Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
til að geta komið á fót aðskilnaðar-
hreyfíngu. Sama megi sennilega
segja um ungverska þjóðarbrotið í
Rúmeníu, þótt það sé ekki eins víst.
Landmæri Ungveijalands og Rúm-
eníu hafi verið ákveðin á löglegan
hátt með samningum, sem voru und-
irritaðir eftir fyrri heimsstyijöldina.
Mortimer segir að yfirleitt hafi
nauðungarflutningar þjóðabrota í
Austur- og Mið-Evrópu í síðari
heimsstyijöldinni og í kjölfar hennar
gert landamæravandamál einfaldari
og dregið úr þjóðemisvandamálum.
Líklegt megi telja að í ríkjum, þar
sem þjóðarbrot séu enn vandamál,
verði þau mál í bezta falli leyst með
því að veita þjóðarbrotunum full
menningarleg og pólitísk réttindi eða
í versta falli með frekari fólksflutn-
ingum, fremur en með breytingum á
landamærum.
Hnignun Rússaveldis
Tvær líklegustu undantekningarn-
ar eru Júgóslavía
og Sovétríkin að
mati Mortimers
— auk Austur-
Þýzkalands, sem
er mjög_ sérstakt
tilfelli. í báðum
þessum löndum
búa margar þjóð-
ir og mikil sundr-
ung ríkir í þeim
báðum. Mortimer
álítur að Sov-
étríkin verði að
minnsta kosti að
láta ,af hendi illa
fengna landvinn-
inga Stalíns frá
1940 og leyfa
Eystrasaltslöndunum þremur að lýsa
yfir sjálfstæði og Moldavíumönnum
að sameinast samlöndum sínum í
fijálsri Rúmeníu.
Hins vegar telur hann að landvinn-
ingamir á kostnað Pólveija 1939
kunni að reynast lífseigari, þar sem
sárafáir Pólveijar búi enn í Vestur-
Úkraínu og Hvíta Rússlandi. í Vest-
ur-Úkraínu hefur þjóðernishyggja á
hinn bóginn eflzt eins og fram kem-
ur í málvernd og stuðningi við Un-
iat-(kaþólsku)kirkjuna. íbúar Aust-
ur-Úkraínu hafa hins vegar aðlagazt
siðum, háttum og viðhorfum Rússa
í miklu ríkari mæli. Því segir Mort-
imer að vel megi hugsa sér að núver-
andi Úkraínu-lýðveldi klofni í tvennt,
þótt báðir hlutarnir verði tengdir
Rússlandi.
En munu Sovéríkin halda velli?
spyr hann. Þeirri spumingu verður
sífellt erfiðara að svara að hans sögn.
Kommúnistar geti ekki lengur hótað
valdbeitingu og þeir geti ekki varð-
veitt einingu rússneska heimsveldis-
ins með hugmyndafræðilegum rök-
um eingöngu, á sama hátt og þeir
geti ekki haldið þýzku ríkjunum að-
skildum. Með hveijum deginum sem
líði virðist draga úr sovézkum ein-
kennum Rússlands, en rússnesku
einkennin aukast. Líkur séu því á
því að alllöngu fyrir árið 2020 muni
önnur lýðveldi en hið rússneska iosa
sig við sovézka stjórnarhætti.
Tyrkneskt sambandsríki?
Rússland eitt sér mundi samt ná
alla leið til Kyrrahafs og yrði ennþá
heimsveldi. Einnig getur verið að
Rússum takist að halda hinum slavn-
esku frændum sínum í Úkraínu og
Hvíta Rússlandi með sér í ríkjasam-
bandi. En líklega fara þjóðir Mið-
Asíu og Kákasushéraðanna, sem eru
ekki Slavar, eigin leiðir að mati
Mortimers.
