Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 23
JlliprgpttMfiiMli
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Fóstra
Fóstru vantar á skóladagheimilið Brekkukot
frá og með 1. mars.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
604357.
Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri
Staða yfirsjúkraþjálfara við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar.
Staðan er veitt frá 1. maí nk.
Ein staða yfirsjúkraþjálfara er laus til um-
sóknar.
Staðan veitist frá 1. júní nk.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður
veitir Jos Otten, yfirsjúkraþjálfari, í síma
96-22100.
Á undanförnum mánuðum hefur aðstaða til
sjúkraþjálfunar verið endurbætt á sjúkrahús-
inu.
Upplýsingar, um nám og fyrri störf, sendist
framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Halldóri
Jónssyni, fyrir 15. mars 1990.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
LANDSPÍTALINN
Barnaspftali
Hringsins
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar eða
eftir samkomulagi á barnadeildir 1 og 3.
Starfið er mjög fjölbreytt. Boðið er upp á
góðan aðlögunartíma með reyndum hjúkr-
unarfræðingum. Unnið er 3ju hverja helgi
og sveigjanlegur vinnutími. Gott bókasafn
og möguleiki á símenntun.
Hjúkrunarfræðingur óskast í sumarafleys-
ingar á vökudeild.
Fóstrur og/eða þroskaþjálfar óskast til
starfa nú þegar. Um er að ræða tvær stöður
við almennar legudeildir. Starfið er fjölbreytt
og skemmtilegt fyrir þá, sem áhuga hafa á
starfi með börnum á ýmsum aldri.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir
Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601333 eða 601000.
Umsóknir sendist til Herthu W. Jónsdóttur
eða skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Reykjavík 25. febrúar 1990.
Afgreiðslustörf
—vaktstjórn
Traust verslunar- og þjónustufyrirtæki, með
SÖIustaði víða á höfuðborgarsvæðinu, óskar
að ráða starfsmenn til verslunarstarfa.
Leitað er að samviskusömum og heiðarleg-
um starfskröftum, sem auk starfáreynslu,
hafa áhuga á þjónustu við viðskiptavini.
Vaktavinna - vaktstjórn. Æskilegur aldur
25-40 ára.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „A - 7642“, fyrir 1. mars.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmaður á lager
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur góðan
starfsmann á lager bókaforlagsins. Starfið
sem er fjölbreytt og skemmtilegt, felst með-
al annars í umsjón með bókabirgðum, pökk-
un og afgreiðslu á bókum fyrir klúbba forlags-
ins og afgreiðslu á pöntunum til bókaversl-
ana. Viðkomandi mun leysa bílstjóra okkar
af og þarf því að hafa bílpróf. Við leitum að
áhugasömum starfsmanni, sem er tilbúinn
að leggja á sig mikla vinnu, þegar á þarf að
halda.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Vöku-Helgafells, Síðumúla 29,108 Reykjavík,
fyrir föstudaginn 2. mars nk.
VAfcftT;*
HELGAKLll
Síðumúla 29, Reykjavík.
Bókari
Þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða
starfsmann til að annast bókhald fyrirtækis-
ins. Heilsdagsstarf hjá traustu og vaxandi
fyrirtæki.
Við leitum að manni með góða starfs-
reynslu, sem hefur unnið að bókhaldsstörf-
um í nokkur ár og er tilbúinn að axla mikla
ábyrgð í starfi. Æskilegur aldur 25-35 ár.
Stúdentspróf af verslunarsviði eða sambæri-
leg menntun skilyrði.
í boði er sjálfstætt ábyrgðarstarf hjá traustu
fyrirtæki sem býður metnaðargjörnu og dug-
legu fólki gott framtíðarstarf. Æskilegur byrj-
unartími mars/apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar.
Hagvai nsurhf
^ i Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Húsvörður
Húsfélag í háhýsi í Breiðholti óskar að ráða
húsvörð sem fyrst. Getur hentað fyrir hjón.
Um fullt starf er að ræða. Frítt húsnæði (2ja
herb. íbúð) og laun skv. samkomulagi, Alger
reglusemi áskilin og meðmæli.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. mars, merktar: „H - 7640“.
Starfsmaður
tækni/tölvudeild
Öflugt þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða
starfsmann til starfa í tækni- og tölvudeild.
Starfið er laust sem fyrst.
Viðkomandi þarf að hafa stúdentspróf eða
sambærilega menntun og góða þekkingu á
einmenningstölvum og helst undirstöðu-
þekkingu á nærnetum og tölvusamskiptum.
Starfið felst í þjónustu við notendur og
rekstri á hinum dreifða hluta tölvukerfis fyrir-
tækisins. Laun samningsatriði.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar. Fullur trúnaður.
Umsóknarfrestur er til 4. mars nk.
ClJÐNI TÓNSSON
RÁÐCJÓF & RÁÐN l NCARMÓN LlSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
LANDSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Nú eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á
handlækningadeild 1, 12-A. Hjúkrun á deild-
inni er mjög fjölbreytt og býður upp á nokkra
sérhæfingu, t.d. í sárameðferð. Unnið er eftir
deildarmarkmiðum, sem miða að því að auka
gæði hjúkrunar. Boðið er upp á einstakl-
ingshæfða aðlögun með hjúkrunarleiðbein-
anda. Á deildinni er mjög góður starfsandi.
Við bjóðum þeim hjúkrunarfræðingum, sem
áhuga hafa, að koma í heimsókn og ræða við
hjúkrunarframkvæmdastjóra og hjúkrunar-
fræðinga deildarinnar.
Upplýsingar gefa Elín J. Hafsteinsdóttir,
deildarstjóri, sími 601310, og Anna Stefáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími
601366 eða 601000.
Hjúkrunarfræðingur óskast á lyflækninga-
deild 11-B í 80% starf. Deildin er 5 daga
deild.
Upplýsingar gefa Anna Hafsteinsdóttir,
deildarstjóri, sími 601235, og Laufey Aðal-
steinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 601290 eða 601000.
Reykjavík, 25. febrúar 1990.