Morgunblaðið - 18.02.1990, Qupperneq 30
30 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
ÆSKUMYNDIN...
ER AF KRISTNIBJÖRNSSYNIFRAMKVÆMDASTJÓRA
ÚR MYND ASAFNINU
ÓLAFURK. MAGNÚSSON
Stjómsamuren
drengurgóður
Húmoristi
með forystuhæfileika
Innrásin í
Tékkóslóvakíu
KRISTINN BJÖRNSSON fram-
kvæmdastjóri fæddist í
Reykjavík 17. april árið 1950.
Hann er sonur hjónanna Björns
Hallgrímssonar forstjóra og
Sjafnar Björnsdóttur. Kristinn
er kvæntur Sólveigu Pétursdótt-
ur lögfræðingi og varaþing-
manni, og eiga þau þijú börn.
Um mitt ár hættir Kristinn sem
framkvæmdastjóri Nóa-Sírusar
og tekur við starfi forstjóra Olíu-
félagsins Skeljungs.
Kristinn ólst upp á Fjólugötu til
6 ára aldurs, en síðan á Reyni-
mel. Á menntaskólaárunum flutti
fjölskyldan svo aftur á Fjólugötu. Á
Kjartansgötu tók hann reyndar
fyrstu skrefin, en eins og sannur
vesturbæingur hefur hann ekki hátt
.um-dvölina fyrir austan læk, í Norð-
urmýrinni.
Kristinn er næstelstur fjögurra
systkina og eini strákurinn. Eins
og gengur og gerist með fjöruga
stráka hafði hann töluverða
skemmtan af að stríða þeim yngri.
Algengast var að hann sendi systur
sínar í fyluferðir. Emilía Björg syst-
ir hans minnist þess er hann sendi
Sjöfn yngstu systur þeirra með
matadorpeninga út í búð að kaupa
sælgæti. Kristni var að sjálfsögðu
skemmt þegar sú stutta kom tóm-
hent og öskuill til baka.
Yfirleitt var mikið líf í kringum
Kristin. Þessi snaggaralegi, strákur
var ekkert sérstaklega frumlegur í
hugmyndum, en hann hafði næmt
auga fyrir skemmtilegum hliðum
mála. Hann var því eftirsóttur fé-
lagi, þótt hann væri stjórnsamur.
Sigurður Ámason læknir er einu
ári eldri en Kristinn. Þeir voru báð-
ir í Melaskóla en kynntust ekki
náið fyrr en í sumarvinnu í gras-
mjölsverksmiðjunni Brautarholti á
Kjalamesi. Þar byrjaði Kristinn að
vinna strax eftir annan bekk í gagn-
fræðiskóla. „Hann var góður dreng-
ur, en nokkuð skapstór. Hann var
húmoristi og því blessunarlega auð-
velt að fá hann til að sýna af sér
vingjarnlegan skepnuskap — og
ekki síst þess vegna var mjög gam-
an að honum,“ segir Sigurður.
Á æskuámm Kristins var hetjan
Zorro ein aðal fyrirmynd ungra
drengja. Kristinn las mikið og Zorro
ekki síður en aðrar bækur. Emilía
Björg rifjar upp þegar hann las
Zorro-bókina sem hún ætlaði hon-
um í jólagjöf. Kristinn spurði hana
lymskulega hvað hún ætlaði að
gefa honum og auðvitað gat hún
ekki ekki sagt honum ósatt.
Klukkutíma síðar kom hann aftur
til hennar og bað hana um skila
bókinni, gefa honum frekar „næsta
númer“.
Snemma kom í ljós að Kristinn
hafði forystuhæfileika. Hann átti
auðvelt með að gera gott úr hug-
myndum annarra, án þess að verða
neinn senuþjófur. Þessi eiginleiki
hefur æ síðan nýst honum og kem-
ur sér eflaust vel nú þegar hann
tekur við því stóra verkefni að stýra
Olíufélaginu Skeljungi.
Aðfaranótt 21. ágúst fóru her-
sveitir frá Sovétríkjunum,
Austur- Þýskalandi, Póllandi, Ung-
veijalandi og Búlgaríu
inn yfir landamæri
Tékkóslóvakíu án þess
að gera boð á undan
sér. Með þessari innrás
var endi bundinn á „vo-
rið í Prag“, sem svo var
kallað og einkenndist
af tilraunum Tékka til
umbóta í fijálsræðisátt undir for-
ystu Alexanders Dubceks. Sjálfur
var Dubcek sendur í útlegð og til-
raunir Tékka til umbóta á hinum
sósíalísku stjómarháttum brotnar á
bak aftur. Atburðir þessir ollu mik-
illi ólgu á Vesturlöndum og í flest-
um löndum voru haldnir fjölmennir
fundir til að mótmæla þessu ger-
ræði Varsjárbandalagsins. Í
Reykjavík var haldinn fundur við
Miðbæjarskólann þar sem ræðu-
menn voru Ellert B. Schram skrif-
stofustjóri, Jóhann
Hjálmarsson skáid,
Magnús Gunnarsson
stud. oecon og Ragn-
hildur Helgadóttir lög-
fræðingur. Fundarstjóri
var Birgir ísleifur
Gunnarsson hæstarétt-
arlögmaður. Að loknum
fundi var reynt að koma mótmælum
á framfæri í sovéska sendiráðinú
við Túngötu, en allir sendirráðs-
starfsmenn þá sagðir vera í fríi og
enginn fékkst til að taka á móti
mótmælunum. Meðfylgjandi mynd-
ir voru teknar á mótmælafundinum
við Miðbæjarskólann og á tröppum
sovéska sendiráðsins 21. ágúst
1968.
