Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
EFNI
Læknagarður:
Breytingar
voru ekki
samþykktar
BREYTINGAR á Lœknagarði,
húsi lækna- og tannlæknadeildar,
hafa ekki fengið samþykki bygg-
ingamefndar. Eúsið var teiknað
og samþykkt 1977 en breytt ári
síðar án samþykkis ncfndarinnar.
Gunnar H. Gunnarsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í byggingar-
nefnd, hefur lagt til að arkitekti
hússins, Garðari Halldórssyni,
húsameistara ríkisins, verði veitt
áminning.
Að sögn Hilmars Guðlaugssonar,
formanns byggingarnefndar,
var bætt við kjallara fyrir lagnir og
þakið hækkað. Verkfræðiteikningar
eru í samræmi við breytingarnar og
voru þær lagðar inn til byggingafull-
trúa. Embættið hefur síðan tekið út
og samþykkt ýmsa verkþætti sam-
kvæmt nýju teikningunum. Sagði
Hilmar að ekki væri ljóst hvernig
mistökin hefðu átt sér stað en málið
væri í athugun.
Milljón bollur bakaðar
Morgunblaðið/Þorkell
Bolludagurinn er á morgun og áætla bakarar að
um milljón bollur verði bakaðar fyrir daginn. Meðal-
verð á ijómabollum er nú 115 krónur, en það er
12-15% hækkun frá því í fyrra. Því má gera ráð
fyrir að landsmenn gæði sér á bollum fyrir rúmlega
hundrað milljónir króna. Landsmenn tóku forskot á
sæluna um helgina og var mikið að gera hjá þessum
stöllum í Suðurveri eins og í öðrum bakaríum.
Kristinn Pétursson um afla sem er fleygt:
Svef nvana sinna þeir
sjúklingunum
►Óheyrilegt vinnuálag lækna á
sjúkrahúsum/10
Framtíðarsýn
►Hvernig verður skipting Evrópu
árið2010?/12
Móðir Teresa á peysu-
fötum
►Um Ólafíu Jóhannsdóttur,
prestsdótturina frá íslandi sem
annaðist um dætur Oslóar fyrr á
öldinni og ein af götum borgarinn-
ar var nefnd eftir nýlega/14
Pagliacci og Carmina
Burana
►Umsögn um frumsýningu ís-
lensku óperunnar á föstudags-
kvöldið/16
Mannsmynd
►Einar J. Gíslason sem senn læt-
ur af starfi forstöðumanns Fílad-
elfíusafnaðarins í Reykjavík/18
Málið er of alvarlegt til að
það sé ekki rætt í hreinskilni
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-20
Híbýll/Garður
►Staðsetningar og val
ljósbúnaðar/22
„ÉG VÍSA dylgjum Sveins Hjartar um einhvern annarlegan tilgang
minn með þessari könnun út í hafsauga," sagði Kristinn Pétursson
alþingismaður er hann var spurður álits á ummælum Sveins Hjartar
Hjartarsonar hagfræðings Landssambands islenzkra útvegsmanna í
Morgunblaðinu í gær, þar sem hann sagðist harma að Kristinn fyndi
hjá sér hvöt til að „sverta sjómenn og útvegsmenn í þeim tilgangi að
ná sér niðri á kvótakerfínu með mjög svo vafasömum aðferðum". Á
hann þar við könnun, sem Kristinn fékk Skáís til að gera á því hve
miklum afla væri fleygt fyrir borð fiskiskipa.
Eg held að hagfræðingur LÍÚ
sé vísvitandi að reyna að
snúa út úr tilgangi þessarar könnun-
ar. Það hafa lengi gengið miklar
sögur um að menn séu í vandræðum
í þessu kvótakerfi vegna þess að það
er fullt af öngstrætum og blindgöt-
um. Menn neyðast til að fleygja físki
vegna þess hvað þröngsýni er mikil
í reglugerðum. Það er tvímælalaust
hagur LÍÚ, sjómanna og allrar þjóð-
arinnar að þetta mál sé rætt í hrein-
skilni," sagði Kristinn.
„Sjómenn, eins og ég þekki þá,
eru hreinskiptnir og heiðarlegir
menn og það kemur greinilega í Ijós
í þessari könnun. Ég held að þeir
ætlist til að fólk, sem vinnur að laga-
setningu um takmörkun á atvinnu-
frelsi manna, eins og er í þessu til-
felli, fjalli um málin af hreinskilni.
Ég lít á það sem skyldu mína að
koma hreint fram í þessu rnáli."
Kristinn sagði að tilgangur könn-
unarinnar væri einnig að reyna að
koma í veg fyrir sams konar hrun
fiskistofnanna og í Noregi, þar sem
minnstu bátamir fengju nú að vinna
níu tonn á ári, þeir stærstu 49 tonn
og togararnir 380 tonn af þorski.
„Þetta er kvótakerfið i Noregi. Ein-
hver viðkvæmni í hagfræðingi LÍÚ
og fleirum má ekki verða til þess
að hlutirnir séu ekki ræddir eins og
þeir eru. Til þess er málið of alvar-
legs eðlis," sagði Kristinn.
Hann sagði að gagnrýni Sveins
Hjartar á framkvæmd könnunarinn-
ar væri hæpin, hann segðist ekki
hafa séð forsendur hennar en væri
samt með alls konar dóma. „Skáís
er eitt virtasta fyrirtæki í svona
könnunum hérlendis, og mér er full-
kunnugt um að þar á bæ telja menn
þessa könnun vera með þeim merki-
legri og svörunina með því sterk-
asta, sem fengist hefur í skoðana-
könnunum hérlendis," sagði Kristinn
Pétursson.
Viðskipti með notaða bíla:
Veltan á íjórða tug milljarða í fyrra
EIGENDASKIPTI bíla hér á landi voru samkvæmt skrám Bifreiða-
skoðunar íslands hf. alls 57 þúsund í fyrra og hafði fjölgað úr
40 þúsundum 1988, eða um 42,5%. Nærri lætur að veltuaukning
hafi numið tíu milljörðum króna og heildarveltan í fyrra verið
eitthvað á fjórða tug milljarða króna.
Viðskipti með notaða bíla fara
fram með margvíslegum
hætti. í fyrsta lagi eru bílasölur
bílaumboðanna. í mörgum tilvik-
um kaupa umboðin bílana um leið
og þau selja nýja bíla, kallað að
taka upp í. Þá eru umboðin sjálf
seljendur not-
uðu bílanna og
taka ekki eig-
inleg umboðs-
laun fyrir,
heldur fá þau
sína umbun
með því að selja á hærra verði
en þau keyptu á.
í öðru lagi eru sjálfstæðir bíla-
salar, sem taka bíla í umboðssölu
og taka sölulaun fyrir. Þau eru-
almennt 2%, en þó eru frávik frá
því í báðar áttir. Annars vegar
er venjulega lágmark á sölulaun-
um, algengt 9 til 10 þúsund krón-
ur. Hins vegar er oft veittur af-
sláttur þegar um skipti er að
ræða og þá tekið 1 til 1,5% af
söluverðinu.
í þriðja lagi eru bílar seldir án
milliliða, tíðast með milligöngu
smáauglýsinga í dagblöðum. Loks
má nefna þann markað, þar sem
tryggingafélög selja tjónabfla sem
síðan eru gerðir upp og seldir.
Upplýsingar um hlutfall á milli
framangreindra viðskiptahátta
liggja ekki fyrir. Þegar rætt var
við bflasala
fengust þær
upplýsingar að
meðalverð bíla
er algengast á
bilinu 450 til
550 þúsund
krónur, en getur nálgast 600 þús-
und.
Miðað við 450 þúsund króna
meðalverð og tíðni eigendaskipta
í fyrra, hefur heildarveltan verið
um 26 milljarðar króna. Miðað við
hærri töluna, 550 þúsund, nálægt
31 milljarði. Árið áður voru eig-
endaskiptin um 40 þúsund og
bflarnir ódýrari í krónum talið.
Sé miðað við að meðalverð bílanna
hafi verið 400 til 500 þúsund
krónur, hefur heildarveltan það
ár verið 16 til 20 milljarðar króna.
