Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMI\iA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR';25. FEBRÚAR 1990
27
Vantar þig vinnu?
Vilt þú vinna við matvælaiðnað?
Upplýsingar í síma 53366.
Starfskraftur óskast
Lítið heildsölufyrirtæki óskar að ráða starfs-
kraft í lager-, sölu-, afgreiðslu-, útkeyrslu-
störf o.fl., eins og gengur í smærri fyrirtækj-
um.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 10. mars nk. merktar: „B - 8922“.
Reykjavík
Fræðslustjóri -
hjúkrunarfræðingur
Staða hjúkrunarfræðslustjóra Hrafnistu er
laus til umsóknar. Staðan er 50% starf en
möguleiki er á auknu vinnuhlutfalli í öðru
starfi.
Við leitum eftir áhugasömum hjúkrunar-
fræðingi með nám í uppeldis- og kennslu-
fræði, stjórnun eða öðrum sérgreinum
hjúkrunar. Kennslureynsla mjög æskileg.
Starfið felur í sér kennslu fyrir starfsfólk sem
vinnur að hjúkrun og heilsugæsiu. Áhersla
er lögð á undirbúning og framkvæmd fyrir
hjúkrunarskráningu og flokkunarkerfi fyrir
hjúkrunarþyngd. Framundan eru næg verk-
efni og spennandi uppbygging.
Umsóknarfrestur er til 20. mars.
Staða hjúkrunarfræðings á 23 manna hjúkr-
unardeild er laus nú þegar. Vinnutími er kl.
17.00-22.00 ca 5 daga vikunnar aðra hvora
viku.
Upplýsingar um stöðurnar veita ída Atladótt-
ir hjúkrunarforstjóri, í síma 35262 og Jónína
Nielsen hjúkrunarframkvæmdarstjóri, í síma
689500.
Dagvistarheimili
Mosfellsbæjar
Fóstrur óskast við dagheimilið Hlíð og leik-
skólann að Hlaðhömrum. Til greina koma
hlutastörf. Laun eru samkvæmt kjarasamn-
ingi Fóstrufélags íslands og launanefndar
sveitarfélaganna.
Umsóknum ásamt staðfestingu á skóla-
göngu og fyrri störfum skal skila á skrifstofu
félagsmálastjóra, Hlégarði, fyrir 17. mars
1990.
Allar frekari upplýsingar veitir félagsmála-
stjóri í síma 666218, forstöðumaður Hlíðar
í síma 667375 og forstöðumaður Hlaðhamra
í síma 666351.
Matráðskona óskast í fullt starf við dag-
heimilið Hlið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannafélags Mosfellsbæjar. Umsóknir
ásamt umsögn fyrri atvinnurekanda skal skila
á skrifstofu félagsmálastjórnar fyrir 17. mars
1990.
Allar frekari upplýsingar veitir félagsmála-
stjóri í síma 666218 og forstöðumaður Hlíðar
í síma 667375.
Félagsmálasjóri.
Starfskraftur
óskast í sérverslun frá kl. 13-18, og 10-14
annan hvern laugardag.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Verslun - 7645“, fyrir þriðjudags-
kvöld.
Innkaupastjóri
Starfssvi.ð er umsjón með innkaupamálum,
gerð sölu- og innkaupaáætlana, bréfaskriftir
og annað tilheyrandi.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi hald-
góða reynslu af innkaupamálum, svo og
góða enskukunnáttu. Viðkomandi þarf að
geta unnið sjálfstætt og skipulega. Kostur
er ef frönskukunnátta er einnig fyrir hendi.
Skrifstofumaður
Starfssvið er alhliða skrifstofustörf í tengsl-
um við innflutning svo og umsjón með tölvu-
málum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
góða þekkingu á bókhaldi, vanir alhliða skrif-
stofustörfum og vel að sér á sviði tölvumála.
Skilyrði er góð enskukunnátta.
Umsóknarfrestur vegna beggja ofan-
greindra starfa er til og með 2. mars nk.
Ráðningar verða sem fyrst.
Vinsamlega athugið að umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar eru eingöngu veittar
á skrifstofu Liðsauka hf. frá kl. 9.00-15.00.
ilt
Afleysmga- og rádningaþ/onusta
Lidsauki hf.