Þær þjóðir, sem játa múhameðstrú
og heyra til tyrkneskum málaflokk-
um og menningu, kunni að komast
að því að þær eigi meira sameigin-
legt með Tyrkjum (og tyrknesku-
mælandi íbúum Norður-Irans) en
Rússum, Armenum og Georgíu-
mönnum. Þær kunni því að bindast
samtökum til að tryggja öryggi sitt
og ef til vill koma á fót nýju banda-
lagi við Rússa, þegar sjálfstæði
þeirra hafi verið viðurkennt.
í Júgóslavíu getur svo farið að
Serbum takist að smita samlanda
sína í Montenegro (Svartfjallalandi)
af sterkri þjóðerniskennd, sem þeir
hafa fyllzt á nýjan leik. Þeim mun
hins vegar ekki takast að undiroka
múhameðska Albana í Kosovo. Einn
góðan veðurdag munu Albanar taka
þann kostinn að sameinast frjálsri
Albaníu að sögn Mortimers, en Kró-
atar og Slóvenar, sem óttast tilkall
Serba til yfirráða, hafa aftur upp-
götvað tengsl sín við aðrar þjóðir
gamla Habsborgarríkisins.
Bandaríki Vestur-Evrópu
Mortimer gerir líka ráð fyrir því
að framhald verði á tilhneigingum
til myndunar ríkjahópa í Evrópu.
Hann telur einnig að samstaða Vest-
ur-Evrópa muni haldast og að ótti
við sovézk yfirráð muni þoka fyrir
þörf á því að leggja traustan grunn
að skipulagi nýrrar Evrópu. Morti-
mer telur að kjarni nýs skipulags
álfunnar verði „Bandaríki Vestur-
Evrópu", sem hann nefnir svo, og
gerir ráð fyrir að þau muni að
minnsta kosti ná til nýs og samein-
aðs Þýzkalands, Frakklands, Ítalíu
og Benelux-landanna.
Hann hyggur að meira hiks muni
gæta í löndunum á útjaðri núverandi
Evrópubandalags, en gizkar á að
hvorki Spánn né Bretland muni geta
sætt sig við að
nýr áfangi í
' skipulagningu
Evrópu hefjist án
þátttöku þeirra
og að aðild þeirra
muni einnig leiða
til aðildar ná-
granna þeirra —
Portúgala og íra.
Hins vegar er
hann þeirrar
skoðunar að Dan-
ir muni að lokum
komast að því að
tengslin við hin
Norðurlöndin séu
mikilvægari og
ekki eins þrúg-
andi og tengslin við EB. Grikkland
muni taka að sér forystuhlutverk á
Balkanskaga þegar leifum tyrkn-
eskra áhrifa og áhrifum kommúnista
hafi verið eytt.
Mortimer telur einnig að aukinn
samruni Evrópu muni gera Skotum,
Katalóníumönnum, Böskum, Flæm-
ingjum og Vallónum kleift að lýsa
formlega yfir sjálfstæði, án þess að
þeir þurfi að fóma hagkvæmum
tengslum sínum við þær þjóðir, sem
þeir eru tengdir nú. Minni líkur séu
á skilnaði Englands og Wales, sem
muni grípa tækifærið og losa_ sig við
ábyrgðina á stjórn Norður-írlands.
(En Irland muni ekki sameinast, þótt
báðir hlutamir muni sækja um aðild
að Bandaríkjum Vestur-Evrópu.)
Briissel verður höfuðborg Banda-
ríkja Vestur-Evrópu og fer með
stjórn eigin mála að sögn Mortimers.
Nýtt Habsborgarríki?
Hann segir að þótt Austurríkis-
mönnum muni ef til vill þykja freist-
andi að ganga í Bandaríki Vestur-
Evrópu muni Austurríki óhjákvæmi-
lega taka aftur við hlutverki sínu frá
tímum Habsborgarríkisins sem mið-
stöð Mið-Evrópu. Þar verði komið á
fót ríkjasamtökum, sem muni ná frá
Póllandi í norðri til Króatíu-Slóveníu
í suðri, og rómverskt-kaþólskt fólk
verði þar í meirihluta. Rúmenar
muni einnig ganga í þetta ríkja-
bandalag, þótt þeir séu grísk-kaþ-
ólskir, til að leggja áherzlu á róm-
anska menningu sína og komast hjá
þjóðemisátökum.
