 Umsóknir sendist til:
Landsbanki íslands, Markaðssvið,
b.t. Ingólfs Guðmundssonar,
Austurstrœti 11, 155 Reykjavík.
Náman er nafn á heildarþjónustu Landsbanka íslands, sem er sér-
staklega snidin að þörfum námsfólks. Allir námsmenn 18 ára og eldri
eiga rétt á að sœkja um aðild að þessari þjónustu.
í NÁMUNNl er nú m.a.:
- Einkareikningur með yfirdráítarheimild, 3 ókeypis tékkhefti,
einkareikningslán o.fl.
- Kjörbók, háir vextir, ekkert úttektargjald efkeypt eru verðbréf.
- Visa-kort strax við upphaf viðskipta.
- Námshkalán, allt að 500.000,-, lánstími allt að 5 ár, viðtal við
bankastjóra óþarft.
- Ráðdeild, þjónusturit Landsbankans, ókeypis áskrift.
- Filofax-minnisbók, ókeypis eftir 6 mánaða skilvís viðskipti.
- Styrkveiting, tveir styrkir á hverju ári.
- Dreifing og móttaka gagna fyrir Lánasjóðinn, eyðublöð og
bœklingar LÍN liggja frammi í afgreiðslum Landsbankans. Af-
henda má qII gögn sem eiga að fara til LÍN í afgreiðslum
bankans. Viðkomandi afgreiðslustaður sér síðan um að koma
gögnunum til LÍN samdœgurs.
- Ráðgjöf og upplýsingar, sérstök mappa með upplýsingum, út-
reikningum á greiðslubyrði lána o.fl.
Til að öðlast þessi réttindi þarfaðeins að stofna Kjörbók og Einka-
reikning. Peir námsmenn sem fá lán frá LÍN verða einnig að leggja
námslánin inn á Einkareikning.