Skóla'’orðustig ta - 101 Fteyk/avik - Simi 621355
Verkefnisstjóri
Norræns
umhverfisárs
Norræna félagið á íslandi auglýsir eftir
starfsmanni í tímabundið starf. Aðalvið-
fangsefni starfsmannsins verður að veita
forstöðu „Norrænu umhverfisári" á íslandi
en auk þess mun-hann sinna öðrum verkefn-
um eftir því, sem aðstæður leyfa.
„Norræna umhverfisárið" sem er samvinnu-
verkefni norrænu félaganna á Norðurlönd-
um, Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, mun hefjast í júní 1990 og Ijúka
í júní 1991. Meginverkefni „Norræna um-
hverfisársins" er að veita fræðslu og vekja
umræður meðal almennings um umhverfis-
mál.
Starfsmaður sá, sem ráðinn verður, þarf að
hafa til að bera þekkingu á umhverfismálum,
reynslu í stjórnun og í almannatengslum,
vera vel að sér í í Norðurlandamálum og
geta starfað sjálfstætt.
Skriflegar umsóknir skal senda til Norræna
félagsins, Norræna húsinu, 101 Reykjavík
og skal í umsóknunum m.a. greina frá mennt-
un og starfsreynslu auk þess sem umsækj-
endur eru beðnir um að greina frá hugmynd-
um sínum um laun, en laun verða samkomu-
lagsatriði.
Umsóknarfrestur er til 11. mars nk. og er
reiknað með því að umsækjendur geti hafið
störf eigi síðar en 1. apríl 1990. Ráðning-
artími verður til loka júnímánaðar 1991.
Frekari upplýsingaf veitir framkvæmdastjóri
Norræna félagsins, Sighvatur Björgvinsson,
í símum 10165 og 73244 (heima).
Norræna félagið.
Rútupróf
Okkur vantar duglegan mann með rútupróf til
aksturs og verkstarfa. Æskilegur aldur 25-35
ára. Góð laun í boði fyrir duglegan mann.
Umsóknir er greini frá aldri og fyrri störfum
skilist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 27. febr-
úar merktar: „Rútupróf - 12007“.
Austurlenskur matur
Kokkur óskast sem fyrst til að elda m.a.
austurlenskan mat. Góð vinnuaðstaða. Ekki
vaktavinna.
Lysthafendur vinsamlegast leggið -inn nafn
og símanúmer, fyrir miðvikudaginn 28 febr.,
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Góður kokkur
- 8068“.
ALAFOSS
Framkvæmdastjóri
-framleiðslu
Álafoss hf. óskar að ráða framkvæmda-
stjóra framleiðslu til starfa. Um nýja stöðu
er að ræða, sem er hluti af skipulagsbreyting-
um og endurskoðun rekstrar.
Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru
fatnaður, værðarvoðir, áklæði, ýmsar band-
tegundir, bæði til iðnaðar og handprjóns,
ásamt þveginni ull.
Álafoss hf. rekur fjórar aðskildar verksmiðj-
ur, á Akureyri, í Hveragerði og í Mosfellsbæ,
með um 400 manns á launaskrá. Yfir 80%
af framleiðsluvörum fyrirtækisins eru seldar
á erlendum mörkuðum í 15 löndum, þar af
til fjögurra dótturfyrirtækja erlendis.
Álafoss hf. á í mikilli samkeppni við framleið-
endur erlendis, þar sem margir búa við mun
lægri rekstrarkostnað. Samkeppni Álafoss
hf. einskorðast ekki við vöru- og framleiðslu-
kostnað, einnig og ekki síður hæfni stjórn-
enda og þjónustu fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri framleiðslu heyrir beint
undir forstjóra og er honum/henni ætlað
mikilvægt hlutverk í rekstri fyrirtækisins.
Helstu starfssvið eru:
★ Framleiðslustjórnun með yfirsýn yfir allar
framleiðsludeildir. Hinar mismunandi
framleiðslueiningar lúta daglegri stjörn
verksmiðjustjóra.
★ Upplýsingaöflun og greining upplýsinga
frá sölukerfum (spámódel).
★ Vörustjórnun (logistics) á aðföngum og
framleiðsluvörum.
Æskileg menntun er verkfræði, rekstrar-
tækni, viðskiptafræði á framleiðslusviði eða
önnur sambærileg menntun. A.m.k. þriggja
ára starfsreynsla æskileg ásamt tungumála-
kunnáttu.
Framkvæmdastjóri framleiðslu á kost á því
að starfa hvort heldur er á Akureyri eða í
Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Álafoss hf. (55)“, fyrir 10. mars nk.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir