Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
ERLENT
INNLENT
6 milljarða
halli á rík-
• • P >c •
ÍSSJOÖI
Halli ríkissjóðs nam 6.055
milljónum króna síðastliðið ár
samkvæmt bráðabirgðatölum
íjármálaráðherra. Á fjárlögum
var hins vegar gert ráð fyrir um
630 milljóna hagnaði.
Landsbanki greiðir SÍS 60
milljónir
Bankastjór-
ar Landsbank-
ans ákváðu að
leggja nærri
60 milljónir
króna inn á
reikning Sam-
bands
- íslenskra samvinnufélaga í bank-
anum til leiðréttingar á vöxtum
vegna kaupa bankans á hluta-
bréfum SÍS í Samvinnubankan-
um.
Atvinnurekendur telja að
leggja þurfi niður 370
störf
Fólk vantar í fiskvinnslu, en
í öðrum greinum þarf að fækka
störfum um 370 á landinu öllu,
að áliti atvinnurekenda. Þeir
virðast þó tregir til að segja upp
fólki, fækkað hefur um 60%
starfa sem talið var í haust að
leggja þyrfti niður. Athugun
Þjóðhagsstofnunar á atvinnu-
ástandinu leiddi þetta í ljós.
Frumvarp um
fiskveiðastjórnun
Nýtt lagafrumvarp um stjóm-
un fiskveiða var lagt fram á
Alþingi í vikunni. Það gerir ráð
fyrir afnámi sóknarmarks við
fískveiðastjómun, en með því að
stjóma veiðum aðeins eftir afla-
marki verða allar aflaheimildir
framseljanlegar. Sjávarútvegs-
ráðherra telur að víðtækar fram-
salsheimildir þurfí til aukinnar
hagræðingar, en fulltrúar yfír-
manna á fískiskipaflotanum vilja
takmarka þær verulega.
Enn deilt um aflamiðlun
Utanríkisráðuneytið og
Landssamband íslenskra útvegs-
manna deila um skipun stjómar
fyrirhugaðrar aflamiðlunar. LÍÚ
vill 2 fulltrúa í 5 manr.a stjóm
en ríkisstjómin vill samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins einn
fulltrúa frá hveijum aðila og að
þeir geri samkomulag um odda-
niann.
Saltfiskur fyrir 5-6
milljarða
Saríiið hefur
verið um sölu
á saltfíski til
Ítalíu, Grikk-
lands, Spánar
og Portúgal
fyrir 5-6 millj-
arða króna.
Magnið er
svipað og í
fyrra en verð til framleiðenda
hækkar að meðaltali um 10-12%.
Verð lækkar þó hugsanlega þeg-
ar líður á árið vegna tolla í Evr-
ópubandalaginu.
ERLENT
Tillaga
um einn
þýskan her
Theodor Hoffman, vamarmála-
ráðherra Austur-Þýskalands,
hvatti á fímmtudag tii þess að
ríkisstjórnir þýsku ríkjanna hæfu
viðræður um stofnun eins hers í
sameinuðu Þýskalandi. Austur-
þýska stjómin samþykkti sama
dag að leggja fyrir þingið ný lög,
sem heimiiuðu öllum að stofna
fyrirtæki og kvæðu ennfremur á
um einkavæðingu fyrirtækja, sem
áður voru þjóðnýtt.
Carlsson hyggst mynda
ríkisstjórn
Ingvar Carls-
son, forsætisráð-
herra í bráða-
birgðastjóm
sænskra jafnað-
armanna, ákvað
á fimmtudag að
verða við form-
legum tilmælum
forseta þingsins
um að mynda nýja stjórn. Þykir
víst að þingmenn kommúnista
styðji stjómina gegn því að að
numið verði á brott úr efnahagstil-
lögum jafnaðarmanna, sem þingið
felldi, ákvæði um bann við verk-
föllum og launastöðvun. ,
Havel í Bandaríkjunum
Vaclav Havel,
forseti Tékkó-
slóvakíu, ávarp-
aði Bandaríkja-
þing á miðviku-
dag og hvatti
Bandaríkjamenn
til að styðja Sov-
étmenn á leið
þeirra til iýðræð- Vaciav Havci
is. Hann sagði senn verða hægt
að sameina mannkynið og ítrekaði
von sín um heim án hemaðarb-
lokka. Hann kvað Atlantshafs-
bandalagið hafa tryggt frelsi í
Evrópu og gaf í skyn að það hefði
sennilega komið í veg fyrir ge-
reyðingarstríð.
Hernum beitt í Kosovo
Ríkisstjórn Júgóslavíu fyrir-
skipaði á þriðjudag her landsins
að bijóta á bak aftur þjóðaólgu í
héraðinu Kosovo þar sem að
minnsta kosti þijátíu manns hafa
beðið bana í óeirðum í mánuðin-
um. Einnig var sett útgöngubann
í héraðinu.