Birgir ísleifúr á tröppum sovéska sendiráðsins.
STARFID
' BJÖRKBJARKADÓTTIR, YFIRFANGAVÖRÐUR í
HEGNINGARHÚSINU
BÓIUN
ÁNÁTTBORÐINU
Þeirkalla
migmommu
„ALLIR, SEM fara í fangelsi á
Islandi, mæta fyrst í Hegningar-
húsið við Skólavörðustig. Þaðan
er þeim dreifl í hin fangelsin að
aflokinni læknisskoðun. Hér erum
við með tuttugu fanga sem eru
að afplána 30 til 40 daga varð-
hald. Einnig sitja hér svokallaðir
lausagæslumenn og öryggisgæslu-
menn eru þeir, sem dæmdir hafa
verð ósakhæflr vegna geðveiki. í
Hegningarhúsinu sitja nú tveir
slíkir þar sem engin stofnun vill
taka við þeim,“ segir Björk
Bjarkadóttir, yfirfangavörður í
Hegningarhúsinu, en hún hefur
auk þess verð formaður Fanga-
varðafélags íslands síðustu tíu
árin. í félaginu eru 70 fangaverð-
ir, þaraf lOkonur.
Hún segir að 30-40 daga fang-
amir séu mestmegnis þeir,
sem dæmdir hafa verið til fangelsis-
vistar fyrir ölvunarakstur. „Al-
menningur virðist ekki vita að þriðja
brot við ölvunarakstri þýðir minnst
30 daga varðhald. Menn komast
ekkert hjá því. Þessir fangar em
úr öllum stéttum og á öllum aldri.
Menn taka þessu auðvitað misjafn-
lega. Það geta verið erfið sporin
að koma hérna inn.“
— Hvernig taka fangarnir þér
sem fangaverði?
„Þeir eru ósköp ljúfir greyin.
Þeir kalla mig mömmu.“
Björk segir að 150 íslendingar
hafi nú verið boðaðir í fangelsi.
Hinsvegar væru þau öll stútfull sem
stendur og því væru menn ekki
sóttir heim nema pláss losnaði.
Edda Mary
Oddsdóttir
starfsstúlka í
kaffiteríu og
nemi
Mér finnst ofsalega, gaman að
ævintýrabókum. Ég hef lesið
flestar bækurnar um „Litlu vampír-
umar“. Það eru góðar ævintýr-
abækur. Skólabækumar vekja hins-.
vegar ekki eins mikinn áhuga hjá
mér.
ÞETTA SÖGÐU
ÞAU ÞÁ...
Kveinstafirnir yfir því að
Charta ’77 fái ekki inni
í tékkneskum fjölmiðlum eru
ekki meinið, Árni (Bergmann),
— meinið er að þeir hafa ekki
hljómgrunn lengur. Með þann
hljómgrunn hefðu þeir betri
stuðning en í opinberum fjöl-
miðlum. Maður sem er kunnug-
ur fyrir austan veit það.
Síðast las ég Sölku Völku eftir
Halldór Laxnes, að mig minnir.
Ég á ekki safnið hans, en ég hef
töluvert gluggað í Laxnes. Ég er
mun meira fyrir íslenskar bók-
menntir heldur en erlendar eða
þýddar.
Eyjólfur Frlð-
geirsson i Þjóð-
viljanum 9.
ágúst 1983.
Aldís Hö-
skuldsdótt-
ir verslunar-
maður
PLATAN
ÁFÓNINUM
MYNDIN
ÍTÆKINU
Þóra
Óskars-
dóttir starfs-
stúlka í versl-
uninni Serbiu
Eg á mikið af gömlum hljómplöt-
um, þetta 45-50 ára. Þetta eru
plötur með lögum eftir gömlu
klassísku meistarana, Liszt,
Strauss, Lehar og fleiri slíka. Þetta
er gersémi. Slíka tónlist vil ég heyra
og úr því ég hlusta svo mikið á
útvarp, vil ég heyra meira af þess-
ari tónlist þar.
Eg tek ekki mikið af mynd-
böndum á leigunum. Þó finnst
mér gaman að horfa á grínmyndir.
Síðast sá ég grínmyndina „Skolla-
leikur" með grínistanum Richard
Pryor í aðalhlutverki.
Sigrún
Fjóla Hilm-
arsdóttir
nemi
Ingunn
UnnurJó-
hanna
Helmick
nemi
að er svo ósköp misjafnt hvaða
tónlist ég hlusta á. Síðustu
dagana hefur þó „Eddie Brickel and
the New Bohemians“ verið oftast á
fóninum hjá mér. Við systkinin
hlustum líka mikið á hljómsveitina
„Cure“.
Mér finnst æðislega gaman að
góðum spennumyndum og ég
hef séð mikið af þeim nýlega.
Grínmyndirnar eru líka ágætar
sumar. Ég hef nýlega séð spennu-
myndina „Læknanemar" og einnig
sá ég um daginn „Johnny Hand-
some“. Hún var mjög góð.