Veltuaukningin því nálægt tíu
BAKSVIÐ
eftir Þórhall Jósepsson
Verslun með notaða bíla
Meðalverð notaðs bíls 450-550 þús.
Heildarvelta 26-31 rnllljarOar kr.
eða meira,;**
mwmllBÍl
Meðalverð no
blls 400-5001
Heildarvelta
16-20 milljar
kr„
1988
40.000
I 1988 j 1989
'— Fjöldi eigendaskipla
milljörðum.
Lágmarkssölulaun, 9.600 krón-
ur, um 12 þúsund með virðisauka-
skatti, þýða að sömu sölulaun eru
tekin fyrir bíla sem kosta allt að
480 þúsund krónum og þau
hækka síðan þegar billinn fer að
kosta meira en það.
Sé brugðið á leik með tölur og
reiknuð 9.600 króna sölulaun á
öll eigendaskipti í fyrra verður sú
upphæð liðlega 547 milljónir
króna. Bílasalarnir keppast um
að ná til sín viðskiptunum og þeg-
ar eigendaskiptum fjölgaði um 17
þúsund í fyrra virðast hafa skap-
ast skilyrði til íjölgunar í þeirri
stétt, að minnsta kosti hefur bíla-
sölum fjölgað eitthvað. Sjö eru
skráðar á höfuðborgarsvæðinu í
símaskrá 1989, sem ekki voru
1988. Hvort veltuaukningin er
næg til að bera þessa fjölgun á
eftir að koma í ljós, ef til vill helt-
ast einhverjir úr lestinni. Alls eru
bílasölur á höfuðborgarsvæðinu
rúmlega 30 talsins, að meðtöldum
bílasölum innflytjenda. Að auki
eru nokkrar starfandi á lands-
byggðinni. Nái bílasölurnar til sín
til dæmis 80% af heildarviðskipt-
unum, og ekki verði samdráttur,
hafa þær 1.100 til 1.500 eigenda-
skipti hver í sinn hlut að jafnaði.
Miðað við lágmarkssölulaun 9.600
krónur gæl'i það af sér 10 til 15
milljónir króna í hlut. Og, ekki
má gleyma, að ríkissjóður fengi
sitt. Væru greidd umboðslaun af
80% viðskiptanna, og jafnlíflegt á
markaðnum þetta ár og í fyrra,
fengi ríkissjóður um 110 milljónir
króna í virðisaukaskatt á sölu-
launin.
Suðurnesin
►Uppgangur í íbúðar-
byggingum/12
Smiðjan
►Bjarni Ólafsson fjallar að þessu
sinni um eldhúsið/2
Stef numót viA máttar-
stólpana
►Ýmsir af reyndustu leikurum
Þjóðleikhússins taka þátt í vænt-
anlegri sýningu þess, Stefnumót,
á næstunni, um svipað leyti og
haldið er hátíðlegt 40 ára afmæli
leikhússins. Morgunblaðið ræðir
af þessu tiiefni við fimm þeirra, —
Róbert Arnfinnsson, Rúrík Har-
aldsson, Herdísi Þorvaldsdóttur,
Bryndísi Pétursdóttur og Bessa
Bjarnason um gamla og nýja tíma
í leiklistinni./l
Með ísiendingum í
París
►Erna Ragnarsdóttir, innanhúss-
arkítekt í nýjum heimkynnum/6
Erlend hringsjá
►Hægribylgja í Rússlandi eykur
hættu á fasisma/12
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Myndasögur 20c
Dagbók 8 Brids 20c
Hugvekja 9 Stjörnuspá 20c
Leiðari 20 Skák 20c
Helgispjall 20 Minningar 21c
Reykjavlkurbréf 20 Kvikmyndir 22c
Minningar 22,32 Dægurtónlist 23c
Fólk i fréttum 34 Menningarstr. 24c
Konur 34 Bíó/dans 26c
Útvarp/sjónvarp 36 Velvakandi 28c
Gárur 39 Samsafnið 30c
Mannlífsstr. 8c Bakþankar 32c
Minningar
14c,17cFJjölmiðlarl8c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
11 " 1 l!" ,""*1 1 i i, ,