Sljórnarflokkurinn í
Japan heldur velli
Fijálslyndi
lýðræðisflokkur-
inn í Japan, sem
farið hefur með
völdin í landinu í
35 ár, bar sigur
úr býtum í kosn-
ingum til neðri
deildar japanska
þingsins á __________________^
sunnudag og ansT'
hélt öruggum meirihluta sínum í
deildinni. Flokkurinn fékk 275
þingsæti, ívið færri en í síðustu
kosningum árið 1986. Sósíalista-
flokkurinn bætti við sig 51 þing-
sæti, fékk 136, en aðrir flokkar
töpuðu fylgi.
Mótmæli I Rúmeníu
Mótmælendur réðust inn í
bækistöðvar rúmenskra valdhafa
á sunnudag og kröfðust afsagnar
Ions Iliescus, forseta Rúmeníu,
vegna fortíðar hans í kommúni-
staflokknum. Þeir veittust að Gelu
Voican aðstoðarforsætisráðherra
og yfirheyrðu hann í þijár klukku-
stundir. Iliescu fordæmdi mót-
mælin og varaði við því að ástand-
ið væri farið að minna á Líbanon.
.i :..r.i
Sviss:
Hæstiréttur sýknaði
fyrsta kvenráðherrann
Zlirích. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ELISABETH Kopp, fyrrverandí
dómsmálaráðherra Sviss, var
sýkriuð af ákæru um embættisbrot
í gær. Ákæruvaldið fór fram á
2.000 - 8.000 sv. franka (80.000 -
320.000 ísl. kr.) fjársekt en hæsti-
réttur sýknaði hana vegna ófull-
nægjandi sannana. Hún mun þó
bera hluta málskostnaðarins.
Renate Schwob, lögfræðingur í
ráðneytinu, var einnig sýknuð en
Katharina Schoop, náin sam-
starfskona Kopp, var fundin sek
en sleppur við refeingu.
Kopp var fyrsti kvenráðherra
Svisslendinga. Hún sagði af sér
embætti í desember 1988 eftir að
hafa reynt að skrökva að þjóðinni
um viðvörun sem hún gaf manni
sínum, Hans W. Kopp, úr ráðuneyt-
inu í lok október. Hann sat þá í
stjórn Shakarchi-fyrirtækisins. Það
kom við sögu í skýrslu sem Schwob,
lögfræðingur ráðuneytisins, fékk
nokkrum vikum áður. Hún vann að
smíði lagafrumvarps sem bannaði
að koma illa fengnu fé í umferð í
Sviss. f skýrslunni var fullyrt að
Shakarchi-fyrirtækið kæmi ágóða
af ólöglegri eiturlyfjasölu út um all-
an heim í umferð í Sviss. Schoop
frétti þetta og varaði Kopp við. Ráð-
herrann hringdi í eiginmann sinn og
hann sagði sig skyndilega úr stjórn
Shakarchis.
Áætluð mannfjölgun í heiminum:
Milljarður tO aldamóta
Manilu. Reuter.
AÐGERÐIR þær sem gripið hefur verið til í þeim tilgangi að draga
úr mannfjölgun hafa ekki skilað þeim árangri sem ætlað var. Afleið-
ingin kann að verða sú að lífskjör í þróunarríkjum fari enn versnandi.
Nafi Sadik, framkvæmdastjóri
Mannfjöldastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, segir fjölgunina
munu verða á bilinu 90 til 100 millj-
ónir manna á ári hveiju fram til
aldamóta, meiri en nokkru sinni
fyrr og mest í fátækustu þróun-
arríkjunum.
íbúar jarðarinnar eru nú 5,25
milljarðar. Haldi mannfjölgunin
áfram með þessum hraða munu
þeir verða 14 milljarðar í lok næstu
aldar.
Erfíðleikar í laxeldinu:
Gullaldarárin eru liðin og
ólíklegt að þau komi aftur
Mikið framboð hefur valdið því, að laxinn er kominn upp á hvers
manns disk og um leið minnkar svigrúmið til verðhækkana. Mynd-
in er frá laxaslátrun á Dalvík.
Á síðustu árum hefur verið
mikill uppgangur í laxeldinu
víða um heim en nú virðist sem
komið sé að nokkrum tímamót-
um og erfiðleikar framundan.
Þessi konungur meðal fiskanna
og áður eftirsótta sælkerafæða
flóir út úr öllum stórmörkuðum
og í fyrrasumar kom það fyrir
í fyrsta sinn, að heildsalar í
London og París seldu laxinn á
lægra verði en þorsk. Offram-
leiðslan hefúr valdið verðfalli
og verðfallið hefúr valdið gjald-
þroti fjölda fiskeldisfyrirtækja
og það virðist langt í land með,
að markaðurinn komist í jafíi-
vægi.
Skoskir laxeldismenn horfa
ekki björtum augum á nýbyij-
að ár enda lækkaði verðið til
þeirra um 30% í fyrra og gjald-
þrotunum fjölgaði að sama skapi.
Raunar er búist við, að á árinu
aukist framleiðslan í 35.000 tonn
úr 28.000 tonnum á síðasta ári
en samt hefur verið hætt við
margar áætlanir um nýjar og
stærri laxeldisstöðvar. Angus
Morgan, formaður í samtökum
laxeldismanna,
spáir því, að
laxeldisfram-
leiðslan í Skotl-
andi verði
komin í 50.000
tonn um alda-
mótin eða aukist aðeins um
15.000 tonn á heilum áratug.
Áætlað er, að framleiðsla
norsku laxeldisstöðvanna verði
um 150.000 tonn á þessu ári og
hafa Norðmenn á sinni hendi tvo
þriðju allrar framleiðslunnar í
Evrópu. Er Evrópubandalagið nú
að kanna hvort norsku framleið-
endumir hafí gerst sekir um und-
irboð og verði sú niðurstaðan má
búast við, að sérstakur refsitollur
verði settur á norskan lax. Norska
stjórnin hefur hins vegar brugðist
við þessu með því að ákveða, að
af áætlaðri 150.000 tonna fram-
leiðslu verði 40.000 tonn fryst til
að minnka framboðið.
Fyrir framleiðsluna á síðasta
ári fengu skoskir laxeldismenn
um 12-13 milljarða ísl. kr. en af
framleiðslunni, 28.000 tonnum,
voru 12.500 tonn flutt út, þar af
7.300 tonn til Frakklands, sem
er stærsti markaðurinn.
Þótt Norðmenn séu stórir í lax-
eldinu hafa þeir eins og kunnugt
er ekki farið varhluta af erfiðleik-
unum. Margar stöðvar hafa orðið
gjaldþrota og norskir laxeldis-
menn hafa á orði í fullri alvöru,
að það séu í raun bankamir, sem
stjórni at-
vinnugreininni.
Það er til dæm-
is að verða við-
tekin venja, að
bankarnir setji
það skilyrði
fyrir frekari fyrirgreiðslu við
skuldugar laxeldisstöðvar, að þær
kaupi seiðin frá seiðaeldisstöðv-
um, sem eru í viðskiptum við sömu
banka. Þetta hefur meðal annars
haft þær afleiðingar, að vel rekn-
ar seiðaeldisstöðvar hafa rriisst
mikil viðskipti yfir til þeirra, sem
em á framfæri bankanna. Veldur
það að sjálfsögðu mikilli óánægju
og em bankamir sakaðir um að
drepa niður heilbrigðan rekstur
með því að halda lífinu í fyrirtækj-
um, sem ættu að vera löngu dauð.
Laxeldið hefur verið að skjóta
rótum víða um heim og ekki síst
í Chile þar sem meira en 100 lax-
eldisstöðvar hafa verið stofnaðar
á síðustu fimm árum. Era aðstæð-
ur þar um flest afar hagstæðar.
Nóg er af silfurtæra vatninu ofan
úr Andesfjöllum, stöðuvötn mörg
og mikið framboð af ódýru fiski-
mjöli í fóður. Fyrsta laxeldisstöðin
var stofnuð fyrir 10 árum og
lengst af síðan hefur gangurinn
verið með ólíkindum. í fyrra vora
flutt út frá Chile 12.000 tonn,
helmingi meira en árið áður, og
áætlað er, að útflutningurinn, sem
er að langmestu leyti til Banda-
ríkjanna, verði kominn í 22.000
tonn 1992.
Verðfallið á heimsmarkaði hef-
ur nú breytt þessari mynd alln-
okkuð. Fyrir tveimur áram feng-
ust 420-480 kr. fyrir kílóið af lax-
inum í Bandaríkjunum en nú er
verðið á bilinu 300-330 kr. Chile-
menn vilja þó ekki enn sem kom-
ið er tala um neina kreppu en
viðurkenna, að hjá mörgum fram-
leiðendum standi reksturinn í
járnum.
Tímarnir eru sem sagt erfiðir
fyrir laxeldið um þessar mundir
þótt enginn efíst um, að það eigi
mikla framtíð fyrir sér. Mikil upp-
stokkun innan greinarinnar er
hins vegar óhjákvæmileg og afar
ólíklegt er, að það háa verð, sem
einu sinni fékkst fyrir laxinn,
komi nokkru sinni aftur. Árs-
neyslan í Japan er nú 300.000
tonn, í Evrópu 100.000 tonn og
50.000 tonn í Bandaríkjunum. I
Evrópu hefur hún aukist um 10%
á ári og í fyrra raunar um 28% í
Bretlandi einu. Laxinn er því kom-
inn á matseðilinn hjá öllum al-
menningi og hann er harður hús-
bóndi að því leyti, að hann bregst
einfaldlega við verðhækkunum
með því að hætta að kaupa vör-
una.
BAKSVID
eftir Svein Sigurðsson