Þótt Svisslendingar telji sig til-
heyra Vestur-Evrópu muni þeir
sennilega heldur kjósa að eiga aðild
að frjálslegri Mið-Evrópusamtökum
— einkum þar sem Mið-Evrópa muni
eins og önnur svæðabandalög, sem
minnzt hefur verið á, verða tengd
Bandaríkjum Vestur-Evrópu, bæði
á„evrópska efnahagssvæðinu", sem
Mortimer kallar svorog í Evrópuráð-
inu. Þar með verði tryggður fijáls
aðgangur að öllum mörkuðum og
lágmarks-mannréttindi verði einnig
tryggð.
Mortimer segir að öll Evrópuríki,
og auk þeirra Bandaríkin og Kanada
(og ef til vill Japan), verði aðilar að
Oryggissamtökum Evrópu, sem
komið verði á fót í framhaldi af
Helsinki-viðræðunum með samruna
NATO og Varsjárbandalagsins. Þessi
samtök muni ákveða hve stórum
herafla hvert aðildarríki megi hafa
á að skipa (og hve stór hann þurfi
að vera) og muni geta skorað á hvert
þeirra um sig eða þau öll í samein-
ingu að hrinda hvers konar ógnun
við friðinn.
GH
Hvernig
verður
umhorfs i
álfunni
efftir 30
ár?
S>3
Honda 00
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
Verð frá 1180 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIRALLA.
HHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
SKIPA PLOTUR - INNRETTINGAR
SKIPAPLÖTUR í LESTAR
BORÐ-SERVANT PLÖTUR
: I I IWC HÓLF MEÐ HURÐ
* I ' l'RABHFRRFRGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR
NORSK ZIÐURKENND HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞORORlMSSON &C0
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
ORÐSENDIIMG
UM LEIÐRÉTTINGU Á VERÐBÓTUM
Á SKYLDUSPARNAÐI
Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga, sem
búsettir eru erlendis eða sem látist hafa og
söfnuðu skyldusparnaði á árunum 1957
til l.júíí 1989, eru hér með hvattir til að kanna
í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur
vegna leiðréttinga á verðbótum liggi þar fyrir.
Allar leiðréttingar til þeirra, sem áttu skráð
heimilisfang hér á landi 1. desember 1989 s.l. hafa
verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar-
greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis
og sem látið er.
í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að
greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á
skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða
verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum.
Leiðréttingarnar vörðuðu tímabilið l.júní 1957 til
1 .júlí 1980 og náðu aðeins til hluta þeirra sem áttu
skyldusparnað umrætt tímabil.
Upplýsingasímar eru 696946 og 696947
kl. 10-12 virka daga.
A HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
KRYNINGARHATIÐ
Á HÓTEL ÍSLANDI í KVÖLD
Kosnar verða
ungfrú
Hollywood,
sólarstúlka
Úrvals/Útsýnar
og Ijósmynda-
fyrirsæta
Samúels
Húsið opnar
með fordrykk
kl. 19.00
Matseðill:
Rjómasúpa
Agnes Sorelle
og nauta-
barbeque
ungu
kynslóðarinnar.
Glæsileg kvöldskemmtun
Keppendurnir koma fram í Cosmo-klæðum og sundbolum.
HLH-flokkurinn flytur sín vinsælustu lög.
Ruth Reginalds syngur
Módel 79 með enn eina stórsýninguna.
Frumsýning á mögnuðu, suðrænu dansatriði, Mambo Jambo.
Kynnir: Bjarni Haukur Þórsson.
SAMUEL 0 HOLLYWOOD • STJARNAN • ÚRVAL/ÚTSÝN
FLUGLEIÐIR • KRISTA • SEBASTIAN • BUDWEISER
COSMO • SÓLBAÐSTOFA REYKJAVÍKUR • HÓTEL ÍSLAND
STÚDÍÓ JÓNÍNU OG ÁGÚSTU